Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Síða 20
20 föstudagur 10. júlí 2009 fréttir
Á meðan hið meinta góðæri var
í hámarki var það fullt starf að
skipuleggja skemmtidagskrár
fjármálafyrirtækja og því þurfti að
ráða fólk í fullt starf við að halda
utan um veislur og velgjörðir til
góðra viðskiptavina. Hjá Glitni
var ekki aðeins einn starfsmaður í
deildinni, heldur voru þeir þegar
mest lét átta talsins og er ekki vit-
að til að nokkur annar banki eða
fjárfestingafélag hér á landi hafi
gert betur. Meðal starfsmanna
voru Sigrún Kjartansdóttir, sem
var yfir deildinni, Arnar Fannar,
sem margir kannast við úr hljóm-
sveitinni Skítamóral og Jón Jósep
Sæbjörnsson, betur þekktur sem
Jónsi í Í svörtum fötum.
Jónsi var ágæt fjárfesting
„Ég var að fara með reikning til Glitn-
is einn daginn og fékk vinnu í leið-
inni, var ráðinn í tímabundin verk-
efni hjá viðburðadeildinni. Það var
frábær tími og mikil reynsla og hver
veit nema ég snúi mér aftur að slík-
um verkefnum seinna.“ Þannig lýsti
Jónsi því hvernig hann hóf störf í
viðburðadeildinni í viðtali við Sirrý
í helgarblaði DV 15. ágúst 2008. Þó
að ráðning af þessu tagi þætti ef-
laust undarleg í dag má færa góð rök
fyrir því að Jónsi hafi verið ódýrasti
starfsmaður viðburðadeildarinn-
ar, þar sem hann var mikið notaður
í að troða upp. Einn heimildarmað-
ur, sem þekkir vel til í fjármálageir-
anum, orðar það svo: „Jónsi var
allavega ekki bara notaður í að skipu-
leggja partí, hann vann líka í partíun-
um sjálfum, þannig að hann var lík-
lega ágætis fjárfesting.“
Fokdýr ferð til New York
Besta afkoma Glitnis var árið 2006,
þegar hagnaðurinn náði rúmum
38 milljörðum króna. Þá þegar var
ýmislegt brallað í bankanum til að
halda upp á velgengnina, en það
var ekki fyrr en árið eftir, 2007, sem
partístandið byrjaði fyrir alvöru.
Viðburðadeild Glitnis sat ekki auð-
um höndum og bankinn hélt til að
mynda mikið af alls konar minni-
háttar veislum og var drjúg við að
bjóða í ferðir, auk venjulegra árshá-
tíða og starfsmannaskemmtana.
En svo voru það stóru viðburð-
irnir. Það er kannski kaldhæðnislegt
að tveir af dýrustu viðburðum í sögu
Glitnis voru haldnir eftir að lausafjár-
krísan hafði skollið á, haustið 2007.
Þegar viðvörunarljósin voru byrjuð
að blikka og flest benti til að rétt væri
að draga saman seglin var allt keyrt
á fulla ferð. Annar viðburðurinn var
ferð Glitnis til New York í septem-
ber 2007. Þar hófst orkuútrás bank-
ans formlega og tilstandið var mikið.
Í ferðinni var meðal annarra Jónsi,
sem spilaði sjálfur fyr-
ir gesti Glitnis seint að
nóttu fyrsta ferðadags.
Svo var pantaður nífald-
ur Grammy-verðlaunahafi,
djasstónlistarmaðurinn
Winton Marsalis, sem al-
mennt er talinn einn sá
færasti sem litið hefur
dagsins ljós undan-
farna áratugi. Auk
þessa var svo minni
fjárhæðum bruðlað í
undarlegustu hluti.
,,Við opnun útibúsins í New
York voru dregin upp níð-
þung og risastór gullhúðuð
skæri með Glitnismerkinu og
Glitnislitunum á. Þessi skæri
notuðu svo yfirmennirnir til að
klippa á einn borða. Þegar spurt
var hvort þessi skæri yrðu ein-
hvern tíma notuð aftur var fátt um
svör,“ segir einn heimildar-
maður sem var í ferð-
inni. Heimildar-
menn DV
segja
að
SÖLVI TRYGGVASON
blaðamaður skrifar
Glitnisfólki fannst
fúlt að f ekki elton
Heimildarmenn DV segja að lagt hafi verið hart
að viðburðadeildinni að fá Elton John til að spila
á samkomunni en það hafi ekki tekist.
Elton John í fimmtugsafmæli, Duran Duran í nýárspartíi, skoskir kastalar og einka-
þotur. Það var margt brallað í bönkum og fjárfestingafélögum þegar allt lék í lyndi
á Íslandi. Til marks um partístandið og íburðinn þurfti að ráða sérstakan viðburða-
stjóra, eða ,,event manager“ hjá þeim sem einhvers máttu sín. Kappið var svo mikið í
veislustandinu hjá Glitni að viðburðadeildin gaf ekkert eftir þegar viðvörunarljósin
fóru að kvikna árið 2007.
Lárus Welding Lét sig ekki vanta
þegar Glitnisfólkið djammaði á
Skotlandi í áberandi glæsilegri
ferð árið 2007 þar sem horft var á
diskóljós frekar en viðvörunarljós.
Jónsi Er hress og
duglegur og þótti því
prýðileg fjárfesting
fyrir viðburðadeild
Glitnis.
Elton John Topparnir hjá Glitni
vildu endilega fá góðærispoppar-
ann Elton John til að spila fyrir sig á
dansleik í Skotlandi og brugðust illa
við því að ekki var orðið við óskinni.
Birna Einarsdóttir Birna, sem varð bankastjóri
Glitnis eftir hrun, var með í Skotlandsferðinni en þá
dvaldi Glitnisfólkið á hóteli þar sem nóttin kostaði 70
þúsund krónur á gengi dagsins í dag.