Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Side 30
Séra Gunnari Björnssyni hefur fjór-
um sinnum verið vikið úr starfi sem
sóknarprestur, þar af tvívegis frá
sama söfnuði. Fyrst var hann rekinn,
tvívegis, frá Fríkirkjunni í Reykjavík,
síðar færður úr starfi sem prestur í
Holti í Önundarfirði og nú síðast var
honum vísað úr starfi sem sóknar-
prestur í Selfosskirkju. Í öll skiptin
hefur Gunnar átt í deilum við sókn-
arbörn og sóknarnefndir þar sem
umræðan hefur ratað í fjölmiðla.
Flestir þeir sem til hans þekkja
lýsa honum sem hlýjum og góðum
en það hefur ekki komið í veg fyr-
ir hatrammar deilur hans við sókn-
arnefndir og söfnuði þar sem hann
hefur gegnt embætti sóknarprests.
Það sem mætti kalla þriðja og síðasta
stríð séra Gunnars stendur enn yfir.
Fimm ungar stúlkur kærðu klerkinn
fyrir kynferðisbrot, en þremur mál-
unum var vísað frá. Séra Gunnar var
síðan sýknaður á báðum dómstigum.
Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands,
fullyrðir hins vegar að djúpstæður
og alvarlegur trúnaðarbrestur hafi
myndast innan safnaðarins í Selfoss-
kirkju og því geti Gunnar ekki snúið
aftur til starfa.
Tugmilljóna tilboð
Deila Gunnars við sóknarnefnd Sel-
fosskirkju er síður en svo fyrsti vand-
inn sem hann lendir í í kirkjusóknum
sínum. Honum hefur fjórum sinnum
verið vikið úr starfi sem sóknarprest-
ur, fyrst í september 1987 frá Fríkirkj-
unni í Reykjavík, þá í júní 1988, aft-
ur frá Fríkirkjunni, í mars 2000 frá
Holtakirkju í Önundarfirði og nú síð-
ast 15. október 2009 frá Selfosskirkju.
Í öll skiptin voru samskiptaörðug-
leikar Gunnars við safnaðarmeðlimi
orsök uppsagnarinnar.
Karl biskup þverneitar Gunn-
ari um að snúa aftur til starfa í Sel-
fosskirkju. Biskup bauð honum
stöðu sérþjónustuprests hjá Bisk-
upsstofu, þar sem honum var með-
al annars ætlað að sinna störfum hjá
Helgisiðastofu í Skálholti ásamt því
að þýða og staðfæra predikunarleið-
beiningar fyrir presta, og tók það sér-
staklega fram í bréfi að séra Gunnar
gæti unnið starfið heiman frá sér. Þá
bauðst prestinum starfslokasamn-
ingur, upp á nærri tuttugu milljónir
króna, en tilboðum um annað en að
snúa aftur til starfa hafnaði Gunnar
eindregið. DV hefur heimildir fyrir
því að biskup hafi orðað betri starfs-
lokasamning við Gunnar, samning
sem tryggir kleknum þrjátíu millj-
ónir króna eða mánaðarlaun næstu
fimm ár.
Bróðurmissir
Séra Gunnar hefur starfað samfellt
sem sóknarprestur í Selfosskirkju
frá 1. september 2001 og var skipað-
ur sem slíkur 1. júní 2002. Gunnar
hefur lengstum verið vel liðinn sem
prestur þó svo ekki sé hægt að segja
það sama um eiginkonu hans í öll-
um tilfellum. Ræður hans þykja góð-
ar og hlýja hans í garð sóknarbarna
hefur í gegnum tíðina verið lofuð af
samstarfsmönnum. Eftir að hinar
hatrömmu deilur komu upp í Sel-
fosskirkju má segja að söfnuðurinn
sé klofinn í tvær fylkingar, með og á
móti séra Gunnari. Stuðningsmenn
hans krefjast almenns safnaðarfund-
ar í þeirri von að ná að sýna fram á
einingu innan safnaðarins, ólíkt því
sem biskup heldur fram.
Erfiðleikar og deilur Gunnars við
sóknarbörn eru ekki einu erfiðleik-
arnir sem Gunnar hefur þurft að
glíma við. Gunnar varð fyrir miklu
áfalli fyrir tæpum fimm árum er
bróðir hans, Ragnar Björnsson veit-
ingamaður í Mosfellsbæ, lést. Atvik-
ið átti sér stað á veitingastaðnum Ás-
láki í Mosfellsbæ, í desember 2004,
þar sem Loftur Jens Magnússon sló
Ragnar þungu hnefahöggi í hálsinn
með þeim afleiðingum að brot kom
á hálshryggjarlið og slagæð rofnaði.
Mikil blæðing varð inn í höfuðkúp-
una í kjölfarið sem leiddi til þess að
Ragnar lést skömmu síðar.
Tekur enda
Þegar kærurnar á hendur Gunn-
ari komu fram sagði hann í samtali
við DV að málið væri alfarið byggt á
misskilningi og hann hefði lengi haft
þann stíl að faðma fólk og jafnvel
smella kossi á kinn. „Það hefur lengi
verið minn stíll að faðma fólk að mér.
Í kirkjulegu starfi koma oft þannig
stundir að maður ýmist hrósar, þakk-
ar, heilsar eða kveður með líkamlegri
snertingu. Það getur meira að segja
hent að maður smelli kossi á kinn. Ég
er hlýr maður,“ sagði Gunnar.
Þegar DV spurði Gunnar hvort
málið hefði valdið honum hugar-
angri svaraði hann að svo væri í
raun ekki. Hann væri viss um stöðu
sína gagnvart sóknarbörnum sínum.
Gunnar viðurkenndi að hann hefði
gengið í gegnum súrt og sætt í starfi
sínu sem prestur og þessir erfiðleik-
ar myndu líða hjá eins og aðrir. „Ég
er orðinn það gamalreyndur í starfi
mínu sem prestur og veit að meira
að segja hörðustu rimmur eiga sér
endi,“ sagði Gunnar.
30 föstudagur 30. október 2009 helgarblað
TrausTi hafsTeinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Deila séra Gunnars Björnssonar við sóknarnefnd Selfosskirkju er þriðja stríð klerksins. Áður hafði hann
verið rekinn úr Fríkirkjunni í Reykjavík og færður úr starfi sem sóknarprestur í Holtaprestakalli, eftir
hatrammar deilur í bæði skiptin. Honum er nú meinað af biskupi að halda áfram starfi sóknarprests við
Selfosskirkju eftir ákærur um kynferðislega áreitni frá ungum sóknarbörnum. Gunnar íhugar alvarlega að
taka tilboði biskups um veglegan starfslokasamning.
ÞRIÐJA STRÍÐ SÉRA GUNNARS
„Ég er orðinn það gamalreyndur í starfi
mínu sem prestur og veit að meira að
segja hörðustu rimmur eiga sér endi.“
Bréf biskups
Karl Sigur-
björnsson bauð
tilfærslu í starfi
eða starfslok í
bréfi til Gunnars.
síðasta stríðið DV hefur heimildir
fyrir því að séra Gunnar sé alvar-
lega að íhuga að taka tugmilljóna
tilboði biskups um starfslok.
frÁ gÓðu heIMIlI
Gunnar Björnsson fæddist í
reykjavík 15. október 1944 og ólst
upp á ástríku heimili foreldra sinna í
gömlu timburhúsi á horni Bók-
hlöðustígs og Miðstrætis. hann er
sonur hjónanna Björns rósenkranz
einarssonar hljómsveitarstjóra
og ingibjargar Gunnarsdóttur
hárgreiðslumeistara. Björn er með
frægari hljómsveitarstjórum en til
margra ára stýrði hann eigin hljóm-
sveit sem skemmti víða, einkum á
hótel Borg.
Gunnar kvæntist fyrrverandi eiginkonu sinni, Veronicu Margaret Jarosz, árið
1967 og saman eignuðust þau tvö börn. Gunnar er í dag kvæntur Ágústu aðal-
heiði Ágústsdóttur söngkonu en þau gengu í hjónaband fyrir aldarfjórðungi.
hún stendur þétt við hlið eiginmannsins í erfiðri klípu sem blasir við. Við-
mælendur DV segja flestir að Ágústa sé ákveðin kona og skap hennar hafi oft
komið prestinum í vanda. Þeir segja að hún hafi ákveðið strax er hún sá Gunnar
í fyrsta sinn að hann skyldi verða eiginmaður hennar. Í kjölfarið skildi Gunnar
við fyrri konu sína og mældist skilnaðurinn í fyrstu nokkuð illa fyrir í fjölskyldu
hans. er Gunnar tók saman við Ágústu eignaðist hann þrjú stjúpbörn.
Gunnar er sjálfur mikill tónlistarmaður og spilaði í áratug með sinfóníu-
hljómsveit Íslands. hann er fær sellóisti og Ágústa er óperusöngkona. hún
rak um árabil söngskóla á Vestfjörðum. Gunnar er mjög félagslyndur og
hefur í gegnum erfiðar deilur átt mjög dygga stuðningsmenn. Þeim gefur
hann reglulega í nefið og faðmar er þeir hittast.
hlýtt heimili Gunnar ólst upp á
ástríku heimili foreldra sinna á horni
Bókhlöðustígs og Miðstrætis.