Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Qupperneq 6
6 föstudagur 30. október 2009 fréttir
Missti meðvit-
und Ásdís fékk
slæman heilahrist-
ing þegar hún lenti
í bílslysi komin sjö
mánuði á leið.
Íslenska ofurfyrirsætan Ásdís Rán
Gunnarsdóttir hefur stefnt trygginga-
félaginu Verði vegna deilu um hvort
trygging á bíl hennar hafi verið í gildi
þegar hún lenti í bílslysi árið 2007.
Fyrirtaka í málinu fer fram 6. nóvem-
ber.
Ásdís sagði frá bílslysinu í viðtali
við blaðið Sirkus 9. mars árið 2007.
Í viðtalinu sagðist hún hafa fengið
slæman heilahristing og misst með-
vitund. Hún mundi lítið eftir degin-
um og varð að gista á sjúkrahúsi í þrjá
daga. Hennar heittelskaði, fótbolta-
maðurinn Garðar Gunnlaugsson, var
þá á samningi hjá knattspyrnuliðinu
IFK Norrköping í Svíþjóð. Honum brá
mjög mikið við að fá fréttir af slysinu
til Svíþjóðar enda Ásdís komin sjö
mánuði á leið með sitt þriðja barn.
„Þetta var hrikaleg lífsreynsla en
ég þakka guði fyrir að barnið hafi
sloppið […] Þegar ég rankaði við mér
á sjúkrahúsinu vissi ég hvorki hver ég
var né að ég væri ófrísk. Garðar greyið
fékk áfall og hefur ekki enn jafnað sig.
[…] Hann fékk ekki að tala við mig fyrr
en um kvöldið og vill aldrei þurfa að
upplifa annað eins,“ sagði Ásdís í við-
talinu.
Ásdís hefur verið mikið á milli
tannanna á fólki en hún er nú búsett í
Búlgaríu. Hún mun væntanlega flytja
þaðan fljótlega þar sem Garðar hefur
rift samningi við knattspyrnufélagið
CSKA Sofia. Hvort hún komi aftur til
Íslands er óvíst en þangað til geta að-
dáendur ísdrottningarinnar svoköll-
uðu lesið pistla hennar á Pressunni.
liljakatrin@dv.is
Ísdrottningin stefnir tryggingafélaginu Verði vegna bílslyss:
Ásdís Rán í tryggingadeilu
Sandkorn
n Einar Bárðarson, útvarps-
stjóri Kanans, er í miklu stuði
þessa dagana. Greinilegt er að
hann óttast
ekki slaginn
við risana á
markaðnum
og hann sóp-
ar að sér út-
varpsstjörn-
um með
tilheyrandi
kostnaði. Nú
hefur Einar ákveðið að leggja
til atlögu við Simma og
Jóa á Bylgjunni á
laugardagsmorgnum. Hann
teflir Tvíhöfða þeirra Jóns
Gnarr og Sigurjóns Kjartans-
sonar gegn Bylgjumönnum frá
og með þarnæstu helgi. Þáttur
Eiríks Jónssonar, Heyrt og séð
verður þá færður yfir á sunnu-
dagsmorgna í samkeppni við
Sirrý á RÚV og minni spámenn.
n Stærsti eigandi Viðskipta-
blaðsins er Haraldur Johann-
essen, meðritstjóri Davíðs
Oddssonar á Mogganum.
Heyrst hefur að fjárfestar tengd-
ir Björgvin Guðmundssyni,
fyrrverandi viðskiptaritstjóra
Mogg-
ans, ætli
að kaupa
Harald út.
Það er þó
ekki staðfest
að kaupin
séu geng-
in í gegn. Í
bloggheim-
um er aftur á móti slúðrað um
sameiningu Mogga og Við-
skiptablaðs. Þar yrði undarleg
upplifun fyrir Björgvin og þre-
menningana sem flúðu Mogg-
ann til að fara á Viðskiptablaðið.
n Skoðanakönnun Viðskipta-
blaðsins sem leiðir í ljós mikla
eftirspurn eftir Davíð Oddssyni,
ritstjóra Moggans, í landsmál-
in vekur furðu. Davíð ber höfuð
og herðar yfir veraldlega leið-
toga Íslands. Um fjórðungur
vildi Davíð aftur sem leiðtoga
en á hæla hans kemur Stein-
grímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra.
Athygli vekur sú
smánarlega út-
reið sem Bjarni
Benedikts-
son, formað-
ur Sjálfstæð-
isflokksins,
fær en ein-
ungis 11,5
prósent
treysta honum
best. Þetta er
vísbending
um mikla
óánægju inn-
an flokksins.
Smíðum allar gerðir
lykla , smíðum og
forritum bíllykla.
Verslun og verkstæði
Grensásvegi 16
Sími: 511 5858
Ekkert þak hefur verið sett á laun
þeirra sem þiggja hlutfallslegar
atvinnuleysisbætur úr Atvinnu-
leysistryggingasjóði. Þannig eru
dæmi um að fólk með allt að 900
þúsund krónur í mánaðarlaun fyr-
ir 90 prósenta starf fái 10 prósent
atvinnuleysisbætur á móti. Gissuri
Péturssyni, forstjóra Vinnumála-
stofnunar, finnst þetta ekki réttlæt-
anlegt.
„Ég tel óeðlilegt að einstakling-
ar með svo háar tekjur geti bætt
sér upp tekjutap vegna minnkaðs
starfshlutfalls með greiðslum úr
Atvinnuleysistryggingasjóði.,“ seg-
ir Gissur.
Breyttar aðstæður
á vinnumarkaði
Í nóvember á síðasta ári voru gerð-
ar breytingar á lögum um atvinnu-
leysistryggingar vegna sérstakra að-
stæðna á vinnumarkaði. Samkvæmt
þeim lögum er heimilt að greiða
hlutfallslegar atvinnuleysisbætur til
fólks sem að kröfu vinnuveitanda
hefur þurft að minnka starfshlut-
fall sitt. Sú heimild kemur einnig til
ef fólk sem hefur verið í fullu starfi
missir vinnuna en fær aðeins hluta-
starf á nýjum stað.
Þegar atvinnuleysisbætur eru
greiddar samhliða minnkuðu starfs-
hlutfalli koma laun frá vinnuveit-
anda ekki til skerðingar atvinnuleys-
isbóta, en gerð er sú krafa að fólk sé í
50 prósenta vinnu eða meira.
Tekið skal fram að þessi ákvæði
gilda ekki ef starfsmaður óskar sjálf-
ur eftir því að minnka við sig í starfi.
Með hundruð þúsunda í laun
Alls fá um 1.400 manns hlutfallsleg-
ar atvinnuleysisbætur úr Atvinnu-
leysistryggingasjóði. Lögbundin lág-
markslaun í landinu eru tæpar 150
þúsund krónur. Samkvæmt tölum
frá Vinnumálastofnun fyrir ágúst-
mánuð fá 955 manns með yfir 150
þúsund krónur á mánuði greiðsl-
ur úr Atvinnuleysistryggingasjóði.
Flestir, eða tæplega 400 manns, eru
með laun á bilinu 200 til 300 þús-
und.
Tæplega hundrað launþegar með
yfir 400 þúsund krónur á mánuði fá
greiddar hlutfallslegar atvinnuleys-
isbætur. Tíu þeirra eru með 600 þús-
und eða meira á mánuði í launatekj-
ur.
Endurskoðun ákvæðisins
Ákvæði í lögum sem hlutfallslegar
atvinnuleysisbætur vegna skerts
starfshlutfalls eru grundvallaðar
á fellur úr gildi um næstu áramót.
Gissur segir að endurskoðun þessa
ákvæðis laganna standi nú yfir.
Fregnir hafa borist af því að At-
vinnuleysistryggingasjóður tæm-
ist um mitt næsta ár að óbreyttu.
Gissur bendir hins vegar á að sjóð-
urinn tæmist aldrei meðan ein-
hverjir tryggingagjaldsgreiðendur
eru til í landinu.
„Útgreiðslukrafa hans yfir
ákveðið tímabil getur hins vegar
verið meiri en tekjurnar sem renna
í hann á sama tíma. Þegar svo er
þarf ríkisvaldið að bæta í sjóð-
inn, rétt eins og áformað er í fjár-
lögum fyrir næsta ár. Það er ávallt
mikilvægt að reglur um fram-
færslutryggingar á vegum hins op-
inbera séu ekki of ívilnandi eða
útgreiðsluhvetjandi,“ segir Gissur.
Vegna þessa eru þær reglur sem nú
eru í gildi til endurskoðunar.
HÁTEKJUFÓLK
TEKUR BÆTUR
Erla Hlynsdóttir
blaðamaður skrifar: erla@dv.is
launþegar á bótum
Launþegar í minnkuðu starfshlutfalli sem fá hlutfallslegar atvinnuleysisbæt-
ur
laun Fjöldi % Meðaltal starfshlutfalls
100 þúsund eða minna 102 7 52
100-150 316 23 55
150-200 288 21 59
200-300 391 28 69
300-400 182 13 77
400-500 66 5 78
500-600 18 1 78
600-700 8 1 84
700-800 1 0 90
800-900 1 0 90
Samtals 1.373 100 64
Heimild: Vinnumálastofnun
Tölur eru frá ágúst 2009. Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnum
breytast tölurnar lítið á milli mánaða.
Fólk með allt að 900 þúsund krónur í mánaðarlaun fær
greiddar hlutfallslegar atvinnuleysisbætur í samræmi við
lagabreytingar sem gerðar voru í kjölfar efnahagshruns-
ins. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir
þetta óeðlilegt.
Á annað þúsund manns Tæplega þúsund manns með
launatekjur yfir lögbundnum lágmarkslaunum fá greiddar
hlutfallslegar atvinnuleysisbætur. Alls fá um 1.400
manns slíkar bætur. Mynd PHotos.coM