Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Page 30
Miðvikudagur 30. september 200930 suðurland Hannyrðaverslunin Skrínan Höfum gott úrval af ýmiskonar vörum. Garn - Perlur - Prjónar - Java - Lopi - Blöð Þarftu hjálp með handavinnuna? Komdu og við gerum það sem í okkar valdi stendur til að aðstoða. Ókeypis þjónusta. Prjóna einnig eftir pöntunum. Eyravegi 3 800 Selfoss Sími 482-3238 www.skrinan.is Opið Mán- Fös 11.00 – 17.00 Lau 11.00 – 16.00 Vestmannaeyjaferjan Herjólfur kom úr slipp frá Akureyri í síðustu viku eftir margvíslegar endurbætur. „Hér er kominn nýr radar auk þess sem við fengum nýjan dýptarmæli,“ seg- ir Steinar Magnússon, skipstjóri á Herjólfi. Nýi dýptarmælirinn er þó ekki sérstaklega til siglinga heldur er hann ætlaður til þess að fylgjast með dýpinu á milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar. Gögn úr þessum mælingum eru svo send til Siglinga- stofnunar jafnharðan, þar sem fylgst verður með breytingum á dýpi á þessari væntanlegu siglingaleið ferj- unnar. „Mælirinn er samhæfður við fasta punkta bæði í landi og Eyjum þannig að sjávarhæð mun ekki trufla þessar mælingar. Með þessu móti getur Sigl- ingastofnun sparað sér mælingabát sem þyrfti annars að vera reglulega á ferðinni,“ heldur Steinar áfram. „Þar fyrir utan hefur hér verið dyttað að öllu mögulegu. Í brúnni hafa skjáir verið endurnýjaðir. Svo hefur þessi frægi veltiuggi verið lag- aður en við urðum fyrir því að fá hval á uggann sem gerði hann óstarf- hæfan.“ Veltiuggarnir eru á báðum síðum skipsins og leiðrétta halla. „Það munar talsvert miklu að hafa þetta í lagi.“ Farið var yfir báðar vélar skips- ins og önnur vélin var nánast tekin í sundur í smæstu einingar. Nýju að- vörunarkerfi fyrir vélarnar var einnig komið fyrir. „Ég held að aðvörunar- kerfið eitt og sér hafi kostað tuttugu milljónir,“ segir Steinar. Hann segir skipið líta sérstak- lega vel út þrátt fyrir að vera komið á átjánda árið. „Það hefur líka verið aukning í viðskiptum. Við áætlum að farþegafjöldinn á árinu verði um 140 þúsund sem er þó nokkur aukning frá því í fyrra.“ En hvernig skyldi mönnum lítast á hina nýju Landeyjahöfn? „Hún virð- ist vera á hárréttum stað. Þarna er nokkuð stórt sandrif og höfnin verð- ur þar sem dýpst er undan rifinu. Sjálft rifið hreyfist lítið. Það verður svo að koma í ljós hvernig þetta kem- ur út. Það á að byrja að sigla þarna inn í júlí á næsta ári.“ sigtryggur@dv.is 140 þúsund farþegar á árinu Vestmannaeyjaferjan Herjólfur er komin úr slipp eftir miklar endurbætur. Til hafnar Herjólfur kemur til hafnar í Þorlákshöfn. Skipstjórar Steinar Magnússon og Vigfús Guðlaugsson, skipstjórar á Herjólfi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.