Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Blaðsíða 28
um helgina
Ljósmyndir í Lit
Í gær var opnuð sýningin Ljósmyndir í lit á Thorvald-
sen bar í Austurstræti. Um er að ræða sýningu með
myndum eftir Elsu Björgu Magnúsdóttur og Soffíu
Gísladóttur. Á sýningunni er að finna fjölbreyttar og
skemmtilegar ljósmyndar úr ýmsum áttum sem þær
lýsa sjálfar sem ævintýralegum og litríkum.
GoGoyoko
opnuð
Í gær var opnuð opinberlega á Ís-
landi vefverslunin gogoyoko.com.
Um er að ræða nýjan vettvang og
tónlistarveitu þar sem tónlistar-
menn geta komið tónlist sinni á
framfæri og í sölu á alþjóðavísu, án
milliliða, og verið í beinu sambandi
við áhangendur sína. Gogoyoko er
rekið af íslenska sprotafyrirtækinu
Gogoyoko ehf. Stofnendur síðunn-
ar eru Haukur Magnússon og Pétur
Einarsson en markaðsstjóri fyrirtæk-
isins er Eldar Ástþórsson sem var
ein aðalsprauta Iceland Airwaves
um árabil.
HúsaList
á akureyri
Minjasafnið á Akureyri mun
standa fyrir sögugöngu um bæ-
inn í tilefni af íslenska safnadeg-
inum sem er á sunnudaginn.
Gangan hefst klukkan 14.00 verð-
ur gengið frá elsta húsi Akureyr-
ar, Laxdalshúsi, Hafnarstræti 11.
Byggingarlist Innbæjarins verður
í hávegum höfð í göngunni. Farið
verður inn í Laxdalshús, Frið-
bjarnarhús og Gamla spítalann.
Það er Hanna Rósa Sveinsdóttir,
sérfræðingur í húsverndarmál-
um á Minjasafninu, sem leiðir
gönguna.
FaLinn
Fjársjóður
Í dag klukkan 11.00 er opnuð sum-
arsýning Listasafns Íslands sem
heitir Falinn fjársjóður – Gersemar í
þjóðareign? Á sýningunni verða verk
úr safneign ríkisbankanna þriggja;
Landsbanka Íslands, Kaupþings og
Íslandsbanka, ásamt völdum verk-
um úr safneign Listasafns Íslands.
Safneign ríkisbankanna þriggja er
um 5.000 verk og Listasafns Íslands
um 10.000 verk. Á sýninguna hafa
verið valin um 90 verk úr safneign
ríkisbankanna og um 40 úr safneign
Listasafns Íslands eða alls um 130
verk. Á sýningunni eru málverk,
gafíkmyndir, ljósmyndir, teikningar,
textílverk, höggmyndir og innsetn-
ingar. Elsta verkið á sýningunni er
frá árinu 1881 eftir Þóru P. Thorodd-
sen.
Ef þú ert þjáður af hommafóbíu
þá er Brüno myndin fyrir þig. Hún
er svo öfga samkynhneigð, gróf og
hommaleg að ekkert sem við kemur
samkynhneigð eða hommum mun
koma þér úr jafnvægi eftir þetta.
Fyrir þá sem ekki þekkja til
Scaha Baron Choen þá er þar á
ferðinni breski gamanleikarinn sem
færðu okkur einnig Ali G og Borat.
Að þessu sinni er hann í hlutverki
austurríska tískuhommans Brünos.
Hann stýrir tískuþættinum Funkyz-
eit sem er vinsælasti tískuþátturinn
í þýskumælandi löndum, fyrir utan
Þýskaland. Eftir hræðilegt slys á
tískuvikunni í Mílanó er Brüno út-
skúfaður úr tískuheiminum í Evr-
ópu og heldur því til Bandaríkjanna
til að verða súperstjarna.
Ef þú hélst að Borat væri gróf á
köflum mun Brüno slá það gjör-
samlega út af borðinu. Hægt mynd-
skeið af typpi að snúast í hringi og
slást upp og niður er bara brot af
þeim klúra andskota sem Brüno
býður okkur upp á. Eldra fólki og
þeim sem eru viðkvæmir yfir höfuð
verður sennilega gjörsamlega mis-
boðið á myndinni.
En hún er meinfyndin inn á milli.
Brüno er gjörsamlega siðblindur
með öllu og svífst einskis til þess að
svala kynferðislegum þörfum sín-
um og þeirri þrá að verða heims-
frægur. Myndin er að miklu leyti
byggð upp á sama hátt og Borat.
Undarlegur karakter frá framandi
landi fer til Bandaríkjanna til þess
að reyna á þolrif þröngsýns hyskis í
biblíubeltinu.
Málið var bara að Borat var betri.
Hún kom á undan og var frum-
legri. Hún virkaði bara meira al-
vöru. Maður fær það oft á tilfinning-
una í Brüno að það sé verið að leika
með. Á meðan það var einmitt sú
staðreynd, að fólk vissi ekki hvað-
an á sig stóð veðrið, sem gerði Bor-
at ógleymanlega. Þá var saga Borats
bara öllu heilsteyptari líkt og hann
sem karakter. Brüno er fyndin mynd
en það er óhjákvæmilegt að bera
hana saman við Borat þar sem þetta
eru persónur eftir sama manninn
og þær urðu til í sama þættinum,
The Ali G Show.
Ásgeir Jónsson
Meðal við hommafóbíu
28 FöstudaGur 10. júlí 2009 Fókus
Brüno
Leikstjórn: Larry Charles
Aðalhlutverk: Sacha Baron Cohen,
Gustaf Hammarsten, Clifford Bañagale,
Chibundu Orukwowu
kvikmyndir
Brüno Fyndinn en ekki jafn fyndinn
og Borat.
Söngvarinn Geir Ólafsson er tónlistarmaður í stöðugri þró-un enda meðvitaður um að maður lærir svo lengi sem
maður lifir. Þegar hann stökk fram í
sviðsljósið fyrir margt löngu fór hann
ekki leynt með að sjálfur Frank Sinatra
var hans helsta fyrirmynd í tónlist-
inni. Í kvöld fagnar hann útgáfu þriðju
sólóplötu sinnar en hún ber þess skýr
merki að Geir er í stöðugri leit og þótt
hann hafi ekki snúið baki við hinum
eina sanna bláskjá fer ekki milli mála
að hann er jafnt og þétt að fikra sig inn
á sínar eigin brautir. Nú syngur hann
til dæmis öll lögin á íslensku þannig að
það er af sem áður var.
„Þetta er fyrsta platan mín sem
er öll sungin á íslensku og ég er mjög
stoltur og þakklátur fyrir að geta kom-
ið með slíka plötu á þessum erfiðu
tímum í samfélaginu. Sérstaklega þar
sem hún er notuð til að styrkja Mæðra-
styrksnefnd,“ segir Geir og þykir ósköp
vænt um að geta lagt sín lóð á vogar-
skálar þeirra sem minnst mega sín í
kreppunni. „Þótt það sé nýjung að ég
syngi á íslensku er ég á þessum diski
að mörgu leyti við sama heygarðs-
hornið og að fást við svipaða hluti og
ég hef verið að gera áður – sem sagt að
swinga.“
Með Guðs hjálp og góðra manna
Geir segir að helsta breytingin sé að
þessa plötu hafi hann unnið með út-
lendum tónlistarmönnum. Fagmönn-
um sem hann hefur lært mikið af.
„Það er toppmaður í hverri stöðu og
það hefur veitt mér mikla ánægju að
fá að kynnast Don Randi, píanóleik-
ara Nancy Sinatra. Hann hefur leitt
mig inn á nýjar brautir í swinginu og
ég er honum afar þakklátur fyrir það.
Ég vona að ég eigi eftir að starfa meira
með honum í framtíðinni.“ Geir hefur
verið svolítið sér á parti í íslensku tón-
listarlífi sem einn fárra „croonera“ eða
raulara í bigband-stíl Franks Sinatra.
„Í dag finn ég mikinn meðbyr með því
sem ég er að gera. Þessi tegund tón-
listar er farin að hljóma meira á öld-
um ljósvakans og það er ánægjulegt
og gaman að fá að taka þátt í að koma
þessu á framfæri.“
Þrátt fyrir að vera sjálfsöryggið upp-
málað er Geir fullur auðmýktar og vill
alls ekki eigna sér heiðurinn af aukn-
um áhuga á bigband-tónlist á Íslandi.
„Ég þakka sjálfum mér ekki neitt en
þakka fólkinu sem ég hef unnið með
og hefur gefið mér tækifæri. Án frá-
bærs fólks og Guðs hjálpar hefði þetta
ekki verið hægt. Maður gerir nefnilega
aldrei neitt einn. Það er alltaf einhver á
bak við mann.“
Geir segist vera sérstaklega þakk-
látur útgefanda sínum, reynsluboltan-
um Óttari Felix Haukssyni, sem hann
segir hafa gert ótrúlega hluti fyrir feril
hans. „Ég er þakklátur fyrir þá trú sem
hann hefur haft á mér og vonandi get
ég staðið undir þeim væntingum sem
hann gerir til mín.“
Syngur af hamingju
Nýja platan heitir Af hamingju ég syng
og Geir segir þann titil eiga sérstak-
lega vel við. „Ég hef mikla ánægju af
því sem ég er að gera þessa dagana
og hafði mjög gaman af því að vinna
þessa plötu.“ Geir segir textana sem
hann syngur á plötunni hafa haft mik-
ið með þessa miklu ánægju að gera en
þeir eru flestir eftir Þorstein Eggerts-
son, þann mikla meistara. „Þorsteinn
á níutíu prósent af textunum á þess-
ari plötu og þessir frábæru textar hans
hafa hjálpað mér að gera þetta efni að
mínu enda er mikilvægt að hafa góða
texta við góða músík.
Frank Sinatra hefur alltaf verið of-
arlega í mínu lífi,“ segir Geir sem hef-
ur nú fengið meiri fjarlægð frá goðinu
meðal annars með hjálp Þorsteins.
„Sinatra er einn af mörgum söngvur-
um sem hafa haft gríðarleg áhrif á mig
og án hans hefði ég kannski ekki farið
að skoða þessa músík eins og raun ber
vitni. En það eru svo margir aðrir sem
hafa haft áhrif á mig. Menn eins og Pa-
varotti, Carreras, Dean Martin og svo
auðvitað Michael Jackson.“ Geir syrg-
ir því vitaskuld hinn fallna poppkóng
þessa dagana. „Jackson hefur verið í
miklu uppáhaldi hjá mér í fjöldamörg
ár. Hann er að mínu mati albesti popp-
söngvari sem heimurinn hefur alið af
sér. Hrein guðsgjöf. Eins og gefur að
skilja þekkti ég hann ekki persónulega
og get ekki skilgreint hann sem per-
sónu en hvað tónlistina varðar er ég
afar þakklátur fyrir að hann skuli hafa
verið til vegna þess að hann kenndi,
held ég, heiminum og poppurum
hvernig á að vera poppari. Blessuð sé
minning hans.“
Alltaf að læra
Geir er enn að burðast með skulda-
bagga eftir plötuna sem hann gaf út
árið 2007 en heldur samt ótrauður
áfram. „Félagi minn, Gísli Guðmunds-
son, styrkti mig dyggilega við gerð
þeirrar plötu og án hans hefði sú plata
aldrei litið dagsins ljós. En þessu fylg-
ir miklu meiri kostnaður en bara að
borga fyrir upptökur og hljóðfæraleik.
Þá er ótalin önnur vinnsla, auglýsing-
ar og þess háttar. Ég stend í ströngu við
að klára þau mál og vona að það tak-
ist áður en langt um líður. Ég læt þetta
ekki stoppa mig. Þetta er bara verkefni
sem þarf að klára og þessar tvær plöt-
ur eiga ekkert sameiginlegt hvað fjár-
hag varðar. Ég er enn að kynna plötuna
frá 2007 þannig að það verkefni er enn
í fullum gangi. Að mínu mati verða
plötur aldrei gamlar. Þær eiga að verða
klassískar og maður á að fylgja þeim
eftir eins lengi og mögulegt er.“
Geir er í söngnámi við Söngskólann
í Reykjavík. Þar hefur hann verið í fjög-
ur ár og er alltaf að kynnast klassískum
óperusöng betur. Hann segir veru sína
í skólanum hafa haft góð áhrif á sig.
„Söngurinn hefur breyst. Vonandi til
góðs og ég ætla að halda áfram þarna
eins lengi og ég mögulega get. Maður
hættir nefnilega aldrei að læra. Mað-
ur klárar aldrei.“ Geir segist hafa ver-
ið kominn með smá leiða á tónlistinni
þegar hann hóf námið. Hann hafi ekki
alveg vitað hvert hann vildi stefna og
stóð frammi fyrir því að halda áfram í
tónlistinni eða snúa sér að einhverju
námi á allt öðrum sviðum. Hugsjón-
in vaknaði aftur til lífsins þegar hann
kynntist Má Magnússyni, kennara
sínum við Söngskólann, og nú verð-
Syngur af hamingju í ástarsorg
Geir Ólafsson burðast með skuldabagga eftir hljómplötu sem hann gaf út fyrir tveim-
ur árum og nýlega slitnaði upp úr áralöngu ástarsambandi hans og Ásdísar Sigurð-
ardóttur. Hann lætur þó mótlætið ekki buga sig og er mættur með nýja plötu sem ber
merki þess að hann er að þróast sem tónlistarmaður. Tómarúmið fyllir hann með söng
og býður aðdáendum sínum og vinum til veislu á föstudaginn.
Ný föt, sami maðurinn Geir Ólafsson segist hafa tekið út mikinn þroska í
Söngskóla Reykjavíkur. Þess ættu að sjást merki á nýju plötunni hans, Af hamingju ég
syng, þar sem hann aldrei þessu vant syngur alla texta á móðurmálinu.