Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Síða 14
Framsóknarmenn eru skrýtnar skrúfur enda fáir og álíka sjaldséðir og hvítir hrafnar. Enn furðulegri eru svo aftur ungir framsóknarmenn þar sem þeir eru í eðli sínu þversögn sem gengur ekki upp vegna þess að olía og vatn eiga betri möguleika á að blandast saman en hugtökin „framsóknarmað- ur“ og „ungur“. Framsóknarmenn eru þó hvergi nærri af baki dottnir og láta ekki útrýmingarhættuna draga sig niður enda kunna þeir vel við sig í fámenni blessaðir eins og sannaðist best þegar einn fyrrverandi formanna flokksins fann það út að ekki þyrftu nema bara tveir framsóknarmenn að koma saman fyrir framan spegil og þá væri það fundur. En snúum okkur aftur að hinum áhugaverðu ungu framsóknarmönnum sem láta sér ekki nægja að ganga þvert á öll lögmál eðlisfræðinnar og rökhyggju með tilvist sinni heldur hefur þeim nú í málefnafátækt sinni og tilgangslausu brölti um óbærilega léttleikandi tilveruna tekist að bregða fæti fyrir formann sinn. Mann sem er í raun blautur á bak við eyrun og ætti því með réttu að teljast til ungra framsóknarmanna ef hann fengist til að kasta af sér sauðargæru gamal- mennisins. En formaðurinn hefur sem sagt reynt að fjölga framsókn-armönnum með því að garga sig hásan í lýðskrumi og virðist meira að segja hafa náð eyrum einhverra sem telja samkvæmt skoð- anakönnun- um atkvæði sínu best varið hjá Fram- sóknar- flokkn- um. Ungu fram- sóknar- mönn- unum, sem með réttu ættu ekki að vera til, virðist hins vegar ekki finnast það neitt sniðugt að fjölga framsóknar- mönnum. Þeirra helsta kappsmál mitt í öllum pólitíska glundroðanum er nefnilega að koma í veg fyrir að fólk fjölgi sér með kynlífi en lífið er svo einkennilegt að öll fjölgum við okkur með samförum. Líka framsóknar- menn. Ungu framsóknarmennirnir hafa af því þungar áhyggj-ur að getnaðarvarnir hafi hækkað verulega í verði á árinu um leið og salan hefur dregist saman. „Ungt framsóknarfólk benti í liðinni kosningabaráttu á að hækk- andi verð á getnaðarvörnum gæti leitt til þess að ungt fólk leitaði í ódýrari varnir eða hætti notkun þeirra. Mikil þörf er á að bæta aðgengi að getnað- arvörnum fyrir ungt fólk og efla opna umræðu um getnaðarvarnir og ábyrgt kynlíf. Þá ítrekar stjórnin þá skoðun sína að rétt sé að lækka virðisauka- skatt á öllum getnaðarvörnum úr 24,5% í 7%. Lægra skattþrep lækkar verð á getnaðarvörnum, leiðir til auk- innar notkunar þeirra sem spornar þannig gegn ótímabærum þungunum og dregur úr líkum á kynsjúkdómum. Það mun því skila sér í sparnaði fyrir hið opinbera til lengri tíma litið.“ Þetta er fagnaðarerindi unga framsóknarfólks-ins á meðan pólitík-usar með heilbrigða dómgreind ættu frekar að hafa áhyggjur af hækkandi matvælaverði og því hvernig í ósköpunum fólk eigi að fara að því að brauðfæða þau börn sem nú þegar eru í heiminn kominn. Frá sjónarhóli formanns Fram-sóknarflokksins hlýtur þessi boðskapur svo auðvitað að teljast álíka gáfulegur og ef síðustu geirfuglarnir hefðu barist fyrir því að veiðar á þeim yrðu gefnar frjálsar og að verð á haglaskotum væri lækkað sérstaklega um 50 prósent í þeim tilgangi. Það væru sko heimskir geirfuglar sem hefðu stuðlað beint að útrýmingu tegundar sinnar. En þannig geirfuglar eru ungir framsóknarmenn. Auðvit-að blasir við að þeir eru nú fáir framsóknarmennirn- ir sem fæðast í þennan heim nú til dags en fari svo að ódýrir smokkar fari að grípa ófædda Íslendinga áður en hægt er að leggja drög að þeim með samruna frumu og eggs mun fram- sóknarfæðingum fækka enn frekar en orðið er. Þá hlýtur að liggja í augum uppi að nýir genetískir fram-sóknarmenn verða helst til við óábyrgt kynlíf þar sem framsóknarmennska er skilgreind sem arfgengur sjúkdómur og því hlýt- ur fólki sem ber meinið í blóði sínu nánast að bera skylda til þess að fara sérlega varlega á rúmstokknum og helst ekki að fjölga sér nema að vand- lega athuguðu máli. Fyrir utan framsóknarþver-sögnina í þessum málflutn-ingi unga fóksins sem er í raun ekki til er auðvitað gott og blessað að ungir framsóknarmenn reyni að finna sér hluti til þess að hafa skoðanir á en ósköp er það dæmigert fyrir afdalamennsku ungu gamal- mennanna að setja í forgang tilraunir til að hemja kynlíf unglinga. Sennilega er auðveldara að leysa Icesave-deil- una ef út í það er farið. Heimskir geirfuglar Spurningin „Aldrei aftur yfirdrátt. Ég lofa. Í alvöru,“ segir Gunnar Lárus Hjálmarsson, betur þekktur sem Dr. Gunni. Hann sagði frá því í DV í gær að hann hefði tekið tækifæri Iceland Express um að leika í auglýsingaherferð þeirra fagnandi. Með laununum tókst honum loks að greiða niður yfirdráttinn aldrei aftur yfirdrátt? „Honum er velkomið að hringja í mig.“ n Sæmi rokk um hvort hann muni rétta Roman Polanski hjálparhönd líkt og hann gerði þegar Bobby Fischer var handtekinn í Japan. - DV „Ætli það sé ekki svona einn á móti 1600 af því sem Bjarni Ármanns- son ætlar ekki að borga.“ n Dr. Gunni um hvað hann hafi fengið greitt fyrir að leika í auglýsingum Iceland Express. Hann sá áður um neytendaumfjöllun í Fréttablaðinu. - DV „Þjóðinni til skammar.“ n Ásmundur Jóhannsson sjómaður sem veiddi kvótalaus eftir að Mannréttindadómstóll Evrópu sendi frá sér skýrslu sem var áfellisdómur yfir íslenska kvótakerfinu. Héraðsdómur Reykjaness hafnaði því að Ásmundur mætti notast við gögnin í málsvörn sinni. - DV „Ég er ennþá í 30.000 feta hæð.“ n Raggi Bjarna eft- ir vel heppnaða afmælistónleika þar sem hann fagnaði 75 ára afmæli sínu, en hann bauð öllum sem vildu í veislu í Laugardalshöllinni. - Morgunblaðið „Núna langar mig að koma einhverjum öðrum á kortið.“ n Hugleikur Dagsson sem hefur stofnað bókaútgáfuna Ókei bæ-kur. Sjálfur hefur hann skrifað fjölda ögrandi teiknimyndabóka um eineygða köttinn Kisa. - Fréttablaðið Grímulaus áróður Leiðari Mikill atgangur er nú hjá helstu höfundum hruns-ins að skrá söguna sér í hag. Daglega dynja á fólki áróðurssögur um það hverjum sé um að kenna og ekki síst hverjir séu saklausir. Útrásarvíkingar, með örfáum undantekningum, halda því fram að þeir séu í meginatriðum sak- lausir. Ráðamenn Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans, sem áttu að standa vaktina í fjármálakerfinu, keppast ber- syndugir við að bera af sér sakir. Sama er uppi á teningnum varðandi stjórn- málamennina sem leiddu þjóðina í aðdraganda hrunsins. Þeir telja sig algjörlega saklausa. Hagfræðingar og aft- urbata viðhengi útrásarmanna keppast við að lýsa yfir sakleysi sínu. Grímulaus áróður sökudólga hrunsins rennur fram eins og mó- rauð elfur. Það er allri þjóðinni nauðsynlegt að hrinda af sér taumlausum áróðri spuna- meistaranna. Ef samfélagið á að læknast af spillingu og óráðsíu verður að greina vanda- málið og skera burtu meinsemdirnar. Sú söguskýring prófessors leikur nú ljós- um logum að það sé ráðamönnum síðustu fimm ára að kenna hvernig fór. Landinu hafi sem sagt verið stjórnað af afglöpum frá ár- inu 2004 og fram til þessa dags. Sem sagt: Allt var í lagi á Íslandi til ársins þegar Hall- dór Ásgrímsson tók við forsætisráðuneytinu og síðar Geir H. Haarde. Önnur kenning af sama toga er að eignarhald á fjöl- miðlum hafi valdið því að þjóðin hrapaði fyrir björg. Forseti Íslands er borinn sömu sökum fyrir að hafa stöðvað fjölmiðlalögin. Það á sem sagt að skrifa hrunið á flesta aðra en þá sem lögðu grunninn að því fjármálakerfi sem lagðist á hliðina fyrir ári. Klappstýrur út- rásarinnar hafa breyst í kór hinna heilögu boðbera réttlætis og sak- leysis. Farvegur hinna spilltu er fjölmiðlar sem beitt er til þess að koma að sjónarmiðum sögufals- aranna. Þeir kræfustu leggja undir sig miðla og sverta aðra með upp- lognum sökum eða í besta falli dylgjum. Það er gríðarlegt atriði að frjálsar fréttastofur á Ís- landi haldi vöku sinni og gæti sín á áróðurs- meisturunum. Sögu hrunsins og sökudólg- anna verður að skrifa af heilindum og bestu mögulegri þekkingu. Annars er öll þjáning fátækrar þjóðar til einskis og allt mun verða eins og það áður var. reynir traustason ritstjóri skrifar: Farvegur hinna spilltu er fjölmiðlar. bókStafLega 14 miðvikudaGur 30. september 2009 umræða Sandkorn n Menn lesa greinar Morgun- blaðs Davíðs Oddssonar um hrunið af gaumgæfni. Blaðið hóf í fyrradag greinaröð sína. Þar er sagan rakin og því lýst að árið 2008 hafi verið ljóst að illa gæti farið ef íslensku bankarnir fengju ekki aðgang að lánsfé. „For- svarsmenn Seðlabanka Íslands lýstu efir áhyggjum sín- um af gangi mála strax í febrúar og sagði Davíð Oddsson, for- maður stjórnar Seðlabankans, að bankarnir gætu allir lent í vanda í október ef ekkert yrði að gert,“ segir Mogginn sem þar með hef- ur komið að þeirri „sagnfræði“ að Davíð ritstjóri sé saklaus af sofandahætti og kæruleysi. n Kappræður þeirra Agnesar Bragadóttur, pistlahöfundar Morgunblaðsins, og Bjargar Evu Erlendsdóttur, ritstjóra Smugunnar, í Bítinu á Bylgjunni hafa vakið mikla athygli. Björg Eva hefur þar staðið uppi í hári Agnesar og jafnvel snuprað hana eftir atvikum. Illilega kast- aðist í kekki milli stallsystranna í þætti fyrir rúmri viku. Björg Eva mætti síðan ekki í þáttinn í gær. Ástæðan mun vera sú að hún hafi fengið nóg af orðbragði og nærveru við Agnesi og því ákveðið að hætta að mæta. n Björgvin G. Sigurðsson, fyrr- verandi bankamálaráðherra, var svo óheppinn að með stofn- un vefseturs opnaðist annars harðlæst heimasíða hans. Þar kennir ýmissa grasa og má þar finna frásögn af því þegar Björg- vin í júlí 2008, þremur mánuð- um fyrir hrun, hundskammaði útlendinga fyrir hrakspár: „Að- stoðarforstjóri Nordea í Finn- landi, Markku Pohojla, gefur til dæmis opinberlega í skyn að íslensku bankarnir munu fljótlega lenda í miklum vand- ræðum. Hann gengur jafnvel svo langt að gera því skóna að íslensku bankarnir verði ekki til staðar eftir nokkra mánuði. Þessi stóru orð finnska banka- mannsins byggja ekki á neinni greiningu á íslenskum bönk- um,“ bloggaði Björgvin og vísaði til heilbrigðisvottorðs Seðla- bankans og Fjármálaeftirlitsins. n Svo er að sjá sem Hanna Birna Kristjánsdóttir borg- arstjóri stjórni sínu liði far- sællega af festu og mildilegri hörku. Enginn vafi er á því að hún mun leiða lista flokksins að vori. Spurningin er einung- is sú hver verði næstráðandi hennar. Reiknað er með því að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, forseti borgarstjórnar, hætti. Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi, sem barðist við Hönnu Birnu um leiðtogasæt- ið, á ekki upp á pallborðið hjá stuðningsmönnum hennar og liggur lágt í umræðunni. Það er því eins víst að hann fái ekki stuðning þeirra og leitað sé að nýjum varamanni borgarstjór- ans. LynGHáLs 5, 110 REykjaVík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: Hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: sverrir arngrímsson ritStjórar: jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór Guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: Elísabet austmann, elisabet@birtingur.is dv á netinu: DV.Is aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.