Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Síða 20
Svissnesk stjórnvöld íhuga nú al- varlega að setja hömlur á, og jafnvel banna, skipulagða sjálfsvígsaðstoð sem hefur tíðkast í landinu. Tilgang- urinn er að draga úr hinum svo- nefnda „dauðaferðaútveg“, en sífellt fleiri útlendingar koma til landsins með það fyrir augum að enda jarðn- eska tilveru sína. Fyrirætlanir svissneskra stjórn- valda benda jafnvel til að lokun Dign- itas-stofnunarinnar standi fyrir dyr- um, en á þeim bæ, meðal annarra, hefur fólki með banvæna sjúkdóma verið veitt aðstoð til að binda enda á líf sitt svo hundruðum skiptir. Yfirvöld vilja tryggja að horft verði til líknardráps sem síðasta valkosts og einnig hefur orðið vart ótta vegna þess möguleika að núgildandi lög um sjálfsvígsaðstoð bjóði upp á mis- notkun. Niðurstöður könnunar sem var gerð á síðasta ári leiddi líkur að því að sífellt fleiri leiti aðstoðar til að enda líf sitt í Sviss án þess að þjást af ólæknandi sjúkdómum. Skiptar skoðanir innan ríkisstjórnar Eveline Widmar-Schlumpf, dóms- málaráðherra landsins, hefur meðal annars áhyggjur af ímynd landsins. „Við, sem þjóð, höfum engan áhuga á að njóta aðdráttarafls vegna sjálfs- vígsferðaútvegs,“ sagði dómsmála- ráðherrann við blaðamenn í Bern. Hún bætti því við að sífellt fleiri út- lendingar ferðuðust til Sviss með það fyrir augum að enda líf sitt. Ríkisstjórn landsins er klofin vegna þessa máls og sendi tvær til- lögur að nýjum lögum til endur- skoðunar vegna þess. Önnur tillag- an mælist til strangari reglna, en hin mælist til fullkomins banns við að- stoð við sjálfsvíg. Almenningur getur til 1. mars næstkomandi sagt skoð- anir sínar á tillögunum og síðan mun ríkisstjórnin leggja uppkast að lög- um undir þingið. Talið er að í svissneska þing- inu standi vilji til þess að fara mýkri leiðina sem hefði í för með sér við- mið sem samtökum sem aðstoða við sjálfsvíg yrði gert að fylgja. Banvænir sjúkdómar eingöngu Samkvæmt nýjum viðmiðum yrði þess krafist að sjúklingar legðu fram mat tveggja lækna til sönnunar þess að sjúkdómur sjúklingsins væri í reynd ólæknandi og drægi hann lík- lega til dauða innan nokkurra mán- aða. Viðkomandi læknar yrðu aukin- heldur að staðfesta að hin dauðvona manneskja gengi heil til skógar and- lega og væri fær um, með tilliti til geðheilsu, að meta eigin beiðni um að fá að deyja. Nýju tillögurnar fela einnig í sér að þau samtök sem aðstoða við sjálfsvíg leggi fram ítarlegri skýrsl- ur til að koma í veg fyrir að stofnanir hagnist á sjúklingum sem binda vilja enda á lif sitt. „Sjálfsvíg verður að vera síðasti valkosturinn. Ríkisstjórnin er þeirr- ar skoðunar að verndun mannslífa verði að vega þyngst,“ segir í yfirlýs- ingu frá dómsmálaráðuneyti Sviss. Sjálfsvígsaðstoð ætti, segir enn- fremur í yfirlýsingunni, að einskorð- ast við þá sem þjást af banvænum sjúkdómi og ekki standa þeim til boða sem þjást af geðsjúkdómum eða krónískum sjúkdómum. Ríkisstjórninni er einnig mikið í mun að „koma í veg fyrir að skipu- lögð aðstoð við sjálfsvíg verði að við- skiptum sem byggist á hagnaðar- von“. Ásakanir um stækkun verksviðs Eveline Widmar-Schlumpf sagði að þessi viðmið höfðuðu til almennrar skynsemi og jafnvel á Dignitas-stofn- uninni, sem er ein sú umdeildasta á þessu sviði, hefur þessum viðmiðum verið fylgt að mestu leyti. En gagnrýnendur hafa sakað Dignitas um að hafa fært út verksvið stofnunarinnar og segja að sumir sjúklingar þjáist ekki af banvænum sjúkdómi og að minnsta kosti ein- hverjir sjúklinganna þjáist af klín- ísku þunglyndi. Stofnandi Dignitas, Ludwig Minelli, hefur staðfest grun gagnrýnenda að einhverju leyti. Fyrirætlanir hins opinbera miða að því að hægja á ferlinu og koma í það horf að ákvörðunin um sjálfs- vígsaðstoð byggist á meiri ígrundun. „Í framtíðinni verður ekki mögu- legt fyrir einhvern að koma yfir landamærin og fremja sjálfsvíg nokkrum dögum síðar með aðstoð einhverrar stofnunar,“ sagði Evel- ine Widmar-Schlumpf. Hún gaf ekki upp hve langur biðtíminn yrði því hvert tilfelli yrði metið sjálfstætt, en talið er víst að þær stofnanir þar sem lögð er stund á sjálfsvígsaðstoð séu fjárhagslega háðar þeim mikla fjölda sem rennur í gegnum kerfi þeirra á tiltölulega stuttum tíma. „Úreltar og yfirlætislegar“ tillögur Ludwig Minelli hugnast áætlanir rík- istjórnarinnar ekki og lýsti hann til- lögunum sem „úreltum og yfirlæt- islegum“. Minelli hefur ávallt haldið því fram að takmarkanir á sjálfsvígs- aðstoð myndu ekki hafa í för með sér samdrátt hvað fjölda snertir heldur myndu fleiri deyja á ofbeldisfullan hátt. „Með því að útiloka sjálfsvígs- aðstoð til handa þeim sem þjást af krónískum sjúkdómum eða geð- sjúkdómum, en færir eru um upp- lýst val, mun ríkisstjórnin stuðla að einmanalegu sjálfsvígi á járnbrautar- teinum,“ sagði Minelli. Hvort heldur sem ríkisstjórn Sviss kýs að herða reglurnar eða banna starfsemi stofnana á borð við Dignit- as með öllu, mun Minelli finna fyrir afleiðingunum. Algert bann myndi valda heildarendurskoðun á sjálfs- vígslögum í Evrópu því tilvist sjálfs- vígsstofnana í Sviss hefur gert öðr- um Evrópulöndum kleift að forðast að gera eigin lög, sem að þessu lúta, frjálslyndari. Ludwig Minelli hef- ur viðrað vilja til að koma á laggirn- ar útibúi í Þýskalandi, en lagaleg- ar hindranir hafa komið í veg fyrir það. Fyrr á árinu var hann harðlega gagnrýndur eftir að hann upplýsti um áætlanir til að hjálpa heilbrigðri konu við að fremja sjálfsvíg svo hún gæti fylgt dauðvona eiginmanni sín- um í dauðann. Um 400 á ári Widmer-Schlumpf dómsmálaráð- herra er þeirrar skoðunar að bann við sjálfsvígsaðstoð kunni að neyða fólk, sem er í þeim hugleiðingum, til að ná fram vilja sínum með ólöglegum hætti. Árlega eru um fjögur hundr- uð manns aðstoðaðir við sjálfsvíg í Sviss og af þeim er um að ræða um eitt hundrað og þrjátíu sem koma frá öðrum löndum. Sjálfsvígsaðstoð hefur verið leyfi- leg í Sviss síðan á fimmta áratug síðustu aldar, með þeim skilyrðum að aðstoðin sé veitt af einstaklingi sem ekki er læknir og hagnast ekki á dauða viðkomandi sjúklings. Líknardráp hins vegar er löglegt í Hollandi, Lúxemborg, Belgíu og Oregon-ríki í Bandaríkjunum. Eins undarlegt og það kann að hljóma er sjálfsvíg ekki lengur glæpsamlegt í Wales og á Englandi, en hvatning og aðstoð við sjálfsvíg eru refsiverð og varða allt að fjórtán ára fangelsisvist. Talið er að fyrirætlanir svissnesku ríkisstjórnarinnar megi að einhverju leyti rekja til ótta um að falli á ímynd landsins. Sjálfsvígsferðaútgerð á litla samleið með Heiðu litlu og kúabjöll- um, gauksklukkum og súkkulaði. Engu að síður er um að ræða stórt skref fyrir svissnesk yfirvöld sem eru hikandi við að taka fram fyrir hend- ur kantóna landsins sem njóta sjálf- stjórnar. Átta hundruð meðlimir Að minnsta kosti 119 Bretar hafa endað ævi sína á Dignitas, þeirra á meðal hljómsveitarstjórinn sir Ed- ward Downes og eiginkona hans, Joan. Edward var ekki dauðvona en hafði glímt við síversnandi heyrn og nánast fullkomna blindu svo árum skipti. Eiginkona hans hafði aftur á móti verið greind með krabbamein og úrskurðað að hún ætti nokkrar vikur ólifaðar. Ruðningskappinn Daniel James, 23 ára, kaus einnig að enda lífdaga sína hjá Dignitas eftir að hafa lamast eftir slys inni á leikvanginum. Allt að átta hundruð Bretar eru meðlimir Dignitas, en félagsaðild er fyrsta skrefið til að öðlast þau réttindi að deyja innan vébanda stofnunar- innar einhvern tímann í framtíðinni. 20 föstudagur 30. október 2009 fréttir Við opnum nýja Ísbúð og veitum 30% kynningarafslátt af öllum ísréttum, samlokum, salötum og gosi 17-26 okt. Nýbýlavegi 32 Nýbýlavegi 32 Opið til 22:00 alla daga Smakkaðu 200 kr ís í brauði, miðstærð Gildir ekki í Bónus. helgi á Korputorgi um helgina. Skorður Settar við SjálfSvígSaðStoð Síðan um miðja síðustu öld hefur í Sviss verið leyfilegt að aðstoða fólk sem vill fremja sjálfsvíg. Fjöldi fólks hefur lagt leið sína til landsins með það eitt fyrir augum að enda líf sitt. Nú er svo komið að þarlendum stjórnvöldum hugnast ekki þau áhrif sem „sjálfsvígsferðaútgerð“ hefur á ímynd lands og þjóðar. „Sjálfsvíg verður að vera síðasti valkosturinn. Ríkisstjórnin er þeirrar skoðunar að verndun mannslífa verði að vega þyngst,“ segir í yfirlýs- ingu frá dómsmálaráðuneyti Sviss. Ráðgjafaskrifstofa Dignitas í Hanover Fjöldi skjólstæðinga Dignitas kemur frá Þýsklandi. Eiginmaðurinn og eiginkonan Hljómsveitarstjórinn Edward Downes kaus að fylgja Joan konu sinni í dauðann. Dómsmálaráðherra Sviss Eveline Widmar-Schlumpf Telur algert bann við sjálfsvígsaðstoð ekki vænlegan kost. Nál í æð, sviðsett mynd Svissneska stjórnin er klofin í afstöðu til sjálfsvígsað- stoðar. MyND: PHotoS.coM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.