Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Síða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Síða 2
2 miðvikudagur 30. september 2009 fréttir „beinar hótanir um ofbeldi“ Einar Þór Sverrisson, verjandi Kompásmanna, var ábúðarfullur á svip þegar hann rétti Ingimundi Einarssyni héraðsdómara rifna pappírstutlu með handskrifuðum tölum. Á miðanum var símanúm- er Ragnars Magnússonar, manns- ins sem Benjamín Þór Þorgrímsson barði fyrir framan myndatökuvélar Kompáss á síðasta ári. Miðann rétti Einar Þór fram við aðalmálflutn- ing í skaðabótamáli Benjamíns gegn Kompási, þegar kom að því að Ragnar bæri vitni í gegnum síma. „Það var sérstök ósk um að númer- ið færi ekki á flakk,“ sagði lögmað- urinn við dómarann. Tíu milljóna krafa Aðalmeðferð fór fram í gær í mál- inu þar sem Benjamín krefst bóta af fyrrverandi fréttamönn- um Kompáss, þeim Jóhannesi Kr. Kristjánssyni og Kristni Hrafns- syni, 365 fjölmiðlafyrirtækinu og Ara Edwald, forseta fyrirtækisins. Ástæðan er myndbirtingin fræga af samskiptum Benjamíns og Ragn- ars við Hafnarvigtina í Hafnarfirði. Benjamín telur brotið á rétti sínum og gengið að persónuvernd sinni en Kompásmenn segja þetta hafa verið faglega umfjöllun um starf- semi handrukkara. Skaðabótakrafa Benjamíns hljómar upp á tíu millj- ónir króna. Auður stóll stefnanda Stóll Benjamíns var auður þeg- ar málið var tekið fyrir. Þrír fyrr- verandi starfsmenn Kompáss og Ragnar Magnússon voru því í að- alhlutverkum við skýrslutöku og vitnaleiðslur. Kristinn Hrafnsson var fyrstur. Ítarlega var farið í gegnum hvern- ig unnið hefði verið að þættinum og hversu lengi. Einar Þór spurði Kristin meðal annars út í samskipt- in við Benjamín og sagði fréttamað- urinn að Benjamín hefði komið í heimsókn á vinnustað Kompás- manna í Skaftahlíð í Reykjavík. Þar hefði hann lýst óánægju sinni með upptökuna en ekki farið leynt með starf sitt. „Að vísu komst hann svo að orði að hann væri ekki hand- rukkrari heldur andrukkari vegna þess að persóna hans og nærvera væri þess eðlis að fólk lyppaðist niður.“ Kristinn sagði að Benjamín hefði haft í alvarlegum hótunum við Kompásmenn á þessum fyrsta fundi þeirra. „Beinar hótanir um ofbeldi. Hann ítrekaði það.“ Brotið á persónuvernd Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lög- maður Benjamíns Þórs, lagði öðru fremur áherslu á tvennt í málflutn- ingi sínum. Annars vegar að það væri meginregla að ekki mætti birta mynd af einstaklingi án hans leyfis og vísaði þar meðal annars til Karólínudómsins hjá Mannrétt- indadómstól Evrópu þar sem þýska ríkið var sakfellt fyrir að sjá ekki til þess að einkalíf Karólínu prinsessu af Mónakó nyti verndar. Hitt atriðið var að samskipti Benjamíns og Ragnars væru ekki handrukkun, eins og þátturinn væri þó sagður fjalla um, heldur deilur tveggja manna. Hann sagði að það hefðu verið mistök hjá Benjamín að berja Ragnar og að hann sæi eft- ir því. Enda hefði ekki verið ætlun hans þegar hann fór til fundarins að beita Ragnar ofbeldi. Vilhjálmur sagði jafnframt að fjölmiðlar mættu ekki velta sér upp úr mistökum fólks og virtist þar meðal annars vísa til líkamsárásar Benjamíns á Ragnar. Hann sagði að harkalega hefði verið gengið að persónu Benjamíns í þættinum og tiltók líka að áður en kom að þessu máli hefði Benjamín verið með hreint sakavottorð og að það væri óumdeilt. Einar Þór Sverrisson, verjandi Kompásmanna, andmælti því ekki en benti á að Benjamín hefði verið sakfelldur fyrir nauðgun 1993 og þá hefði komið fram í þeim dómi að hann hefði áður verið sak- felldur. Hluti þjóðmálaumræðu Einar Þór lagði áherslu á að þáttur- inn þar sem Benjamín kom til sögu hefði verið hluti af umfjöllun um handrukkara. Sagði hann að þvert á það sem Vilhjálmur hélt fram um að ekki mætti birta mynd af fólki í fjölmiðlum væri það svo að þegar væri fjallað um málefni sem ættu erindi í þjóðmálaumræðuna mætti fjalla um fólk, birta af því myndir og upptökur. Einar benti meðal annars á að í sakamáli gegn Benjamín vegna árásarinnar á Ragnar hefði verið kveðið upp úr um að sönnunar- gagnanna, upptakanna af árásinni, hefði ekki verið aflað með ólög- mætum hætti. Þá vísaði hann því á bug að um einkamál væri að ræða en ekki handrukkun. Bubbadómur dúkkar upp Margfrægur Bubbadómur, dóm- ur yfir ritstjóra tímaritsins Hér og nú fyrir að birta myndir af Bubba Morthens reykjandi í bíl sínum, var tekinn sem hluti af röksemda- færslu í aðalmeðferðinni í gær. Það var þó ekki Vilhjálmur, lögmaður Benjamíns stefnanda, sem vitnaði í dóminn heldur Einar Þór, verjandi þeirra stefndu. Einar Þór sagði að Bubbadóm- urinn sýndi fram á undir hvaða kringumstæðum mætti ekki birta myndir af fólki án þess leyfis eða taka myndir úr launsátri, það væri ef umfjöllunin hefði ekkert vægi í þjóðmálaumræðu. Karólínudóm- urinn sem Vilhjálmur vitnaði til væri með sama hætti. Þetta ætti hins vegar ekki við í þessu máli vegna þess að fjallað var um hand- rukkun í Kompásþættinum þar sem myndirnar af Benjamíni að berja Ragnar birtust. Hversu margar upptökur? Vilhjálmur spurði mikið út í tvo þætti, annars vegar hvort fleiri nafn- greindir handrukkarar en Benja- mín Þór hefðu komið við sögu og eins hversu oft Ragnar hefði geng- ið með faldar myndatökuvélar á sér eða hlerunarbúnað. Jóhannes og Kristinn sögðu þetta hafa verið tvö til þrjú skipti með faldar mynda- „Að vísu komst hann svo að orði að hann væri ekki handrukkrari heldur andrukkari“ Kristinn Hrafnsson fréttamaður segir Benjamín Þór Þorgrímsson hafa hótað Kompásmönnum líkamlegu ofbeldi eftir að þeir tóku myndir af hon- um að berja Ragnar Magnússon. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður Benjamíns, segir að harkalega hafi verið gengið að persónu hans. BRynjólfuR ÞóR GuðMundsson fréttastjóri skrifar: brynjolfur@dv.is stefnt af Benjamín Þór Kristinn Hrafnsson stend- ur frammi fyrir dómara í aðalmeðferð meiðyrðamáls Benjamíns Þórs Þorgrímssonar, Benna Ólsara, gegn honum og fleirum. Lögmaður Benjamíns, Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, stendur við gluggann. MyndIR HEIðA HElGAdóTTIR Bíða síns tíma Jóhannes og Ingi biðu í fyrstu utan þingsalar en fengu síðan að koma inn við upphaf aðalmeðferðar. Ekki kollegar Vilhjálmur spurði Kristin og félaga hvort þeir hefðu haft milli- göngu um að „kollegar þeirra“ í þættinum Zúúber á FM957 tóku viðtal við Ragnar þar sem hann sakaði Benjamín um að handrukka sig. Allir neituðu því en þó sýnu meir að fólkið á Zúúber væri kollegar þeirra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.