Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Side 19
fréttir 30. október 2009 föstudagur 19
Óbreytt útgjöld ríkisins til þing-
flokka og stjórnmálaflokka á milli
ára samkvæmt fjárlagafrumvarpi
vekja athygli í þeim mikla niður-
skurði sem blasir við. Nökkvi Braga-
son, skrifstofustjóri fjárlagaskrif-
stofu fjármálaráðuneytisins, segir
umrædd framlög þess eðlis að eðli-
legt hafi verið talið að þingið fjallaði
um mögulegan niðurskurð þeirra.
„Við getum alveg eins átt von á að
þetta verði skert,“ segir hann.
Guðbjartur Hannesson, for-
maður fjárlaganefndar og þing-
maður Samfylkingarinnar, tekur í
sama streng. „Það er ekkert heil-
agt í þessu. Heildarniðurstaðan
er það sem við megum ekki missa
sjónar á,“ segir hann.
Alþingi vísaði fjárlagafrum-
varpinu til fjárlaganefndar. Nú
stenduryfir ítarleg vinna sem iðu-
lega leiðir til breytinga á ákveðn-
um þáttum frumvarpsins. Full-
trúar ráðuneytanna mæta á fundi
fjárlaganefndar, nefndin kallar
eftir umsögnum fagaðila og loks
eru lagðar til breytingar sem tald-
ar eru til bóta fyrir frumvarpið. Að
því loknu tekur þingið frumvarpið
til annarrar umræðu.
erla@dv.is
„ÞAÐ ÞÝÐIR EKKERT AÐ VÆLA“
Formaður fjárlaganefndar útilokar ekki breytingar á fram-
lögum ríkisins til þingflokka:
„Ekkert heilagt í þessu“
Halda sínu í fjárlögum Í niður-
skurðarfjárlögunum vekur athygli
að framlög ríkisins til þingflokka og
stjórnmálaflokka eru óbreytt á milli ára.
fyrr hafi margir flutt úr landi til að
leita að betra lífi. „Það var flótti frá
landinu. Hetjurnar urðu eftir en
vesalingarnir flúðu. Við urðum eftir,“
segir hún. Matthía getur ekki neitað
því að hún sé óbilandi bjartsýn. „Ég
lifi á bjartsýninni,“ segir hún.
Bára bendir á að margir hafi það
verr en þeir sem komnir eru á þeirra
aldur og því þýði lítið að kvarta. „Við
erum ekki með nein íbúðalán eins
og unga fólkið, og engin bílaán. Við
skuldum engum,“ segir hún. Þeim
finnst því meira en sjálfsagt að nið-
urskurðurinn bitni einnig á öldruð-
um sem öðrum samfélagsþegnum.
Matthía tekur undir þetta. „Það þýðir
ekkert að leggjast upp í rúm og væla.
Einhver verður að borga þetta.“
Prjónar jólagjafirnar
Margir eru byrjaðir að huga að jól-
unum þó enn sé aðeins október.
Spilahópurinn kannast ekki við að
jólagjafakaup veki kvíða vegna bágs
fjárhags og hækkandi verðlags. Guð-
rún segir að hjá sinni fjölskyldu hafi
náðst samkomulag um að ekki verði
gefnar gjafir til þeirra sem komnir eru
yfir fermingaraldurinn. Þannig fækk-
ar mjög gjöfunum sem þarf að kaupa.
Hún er líka iðin við að prjóna í pakk-
ana og fyrir síðustu verslunarmanna-
helgi prjónaði hún húfur á alla fjöl-
skylduna.
Bára heklaði lengi og prjónaði en
vegna veikinda hefur hún ekki getað
það síðustu tvö árin. Dætur hennar
aðstoða hana því við að velja hóflegar
gjafir handa barnabörnunum átta.
Barnabörn Matthíu eru hins veg-
ar tuttugu og fimm og prjónar hún á
þau allan ársins hring. „Ég kaupi bara
garn,“ segir hún um jólagjafakaup-
in. „Þeir sem fengu vettlinga í fyrra
fá kannski sokka núna. En ef maður
á ekki fyrir garninu er alltaf hægt að
kaupa nammi. Öllum börnum finnst
það gott,“ segir hún.
Kristinn er barnlaus en lætur það
ekki stoppa sig í að gleðja aðra með
gjöfum um jólin. „Ég ætla bara að
gefa fátækum og styrkja þá sem eru í
vandræðum,“ segir hann.
Bjartsýn Matthía Jónsdóttir er sannfærð um að
fjárlagafrumvarpinu verði breytt til betri vegar í
meðförum þingsins. Mynd Heiða Helgadóttir