Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Qupperneq 22
22 föstudagur 10. júlí 2009 fréttir
Menn úr S-hópnum svonefnda
reyna ásamt nokkrum öðrum hlut-
höfum að halda undirtökunum
í Geysi Green Energy, jafnvel án
samráðs við æðstu stjórnendur Ís-
landsbanka, sem með réttu ættu
að fara með meirihlutavald í félag-
inu eftir bankahrunið. Samkvæmt
heimildum DV var ekki haft sam-
ráð við bankaráð Íslandsbanka um
væntanleg kaup Geysis Green En-
ergy á HS Orku af Reykjanesbæ.
Kanadíska orkufyrirtækið
Magma Energy hyggst kaupa nærri
11 prósenta hlut í HS Orku af GGE
og hefur lýst áhuga á hlut Reykja-
nesbæjar og Orkuveitu Reykjavíkur
í félaginu. Gangi kaupin eftir verð-
ur HS Orka nær algerlega í eigu
kanadíska félagsins og GGE.
Feðgar tengja
bankann og Atorku
Stærstu eigendur GGE eru eignar-
halds- og fjárfestingafélagið Atorka
með 41 prósents hlut í félaginu.
Atorka fékk nýverið framlengda
greiðslustöðvun til næstu þriggja
mánaða vegna bágrar stöðu félaga
í eigu þess. Langstærsti eigandi At-
orku er Þorsteinn Vilhelmsson, en
krosseignatengd félög í hans eigu,
svo sem Skessa, Harðbakur og Rán-
arborg, eiga samanlagt ráðandi
hlut í félaginu. Ein ástæða þess að
Atorka hefur fengið greiðslustöðv-
un er slök staða GGE. Svo vill til
að Þorsteinn Vilhelmsson á hauk í
horni innan Íslandsbanka, því Vil-
helm Þorsteinsson, sonur hans, er
forstöðumaður fyrirtækjasviðs Ís-
landsbanka og getur því hæglega
verið í stöðu til þess að hafa afskipti
af afdrifum og eignarhaldi á GGE.
Þess ber að geta að Þorsteinn Vil-
helmsson á sæti í stjórn GGE ásamt
Magnúsi Jónssyni, forstjóra Atorku.
Vald Íslandsbanka yfir GGE
helgast af því að bankinn er nær
jafnstór hluthafi í GGE og Atorka
og á 40 prósenta hlut í nafni Glac-
ier Renewable Energy Fund. Sá
hlutur var áður að miklu leyti eign
FL-Group og þar með Hannesar
Smárasonar, sem var stjórnarfor-
maður GGE á uppvaxtarárum fé-
lagsins.
Vald Íslandsbanka yfir Geysi
Green Energy helgast ekki síður af
því að félagið skuldar bankanum
á þriðja tug milljarða króna sam-
kvæmt heimildum. Samkvæmt
heimildum DV eru skuldir GGE í
bankanum talsvert áhyggjuefni,
enda er bankinn nánast með félag-
ið allt í fanginu um þessar mund-
ir. Eigið fé GGE var hæst metið
á um 17 milljarða króna. Á þeim
tíma voru eignir orkuútrásarfyr-
irtækisins metnar á 60 til 70 millj-
arða króna. Samkvæmt nýlegu mati
KPMG var eigið fé félagsins hins
vegar metið um 670 milljónir króna
og því aðeins um 4 prósent af verð-
mætinu þegar best lét.
Rétt er að geta þess að Ólafur Jó-
hann Ólafsson er stjórnarformað-
ur GGE, búsettur í Bandaríkjun-
um. Ekki er vitað hvernig eða hvort
hann tengist fjárfestahópum hér á
landi. Þá er mjög óljóst hver staða
Adams Wolfensohn er í stjórn GGE
og jafnvel ekki ljóst hvort hann
tengist félaginu ennþá.
S-hópurinn á fullu
Þriðji stærsti hluthafinn í Geysi
Green Energy er Mannvit eða VGK-
Invest með 9 prósenta hlut. Eign-
arhaldið á Mannviti / VGK-Invest
er samofið S-hópnum svonefnda.
Í stjórn félagsins eru Eyjólfur Árni
Rafnsson, stjórnarformaður sem
jafnframt er forstjóri Mannvits og
situr fyrir hönd hluthafanna í stjórn
GGE.
Helgi S. Guðmundsson, fyrr-
verandi formaður fjármálanefnd-
ar Framsóknarflokksins og banka-
ráðsmaður í Landsbankanum og
síðar Seðlabankanum, situr einnig
í stjórn Mannvits. Helgi hefur lengi
verið nátengdur S-hópnum og lék
lykilhlutverk í helmingaskiptum
Framsóknarflokksins og Sjálfstæð-
isflokksins við einkavæðingu bank-
anna fyrr á þessum áratug.
Í varastjórn Mannvits situr Finn-
ur Ingólfsson, framsóknarmað-
ur, fyrrverandir ráðherra og seðla-
bankastjóri og síðar umsvifamikill
fjárfestir. Félög í hans eigu standa
mörg höllum fæti eftir bankahrun-
ið, meðal annars Langflug sem á
drjúgan hlut í Icelandair Group.
Fyrirtækið Landvar ehf. er næst-
stærsti hluthafinn í VGK-Invest
(Mannvit) en eigendur þess eru
Finnur og Helgi S.
Auk Finns, Helga og Eyjólfs sit-
ur Kristinn Hallgrímsson lögfræð-
ingur í stjórn Mannvits en hann
hefur lengi staðið nálægt helsta
valdakjarna Framsóknarflokksins.
Lögfræðiskrifstofa hans, Fulltingi,
er til húsa í höfuðstöðvum Kjalars
og annarra félaga Ólafs Ólafssonar
í Samskipum við Suðurlandsbraut í
Reykjavík.
Tengiliður Mannvits og valda-
hóps framsóknarmanna inn í Ís-
landsbanka er Árni Magnússon,
fyrrverandi félagsmálaráðherra.
Fyrir milligöngu Pálma Haralds-
sonar var hann ráðinn af Bjarna Ár-
mannssyni, þáverandi bankastjóra
Glitnis, til starfa á orkusviði bank-
ans sumarið 2007. Árni starfar enn
við bankann, nú Íslandsbanka, og
hefur samkvæmt traustum heim-
ildum DV haft afskipti af málefn-
um GGE innan bankans á síðustu
vikum. Þannig hefur stjórn Geysis
Green Energy að minnsta kosti tvo
tengiliði frá fyrri tíð innan Íslands-
banka, þá Árna Magnússon og Vil-
helm Þorsteinsson.
Fyrir framan nefið
á Íslandsbanka
Ofangreind eignatengsl og aðkoma
innbyrðis tengdra manna að Geysi
Green Energy vekja spurningar. Svo
er að sjá sem kjarninn úr S-hópn-
um, sem varla er nema með 10 til
13 prósenta hlut á bak við sig, hafi
vélað um framtíð GGE langt um-
fram eignarhlut sinn á kostnað Ís-
landsbanka og núverandi stjórn-
enda hans. Við það má bæta að
tengsl Atorku inn í Íslandsbanka
og inn í GGE eru víðtæk. Þorsteinn
Vilhelmsson, aðaleigandi Atorku,
situr í stjórn GGE en sonur hans,
Vilhelm Þorsteinsson, er yfirmaður
fyrirstækjasviðs Íslandsbanka.
DV hefur ekki getað gengið úr
skugga um hvort hagsmunir Ís-
landsbanka fari saman við hags-
muni eigenda Mannvits og Atorku.
Það vekur hins vegar grunsemdir
þegar allt virðist benda til þess að
verið sé að véla um framtíð Geys-
is Green Energy án fullrar vitundar
æðstu stjórnenda Íslandsbanka.
Gömul og ný saga
Í október 2007 vildu forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins í borg-
arstjórn láta rannsaka störf Björns
Inga Hrafnssonar, þá borgarfull-
trúa Framsóknarflokksins, vegna
meintrar hagsmunagæslu hans í
stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og
REI fyrir fjárfesta tengda Fram-
sóknarflokknum. Svo vill til að þau
félög sem þá voru nefnd til sögunn-
ar eru öll þau sömu og nú tengjast
Mannviti og þar með Finni Ing-
ólfssyni, Helga S. Guðmundssyni
og Kristni Hallgrímssyni. Þetta eru
félögin Þeta ehf. í eigu Kristins og
VGK-Invest og Landvar í eigu Finns
og Helga. Á þessum tíma stað-
festi VGK-Invest, meðal annars við
Fréttablaðið, að eignarhlutur VGK
Invest í í sameinuðu GGE og REI
yrði allt að 1,5 milljarðar króna.
Salan ræðst á þriðjudag
Þrennt hefur gerst í tilveru GGE að
undanförnu. Í fyrsta lagi er ætlun-
in að kaupa HS Orku af Reykjanes-
bæ á 13,1 milljarð króna. Fyrir það
á meðal annars að greiða með því
að afhenda Reykjanesbæ HS Veitur.
Fyrirtækið Arctica metur veiturnar
á 4,9 milljarða króna en Capacent
metur þær á 9,8 milljarða. Capa-
cent metur HS-Orku á 27,7 millj-
arða en Arctica metur verðmæti
hennar 41,3 milljarða króna. Salan
á HS Orku verður tekin fyrir á bæj-
arstjórnarfundi í Reykja-
nesbæ næstkom-
andi þriðjudag.
Í öðru lagi
hefur Magma Energy gengið til
liðs við GGE um þessi kaup eins og
áður segir. Ekki er vitað til þess að
Íslendingar eigi hlut í því fyrirtæki
þótt ekki hafi verið gengið úr skugga
um það með öruggum hætti.
Í þriðja lagi hefur þýska fyrir-
tækið Daldrup & Söhne Geoth-
ermie GmbH eignast meirihluta í
Geysir Europe GmbH í München,
dótturfélagi Geysis Green Energy
í Þýskalandi. Kaupverðið er ekki
gefið upp. Undir dótturfélag Geys-
is Green Energy í Þýskalandi heyra
Exorka og Enex, sem hafa feng-
ist við djúpborun eftir jarð-
varma á allmörgum stöðum
á landinu.
JóhAnn hAukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Fulltrúar minnihluta hluthafa í Geysi Green Energy virðast ráða ferðinni um framtíð félagsins og hefur
því tekið fram fyrir hendur nýrrar yfirstjórnar Íslandsbanka sem í raun hefur félagið í fanginu. Við sögu
koma menn sem S-hópurinn stendur á bak við en einnig eigendur Atorku sem er í greiðslustöðvun. Þeir
eiga flokks- og ættartengsl inn í Íslandsbanka.
S-hópurinn fer með
völd í GeySi Green
Svo vill til að þau
félög sem þá voru
nefnd til sögunnar eru
öll þau sömu og nú
tengjast Mannviti og
þar með Finni Ingólfs-
syni, Helga S. Guð-
mundssyni og Kristni
Hallgrímssyni.
Frá vinstri Þorsteinn Vilhelmsson, stjórnarformaður Atorku, Ásgeir Margeirsson forstjóri GGE, óþekktur, Jón Sigurðsson hjá Stoðum, Hannes Smárason, fyrrverandi
stjórnarformaður GGE, Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Magnús Jónsson, forstjóri Atorku. Myndin er tekin í ágúst árið 2007.
helgi S. Guðmundsson Lykilmaður
Framsóknarflokksins í einkavæðingu
bankanna og einn af lykilmönnum
S-hópsins. Hann og Finnur hafa
hagsmuna að gæta í GGE.
huldumaðurinn Finnur Ingólfsson er enn áhrifamaður
innan Framsóknarflokksins en ógjarnan í framlínunni.
Fyrrverandi
framsókn-
arráðherra
Árni
Magnússon
vinnur enn í
Íslandsbanka
og hefur
samkvæmt
heimildum DV
haft afskipti af
framtíð GGE.