Morgunblaðið - 27.06.2015, Side 52
LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 178. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 790 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Sjö Kaupþingsmenn sakfelldir
2. „Þau stunduðu kynlíf 4 sinnum í viku“
3. Að minnsta kosti 27 látnir
4. Ásdís Rán kosin kynþokkafyllst…
Fley tríó, tríó píanóleikarans Egils
B. Hreinssonar, heldur tónleika í dag
kl. 15 á Jómfrúartorgi veitingastað-
arins Jómfrúarinnar við Lækjargötu.
Auk Egils skipa tríóið Gunnar Hrafns-
son á kontrabassa og Kjartan Guðna-
son á trommur og sérstakur gestur
verður sonur Egils, söngvarinn Högni
Egilsson, sem þekktastur er sem liðs-
maður hljómsveitanna Hjaltalín og
Gus Gus. Högni mun syngja klass-
ískar djassperlur, m.a. eftir Billy
Strayhorn og Duke Ellington.
Morgunblaðið/Eggert
Feðgarnir Högni og
Egill á Jómfrúnni
Helena Guttormsdóttir myndlistar-
maður stýrir tveimur listasmiðjum á
lóð Listasafns Árnesinga í dag kl. 10-
12 og 14-16. Þátttaka er ókeypis og
eru smiðjurnar hugsaðar fyrir börn á
öllum aldri og gjarnan fjölskyldur þar
sem unnið verður með efnivið sem er
á staðnum og fenginn úr náttúrunni í
og við Hveragerði.
Á morgun kl. 15 mun Inga Jóns-
dóttir safnstjóri ganga með gestum
um sýningarnar Geymar og Flassbakk
þar sem sjá má hvernig Sirra Sigrún
Sigurðardóttir veltir fyrir sér ólíkum
viðfangsefnum sem snerta mannlega
tilvist og þróar verk sín út frá því. Á
sýningunni Flassbakk fékk Sirra að
velja saman verk úr safneign Lista-
safns Árnesinga, sem
kalla fram endurminn-
ingar frá Selfossi þar
sem hún ólst upp og
safnið var fyrst stað-
sett ásamt Byggðasafni
Árnesinga og nátt-
úrugripadeild þess.
Smiðjur og leiðsögn í
Listasafni Árnesinga
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt, 5-10 m/s en 13-18 syðst. Yfirleitt bjart veður nyrðra
og vestra en súld eða rigning um landið suðaustanvert. Hiti 8 til 20 stig.
Á sunnudag Austan og norðaustan 5-10 m/s en 10-15 með suðausturströndinni og allra
syðst á landinu. Bjart með köflum á Vestur- og Norðurlandi og hiti 12-19 stig en rigning
eða súld suðaustan- og austantil og hiti 8-12 stig. Á mánudag Norðaustan 5-10 m/s og
bjartviðri suðvestan- og vestanlands, annars skýjað og rigning með köflum eystra.
„Á Íslandi endurheimti ég ástríðuna fyr-
ir fótboltanum. Þegar ég kom þangað
var ég ekki viss hvort ég vildi leggja fót-
boltann fyrir mig eða ekki, svo ég þurfti
hálfpartinn að finna sjálfan mig. Ég
gerði það svo sannarlega og ég hugsa
alltaf um dvölina á Íslandi sem eina af
mínum bestu stundum,“ segir danski
knattspyrnumaðurinn Alexander Scholz
í viðtali við Morgunblaðið. »4
Ég endurheimti
ástríðuna á Íslandi
Eftir þrjá tapleiki á heima-
velli í röð innbyrtu Fylkis-
menn loks sigur þegar þeir
lögðu Víkinga, 1:0, í fyrsta
leik 10. umferðar í Pepsi-
deild karla í knattspyrnu í
gærkvöld. Allt stefndi í
markalaust jafntefli
en í uppbótartíma
skoraði varamaðurinn
Ásgeir Örn Arnþórs-
son sigurmark leiks-
ins. »3
Dýrmæt þrjú stig í
safnið hjá Fylki
Japan er með skemmtilegasta liðið á
heimsmeistaramóti kvenna í fót-
bolta. Ástralir hafa ekki látið mikið
fara fyrir sér. Kanada og
England eru með keimlík
lið sem spila einfaldan
fótbolta. Edda Garðars-
dóttir spáir í spilin fyrir
tvo seinni leikina í
átta liða úrslit-
unum sem fram
fara í Kanada í
kvöld. »2
Japan er með skemmti-
legasta liðið á HM
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Hvað haft er í öndvegi í hverju
byggðasafni ræðst mikið af stað-
háttum í hverri byggð og svo áhuga-
sviði þeirra sem munum safna og
halda sögunni til haga,“ segir Inga
Hlín Valdimarsdóttir.
Nú á vordögum tók Inga Hlín við
forstöðu Minjasafns Egils Ólafs-
sonar á Hnjóti í Örlygshöfn við Pat-
reksfjörð. Starfsemin þar er reist á
gömlum merg; starfi Egils sem
fæddist 1925 og lést 1999. Aðeins
tólf ára gamall fór hann að safna
gömlum og góðum gripum, sem urðu
efniviðurinn í því merkilega safni
sem hann kom upp.
Dhoon og Sargon
„Hér er því sögð saga héraðsins
en ekki síður endurspeglar þetta
hugmyndir Egils, sem sjálfur setti
safnið upp. Því er mikilvægt að það
fái að halda sínum svip, þó svo að ný-
ir þættir bætist við starfsemina
hér,“ segir Inga Hlín. Hún er forn-
leifafræðingur að mennt og stundar
nú meistaranám í safnafræðum við
Háskóla Íslands. Þau Óskar Leifur
Arnarsson, sambýlismaður hennar,
sem einnig er fornleifafræðingur,
hikuðu því ekki þegar starf safn-
varðar á Hnjóti var auglýst.
Sögulegir atburðir urðu fyrir
vestan í desember 1947 þegar breski
togarinn Dhoon strandaði undir
Látrabjargi. Mönnum á svæðinu
tókst að bjarga meginþorra skip-
verja, tólf af fimmtán.
Ári seinna strandaði togarinn
Sargon undir Hafnarmúla við Pat-
reksfjörð. Þar björguðust fimm
menn en ellefu fórust. Þegar það
gerðist var Óskar Gíslason ljós-
myndari einmitt fyrir vestan að afla
efnis í kvikmynd um björgunar-
afrekið árið áður – og gat hann því
myndað einstæðan atburð – nánast
endurtekinn. Hann tók einnig ljós-
myndir af björgunarmönnum sem
verða sýndar á Hnjóti í sumar. „At-
burður þessi og frásagnir af honum
vekja alltaf mikla athygli, til dæmis
meðal breskra ferðamanna sem
hingað koma, sem sumir hafa heyrt
um þennan atburð. Hér er mikil um-
ferð á sumrin enda liggur leiðin út á
Látrabjarg hér um bæjarhlaðið.“
Áhuginn vaknaði fljótt
Inga Hlín Valdimarsdóttir er frá
Selfossi. „Áhugi á sögu og gömlum
minjum vaknaði fljótt,“ segir safn-
vörðurinn, sem vann um tíma í
Byggðasafni Árnesinga á Eyrar-
bakka. Þar eru verslunarsaga og
sveitalífið í öndvegi – allt aðrir þætt-
ir en á Hnjóti, þar sem sjósókn og
saga hennar eru áberandi. „Þetta er
eðlilegt. Söfn eiga alltaf að endur-
spegla nærumhverfið og sögu þess,“
segir Inga Hlín.
Söfnin endurspegli umhverfið
Sest að á sögu-
setrinu í Örlygs-
höfninni vestra
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vestfirðir Inga Hlín Valdimarsdóttir og Óskar Leifur Arnarsson. Í baksýn er mynd frá miklu björgunarafreki.
Á Hnjóti er flugminjasafn sem
Egill Ólafsson stofnaði til, en
hann var lengi umsjónarmaður á
Patreksfjarðarflugvelli og leið-
beindi flugmönnum sem þar
komu inn til lendingar við oft erf-
ið skilyrði. Minjasafnið og flug-
safnið eru aðskildar stofnanir, en
hinu síðarnefnda hafa áskotnast
margir merkir munir, svo sem
gömul flugvallarhús, rússnesk
flugvél og undir vegg er í
geymslu gamall Douglas DC-3
kominn frá Varnarliðinu á Kefla-
víkurflugvelli og merktur Banda-
ríkjaher. Allt vitnar þetta um
merka sögu, en margir hafa ein-
mitt lagt sig eftir því að safna
munum tengdum flugi og eru
söfn því tengd á nokkrum stöð-
um á landinu.
Flugminjar sýndar á Hnjóti
BREIÐFIRSK GOLA OG BANDARÍSK FLUGVÉL