Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Qupperneq 27
m
æ
li
r
m
eð
...
Uncharted 2
Leikur sem allir
áhugamenn
um tækni eða
tölvuleiki ættu
að skoða.
FIFa 10
Besti fótbolta-
tölvuleikur sem
gerður hefur
verið, að mati
gagnrýnanda.
ZombIeland
Ein besta
gaman-
mynd
ársins.
ÁstardrykkUrInn
Drykkur
sem virkar.
antIchrIst
Þvílíkur
sálrænn
terror.
Gainsbourg
er rosaleg.
fókus föstudagur 30. október 2009 27
Þjóðleikhúsið frumsýnir Sindra silfurfisk, nýtt barnaleikrit eftir Áslaugu Jónsdóttur:
30 ára gamlar brúður í sýningunni
föstudagur
n haffi haff á selfossi
Unga kynslóðin getur svo sannarlega
lyft sér upp á föstudagskvöldið með
smá rúnti út fyrir bæinn. Meistari
Haffi Haff verður á 800 bar á Selfossi
með 16 ára ball en árið gildir. Haffi
stígur á svið. Ballið stendur frá 22.30-
02.00 þannig að hægt er að gera sér
glaðan dag á Selfossi.
n Veistu hver ég var?
Siggi Hlö kann svo sannarlega
að skemmta fólki enda einn af
þekktustu plötusnúðum landsins
í gegnum tíðina. Hann er líka með
útvarpsþáttinn Veistu hver ég var?
á Bylgjunni sem nýtur gífurlegra
vinsælda. Siggi Hlö mætir með
græjurnar og gerir allt vitlaust á Spot
á föstudagskvöldið.
n VIP á Prikinu
Það er V.I.P.-helgi á skemmtistaðnum
Prikinu um helgina. Tilboð er á
veigum milli 21.00 og 01.00 og ekki
vantar plötusnúðana. DJ Elín hefur
leik en svo taka við DJ addi og DJ
Árni og sjá um að enginn fer með
óhristan rassinn heim.
n sixties á Players
Hin goðsagnakennda hljómsveit Sixt-
ies verður á Players á föstudagskvöld-
ið og þar er bókað stuð. Gott tilboð
verður á staðnum en þar verða fimm
í fötu á 1900 krónur. Allir á Players.
laugardagur
n meira af Örnunum
Eyfi og félagar ætla að endurtaka
leikinn og flytja öll helstu lög hljóm-
sveitarinnar Eagles í Háskólabíói á
laugardaginn. Miðinn kostar 6.900 kr.
en tónleikarnir hefjast klukkan 20.00.
Með Eyfa koma fram Björgvin Hall-
dórsson, Stefán Hilmarsson og Friðrik
Ómar svo einhverjir séu nefndir.
n klassískt í salnum
Ungstirnin Víkingur Heiðar píanóleik-
ari og sænski klarinettusnillingurinn
Martin Fröst koma fram sama í fyrsta
skiptið á föstudagskvöldið. Þeir
munu þá leika í Salnum í Kópavogi.
Ekki kostar nema 2.800 krónur að sjá
þessa snillinga en tónleikarnir hefjast
klukkan 17.00.
n kokteilpinnarnir í kjallaranum
Kokteilpinnarnir með Helga Björns
sjálfan í fararbroddi eru að slá í gegn í
Þjóðleikúskjallaranum. Þeir verða þar
aftur á laugardagskvöldið að rifja upp
gamlar drykkjuvísur með dillandi
undirspili sem allir geta dansað við.
Þeir stíga á svið klukkan 23.00 en
1.500 krónur kostar í Kjallarann þá.
n Vinirnir á spot
Hin glaðlynda hljómsveit Vinir vors
og blóma kemur fram á laugardags-
kvöldið en það er alltaf stuð þegar
strákarnir taka sig til og spila. Vinirnir
verða á skemmtistaðnum Spot í
Kópavogi og verður enginn svikinn af
því að sjá þessa miklu meistara.
Hvað er að
GERAST?
Hafdís í skrautfiskabúðinni Fjörfisk-
ar er löngu hætt að selja fallegu fisk-
ana sína. Þeir eru vinir hennar og
hún vill miklu heldur segja þeim sög-
ur, eins og til dæmis söguna af Sindra
silfurfiski og leyndarmálinu hans.
Sindri á sér þann draum svalastan
að verða gullfiskur og á leið sinni um
hafdjúpin mætir hann ótal skrýtnum
og skrautlegum sjávardýrum, og sum
þeirra eru mjög hættuleg.
Þjóðleikhúsið frumsýnir Sindra
silfurfisk, nýtt barnaleikrit eftir Ás-
laugu Jónsdóttur, í Kúlunni á laugar-
daginn. Þetta er hugljúft og undur-
fallegt ævintýri fyrir börn frá þriggja
ára aldri og alla krakka, pabba,
mömmur, afa, ömmur, frænkur og
frændur.
Sjávardýrin í sýningunni eru að
uppistöðu brúður úr sýningu Þjóð-
leikhússins Krukkuborg eftir Odd
Björnsson, sem Þórhallur Sigurðs-
son leikstýrði á stóra sviðinu árið
1978. Það er ekki oft sem hlutir úr
sýningum varðveitast áratugum
saman, hvað þá að unnt sé að nota
þá aftur í nýjar sýningar. En fyrir
nokkru komu fiskarnir aftur í ljós
í geymslum leikhússins, jafnskín-
andi fallegir og þeir voru fyrir þrjá-
tíu árum. Þórhallur leikstjóri vildi
endilega gefa þeim nýtt líf í stað
þess að hafa þá í geymslu og bað
Áslaugu Jónsdóttur að skrifa leikrit
um þorskinn, karfann og alla hina.
Áslaug hefur áður samið leikritið
Gott kvöld sem sýnt var í Kúlunni en
sýningin fékk Grímuverðlaunin sem
besta barnasýningin vorið 2008.
Leikari sýningarinnar er Elva
Ósk Ólafsdóttir. Þrír brúðustjórn-
endur stjórna sjávardýrunum og tólf
leikarar ljá þeim raddir sínar.
sindri silfurfiskur Er eftir Áslaugu
Jónsdóttur sem fékk Grímuverðlaunin
fyrir barnaleikritið Gott kvöld.
bókInnI harmUr
englanna
Margar fallegar blað-
síður. Þó smábakslag
hjá höfundinum.
rær á gjöful
mið illskunnar
Hyldýpi er níunda skáldsaga stefáns mána. Hún kemur í kjölfar tveggja æsilegra
krimma, Skipsins og Ódáðahrauns, en nú skiptir Stefán Máni aðeins um gír og nefnir
david lynch sem áhrifavald í Hyldýpi. Þótt Hyldýpi sé ekki hreinræktaður reyfari
vantar ekkert upp á spennuna og við sögu koma vægast sagt vondir menn enda hefur
Stefán Máni með fyrri verkum sínum sýnt fram á að honum er einkar lagið að skapa
öflug illmenni. Hann þakkar líka Hinu illa fyrir innblásturinn í bókarlok og dregur
ekki dul á að hann er fengsæll á miðum illskunnar.
Í Skipinu sem kom út árið 2006 sigldu
nokkrar fordæmdar sálir út í opinn
dauðann á fraktaranum Per se með of-
urkrimmann Kölska í stafni. Í fyrra fór
svo handrukkarinn og undirheima-
kóngurinn Óðinn R. Elsuson hamför-
um þegar hann náði glæpsamlegum
tökum á íslensku viðskiptalífi. Aðal-
persóna Hyldýpis er hins vegar tvítug-
ur strákur frá Ísafirði, Sölvi, sem lendir
í lífshættulegum ógöngum í Reykjavík
þegar leiftursýn frá liðum árum sækir
á hann.
Stefán Máni segir að vissulega
megi segja að um stefnubreytingu sé
að ræða hjá sér en hún sé þó ekkert
sérstaklega meðvituð. „Ég geri bara
allt það sem mig langar til að gera og
það sem mér sýnist. Hyldýpi er mjög
ólík Ódáðahrauni. Í mínum huga er
Ódáðahraun gróf bók. Hörð og köld
bók og mig langaði alls ekki að fara
lengra í þá áttina. Mér finnst ég frek-
ar vera að fara aftur að Hótel Kaliforn-
íu sem mér finnst rosalega gott. Aðal-
persónurnar eru svipaðar og þetta er
allt lágstemmdara,“ segir Stefán Máni
og bætir við að í Hyldýpi sé hann
meira að fást við hversdagsleikann og
venjulega lífið en í síðustu bókum.
heillaður af illmennum
Hversdagsleiki Sölva snýst upp í mar-
tröð þegar hann rankar við sér nakinn
og nær dauða en lífi í skurði í Hval-
firði og veit ekkert hvernig í ósköpun-
um hann komst þangað. Hann kemst
síðan að því að sama daginn og hann
hvarf týndist stelpa á hans aldri. Hann
ákveður að leita hennar þar sem hann
finnur fyrir sterkri tengingu við þessa
stúlku sem hann þekkir ekki neitt og
þá fyrst byrja vandræði hans fyrir al-
vöru.
Þrír æskufélagar Sölva þvælast
fyrir honum og gera honum lífið leitt
enda vægast sagt vondir menn þar á
ferð og alveg fyrirtaks sikkópatar. Ill-
mennin hleypa heilmiklu lífi í sög-
una og Stefán Máni neitar því ekki
að hann sé veikur fyrir siðblindingj-
um og illmennum. „Mjög svo. Ég hef
alltaf verið heillaður af illmennum
og kannski bara illskunni per se. Það
eru fimm ungmenni í bókinni, fjórir
strákar og ein stelpa. Öll um tvítugt
og það sem tengir þau er að það féll
skuggi á æsku þeirra allra. Það breytir
lífi þeirra og hvernig þau hegða sér tíu
árum seinna. Þau lenda öll í kynferð-
islegri misnotkun og það litar hvernig
þau hegða sér. Þrír af strákunum eru
orðnir hálfgerðir gerendur. Eru farn-
ir að meiða aðra. Einn dregur sig til
baka og verður óframfærinn og stelp-
an fer út í dópið, lauslætið og ruglið.
Þannig að það eru svolítið undirliggj-
andi þarna orsakir og afleiðingar.“
Innsæið sprettur úr myrkrinu
Stefán Máni færir Hinu illa verðskuld-
aðar þakkir fyrir innblásturinn aftast í
Hyldýpi. „Ég er að einhverju leyti bara
einhver svona Þórhallur miðill. Ég er
að skrifa einhverja sögu og ég fæ ein-
hverjar ákveðnar hugmyndir og ég get
smíðað einhvern ramma en svo þegar
ég fer að hugsa í þessa átt fæ ég þetta
innsæi og hugdettur og það sem ég
næ að tengja mig við er yfirleitt eitt-
hvað í dekkri kantinum. Ég fæ mínar
myndir, sýnir, hugdettur og innsæi úr
myrkrinu. Þaðan kemur allt það besta
sem ég fæ. Ég fæ aldrei hugmyndir
sem eru af himnum ofan eða breyta
heiminum og færa fólki gleði og ham-
ingju. Það er ekki mitt djobb. Ég fæ
eitthvað allt annað. Það má segja að
mér sé hlýtt til illskunnar. Hún er fínn
ferðafélagi. Hún hefur reynst mér vel
og er gjöful mið að róa á. Það má orða
það þannig. Ég á kannski ekki heima
þarna en þetta eru gjöful mið svo
framarlega sem maður kemst heill
aftur heim.“
dulrænan svífur yfir hyldýpinu
Sölvi fellur í vatn og er við það að
drukkna þegar hann er tíu ára. Ofan í
dýpinu sér hann sýn sem skýtur upp
kollinum tíu árum síðar og leggst svo
þungt á hann að hann hefur ástæðu til
þess að efast um geðheilsu sína. Þessi
tengsl Sölva inn í annan heim lita alla
söguna og gera hana ansi hreint dul-
ræna enda sprettur sagan öll upp af
þessari mynd í höfði höfundarins af
dreng sem er að drukkna. „Vinnutit-
illinn var alltaf Vatnið og kveikjan var
upphafssenan þar sem tíu ára strákur
fellur í vatn og er nærri drukknaður.
Hann sér sýn ofan í vatninu og hún
var kveikjan að bókinni. Hann sér inn
í einhvers konar hliðarheim. Hann er
ekki beint skyggn en getur með öðru
auganu horft inn í hliðarheim. Mig
langaði einnhvern veginn að gera
þannig sögu og þetta er skyldara Dav-
id Lynch en öðru. Grunnhugmyndin
er á dulrænu nótunum frekar en eitt-
hvað glæpó, ofbeldi, undirheimar eða
eitthvað þannig.“
Stefán Máni neitar því ekki að-
spurður að hann sé dulrænn. „Já, já.
Ég er mjög hrifinn af dulrænum bíó-
myndum og bókum. Ég er mjög hrif-
inn af því að gera göt í raunveruleik-
ann okkar. Tæta hann aðeins, opna og
láta glitta í eitthvað annað. Ég meika
ekki að veruleikinn sé bara svona og
búið. Það verður að vera einhver bak-
hlið.“
Fyrir Stefáni Mána er því ekkert
eðlilegra en að hægt sé að skyggnast
inn í aðra heima. „Mér finnst svona
hlutir ekkert skrýtnir. Það er bara eðli-
legt að það sem gerist í veruleikanum
okkar hafi einhverjar afleiðingar í ein-
hverjum öðrum heimi sem getur svo
endurvarpast aftur inn í okkar heim.
Þótt eitthvað hverfi héðan er það
ekkert horfið að eilífu. Það getur allt-
af komið aftur þótt þú kjósir kannski
ekkert endilega að það komi aftur.
Þetta er ákveðin tímapæling, að tím-
inn sé afstæður og að það sem gerð-
ist fyrir tíu árum er enn þá lifandi á
annarri strönd og öðrum stað. Maður
getur upplifað það aftur og það getur
haft áhrif á það sem er að gerast í dag.
Það má segja að þetta séu karmalög-
málspælingar. Að teygja það út fyrir líf
og dauða.“
nennir ekki að ljúga og leika
Stefán Máni skrifar kaldhamraðan og
beittan stíl og maðurinn sjálfur virkar
eitursvalur með stingandi augnaráð,
vöðvastæltur og handleggirnir húð-
flúraðir fram og til baka þannig að
eðlilega má spyrja hvort hann sé töff-
ari. „Bara svona já og nei. Ég gengst
að minnsta kosti ekki upp í því. Ef ég
er einhver töffari er það bara eitthvað
sem er mér eðlislægt eða ómeðvitað.
Það er ekkert sem ég legg mig fram
um að vera. Ég held að allt sem ég geri
sé mér bara eðlilegt. Áreynslulaust og
eðlilegt. Hvort sem það eru skrif mín
eða ég bara sem persóna eða mað-
ur. Ég reyni aldrei að vera neitt ann-
að en ég er. Það hefur reynst mér best.
Það er rosalega lítil vinna í því. Það er
hörkudjobb að ljúga eða leika. Krefst
undirbúnings, æfingar og góðs minn-
is og ég hef ekkert af þessu.“
svartur á leik aftur
Bækur Stefáns Mána eru ákaflega
myndrænar og hann segist hugsa í lit-
um og myndum. „Ég sé myndir. Ég sé
ekki orð. Orðin eru glíma. Ég sé þetta
allt fyrir mér og svo reyni ég bara að
finna réttu lýsingarorðin sem passa
við myndirnar í hausnum á mér.“ Það
er því ekki að undra að kvikmynda-
gerðarfólk hafi gripið Svartur á leik
og Skipið á lofti. Stefán Máni segir
því ekki skilið við verk sín þegar þau
eru komin úr prentsmiðjunni. Und-
irheimastúdían hans, Svartur á leik,
kom út árið 2004 og kvikmynd byggð
á bókinni er á leiðinni í framleiðslu og
Stefán Máni fylgist náið með öllu sam-
an. „Það er nú bara gaman. Að skoða
leikara og svona.“ Stefán Máni skrifar
ekki handritið en fylgist með og hef-
ur tillögurétt sem hann segir hafa skil-
að góðu. „Fyrir mig skiptir miklu máli
að myndin sé góð. Það skiptir meira
máli en hvort ég fæ hundraðþúsund-
kall þarna eða ekki. Léleg mynd eftir
minni bók er eitthvað sem ég vil ekki
sjá og ég reyni að leggja mitt af mörk-
um.“
Stefán Máni lagðist í heilmikla
heimildarvinnu þegar hann vann að
bókinni Svartur á leik og hann býr
enn að því að hafa verið túristi í und-
irheimum Reykjavíkur. „Það var alveg
rosaleg gagnaöflun í gangi og mikið af
því er enn í hausnum á mér. Ég á gíf-
urlegt gagnasafn. Mörg kíló sem eiga
alltaf eftir að nýtast mér. Mér finnst
þetta samt vera minna og minna áber-
andi í bókunum en þetta er rosalega
góður gagnagrunnur að leita í. Svo
held ég líka lauslegu bandi við þessa
stráka sem ég kynntist þarna og það
er bara gaman að því. Þetta var voða
skemmtilegt og nytsamlegt. En það
hefur margt breyst síðan þá þannig að
mín þekking er orðin frekar úrelt. Og
ég hef ekki áhuga á því að fylgja því al-
veg eftir. Ég stunda ekki símenntun í
undirheimum. Langt því frá. Það var
gaman að fara þangað en ég er líka
feginn að vera laus þaðan. Þetta er
lýjandi heimur. Hraður og tætandi og
það er gott að koma heim aftur.“
toti@dv.is