Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Page 22
Miðvikudagur 30. september 200922 suðurland
Verið velkomin á stærri
og flottari
TILBOÐSMATSEÐILL fyrir fyrirtæki og hópa
PINNABOÐ OG EINKASAMKVÆMI
(mætum einnig í heimahús og fyrirtæki með veislur)
nautalund, kjúklingur, salöt, hamborgarar,
samlokur, tortillur, fiskur, súpur, grænmetisréttir,
barnamatseðill og fl.
BRUNCH DISKUR ALLAR HELGAR: egg,
beikon, skinku- og ostbeygla, franskar,
ávextir, steikt grænmeti, kaffi og safi
alla fimmtudaga frá kl. 21 – 23 stjórna
Leifur og Mási PUB QUIZ af alkunnri snilld.
Tilboð á mat, tónlist og opið til kl. 01
fiskur, súpur og fleira,
alla virka daga kl. 11:30 – 13:30
15% afsl. af sóttum mat og kaffi
(gildir ekki um hádegistilboð)
TAKIÐ MATINN OG KAFFIÐ MEÐ HEIM
HÁDEGISTILBOÐ
MÚSÍK, MATUR OG PUB QUIZ
FJÖLBREYTTUR MATSEÐILL
HÖFUM OPNAÐ NÝJA OG STÆRRI HÆÐ
sun – mið: 10 – 23
fim – lau: 10 – 01
Þráðlaust internet
www.kaffikrus.is
Opnunartími í vetur
Kaffi krús - Austurvegi 7 - 800 Selfoss - s: 482-1672
„Ég varð var við það strax í fyrrahaust
að það voru hafin átök á milli Sjálf-
stæðisflokks og Samfylkingar um
það hverjir ættu að vera við kjötkatl-
ana þegar kæmi að uppgjörinu eftir
hrunið,“ segir Guðni Ágústsson, fyrr-
verandi ráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins. Hann kveðst hafa
skynjað að Samfylkingin treysti Sjálf-
stæðisflokknum ekki vegna tengsla
við hið gamla auðvald á Íslandi, eins
og hann orðar það. „Sjálfstæðismenn
vantreystu Samfylkingu að sama skapi
út af hinu nýja auðvaldi.“
Þarna hafi orðið átök milli tveggja
stærstu stjórnmálaaflanna um það
hvernig standa skyldi að uppgjöri
í kjölfar hrunsins. „Ég fæ þær frétt-
ir innan úr bankakerfinu að þar séu
menn að hjálpa séra Jóni ekki honum
Jóni.“
Hann segir að hingað til hafi störf
ríkisstjórnarinnar einkennst af full-
komnu ráðaleysi. „Ég óttast það að
sumum henti þetta ráðaleysi ágæt-
lega, eins og til að mynda inni í banka-
kerfinu. Þar séu menn að vinna í þágu
hinna stóru skuldugu aðila og sumum
fyrirtækjum er bjargað en ekki öðrum
og almenningur fær hvergi að koma
nálægt þessum verkum.“
Össur er vaknaður
„Ég er reyndar óskaplega glaður af því
að vinur minn Össur Skarphéðinsson
öskraði allt í einu. Það bárust fréttir af
því að hann hefði tekið svo harkalega
á kollegum sínum, utanríkisráðherr-
um Bretlands og Hollands, að þeir
hefðu blánað. Þetta minnti mig mjög á
söguna af Jóni sterka í Skugga-Sveini,
sem sagði gjarnan: „Sástu hvernig ég
tók hann?“ heldur Guðni áfram.
„Ég trúi því reyndar alveg að Össur
hafi tekið hart á þeim því síðan bárust
upplýsingar um að hann hefði hald-
ið mjög harðvítuga ræðu á allsherj-
arþingi Sameinuðu þjóðanna núna í
liðinni viku. Þetta er allt saman tíma-
bært, en af hverju í ósköpunum gerði
hann þetta ekki fyrir tæpu ári? Ég hef
oft spurt mig að því og spyr mig enn,
hvers vegna menn létu breska slátr-
arann Gordon Brown fara svona með
Ísland? Honum hefur eiginlega ekkert
verið mótmælt.“
Áttum að sækja
bætur frÁ bretum
Guðni telur að strax síðastliðið haust
hafi Íslendingar átt að fara í aðgerð-
ir gegn Bretum og sækja sér bætur.
„Gordon Brown lýsir Ísland gjald-
þrota. Fyrir það eitt hefðum við átt að
fá skaðabætur upp á þúsund millj-
arða. Hann beitir okkur hryðjuverka-
lögum, sem er glæpur og vopnaburð-
ur einnar NATO-þjóðar á aðra. Þar
liggja eitt þúsund milljarða skaða-
bætur. Síðan fellir hann breska Kaup-
þingsbankann með þeim afleiðingum
að allt fellur hér heima, móðurfélagið
og restin af landinu. Þar eru þúsund
milljarðar til viðbótar. Hefðum við
sem sagt tekið á móti í október fyrir
ári væri Ísland í góðum málum.“
Guðni fagnar því að Össur skuli
vera vaknaður af blundinum. „Hann
efast um vinnubrögð Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins hér og segir á þingi
Sameinuðu þjóðanna að sjóðurinn
sé að vinna hér í þágu Hollendinga og
Breta. Loksins núna er eins og menn
séu að vakna af þessum rosalega dvala
síðan Geir Haarde sagði þessa fárán-
Guðni Ágústsson hefur áhyggjur af því að herfangi bankanna sé skipt á milli manna á meðan ríkisstjórnin sé
fullkomlega ráðalaus. Hann telur að strax hefði átt að fara fram á skaðabætur frá Bretum. Þeir hafi sýnt Íslend-
ingum ófyrirgefanlegan yfirgang með hryðjuverkalögum. Guðni er feginn að hafa dregið sig í hlé.
Þrjú þúsund milljarða skaðabætur
Guðni Ágústsson Sjálfstæðisflokkur
og Samfylking deildu um það hverjir
fengju að standa við kjötkatlana í upp-
gjöri bankahrunsins. mynd siGtryGGur
„Því miður hafa aðgerðir
látið á sér standa og menn
hafa rifist hér um Icesave
og Evrópusambandið.“