Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Qupperneq 40
Anna Margrét Einarsdóttir
hjúkrunarfræðingur í hafnarfirði
Anna fæddist í Stykkishólmi og
ólst þar upp. Hún var í Grunnskóla
Stykkishólms, lauk stúdentsprófi
frá Flensborg í Hafnarfirði 1999 og
var að ljúka prófi í hjúkrunarfræði
við HÍ.
Anna hefur starfað við Sólvang
í Hafnarfirði frá 2007 og starfar þar
enn.
Fjölskylda
Maður Önnu er Gunnlaugur Reynir
Sverrisson, f. 20.2. 1979, starfar við
fyrirtækjasölu hjá Vodafone.
Börn Önnu og Gunnlaugs Reyn-
is eru Emilía Björk Gunnlaugsdóttir,
f. 23.1. 2004; Benedikt Einar Gunn-
laugsson, f. 15.12. 2007.
Systkini Önnu eru Arndís Helga
Einarsdóttir,
f. 13.11. 1960,
húsmóðir í
Hvassahrauni
á Vatnsleysu-
strönd; Bjarni
Einar Einars-
son, f. 23.10.
1962, tölvufræð-
ingur á Akur-
eyri; Björn Anton Einarsson, f. 30.1.
1964, stálsmiður í Búðardal; Heimir
Skúli Einarsson, f. 5.10. 1966, starfar
við húsgagnaframleiðslu í Noregi.
Foreldrar Önnu eru Einar Bjarni
Bjarnason, f. 16.7. 1938, vélstjóri í
Reykjavík, og Bára Þorbjörg Jóns-
dóttir, f. 20.9. 1943, húsmóðir í
Hafnarfirði.
30 ára á föstudag
Umsjón: Kjartan GUnnar Kjartansson, kgk@dv.is
Birgitta Birgisdóttir
leikkona í reykjavík
Birgitta fæddist í Reykjavík en ólst
upp í Kópavogi. Hún var í Kópa-
vogsskóla, stundaði nám við Fjöl-
brautaskólann í Garðabæ, stund-
aði síðan nám við leiklistardeild
Listaháskóla Íslands og lauk próf-
um sem leikari 2006.
Eftir að Birgitta útskrifaðist hef-
ur hún leikið í Borgarleikhúsinu og
Hafnarfjarðarleikhúsinu og er nú
að fara að leika í leikritinu Fríða
Khalo sem frumsýnt verður í Þjóð-
leikhúsinu í haust.
Fjölskylda
Eiginmaður
Birgittu er Örv-
ar Smárason, f.
24.6. 1977, tón-
listarmaður.
Dóttir Birg-
ittu og Örvars
er Alda Örv-
arsdóttir, f.
27.9. 2008.
Foreldrar Birgittu eru Birg-
ir Úlfsson, f. 25.4. 1947, og Brynja
Jörundsdóttir, f. 29.7. 1949.
30 ára á föstudag
60 ára á föstudag
Guðmundur
Haukur Jónsson
kennari og tónlistarmaður
Guðmundur fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp, í Samtúninu. Hann lauk
landsprófi frá Gagnfræðaskóla Vonar-
strætis 1965, kennaraprófi frá KÍ 1969,
stúdentsprófi frá KÍ 1970 og stund-
aði nám á vegum tónlistarstofnunar
Yamaha í Svíþjóð 1979-82.
Guðmundur var kennari við Víg-
hólaskóla í Kópavogi 1971-83, skóla-
stjóri og kennari við Orgelskóla
Yamaha 1978-86, var kennari við
Ölduselsskóla í einn vetur og við Ár-
túnsskóla annan vetur og hefur verið
tónlistarkennari við Tónskóla Guð-
mundar frá 1991. Þá kenndi hann
jafnframt við Tónskóla Hörpunnar sl.
vetur.
Guðmundur spilaði með fjölda
þekktra dans- og dægurlagahljóm-
sveita um árabil. Hann hóf tónlistar-
feril sinn er hann var sextán ára með
Tóna-tríóinu en spilaði síðan með
hljómsveitinni Nightingales. Þá söng
hann um skeið með Dúmbó sextett.
Guðmundur gekk til liðs við hljóm-
sveitina Roof Tops 1970 og starfaði
með henni til ársloka 1974. Þá stofn-
aði hann, ásamt öðrum, hljómsveit-
ina Alfa Beta og starfaði með henni í
níu ár, lengst af með Ágústi Atlasyni
og Halldóri Olgeirssyni. Hann lék svo
síðast með hljómsveitinni Karma á
árunum 1989-90.
Guðmundur gaf út sólóplötu 1972
og aðra 1999.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 20.7. 1974 Jó-
hönnu Benediktsdóttur, f. 21.3. 1956,
sölumanni. Foreldrar Jóhönnu:
Benedikt Guðmundsson, stýrimaður
í Keflavík, og Valdís Sigríður Sigurðar-
dóttir húsmóðir sem bæði eru látin.
Börn Guðmundar og Jóhönnu eru
Valdís, f. 2.3. 1978, í doktorsnámi í Par-
ís og er sonur hennar Tristan Tómas-
son, f. 2004; Hanna, f. 12.1. 1982, nemi
og er sonur hennar Hrappur Birkir
Pálsson, f. 2008; Tryggvi, f. 15.7. 1988,
búsettur í Bandaríkjunum.
Alsystkini Guðmundar eru Þröst-
ur Jónsson, f. 15.1. 1945, bókbindari í
Reykjavík, kvæntur Ellý Kratsch, hús-
móður og verslunarmanni, og eiga
þau þrjú börn; Kristján Örn Jóns-
son, f. 6.2. 1946, plötu- og ketilsmið-
ur og verkstjóri hjá Orkuveitu Reykja-
víkur, kvæntur Þórunni Júlíusdóttur,
húsmóður og ritara, og eiga þau þrjú
börn; Guðrún, f. 18.12. 1952, búsett í
Danmörku og á hún þrjá syni.
Hálfsystkini Guðmundar, sam-
feðra, eru Hafdís, f. 22.7. 1930; Lúther,
f. 18.1. 1936.
Foreldrar Guðmundar Hauks: Jón
Ingi Guðmundsson, f. 16.9. 1909, d.
5.5. 1989, kennari og málarameistari,
og Svava Kristjánsdóttir húsmóðir, f.
19.6. 1922, húsmóðir.
Ætt
Jón Ingi var sonur Guðmundar, járn-
smiðs í Hafnarfirði Jónssonar, b. í Duf-
þaksholti í Hvolhreppi Jónssonar, b. á
Efra-Hvoli í Hvolhreppi Einarsson-
ar, b. á Arnarhóli í Landeyjum Guð-
mundssonar, b. á Álfhólum Gíslason-
ar. Móðir Jóns á Efra-Hvoli var Gróa
Jónsdóttir, b. á Vestri-Garðsauka Atla-
sonar. Móðir Jóns í Dufþaksholti var
Guðrún Sigurðardóttir, b. á Ægissíðu
Jónssonar, b. á Bjólu, Ísólfssonar, b.
á Selárlæk Loftssonar. Móðir Guð-
mundar var Ingibjörg Einarsdóttir, b.
á Miðkrika Einarssonar, bróður Jóns á
Efra-Hvoli.
Móðir Jóns Inga var Guðrún, syst-
ir Jóns, b. á Þóroddsstöðum, langafa
Héðins Steingrímssonar, fyrrv. heims-
meistara í skák, tólf ára og yngri, og
Hannesar Jónssonar sendiherra, föð-
ur Hjálmars sendiherra. Systir Guð-
rúnar var Ingibjörg, amma Karls
Guðjónssonar, fyrrv. alþm.. Ingibjörg
var dóttir Jóns, b. á Þorgrímsstöðum
í Ölfusi Jónssonar, b. á Króki í Ölfusi
Jónssonar. Móðir Jóns á Þorgríms-
stöðum var Ingibjörg Arngrímsdóttir,
b. í Bakkarholti í Ölfusi Bjarnasonar.
Móðir Guðrúnar var Guðrún Gam-
alíelsdóttir, Egilssonar, og Vilborgar
Þórðardóttur.
Svava er dóttir Kristjáns, útvegsb.
á Stöðvarfirði Magnússonar, og Þóru
Þorvarðardóttur.
Guðmundur fæddist í Reykjavík en
ólst upp á Svarðbæli í Miðfirði í Vest-
ur-Húnavatnssýslu. Hann var í námi
í Reykjaskóla í Hrútafirði og við Sam-
vinnuskólann á Bifröst.
Guðmundur var skrifstofumaður
í Kaupfélagi Héraðsbúa á Egilsstöð-
um 1961-64 og í Búnaðarbankanum
á Egilsstöðum 1964-65, var banka-
starfsmaður í Böndernes Bank í Ósló
1965-67, skrifstofumaður hjá Loft-
leiðum í Reykjavík 1967-71, gjald-
keri hjá Ólafi Gíslasyni hf. í Reykja-
vík 1971-80, gjaldkeri hjá Borgarverki
hf. í Borgarnesi 1980-82, starfaði hjá
Endurskoðendaþjónustunni 1988-
2005 og hefur síðan unnið sjálfstætt
við bókhald.
Guðmundur var ritstjóri Hlyns,
tímarits Landssambands íslenskra
samvinnustarfsmanna, 1983-87 og
ritstýrði átta af þrettán bindum árbók-
ar Nemendasambands Samvinnu-
skólans, sem er nemendatal skólans
og aðrar heimildir um skólann. Þá
sá hann um afmælisrit skólans 1988.
Guðmundur hefur staðið að ýmsum
öðrum útgáfum, ritað greinar í blöð
og starfað að félagsmálum.
Fjölskylda
Systkini Guðmundar eru María
Sólrún, f. 21.4. 1943, d.
1999, var gift Ingimar
Magnússyni, sjómanni í
Grindavík, og eignaðist
hún fjögur börn; Hild-
ur Ósk, f. 9. janúar 1946,
búsett í Svíþjóð, og á hún
fimm börn; Sigbjörn Jón
Bjarni, f. 23. janúar 1949,
verkamaður í Grindavík
en kona hans er Anna
Benediktsdóttir og á
hann eina dóttur; Lóa
Björg, f. 14. maí 1952, gift Bergsteini
Karlssyni og á hún tvö börn.
Hálsystkini Guðmundar, sam-
feðra, eru Ragnar, f. 25. maí 1938, d.
1. maí 1977, eignaðist einn son; Guð-
mundur, f. 18. apríl 1943, búsettur í
Reykjavík.
Foreldrar Guðmundar: Jóhann
Jónsson, f. 23. mars 1896, d. 3. nóv-
ember 1979, verkamaður á Vífilsstöð-
um í Garðabæ, og kona hans, Júlíana
Bjarnadóttir, f. 7. febrúar 1920, d.
15.9. 1997, verkakona í Kópavogi.
Ætt
Jóhann var sonur Jóns Guðmunds-
sonar frá Egilsstöðum í Ölfusi og Jó-
hönnu Jónsdóttur.
Júlíana var dóttir Bjarna, b. á
Sveinsstöðum í Reykja-
vík Sveinssonar, bróð-
ur Jóns Bergmanns,
skálds og lögregluþjóns
í Hafnarfirði, afa Óttars
Yngvasonar, fyrrv. for-
stjóra Íslensku útflutn-
ingsmiðstöðvarinnar.
Sveinn var sonur Sig-
fúsar Bergmanns, b. á
Króksstöðum í Miðfirði,
Guðmundssonar, bróð-
ur Sveins, pr. í Kirkjubæ
Skúlasonar, langafa Brynjólfs Bjarna-
sonar, fyrrv. forstjóra Granda. Móð-
ir Sigfúsar var Júlíana, dóttir Steins,
sonar Sigfúsar Bergmanns, b. á Þor-
kelshóli í Víðidal, langafa Guðmund-
ar Björnssonar landlæknis, Páls
Kolka og Jónasar, föður Ögmundar
heilbrigðisráðherra.Meðal afkom-
enda hans eru einnig Ingimundur
Sigfússon sendiherra og Björn Guð-
mundsson prófessor. Móðir Sveins
var Jóhanna, dóttir Jóns, b. á Sveðju-
stöðum Guðmundssonar og Ingi-
bjargar Halldórsdóttur, systur Helgu,
langömmu Björgvins Schram, föð-
ur Ellerts Schram, fyrrv. alþm. Móð-
ir Júlíönu var Björg Einarsdóttir, hús-
manns í Fjósakoti Eyjólfssonar og
Valgerðar Jónsdóttur.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
70 ára á sunnudag
Guðmundur R. Jóhannsson
skrifstofumaður í reykjavík
Halla Björg Davíðsdóttir
nemi í þroskaþjálfun
Halla fæddist á Dalvík, ólst þar upp
og hefur átt þar heima alla tíð. Hún
var í Dalvíkurskóla, stundaði nám
við Húsmæðraskólann á Hallorms-
stað og VMA og er nú að ljúka námi
í þroskaþjálfun við HÍ.
Halla vann í fiski á Dalvík á ungl-
ingsárunum. Hún vann við bókhald
um skeið og starfaði við Sundlaug
Dalvíkur.
Fjölskylda
Eiginmaður Höllu er Jakob Rúnar
Atlason, f. 14.8. 1968, verkstjóri hjá
Samherja, en þau eiga einmitt fimm
ára brúðkaupsafmæli í dag.
Dætur Höllu og Jakobs Rún-
ars eru Særún Elma Jakobsdóttir, f.
14.10. 2000; Elsa Dögg Jakobsdótt-
ir, f. 28.6. 2005; Kristín Erna Jakobs-
dóttir, f. 28.6. 2005.
Dætur Jak-
obs Rúnars og
sjúpdætur Höllu
eru Jóna Bára
Jakobsdóttir, f.
17.10. 1990 en
dóttir hennar
er Katrín Salka
Oddsdóttir, f.
28.6. 2008; Aníta
Eir Jakobsdóttir, f. 18.10. 1993.
Systur Höllu eru Sigrún Harpa
Davíðsdóttir, f. 28.11. 1981, nemi í
Svíþjóð; Fanney Davíðsdóttir, f. 15.9.
1988, starfsstúlka við leikskóla; Dag-
ný Davíðsdóttir, f. 2.3. 1991, nemi.
Foreldrar Höllu eru Davíð Stef-
ánsson, f. 25.12. 1957, sjómaður á
Dalvík, og Vilborg Björgvinsdóttir,
f. 17.9. 1960, ritari og saumakona á
Dalvík.
30 ára á laugardag
Hugrún Dögg Þorfinnsdóttir
á sambýlinu sporhömrum 5, reykjavík
Hugrún fædd-
ist í Reykja-
vík og ólst þar
upp. Hún var
í Öskjuhlíð-
arskóla og
stundaði nám
við Fullorðins-
fræðslu fatl-
aðra í Reykja-
vík.
Hugrún er mikil áhugakona um
tónlist en hún syngur með söng-
hópnum Blikandi stjörnur.
Fjölskylda
Bræður Hugrúnar eru Hannes
Gústafsson, f. 13.9. 1970, sjómaður í
Vestmannaeyjum; Þórður Másson,
f. 10.2. 1974, húsasmiður í Hafn-
arfirði; Haraldur Arnarson, f. 5.7.
1988, nemi í Reykjavík.
Móðir Hugrúnar er Kolbrún Benja-
mínsdóttir, f. 20.7. 1952, fram-
reiðslukona og starfar við umönn-
un fatlaðra.
30 ára á sunnudag
40 föstudagur 10. júlí 2009 ættfræði