Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Qupperneq 18
Miðvikudagur 30. september 200918 suðurland Fangaverðir á Litla-Hrauni gerðu sér ferð vestur í Bjarkalund um síðustu mánaðamót til þess að virða fyrir sér vettvanginn þar sem Georg Bjarnfreðarson og félagar hans komu sér í slíkan vanda að þeir eru nú í fangelsi. Heimsóknin í Bjarkalund var hluti af ferð um Vestfirðina alla sem fangaverðirnir fóru í ásamt meðlimum í Hrútavinafélaginu Örvari, sem hefur gert sig gildandi í félagslífi á Suðurlandi síð- ustu tíu árin. „Við lokuðum Vestfjarðahringnum í Bjarkalundi. Þar var okkur einstaklega vel tekið og við fengum að skoða þarna allan vettvanginn, eldhúsið, herbergin og svo búsáhöldin sem urðu svo afdrifarík í hönd- unum á þeim félögum í Dagvaktinni,“ segir Björn Ingi Bjarnason, fangavörður og forseti Hrútavinafé- lagsins. „Hópurinn snæddi að lokum hátíðarkvöld- verð í Bjarkalundi áður en haldið var heim á leið.“ Atriði í sjónvarpsþáttunum Fangavaktinni voru tekin á Litla-Hrauni í sumar. Að megninu til tökur í fangelsisgarðinum og á vinnustöðum fangelsisins. „Allar tökur í fangaklefum voru svo gerðar í mynd- veri í Reykjavík.“ Í síðustu viku var svo haldin sérstök forsýning á fyrstu tveimur þáttum Fangavaktarinn- ar á Hrauninu. „Þetta var mikið fjör og stemningin bara eins og í þrjúbíói,“ segir Björn Ingi. Vestfjarðaferðin var hluti af yfirstandandi dag- skrá í tilefni af tíu ára afmæli Hrútavinafélagsins Örvars, sem stofnað var haustið 1999. Hátíðahöld- in hófust með Bryggjuhátíð á Stokkseyri sem Hrúta- vinir hafa staðið fyrir ásamt heimamönnum. „Þetta var í raun tvöfalt afmæli þar sem Bryggjuhátíðin varð fimm ára. Við þetta tækifæri ákváðu Hrútavin- ir að heiðra alls tuttugu einstaklinga sem hafa verið áberandi og kraftmiklir að undanförnu. Þarna voru tíu Stokkseyringar heiðraðir og svo tíu Hrútavinir.“ Á Bryggjuhátíðinni lék svo Hrútavinahljóm- sveitin Granít frá Vík í Mýrdal fyrir dansi við mikinn fögnuð viðstaddra. sigtryggur@dv.is Hrútavinir og fangaverðir á Litla-Hrauni skoða sig um á Vestfjörðum: VettVangsrannsókn Á slóðum Dagvaktarinnar Gunnar Marel Friðþjófs- son, Ásmundur Sigurðsson, Bjarkar Snorrason, Friðrik Sigurjónsson, Hafliði Magnússon, Jóhann Páll Helga- son, Hlynur Gylfason, Einar Valur Oddsson og Einar Loftur Högnason. mynDir Hrútavinir / Björn ingi Bjarnason alræmd búsáhöld Einar Valur með pönnuna frægu sem grandaði Guggu. Einar Loftur með sigti til varnar. Í rúminu hennar guggu Bjarkar Snorrason, Friðrik Sigurjónsson og Jóhann Páll Helgason. Þar var gott í kroppinn. Í Bjarkalundi Georg Bjarnfreðar- son og hyski hans í Bjarkalundi. fangavarða í Bjarkalundi stokkseyringar heiðraðir Kristrún Ósk Kalmannsdóttir, Margrét S. Frímannsdóttir, Guðrún Kristmannsdóttir, Ragn- hildur Jónsdóttir, Grétar Zóphaníasson, Kristján Friðbergs- son, Sigríður Kolbrún Guðjónsdóttir, Helga Jónasdóttir, Theodór Guðjónsson, og séra Úlfar Guðmundsson. Hrútavinir heiðraðir Sigurður Sigurðarson, Kristinn Jó- hann Níelsson, Ólafur Helgi Kjartansson, Siggeir Ingólfsson, Guðni Ágústsson, Björn Harðarson, Guðrún Jóna Borgars- dóttir, Sævar Jóelsson, Bjarkar Snorrason og Árni Johnsen. Forsetinn Björn Ingi Bjarnason, forseti Hrútavina- félagsins og fangavörður. Hrútavinabandið granít Hrútavinafélagið hefur ávallt haft sérstaka hrútavinahljómsveit á mála hjá sér. Framan af var það hljómsveitin Nilfisk. Hún hefur nú lagt upp laupana og hljómsveitin Granít er tekin við. Hrútavinir í sauðfjársetri Einar Loftur Högnason, Friðrik Sigurjónsson, Hlynur Gylfason, Ásmundur Sigurðsson, Jóhann Páll Helgason, Hafliði Magnússon, Bjarkar Snorra- son, Einar Valur Oddsson og Arnar S. Jónsson. Almennar bíla- og vélaviðgerðir Neyðarnúmer allan sólarhringinn 899 1764 ● Pú st - o g br em su vi ðg er ði r● ● T öl vu le st ur ● ● S æ kj um b ilu ð tæ ki ● ● S öl us ko ðu n ●

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.