Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2009, Blaðsíða 31
m
æ
li
r
m
eð
...
Veitinga-
staðnum
Hótel
Flókalundi
í VatnsFirði
Flott að borða í
Flókalundi.
Public
enemies
Depp og
Mann í
toppformi.
Skilur mann
eftir hristan og hrærðan.
Vigurklerkur-
inn: ÆVisaga
sigurðar Prests
steFánssonar
Eldfim þriðju persónu
ádrepa Vigurklerks
bókinni
Heitar
laugar á
íslandi
„Löngu
tímabær
bók,“ segir gagnrýnandi.
bókinni laura og Julio
Það virðist hægt að
ganga að því sem vísu
að ef bók er hluti af
neon-bókaflokki Bjarts
er hún ýmist góð,
virkilega góð eða frábær.
crossing oVer
Það eru engir
alvarlegir gallar
hér á ferð en það
er svolítið eins og
einhver hafi ekki
nennt að gera myndina.
m
æ
li
r
eK
Ki
m
eð
...
fóKus 14. ágúst 2009 föstudagur 31
Sýningin Jazzóður – Jazz í íslenskri myndlist opnuð á sunnudag:
Djössuð myndlist
föstudagur
n Jónsi spot on
Það vill enginn missa af ballinu á
SPOT í Kópavogi á föstudagskvöldið
því þar verður ofurbandið Í svörtum
fötum með tónleika. Hinn fáránlega
hressi og káti Jónsi mætir með sína
menn en miðasala hefst klukkan
23.00 og kostar ekki nema 1.500
krónur inn.
n silfur í eyjum
Hin frábæra hljómsveit Silfur verður
í Vestmannaeyjum um helgina. Hún
spilar á Lundanum bæði föstudags-
og laugardagskvöld . Mun hún rokka
bæði kvöldin og kynda aftur upp í
Eyjamönnum eftir Þjóðhátíð.
n lög unga fólksins
800 bar á Selfossi hefur verið dug-
legur að leyfa yngri kynslóðinni að
skemmta sér með 16 ára böllunum.
Eitt slíkt verður á föstudagskvöldið
þegar DJ Óli Geir sér um músíkina
á Froðuballi! Sextán ára inn og árið
gildir.
n kacoon á Prikinu
Á Prikinu á föstudagskvöldið hefur
hið frábæra Húsband leik klukkan 22
eins og svo oft áður. Það verður svo
meistari DJ Árni Kacoon sem sér um
tónlistarflutning eftir það og fram
á nótt.
n Paparnir á Players
Hinir stórkostlegu Papar verða með
ball á Players aðfaranótt laugardags.
Miðaverð er 1.500 krónur en Matti og
félagar hefja leik hálftíma eftir mið-
nætti á föstudagskvöldið. Paparnir
sama sem stuð. Það vita allir.
laugardagur
n 90´s á nasa
Þeir sem hafa ekki enn kíkt á hin
frábæru 90´s partí DJ Kiki-Ow og
Curvers á Nasa fá tækifæri til þess
á Laugardagskvöldið. Þau halda þá
eitt af sínum geysivinsælu kvöldum
og hefst gleðskapurinn mínútu í
miðnætti. 1.500 krónur inn.
n sixties á sPot
Snillingarnir í Sixties verða með ball
á skemmtistaðnum SPOT í Kópavogi
á laugardagskvöldið en þessi þræl-
hressa hljómsveit hefur leik klukkan
23.00. Miðinn kostar 1.500 krónur og
hefst miðasalan klukkan elelfu.
n súper-partí á Prikinu
Skemmtistaðurinn Prikið stendur
fyrir Ofurhetju- og skúrkapartíi á
laugardagskvöldið sem hefst klukkan
22.00. Þar á fólk að mæta klætt sem
ofurmenni, þau góðu eða vondu. Það
fólk sem mætir í búningi drekkur frítt.
DJ Danni Deluxxx sér um tónlistina.
n spútnik á Players
Hið gífurlega skemmtilega ballband
Spútnik verður með tónleika á
skemmtistaðnum Players á laugar-
dagskvöldið. 1.500 krónur kostar inn
en tónleikarnir hefjast klukkan 00.30.
Hvað er að
GERAST?
Sýningin Jazzóður – Jazz í íslenskri
myndlist er framlag Listasafns
Reykjavíkur til Jazzhátíðar í Reykja-
vík sem hefst um helgina og fagnar
nú tuttugu ára afmæli sínu. Sýning-
in verður opnuð á Kjarvalsstöðum
næstkomandi sunnudag klukkan
16 við undirleik sænska bandsins
Music Music Music.
Djassinn hefur gegnt þýðing-
armiklu hlutverki fyrir sjónræn-
an spuna síðastliðin hundrað ár
og hefur meðal annars haft áhrif á
samhljóm, hryn, tón og rými í verk-
um ýmissa listmálara. Á sýningunni
eru sýnd verk fimm íslenskra lista-
manna sem vottað hafa goðsögn-
um djassins virðingu sína, þá Erró,
Grétar Reynisson, Sigurbjörn Jóns-
son, Sigurð Örlygsson og Tryggva
Ólafsson.
Djassklúbbastemning mun ríkja
á sýningunni allt sýningartímabil-
ið og verða þar haldnir tónleikar og
tangóball. Frá mánudeginum 17. til
miðvikudagsins 19. ágúst fara fram
í salnum vinnustofur og masters-
klassar með þekktum djasssnilling-
um sem eru ókeypis og öllum opin.
Í Hafnarhúsinu verður boðið upp á
ókeypis fyrirlestra um sögu djass-
ins fimmtudagana 20. og 27. ágúst
og djasslituð stemning mun ríkja í
Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum á
Menningarnótt.
Sýningin stendur til 31. ágúst og
er dagskrána að finna á listasafn-
reykjavikur.is.
djassaður erró Miles Davis blæs duglega á
mynd sem Erró lauk við fyrir tveimur árum.
Heimildarmyndin Stelpurnar okkar er frumsýnd í dag en hún segir frá sigurgöngu
íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu í undankeppni EM 2009. Þóra tómasdóttir,
dagskrárgerðarkona úr Kastljósinu, leikstýrði myndinni sem er hennar fyrsta heim-
ildarmynd í fullri lengd. Þóra segir myndina um stelpur sem geti allt.
vera afreksíþróttamaður. En þetta er
að langmestu leyti hugarfarið.“
Þóru fannst einnig mjög áhuga-
vert að fylgjast með baráttu landslið-
skvennanna sín á milli í deildinni hér
heima. „Á þeim tíma sem við vor-
um að fylgja þeim eftir var landslið-
ið aðallega sett saman af leikmönn-
um tveggja liða, Vals og KR. Þær voru
að heyja blóðugt stríð hér heima en
komu svo saman í landsliðinu og
náðu upp þessum ótrúlega liðsanda.“
Þrátt fyrir þessa uppbyggingu liðsins
segir Þóra enga pústra hafa komið
upp innan þess.„ Ég myndi segja að
pústrarnir hafi nánast engöngu ver-
ið þegar þær voru að leika með
sínum eigin liðum.“
Landslag lands-
liðsins hefur þó
breyst gífurlega og
er samsetning þess
núna mun dreifð-
ari. „Það sem gerðist
var að eftir að þær
náðu að tryggja
sér þátttöku-
réttinn á
Evrópumót-
inu fóru 11
landsliðs-
konur út í
atvinnumennsku. Sem er auðvitað
bara frábært. Flestar þeirra spila í
Svíþjóð sem er með sterkari kvenna-
deildum heims í dag og það er mik-
ið fylgst með þeim þar,“ en vel hefur
verið tekið eftir afreki íslenska liðsins
í heimi kvennaknattspyrnu sem og
annars staðar.
Vill meira nám
Þóra útskrifaðist eins og áður kom
fram frá NISS í Noregi árið 2003 en
hefur lítið unnið að heimildagerð
þrátt fyrir það. „Þetta er mín fyrsta
mynd í fullri lengd.“ Þóra vann lengi
vel að heimildarmynd sem gerðist í
Rússlandi og var af allt öðrum toga en
efast um að hún komi nokkurn tíman
út. „Ég er hins vegar byrjuð að vinna
að annarri mynd en hún tengist því
námi sem ég er í núna. Menningar-
stjórnun á Bifröst.“ Þó Þóra sé ánægð
með nám sitt í Noregi segist hún
þyrst í frekara nám. „Þessi menntun
var frábær þó hún hafi kannski ekki
verið nægilega mikil eða nægilega
ströng.“
Aðspurð segist Þóra lítið hafa íhug-
að að fara út í gerð leikinna mynda.
„Eins og staðan er í dag finnst mér
þetta form vera skemmtielgast. Mér
finnst skemmtilegast að sjá dramat-
íkina í raunveruleikanum.“ Sjálf seg-
ist Þóra eiga langt í land í heimildar-
myndagerð og segist margt eiga eftir
ólært. „Það er nokkuð langt í það að
ég verði eitthvað sátt við það sem ég
er að gera í þessu og því ætla ég að
einbeita mér aðeins lengur
að heimildar-
mynd-
un-
um.
Maður eru nú yfirleitt ekkert sér-
lega ánægður með sig. En ég reyni
að vera það í dag. Nú er ég búin að
skila þessu frá mér og ég er allavega
ánægð með stelpurnar og hvernig
þær koma út úr þessu.“
langar til Finnlands
Þóra segir það aldrei hafa verið inni
í myndinni að fylgja stelpunum eftir
til Finnlands og framlengja mynd-
ina. Eða þá að búa til aðra mynd um
Evrópumótið sjálft. „Það verður ein-
hver annar að fara í það. Ég var strax
ákveðin í að hætta þarna. Áfanginn
var að komast á mótið og einhvers
staðar verður maður að setja punkt
og snúa sér að öðru. Annars verð-
ur maður bara ruglaður.“ Þóra við-
urkennir þó að hana langi mikið til
Finnlands sem áhorfandi til þess að
hvetja stelpurnar áfram. „Það væri
alveg ótrúelga gaman.“
Þóra er ekki hætt í Kastljósinu þó
svo að hún hafi unnið mikið í mynd-
inni og einbeitt sér að náminu. „Ég
er mætt aftur til vinnu þar um leið og
ég er búin að frumsýna. Ég held að
ég sé komin að þolmörkum hjá öll-
um í kringum mig og það er kominn
tími til þess að ég fari aftur að vinna
og sinna börnunum á heimilinu og
svona.“
Menntun Þóru í heimildar-
myndagerð nýtist henni vel sem
dagskrágerðarkona í Kastljósinu þar
sem hún stefnir á að starfa á kom-
andi árum. „Mér finnst ég alltaf vera
að gera litlar heimildarmyndir í
Kastljósinu.“
asgeir@dv.is
lygilegt KeppnissKap og
hættulegur metnaður margrét lára
Viðarsdóttir og
dóra stefánsdóttir
Eftir sögulegan sigur í
riðlinum gegn Frökkum
á Laugardalsvelli.
stelpurnar okkar Katrín
Ómarsdóttir steig dans
þegar Ísland tryggði sér
þátttökurétt á EM.