Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Side 21
New York-ferðin hafi slegið öllu við
hjá viðburðadeildinni í kostnaði.
Einn orðar það svo: ,,Ferðin til New
York var ekki bara dýr, heldur rán-
dýr. Hún kostaði meira en 100 millj-
ónir og líklega slagaði hún vel upp í
200 milljónir.“
Ferðin til Turnberry
Auk ferðarinnar til New York í
september var í október farið
í ferð með lykilstarfsmenn
bankans til Skotlands. Ólíkt
ferðinni til New York voru
þarna aðeins starfsmenn
bankans, en ekki viðskipta-
vinir. Í ferðinni átti að fara
fram stefnumótun um
framtíð bankans, þar sem
lagt var á ráðin um frek-
ari stórvirki á erlendri
grundu, auk hefðbund-
innar bankastarfsemi
heima fyrir. Ekki var flogið
með áætlunarflugi, held-
ur var leigð sérstök
vél und-
ir
hópinn, sem samanstóð af toppum
bankans, millistjórnendum og öll-
um þeim sem meira máttu sín innan
Glitnis á þessum tíma. Meðal ferða-
langanna voru Lárus Welding, þáver-
andi for- stjóri Glitnis, og Birna
Einarsdóttir sem
varð banka-
stjóri
bank-
ans
eftir hrunið í haust. Þegar til Skot-
lands kom var haldið rakleitt á gam-
alt kastalasvæði í Turnberry. Staður-
inn þykir einn sá flottasti í Skotlandi
og er meðal annars vel þekktur innan
golfheimsins. Ekki væsti um starfs-
mennina, enda kostar nóttin á Turn-
berry Resort um 300 pund, eða nærri
70 þúsund krónur á gengi dagsins í
dag.
Áminnt fyrir að
ná ekki Elton John
Einn aðalviðburðurinn var svo dans-
leikur, eins og yfirleitt var vaninn í
svona ferðum. Í þetta skiptið voru
tónlistarmennirnir ekki frægir, þó að
vissulega hafi þeir kunnað sitt fag.
Heimildarmenn DV segja að lagt hafi
verið hart að viðburðadeildinni að fá
Elton John til að spila á samkomunni,
en það hafi ekki tekist. Yfirmaður
viðburðadeildarinnar fékk skömm í
hattinn fyrir að hafa ekki náð í „alvöru
nafn“ eins og einn heimildarmað-
ur DV orðar það og voru yfirmenn
bankans ekki sáttir við stjörnuskort-
inn, enda samkoman að öllu öðru
leyti með fínasta móti. Þannig var
til að mynda búið að innrétta stað-
inn með sérkeyptum húsgögnum.
„Toppurinn var svo rauður leðursófi
sem var búið að koma fyrir á áber-
andi stað, svo að það færi nú ekki
framhjá neinum að þarna
væri Glitnir mættur. Þeir sem ekki
voru vanir svona tilstandi hneyksl-
uðust á þessu og spurðu hvers kon-
ar vitleysa þetta væri eiginlega,“ seg-
ir einn heimildarmaður. Ferðin stóð
í tvo daga og að henni lokinni voru
ferðalangarnir leystir út með dýrind-
is gjöfum, eins og var orðin hálfgerð
regla þegar þarna var komið sögu.
Rekinn fyrir ólæti í laxveiðiferð
Heimildarmenn Glitnis segja ferð-
ina til Skotlands hafa verið íburð-
armesta viðburð sem starfsmönn-
um var boðið í, en fullyrða að mun
betur hafi verið gert við stóra kúnna
bankans. En það getur verið hættu-
legt að dvelja í of miklum vellysting-
um fyrir þá sem ekki kunna sér hóf.
Það fékk einn starfsmaður viðburða-
deildarinnar að reyna þetta sama ár.
Honum var þá boðið í laxveiðiferð
til Rússlands af auglýsingastofu sem
hafði skipt við Glitni. Ekki vildi betur
til en svo að viðkomandi starfsmaður
lét öllum illum látum í ferðinni, svo
mjög að auglýsingastofan sendi frá
sér tilkynningu um að starfsmönnum
Glitnis yrði aldrei aftur boðið í ferðir
á vegum fyrirtækisins. Starfsmann-
inum var í kjölfarið sagt upp störfum
hjá viðburðadeildinni. Þarna hefur
kannski einhverjum verið orðið ljóst
að partístandið væri komið út í öfgar,
enda molnaði smám saman undan
viðburðadeildinni upp frá þessu.
Kostnaðaráætlunin tífaldaðist
Heimildarmenn DV segja að
kostnaðaráætlun viðburða-
deildarinnar hafi kolsprungið
árið 2007. Í raun svo svaka-
lega að endanlegur kostn-
aður fyrir árið hafi verið
tíu sinnum meiri en gert
var ráð fyrir. Þar hafi þó
ekki verið við starfsmenn
deildarinnar að sakast,
því að yfirmenn bankans
hafi gefið fyrirmæli um
flesta stóra viðburði. Kostn-
aður deildarinnar fyrir árið
2007 var samkvæmt heim-
ildum nálægt einum milljarði
króna. Líklega er þess langt að
bíða að íslenskt fyrirtæki komi
til með að eyða viðlíka upp-
hæðum í skemmtanir
og boðsferðir á einu
ári.
fréttir 10. júlí 2009 föstudagur 21
Glitnisfólki fannst
fúlt að fá ekki l o
Jónsi Er hress og
duglegur og þótti því
prýðileg fjárfesting
fyrir viðburðadeild
Glitnis.
Elton John Topparnir hjá Glitni
vildu endilega fá góðærispoppar-
ann Elton John til að spila fyrir sig á
dansleik í Skotlandi og brugðust illa
við því að ekki var orðið við óskinni.
Birna Einarsdóttir Birna, sem varð bankastjóri
Glitnis eftir hrun, var með í Skotlandsferðinni en þá
dvaldi Glitnisfólkið á hóteli þar sem nóttin kostaði 70
þúsund krónur á gengi dagsins í dag.