Dagblaðið Vísir - DV - 10.07.2009, Page 64
n Sagan segir að Björgólfur Thor
Björgólfsson hafi tekið gamalt og
fínt skrifborð, sem var í eigu lang-
afa hans, athafnamannsins Thors
Jensen, á sínum tíma af skrifstof-
um Eimskipafélagsins og eignað sér
það. Eimskip var á þeim tíma meðal
annars í eigu fjárfestingafélagsins
Grettis sem Björgólfsfeðgar áttu.
Einhverjum fannst það ekki við hæfi
að Björgólfur Thor eignaði sér skrif-
borðið, en Thor Jensen var á sínum
tíma einn af hvatamönnunum að
stofnun Eimskips og orðaði því þá
hugsun við auðmann-
inn. Ekki stóð á svör-
um hjá Björgólfi Thor.
Hann brást ókvæða
við gagnrýninni og
sagði: „Hann var afi
minn!“ og þótti það
víst nægjanleg rétt-
læting fyrir eign-
arnáminu. Eftir
því sem næst
verður komist
er skrifborð-
ið enn í fór-
um Björgólfs
Thors.
Ég áetta, ég máetta!
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
„Þetta er mjög bagalegt. Með svona
þjófnaði er vinnan manns tekin frá
manni að hluta,“ segir Rúnar Bjarna-
son, verktaki og eigandi glerkerru
sem stolið var frá honum í fyrrinótt
fyrir utan Súðarvog 44.
Rúnar hafði strax samband við DV
vegna þjófnaðarins en fyrir fimmtán
árum var þessari sömu kerru stolið
frá honum. Þá birtist lítil frétt um
málið í DV sem varð til þess að árvök-
ull vegfarandi kom auga á kerruna og
lét Rúnar vita. „Að mínu mati skipti
öllu að fréttin um þjófnaðinn kom í
DV. Strax laugardaginn eftir að DV
kom út hringdi lögreglan í Keflavík í
mig og sagðist hafa fundið kerruna í
Njarðvík,“ sagði Rúnar þá. Hann von-
ast til að sagan endurtaki sig.
„Þá voru það málaraverktakar í
Njarðvík sem höfðu stolið henni,“
segir Rúnar en kerran fannst sama
dag og frétt DV um málið birtist.
Hann segir að kerran sé auðþekkj-
anleg. „Það vantar á hana brettið
öðrum megin og hún er grænmál-
uð að hluta á vinnupallarömmun-
um.“ Rúnar biður þá sem geta gefið
upplýsingar um þjófnaðinn eða hvar
kerran er niðurkomin að hafa sam-
band við hann í síma 896 4560.
einar@dv.is
„Hann var
afi minn!“
Allt A 40-80%
afslAEtti
OpiD:
laugardag: 10-17 - sunnudag: 13-17 - VIRKA DAGA 10-18:30
hefst a morgun
Sömu kerrunni stolið fimmtán árum síðar:
TreysTir á Dv og vegfarenDur
n Kaffistofa Pressunnar segir frá því
að útvarpsstjórinn Páll Magnússon
hafi hreinlega öskrað sig hásan af
reiði þegar nýjustu áhorfs- og hlust-
unartölur á RÚV komu í hús, en þær
ollu hinum nefskatts-fjármagnaða
ríkisfjölmiðli miklum vonbrigðum.
Á sama tíma og Stöð 2
og Bylgjan standa í
stað tapar RÚV hlust-
un og áhorfi. Eru und-
irmenn Páls sagðir
hafa fengið að heyra
það hressilega og
sérstaklega
í ljósi þess
að meðal
yngstu ald-
urshópanna
er áhug-
inn á RÚV
mjög tak-
Hárblásari
Páls
n „Ég bjó út á Spáni í hálft ár og vinir
mínir frá Spáni og Argentínu fóru
að spyrja mig út í íslenska landsliðs-
búninginn. Ég sagði að hann væri
svo ljótur og það vantaði allt tilfin-
ingalega gildið,“ segir Tryggvi Freyr
Torfason, stofnandi hóps fólks á
samskiptasíðunni Facebook sem vill
fá íslenska skjaldarmerkið á treyju
íslenska landsliðsins í fótbolta.
Hann segir núverandi merki KSÍ
ekki eiga við þar sem önnur lönd eru
með stoltið á brjóstinu á
sér. Ríflega þrjú þúsund
manns eru skráðir í
hópinn á síðunni. Þórir
Hákonarson, fram-
kvæmdastjóri KSÍ,
segir KSÍ ekki
hafa skoðað
þessa hugmynd
og hann hefur
efasemdir um
að heimilt
sé að flagga
skjaldarmerk-
inu með þess-
um hætti.
Tilfinningalaus
búningur
Kerran frétt DV varð til þess að
kerran fannst fyrir 15 árum. rúnar
vonast til að sagan endurtaki sig.