Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Page 15
fréttir 10. júlí 2009 föstudagur 15
Opnunartímar Mánud. til Laugard. 10 - 18 Sunnudaga 12 - 17
FAXAFEN 8 OUTLET CENTER
KOMDU, SJÁÐU OG SPÁÐU Í VERÐIÐ...
Sími: 5684892 klinkid@klinkid.is
“Chateau”
hvítvínsglös
2 í pakka
Mjög góð gæði
799,-
“Disney”
Hnakkapúði
fyrir litlu elskurnar
flottur í fríið
699,-
Wipe-A-Way
Góð og rakadræg
pappírsrúlla
Flott í fríið
299,-
Kók í dós 0,33 ml. 12 stk. 749,- Speedo sundgleraugu 399,-
Fullt af barnaleikföngum á frábæru verði
Golfkylfur frá 1.999,-
Golfkúlur Tommy Armour/Penn/Diamond Tek verð frá 99,-
Golf”TEE” 100 stk. 199,-
Minnum á hreinlætisvöruna FRÁBÆR VERÐ
“Spalding”
Körfubolti
úti og inn
1.999,-
“Dunlop”
Fótbolti 1.499,-
Strandblak-
og strandfótbolti
999,-
Garðluktir
2 saman
Stór 62 cm
Lítil 42 cm
3499,-
Gísli Þór Reynisson:
Með d’Angleterre
í hnAppAgAtinu
Gísli Þór Reynisson starfaði að-
allega í Eystrasaltslöndunum
og í Austur-Evrópu og var í hópi
auðugustu manna Íslands. Gísli
lauk doktorsprófi í hagfræði frá
Tampere-háskólanum í Finn-
landi, en viðskipti heilluðu frek-
ar en fræðistörf. Hann átti meiri-
hluta í félaginu Nordic Partners
sem hann stofnaði ásamt Lett-
anum Daumants Vitols. Félagið
á miklar eignir bæði hér á landi
og erlendis. Rósin í hnappagati
Gísla var án efa d’Angleterre-
hótelið í Kaupmannahöfn, sem
hann festi kaup á árið 2007. Fé-
lög tengd honum áttu Fiskisögu-
verslanirnar, Ostabúðina, Gall-
erý Kjöt og einkaþotuleiguna
Icejet. Þá átti hann einnig við-
skiptagarða og stórar fasteign-
ir víða um Lettland. Auk þess
voru fyrirtæki í hans eigu mjög
umfangsmikil í drykkja- og mat-
vælaframleiðslu. Árið 2007 voru
eignir Gísla metnar á 35 millj-
arða króna, en í Markaðnum
árið 2008 voru þær sagðar 60
milljarðar króna.
Gísli Þór lést í apríl á þessu
ári eftir skammvinn veikindi, 43
ára gamall.
Árni Oddur Þórðarson og Þórður Magnússon:
Best heppnAðA
útrásin
Feðgarnir Árni Oddur Þórðarson
og Þórður Magnússon eru taldir
hafa staðið sig best allra Íslend-
inga í útrásinni. Árni Oddur er
talinn vera hugmyndasmiðurinn
að útrás Össurar og Marels. Árni
Oddur og Þórður eiga 38 prósent
í félaginu Eyrir Invest. Eyrir Invest
á 38 prósent í Marel og er stærsti
hluthafi félagsins. Árni Oddur er
stjórnarformaður Marels. Eyrir
Invest á 20 prósent í stoðtækja-
framleiðandanum Össuri. Þórður
situr í stjórn Össurar og er vara-
formaður hennar. Árið 2000 stofn-
uðu feðgarnir fjárfestingafélagið
Gildingu. Stofnhlutafé félagsins
var 3,5 milljarðar íslenskra króna.
Þórður var fjármálastjóri Eim-
skips í 20 ár áður en hann stofnaði
Gildingu. Árni Oddur var aðstoð-
arframkvæmdastjóri markaðs- og
fyrirtækjaráðgjafar Búnaðarbank-
ans þegar Gilding var stofnað. Við
stofnun Gildingar gengu reynd-
ir starfsmenn frá Búnaðarbank-
anum og Kaupþingi til liðs við þá
feðga. Gilding átti fjögur prósent í
Baugi og var eitt af þeim félögum
sem tók þátt í kaupum Baugs á
bresku verslanakeðjunni Arcadia
árið 2001.
Árið 2000 fór Össur í fyrstu fyr-
irtækjakaupin og hefur frá þeim
tíma yfirtekið 13 erlend fyrirtæki
og borgað fyrir þau um 40 millj-
arða íslenskra króna. Marel var
stofnað árið 1983. Fyrsta útrás
fyrirtækisins var kaup félagsins á
danska fyrirtækinu Carnitech árið
1997. Árið 2008 gekk Marel síðan
frá stærstu kaupum sínum þegar
það yfirtók hollenska matvælafyr-
irtækið Stork fyrir 39 milljarða ís-
lenskra króna.
Karl og Steingrímur Wernerssynir:
Byggðu á lyfjA-
grunni föðurins
Bræðurnir Karl og Steingrím-
ur Wernerssynir eru synir Wern-
ers Rassmussen, sem auðgað-
ist vel sem einn umsvifamesti
lyfsali landsins. Grunnurinn að
veldi bræðranna var því reistur
af föður þeirra. Eftir að Karl tók
við fjárfestingum fjölskyldunnar
réðust þeir í gríðarlegar fjárfest-
ingar. Milestone varð til og hóf
að kaupa hluti í Lyfjum & heilsu,
sem áður hafði keypt fjölskyldu-
fyrirtækið Ingólfsapótek. Bræð-
urnir eignuðust Lyf & heilsu að
fullu og keyptu það út úr Miles-
tone á síðasta ári.
Þeir réðust í mikla útrás í Sví-
þjóð og keyptu sænska trygginga-
félagið Moderna, en rekstur þess
hefur verið yfirtekinn af sænska
fjármálaeftirlitinu. Heildareign-
ir Moderna námu um 430 millj-
örðum króna. Þeir keyptu sænska
fjármálafyrirtækið Invik fyrir 70
milljarða króna árið 2007
í gegnum félagið Lífsval hef-
ur Karl verið stórtækur kaupandi
jarða víðs vegar um landið. Hann
á meðal annars hrossabúið Fet á
Suðurlandi sem hann keypti fyrir
mörg hundruð milljónir króna.
Stærstu eignir þeirra á Íslandi
voru tryggingafélagið Sjóvá, Ask-
ar Capital og fjármögnunarfyrir-
tækið Avant. Árið 2008 mat Mark-
aðurinn, fylgiblað Fréttablaðsins,
auðævi þeirra bræðra á um það
bil 100 milljarða króna. Miles-
tone sætir nú rannsókn fyrir að
hafa veðsett bótasjóð Sjóvár en
bræðurnir keyptu Sjóvá af Ís-
landsbanka árið 2005.
NÝJUSTU
FRÉTTIRNAR
NÝJUSTU
FRÉTTIRNAR