Dagblaðið Vísir - DV - 30.09.2009, Síða 32
Miðvikudagur 30. september 200932 suðurland
„Ég er búinn að vera í þessu síð-
an árið 2002 þegar ég keypti garð-
yrkjustöðina,“ segir Eiríkur Ágústs-
son, garðyrkjubóndi á Flúðum,
en hann er sá eini á landinu sem
ræktar og selur alíslensk jarðarber.
„Það hafði verið þarna jarðarberja-
rækt í einhver sex, átta ár áður en
ég tók við.“ Eiríkur á og rekur garð-
yrkjustöðina Silfurtún á Flúðum en
þar eru einnig ræktaðir tómatar og
rauðkál. Eiríkur segir vel tekið í ís-
lenska framleiðslu og sérstaklega
eftir hrun. Enda sé hráefnið fyrsta
flokks og bragðið með því besta
sem gerist.
Mikið uMstang
Eiríkur segir að það sé töluvert um-
stang í kringum jarðarberjaræktina
á Silfurtúni. „Það er heilmikil vinna
í kringum þetta svo að þetta gangi
vel. Maður þarf líka að treysta mik-
ið á utanaðkomandi aðstæður. Sér-
staklega birtu. Það hefur til dæmis
ekki verið nægilega mikil birta að
undanförnu.“
Jarðarberjaræktin hjá Eiríki fer
að líða undir lok í ár en það dregst
úr henni samfara minnkandi dags-
birtu. „Það eru örfáar vikur eftir af
þessu núna en svo byrjar maður að
nýju næsta sumar.“
Ferðalangar og aðrir áhugasamir
geta stoppað hjá Eiríki og keypt af-
urðirnar beint af honum. Þar getur
fólk til dæmis fengið fersk íslensk
jarðarber meðan þau eru í boði og
Eiríkur Ágústsson, garðyrkjubóndi á Flúðum, er sá eini hérlend-
is sem ræktar íslensk jarðarber. Hann segir að þótt loftslagið hér
dragi úr uppskerumagni ýti það aftur á móti undir gæði.
Minni
uppskera,
Meiri gæði
Eiríkur Ágústsson Garðyrkjubóndi
á Flúðum. Mynd Magnús MÁr Haraldsson
Íslensk jarðarber Það fer hver
að verða síðastur að ná í ber fyrir
veturinn. Mynd Magnús MÁr Haraldsson