Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Side 53
lífsstíll 10. júlí 2009 föstudagur 53
Umsjón: Hanna eiríksdóttir, hanna@dv.is
líf og fjör
á akureyri
Mikið húllumhæ verður á Ak-
ureyri yfir helgina er Landsmót
Ungmennafélags Íslands fer
fram. Bærinn mun iða af lífi alla
helgina og því er tilvalið tæki-
færi fyrir fjölskyldur að gera sér
glaðan dag fyrir norðan. Fyrir
utan landsmótið verður mikil
dagskrá í bænum og ættu allir
að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi. Listasýningar, hláturskvöld,
sumartónleikar og fleira verður
í boði. Íslenskar fjölskyldur á
ferðinni ættu að kíkja við í höf-
uðborg norðursins. Áhugasamir
geta kynnt sér dagskrána nánar á
akureyri.is
Nokkrar af þekktustu ofurfyrirsætum heims fyrr og síðar deila með lesendum DV
fegurðarleyndarmálum sínum.
Götuhátíð á Austurvelli Miðbærinn lifnar við föstudag-
inn 10. júlí er Jafningjafræðsla Hins hússins efnir til götuhátíðar á Austurvelli. Í
boði verður mínígolf og alls kyns sprell. Einnig verður Wally götulistamaður á
staðnum til þess að skemmta fólki. Auk þess verður allsherjar tónlistarveisla fyrir
alla aldurshópa, en margar ungar og efnilegar sveitir og tónlistarmenn munu
koma fram og skemmta og þar á meðal má nefna Önnu Hlín úr Idolinu,
Bermuda, BMV, Haffa Haff, Sing for me Sandra og Bróður Svartúlfs.
auglýsingasíminn er
512
7050
FeGurðArleyndArmál
oFurFyrirsætnAnnA
Claudia Schiffer „Baugahyljari
getur falið ýmislegt. notaðu
baugahyljara á flekki í andlitinu
áður en þú setur farða á þig. einn-
ig er gott að nota „highlighter“
á kinnbeinin, það gefur manni
frískandi fallegan gljáa.“
Eva Herzigovina óaðfinnanleg
húð og heilbrigt hár eru leyndarmál
evu. „settu djúpnæringu og maska
í hárið og klipptu það reglulega. Ég
tek einnig mikið af vítamínum til að
halda hárinu mínu heilbrigðu.“
Naomi Campbell Flottar og vel snyrtar augabrúnir eru trixið. „Láttu móta auga-brúnirnar þínar. Það getur skipt sköpum og dregur fram allt það besta við augun þín.“ naomi er einnig með gott ráð fyrir hárið. „snúðu hárinu upp í hnút þegar það er nýþvegið og blautt og leyfðu því að þorna þannig. taktu síðan hnútinn úr og þú ert með guðdómlega liði.“
Helena Christen-
sen notar almond
og Honey-andlits-
skrúbbann frá mario
Badescu. „Hann lykt-
ar eins og marsipan
og gefur húðinni
minni flauelsáferð.“
Hægt er að kaupa
mario Badescu-vörur
á netinu.
Kate Moss notar rimmel-snyrtvör-
ur og hún getur ekki lifað án þeirra.
„Uppáhalds rimmel-varan mín
eru maskararnir þeirra, eyelinerinn
og glossin. Ég get ekki lifað án
eyeliners.“ rimmel-snyrtivörur fást
úti um allt í englandi.
Iman eiginkona davids
Bowie notar sólarvörn
númer 50 á andlitið á
hverjum degi. Húðsér-
fræðingur mælti með því
að hún prófaði að nota
sólarvörn á hverjum degi.
iman var treg í fyrstu en
sannfærðist seinna. „Ég
er alveg viss um að húðin
mín sé í svona góðu formi
vegna þess.“
Elle McPherson „Ég geng ekki
með mikinn farða en þegar ég
mála mig nota ég revlon-vörur.
annaðhvort mineral-vörurnar þeirra
eða age-defying-snyrtivörurnar
sem veita húðinni ótrúlegan raka.
Á kvöldin set ég á mig eyeliner,
maskara og húðlitaðan varalit.“
Heidi Klum „Ég vil vera
með útitekna húð þegar
ég fer í partí. Ég nota Bar
Bronze Gleaming self
tan frá Victoria secret
og set á mig Bar Bronze
daily Glow daginn áður.
mitt helsta ráð er að ef
ég kem ekki púðrinu
í handtöskuna set ég
smá af því í tissjúpappír
og tek það með mér
þannig.“ Victoria secret-
vörurnar fást á netinu.
Tyra Banks tyra heldur
hrukkurnum í burtu með
því að nota vaselín. „Ég
þvæ á mér andltið og set á
mig rakakrem. síðan set ég
vaselín undir augun.“
garðarnir
í reykjavík
Það er ótrúlegt hvað það er hægt
að gera sér glaðan dag í Reykja-
vík án þess að gera neitt sérstakt.
Veðurspáin lofar góðu og því
er tilvalið að fara út með fjöl-
skylduna í góðan göngutúr um
miðbæinn og skoða alla fallegu
garðana sem í boði eru. Þeir eru
skreyttir fallegum blómum og
það verður að segjast að blóma-
beðin í ár eru sérstaklega falleg.
Búið er að leggja torfur á Lækj-
artorg og er frábært veður þar til
þess að liggja í grasinu og slappa
af. Skoðaðu garðana í Reykjavík í
sumar. Þeir munu ekki valda þér
vonbrigðum.