Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Qupperneq 24
Sjóðvá
Svarthöfði kann ekki á Excel og hefur ekki hundsvit á við-skiptum og var nú alltaf klár á því að Wernerssynir, Björgólf-
ar, Jón Ásgeir, Kaupþingskempurn-
ar og allir hinir aðalspaðarnir sem
slegið hafa um sig með milljörð-
um væru ofjarlar hans í
bissniss. Nú er Svart-
höfði ekki jafnviss
í sinni sök enda
hefur honum
aldrei tekist að
setja neinn
annan en
sálfan sig á
haus-
inn. Nú
er hins
vegar
komið
á dag-
inn að ef
maður
er
nógu klikkaður getur maður sett heila
þjóð á kúpuna.
Eitt hefur Svarthöfði þó talið sig vita upp á sína tíu fingur: Það er ekki hægt að setja símafyrirtæki og trygginga-
félög á hausinn. Slík fyrirtæki eru
eins og bankinn í spilavítunum í Las
Vegas. Þau geta ekki tapað.
Eða það hélt Svarthöfði en
þessi sannindi eins og
svo mörg önnur eru
nú innantóm þvæla.
Íslensk trygg-ingafélög ættu að vera óþrjótandi
gullnámur þó
ekki væri nema
bara vegna
þess að við
erum svo fá að
þrátt fyrir að öll
þjóðin tæki sig til
og klessu-
keyrði
allan
bílaflota sinn sama daginn ætti slíkt
stórtjón ekki að ná að tæma bóta-
tryggingasjóði.
Suðurlandsskjáftar og aðrar náttúruhamfarir hafa hingað til ekki náð að laska íslensk tryggingafélög. Gamalgróið og
stöndugt tryggingafélag eins og Sjóvá
hefur í gegnum tíðina getað stað-
ið allt af sér. Meira að segja að hafa
verið með Svarthöfða í ökutækis- og
innbústryggingu í áratugi. Þetta ágæta
félag var hins vegar ekki nógu öflugt
til að standa af sér þær hamfarir sem
fylgdu því að kaupa fasteignir í Hong
Kong.
Sjóðir félagsins réðu ekki við þær náttúruhamfarir sem í daglegu tali eru kallaðar ís-lenskir úrásarvíkingar sérstak-
lega ekki þar sem eigendur þess voru
tannhjól í dómsdagsvél góðærisins.
Þegar þeir fóru um félagið eins og
skjálfti upp á fimm hundruð og fimm-
tíu á Richter fór allt á hliðina enda
hringsnerist sjálfur forstjórinn í öllum
ósköpunum og vissi ekki hvað sneri
upp eða niður.
Niðurstaðan er þó óumdeil-anlega sú að tryggingar snúast ekki um fólk heldur eigendur tryggingafélaga
og að ekkert er ótryggara en sjóðir fé-
laga, sem tæknilega eiga ekki að fara
á hausinn, þegar útrásargosar komast
með puttana í reksturinn.
n Hermt er að Kaupþing hafi
verið komið á flugstig með að
fella niður þrjá milljarða af
skuldum Björgólfsfeðga þegar
málið varð opinbert. Góð-
mennska Kaupþingsmanna í
garð Bjögganna sætir nokkurri
furðu þar sem hart er gengið
að venjulegum viðskiptavin-
um. Í því efni staldra menn við
þá staðreynd að Hulda Styrm-
isdóttir er stjórnarformaður.
Mikið vinfengi er milli Björgólfs
Guðmundssonar og Styrmis
Gunnarssonar, föður
Huldu. Því heyrist
fleygt að eðlilegt
sé að skoða hæfi
stjórnarfor-
manns-
ins í því
ljósi.
n Þór Sigfússon, formaður Sam-
taka atvinnulífsins, hefur á örfá-
um mánuðum mátt þola meira
fall en flestir aðrir. Um áramót
var hann einn
valdamesti
maður við-
skiptalífsins í
krafti þess að
hann var for-
stjóri Sjóvár
og stjórn-
arformaður Árvakurs, útgáfu
Moggans, auk þess að stýra SA.
Árvakur sigldi eftirminnilega í
strand í formennskutíð Þórs og
fékk eftirgjöf upp á tæpa fjóra
milljarða af almannafé. Nú er
Þór grunaður um að hafa staðið
að lögbrotum með því að steypa
bótasjóði Sjóvár í glötun. Ekkert
stendur því eftir af veldi hans
nema formennska í SA.
n Gylfi Sigfússon, bróðir Þórs,
er ekki í sérlega góðum mál-
um heldur eftir að hafa stýrt
Eimskipafélaginu sem slegið
hefur flest met í taprekstri og er
nú í nauðasamningum. Báðir
bræðurnir hafa sótt völd sín til
Björgólfs Guðmundssonar sem
í blómatíð sinni fór með
öll völd í Eimskip og
Árvakri. Veldi Björgólfs
er hrunið til grunna og
meðreiðarsvein-
arnir fylgja
með í fallinu
með tilheyr-
andi fjöl-
skylduharm-
leik.
n Tröppugangur er á rekstri
Fréttablaðsins sem skorið
hefur niður af krafti undan-
farin misseri. Einn stærsti
sparnaðurinn var væntanlega
þegar Þorsteinn Pálsson, einn
launahæsti ritstjóri lands-
ins, hætti störfum. Brotthvarf
hans sést ekki á blaðinu því í
stað þess að skrifa einn leið-
ara á viku er hann vikulega
með greinar sem kenndar eru
við Kögunarhól. Jón Kaldal
ritstjóri er með sinn
vikulega leið-
ara en nú hefur
fríblaðið tekið
upp á því að fá
leigupenna utan
úr bæ til að annast
það metnaðar-
fulla verkefni að
skrifa forystu-
greinar.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
ásmundur helgason, asi@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 70 50.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Höfundur hrunsins
Leiðari
Í þeirri rannsókn sem stendur nú yfir á aðdraganda bankahruns-ins er nauðsynlegt að beina sjónum að stjórnmálamönn-
um. Rætur hrunsins liggja í bersýni-
legri pólitískri spillingu sem gerði
fjárglæframönnum kleift að leggja
fjöregg lýðveldisins undir. Smám
saman hefur heildarmyndin verið að
skýrast. Sömu glæframenni og gerðu
Ísland aðila að stríðinu í Írak stóðu
að því að færa vinum sínum tvo rík-
isbanka á silfurfati. Nú er að koma á
daginn að aðilar innan Framsókn-
arflokksins og Sjálfstæðisflokksins
krosslánuðu til að sölsa undir sig
bankana. Búnaðarbankinn, seinna
Kaupþing, lánaði Samson milljarða króna
svo Björgólfur Guðmundsson, Björgólf-
ur Thor Björgólfsson og Magnús Þorsteins-
son gætu keypt banka sem eitt sinn var allra
landsmanna. Eftir að feðgarnir hafa siglt
bankanum í strand vilja þeir enn eina þjóð-
argjöfina. Það á að fella niður milljarða. Einn
helsti ábyrgðarmaður Samsons er Davíð
Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, sem
var í lykilhlutverki við að færa þeim bank-
ann. Hann er því höfundur hrunsins. Nauð-
synlegt er að rannsaka þátt hans í öllu því
máli ekki síður en framgöngu Björgólfanna
og annarra útrásarvíkinga. Það hefur enga
þýðingu að elta uppi peðin en sleppa þeim
sem stjórnuðu þeirri skák sem nú
er bersýnilega töpuð. Óljóst er hvað
rannsóknarnefnd á vegum þings-
ins hefur verið að gera. Ef rannsókn
hennar beinist ekki að þætti Davíðs,
Halldórs Ásgrímssonar og öðrum
sem stýrðu einkavæðingu bankanna
er hún tilgangslítil. Skoða þarf einka-
væðinguna með hliðsjón af spillingu.
Það ætti að vera hafið yfir pólitískt
dægurþras að þeir menn sem stærsta
ábyrgð báru á umræddum tíma verði
rannsakaðir með hliðsjón af því hvort
átt hafi sér stað landráð, hugsanlega
af gáleysi. Eins og málið snýr að þjóð-
inni er nauðsynlegt að sjá hið stóra
samhengi sem gerði þjóðargjaldþrot
að raunhæfum möguleika. Auðmennirnir
eru aukaleikarar sem tóku þátt í leikriti sem
skrifað var af öðrum. Auðvitað á að elta uppi
alla þá sem líklega hafa brotið lög og rann-
saka að fullu. En á skal að ósi stemma. Rétt-
lætinu verður ekki fullnægt fyrr en þáttur
hinna stóru verður gerður upp.
xxx ritStjóri Skrifar. Einn helsti ábyrgðarmaður Samsons er Davíð Oddsson.
bókstafLega
Vorum skuldunautum
Það var hérna um daginn að ég
heyrði af því að handboltahetjan
Kristján Arason hefði skuldað KB-
banka helling af peningum þegar
bankinn fór á hausinn. Já, það var
látið í það skína að skuldin væri nán-
ast gleymd. Og þetta hljómaði allt
einsog skuld Kristjáns væri eiginlega
bara einskis virði (eða Eimskips virði
einsog sagt er í dag). Upphæðin sem
hann nafni minn skuldaði var meira
en 800 milljónir og hugsanlegt er
talið að skuldin verði afskrifuð. Já,
líklega verður þetta afskrifað vegna
þess að hann nafni minn er eigin-
maður Þorgerðar Katrínar Gunnars-
dóttur, fyrrverandi ráðherra. Það er
nefnilega svo, kæru landsmenn, að
það er ekki sama hverjum maður er
giftur hérna í okkar ágæta banana-
lýðveldi. Ef maður er maður sem
þekkir mann sem þekkir mann er
maður maður meðal manna. Og ef
maður á réttu vinina eru manni all-
ir vegir færir. Sjáið bara gáfnaljós-
ið Árna Matt, hann þurfti ekki að
kunna að stafa nafnið sitt en fékk
samt að vera ráðherra peningamála
– rækilega studdur af smokkfiski og
kolkrabba – og fékk meira að segja
að tala við útlenskt fólk sem er með
fulla greind.
Svo var sagt frá því, nánast í smá-
frétt, að Björgólfur eldri og Björgólf-
ur yngri hefðu gerst svo rausnarleg-
ir að bjóða KB-banka að gefa þeim
feðgum þrjá milljarða. Og það er
vegna þess að þeir ætla að reyna að
borga helming sex milljarða skuld-
ar. En þess má kannski geta að þeir
skulda bankanum meira en ég og
allir nágrannar mínir og allir ná-
grannar nágranna minna og all-
ir nágrannar nágranna nágranna
minna samanlagt. Og viti menn,
stjórnendur bankans eru að hug-
leiða tilboðið.
Nú skulda ég nokkrar milljón-
ir og ég vil alveg borga allt sem ég
skulda. En ef ég væri Arason en ekki
Hreinsson mætti ég allteins búast
við því að búið væri að afskrifa skuld
mína næst þegar ég hefði í hyggju að
borga.
Hvað ætli fólk segði í mínum
viðskiptabanka ef ég mætti þangað
núna eftir helgi og byðist til að borga
helming skulda minna? Ætli menn
myndu ekki segja mér að fara norð-
ur og niður?
Núna eigum við, íslenska þjóð-
in, bankana og okkur má ljóst vera
að ekkert hefur breyst. Enn stjórn-
ar sama gamla auðvaldsklíkan öllu.
Munurinn er bara sá að núna eru
skilanefndir komnar í stað smokk-
fisks og kolkrabba.
Gleymt fær íslensk aurasál
öllum sínum þrautum
því varla finnast vandamál
hjá vorum skuldunautum.
kristján hreinsson
skáld skrifar
„Nú skulda ég
nokkrar milljónir
og ég vil alveg
borga allt sem ég
skulda.“
skáLdið skrifar
svarthöfði
24 föstudagur 10. júlí 2009 umræða
sandkorn
„Þetta verður á
meðan ég lifi.“
n Guðfinnur Halldórsson,
eigandi bílasölu Guðfinns, sem
selur bíla til styrktar ABC Barnahjálp og
ætlar að halda því áfram.
„Þeir vita að gamli er
hrikalegur framherji og
vantaði knattspyrnu-
mann og ég gat ekki sagt
nei.“
n Egill Einarsson, Gillz, Störe eða nú síðast
Þykki, keppir með Ungmennasambandi
Kjalarnesþings í fótbolta á Landsmótinu um
helgina. - DV
„Trúr smjörklípukenning-
unni hennar ömmu fer
Davíð eins og köttur í
kringum heitan graut
utan um Icesave-málið og
forðast eins og heitan
eldinn að nálgast kjarna
málsins.“
n Jón Baldvin Hannibalsson skýtur föstum
skotum að Agnesi Bragadóttur blaðamanni og
Davíð Oddssyni. - Pressan.is
„Ég kynntist henni
á Kringlukránni.“
n Tónlistarmaðurinn Gylfi
Ægisson um Jóhönnu
Magnúsdóttur sem mun fylgja
honum næstu mánuði og skemmta. - Vísir.is