Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Síða 32
myndi ég kannski ekki nenna þessu
harki.“
Eftir sjö ára dvöl í London tók
Þórunn Antonía afdrifaríka ákvörð-
un. „Fyrir síðustu jól var ég orðin
ofsalega þreytt á London. Í mörg
þau ár sem ég bjó þarna var ég á
miklu ferðalagi og eyddi því litlum
tíma í London,“ segir Þórunn. „Til
að byrja með fannst mér voðalega
gaman að vera þarna og London er
flott borg í alla staði en hún er ekki
fyrir mig. Mig langar ekki að skapa
mér framtíð þarna. Hún er svo grá
og svo einmanaleg og þung,“ bæt-
ir hún við hreinskilnislega. Þórunn
hætti síðan í sveitinni Fields. „Ég
fékk ekki almennilega útrás fyrir
tónlistina og ég var ekki hamingju-
söm og þegar ég tók þá ákvörðun að
hætta í Fields sá ég engan tilgang
með að búa áfram í London.“
Varð óvart ástfangin
Hún vissi að hún yrði mun ham-
ingjusamari heima á Íslandi – alla-
vega á meðan hún tæki ákvörðun
um hvert næsta skref yrði. „Ég hef
litlar áhyggjur af framtíðinni. Í fyrsta
skipti í langan tíma er ég að slappa
af og hugsa mig um hvað ég vil gera,“
segir Þórunn. Hún er áhyggjulaus
og það heyrist. „Ég er ekki bundin
neinum samningi og það er nokk-
uð sem ég hef valið mér. Ég er búin
að lifa hratt síðastliðin ár, hoppa úr
einu verkefni yfir í annað og ferðast
mikið. En núna hef ég ákveðið að
stoppa og fókusera á mig.“
Þórunn viðurkennir þó að kær-
astinn hennar, Ágúst Bent Sig-
bertsson, hafi spilað stórt hlutverk
í heimkomu hennar. „Ég hefði ör-
ugglega ekki viljað koma til Íslands
ef ég ætti ekki svona sætan kær-
asta,“ segir Þórunn sem hafði verið
einhleyp lengi. „Þegar maður lifir
svona sígaunasirkuslífi eins og ég
hef gert undanfarin ár og ferðast
út um allan heim er auðveldara að
vera ein. Það er svo erfitt að sakna.“
Hún viðurkennir að Bent, eins og
hann er kallaður í daglegu tali, hafi
komið henni í opna skjöldu. Hún
átti ekki von á því að verða ástfang-
in. „Ég barðist við þetta í sjálfri mér
en það er bara þannig að þegar
maður verður skotinn ræður maður
ekkert við það,“ segir hún feimin.
Hún segir ástina hafa veitt sér
innblástur við lagasmíðina. Áður
fyrr var allt miklu þyngra. „Tónlist-
in sem ég samdi í London var svo
sorgleg og einmanaleg því það var
staður sem ég var komin á. Ég var
ekki hamingjusöm og ég þurfti út-
rás fyrir þessar tilfinningar. Bent
og aðrir hafa sagt við mig að þeim
finnist það svo skrýtið því persónu-
leiki minn er ekki svona sorgmædd-
ur og drungalegur og að ég ætti að
semja gleðipopp. Þannig að það má
segja að ég hafi samið eitt eða tvö
lög innblásin af Bent,“ segir hún og
hlær.
Þórunn segist þó vera með val-
kvíða gagnvart væntanlegri sóló-
plötu. „Ég á bunka af lögum, en ég
nenni ekki að gefa út væluplötu,
það er svo miklu skemmtilegra að
syngja hamingjusama tónlist – ætli
það sé ekki áskorunin?“ spyr Þór-
unn sjálfa sig. „Að semja gleðilög.“
Ævintýraborgin LA
Þórunn er heilluð af Los Angel-
es og hefði ekkert á móti því að ferð-
ast aftur þangað og dvelja um tíma.
„Það eru ýmis tækifæri sem liggja í
Bandaríkjunum og það væri algjör
vitleysa að grípa þau ekki. Annars
er ég ofboðslega lítið fyrir að plana
og leyfi lífinu bara svolítið að hafa
sinn gang,“ segir hún sem er nýkom-
in heim frá vesturströnd Banda-
ríkjanna þar sem hún dvaldi í þrjá
mánuði og söng meðal annars með
tónlistarmanninum Beck.
„Ég fékk sms frá vini mínum einn
morguninn þar sem hann spurði
mig hvort ég vildi ekki syngja með
Beck. Ég trúði honum ekki og álykt-
aði að þetta væri bara eitthvert grín.
Hann hélt nú ekki og sagðist þurfa
að fá mig inn sem fyrst til að syngja
inn á plötu,“ útskýrir Þórunn.
Hún var ekki búin að fá morg-
unkaffið sitt er hún var komin inn
í stúdíó með Beck og fjöldanum
öllum af tónlistarmönnum. Hann
þakkaði henni kærlega fyrir kom-
una og útskýrði fyrir Þórunni að
hann væri að taka upp eina plötu á
dag – þennan daginn var það Velvet
Underground & Nico. Þau hófust
strax handa og Þórunn söng mörg
lög ásamt einu sólólagi en hún fékk
einnig að spreyta sig á sítar og tamb-
orínu. „Beck er mjög indæll maður
og það liggur mikill húmor á bak við
þennan hljóðláta mann.“
Beck var þó ekki eina þekkta and-
litið sem Þórunn hitti í Los Angeles,
enda er borgin stútfull af stjörnum.
„Auðvitað leitar maður uppi fólk
sem er líkt og maður sjálfur, en ég
fór til dæmis út í matvöruverslun og
þar labbaði upp að mér maður sem
spurði mig hvort ég væri ekki örugg-
lega leikkona. Ég svaraði neitandi
og þá sagði hann: „Þú ættir að vera
leikkona,“ og gaf mér síðan nafn-
spjaldið sitt,“ segir Þórunn.
Hún lenti í nokkrum skondnum
uppákomum meðan á dvöl hennar
stóð. „Ég var inni á skemmtistað eitt
kvöldið og Prince labbaði inn með
geisladisk í hendinni sem hann af-
henti plötusnúðnum og bað hann
um að spila diskinn. Mér þótti það
frekar fyndið að Prince væri heima
hjá sér í iTunes að búa til mixteip
til þess að taka með sér á skemmti-
staðina.“
Móðgaði stórstjörnu
Hún gisti einnig eina nótt á óðals-
setri sem var eitt sinn í eigu töfra-
mannsins Harrys Houdini. Hús-
ið er í dag notað sem upptökuver
fyrir tónlistarmenn og Houdini er
sagður hafa geymt öll sín dýrmæt-
ustu leyndarmál undir húsinu. Þór-
unn var í húsinu ásamt meðlimum
LCD Soundsystem og þeir sögðu
henni frá sögu þessa merka seturs.
„Þeir sögðu mér að húsið hefði ver-
ið byggt af auðjöfri á sínum tíma
sem átti samkynhneigðan son. Eitt
kvöldið var haldið grímuball í hús-
inu og sonurinn og elskhugi hans
rifust harkalega á svölum hússins
með þeim afleiðingum að sonurinn
hrinti elskhuga sínum niður af svöl-
unum og hann dó. Í kjölfarið fóru
hræðilegir hlutir að gerast, eigand-
inn missti húsið og hefur verið reimt
í því síðan,“ segir Þórunn. Hún átti
bágt með að trúa draugasögum fé-
laga sinna þannig að hún ákvað að
gúggla húsið og komst að því að það
er þekkt draugahús í Los Angeles.
Ekki skánaði það daginn eftir
nóttina í draugahúsinu er Þórunn
var sótt af vinkonu sinni. Hún bauð
henni í heimsókn til félaga síns sem
bjó í Malibu. „Við komum þarna inn
og á móti mér tekur Jeremy Piven
sem leikur Ari Gold í Entourage,“
segir Þórunn sem leist ekki vel á
kappann sem bauð henni inn í stofu
að horfa á hokkí. Þegar vinkon-
ur hennar tvær fóru út úr stofunni
um tíma var Jeremy fljótur að segja:
„Jæja, loksins erum við ein.“ „Ég var
þó fljót að loka á hann og spurði
hann hvort hann vildi ekki númer-
ið hjá móður minni,“ segir Þórunn.
„Jeremy svaraði þá mjög særður að
hann liti frábærlega út fyrir mann
á hans aldri og þegar ég yrði á hans
aldri myndi ég líta út eins og Will
Farrell.“
Sígauni innra með sér
Sögurnar eru margar og
skemmtilegar og Þórunn hef-
ur marga fjöruna sopið á síðustu
árum. „Ég er heppin að hafa hitt
mikið af hæfileikaríku fólki og lifað
hálfgerðu sígaunalífi,“ segir Þórunn
og viðurkennir að finna sterkt fyr-
ir sígaunaeðlinu innra með sjálfri
sér. „Ég get ekk verið lengi á sama
stað.“ Blaðamaður forvitnast þá um
unnustann og hvort hann fari með
í næsta ævintýri. „Já, hann kemur
með,“ segir hún og brosir.
Hún hefur engar efasemdir um
ákvörðunina sem hún tók sem barn
– að verða söngkona. Það kom ekki
neitt annað til greina. „Ég lít á þetta
sem blessun og bölvun á sama tíma
en ég get ekki hugsað mér að gera
neitt annað í lífinu og ég hef oft ósk-
að mér að ég hefði ástríðu fyrir ein-
hverju öðru því það getur verið mjög
erfitt á tímum að vera tónlistarmað-
ur og óstabílt,“ segir Þórunn. „Eins
og tónlistarbransinn er í dag eru alls
ekki miklar tekjur í þessu og kannski
er ég búin að velja mér mögulega
versta veg til þess að sjá fyrir mér en
ég fæ einhverja hamingju út úr tón-
listinni sem bætir allt hitt upp.“
hanna@dv.is
32 föstudagur 10. júlí 2009 helgarblað
„Ég hefði örugglega ekki viljað koma til Íslands ef
ég ætti ekki svona sætan kærasta.“
Móðgaði Jeremy Piven Entourage-
leikarinn reyndi að svara Þórunni í sömu
mynt en mistókst svakalega.
Beck Þórunn fékk tækifæri til að taka
upp heila plötu með Beck úti í Los
Angeles.
Sígaunaeðli Hún lifir sirkuslífi.
„Jeremy svaraði
þá mjög særður að
hann liti frábær-
lega út fyrir mann á
hans aldri og þegar
ég yrði á hans aldri
myndi ég líta út eins
og Will Farrell.“
www.nora.is Dalvegi 16a Kóp.
opið: má-fö. 11-18,
laugard. 11-16
Opið: má-fö. 12-18, lau.12-16
Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum
Kóp. 201 - S: 517 7727
www.nora.is
Fyrir bústaðinn og heimilið