Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.2009, Page 38
Umsjón: Kjartan GUnnar Kjartansson, kgk@dv.is
Hildur Tryggvadóttir
innkaupari við rúmfatalagerinn
Hildur fæddist í Reykjavík og ólst þar
upp. Hún var í Seljaskóla og stundaði
nám við FB.
Hildur vann í Björnsbakaríi, starf-
aði við eggjabúið í Elliðahvammi en
hefur starfað hjá Rúmfatalagernum
sl. áratug.
Fjölskylda
Eiginmaður Hildar er Guðmund-
ur Sveinn Arnþórsson, f. 14.8. 1979,
húsasmiður.
Börn Hildar og Guðmundar
Sveins eru Fannar Már Guðmunds-
son, f. 26.2. 2003; María Rós Guð-
mundsdóttir, f. 19.7. 2006.
Systkini Hild-
ar eru Hólmfríð-
ur Tryggvadóttir, f.
19.1. 1967, fótaað-
gerðarfræðingur í
Kópavogi; Ólafur
Már Tryggvason, f. 6.9. 1972, kokkur
í Hafnarfirði; María Maronsdóttir, f.
29.8. 1977, matreiðslukennari á Sel-
fossi; Rósa Tryggvadóttir, f. 31.3. 1983,
starfsmaður hjá 66° Norður, búsett í
Kópavogi.
Foreldrar Hildar eru Kristjana
Guðmundsdóttir, f. 22.8. 1950, starfs-
kona við Seljaskóla, og Maron Tryggvi
Bjarnason, f. 1.11. 1947, bifvélavirki.
30 ára á föstudag 70 ára á sunnudag
Reynir Torfason
sjómaður og listmálari á Ísafirði
Reynir fæddist á Ísafirði. Hann fór
ungur til sjós, var fimmtán ára hjálp-
arkokkur á síðutogaranum Gylli frá
Flateyri og hefur síðan verið við all-
ar helstu veiðar sem stundaðar eru
hér við land. Hann var skipstjóri á
eigin bátum 1970-83 en bátar hans
hétu báðir Sæunn ÍS 25. Reynir var
svo skipstjóri á bátum annarra 1983-
88. Hann var verkstjóri við Ísafjarðar-
höfn 1988-99 og var síðan beitninga-
maður um skeið.
Reynir hefur stundað myndlist
samfellt frá 1988 og haldið fjölda
myndlistarsýninga. Hann var sæmd-
ur bæjarlistamaður Ísafjarðarbæjar
2004. Reynir var ritari stjórnar Sjó-
mannafélags ísfirðinga í átján ár, og
ritari Hugins, félags bátaeigenda á
Ísafirði, á annan áratug.
Fjölskylda
Eiginkona Reynis er Gígja Sigríður
Tómasdóttir, f. á Stóru-Giljá Húna-
vatnssýslu 29.4. 1941, fyrrv. starfs-
maður Heilbrigðisstofnunar Ísafjarð-
arbæjar. Kjörforeldrar hennar voru
Tómas Antonsson, f. 15.11. 1915, d.
7.1. 1949, sjómaður á Akureyri, og
k.h., Anna Sigurlína Guðmundsdótt-
ir, f. 6.1.1914, d. 18.9.1974, húsmóð-
ir. Kynforeldrar hennar voru Sigurð-
ur Laxdal Jónsson, f. 25.4. 1907, d.
10.11. 1940, og Klara Bjarnadóttir, f.
11.8. 1911, d. 20.1. 1996.
Sonur Gígju og fóstursonur Reyn-
is er Ómar Traustason, f. 8.6.1957
en sambýliskona hans er Sigurbjörg
Jóhannsdóttir, f, 7.7. 1969 og eiga
þau þrjú börn, Önnu Vilborgu, f.
19.7.1990, Gunnar Ágúst, f. 2.9.1993,
og Ólöfu Margréti, f. 3.1.1997.
Fóstursonur Reynis og Gígju er
Þórður Kristinn Andrésson, f. 18.2.
1967, d. 9.7. 1996 en dóttir hans er
Ragna Sólveig, f. 21.10. 1994.
Systkini Reynis eru Runólfur
Ingibjörn Kristinn Torfason, f. 29.5.
1941, d. 3.5.1975, sjómaður á Ísafirði;
Ólína Salóme Torfadóttir, f. 20.11.
1942, hjúkrunarforstjóri Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri; Guðbjörg
Rannveig Torfadóttir, f. 4.6. 1944,
verkakona og húsmóðir í Reykja-
vík en áður í Grindavík; Matthildur
Torfadóttir, f. 14.6. 1947, starfsmaður
á hjúkrunarheimili, búsett í Reykja-
vík en áður í Bolungarvík; Ásthildur
Torfadóttir, f. 14.6. 1947, húsmóðir
í Súðavík; Magni Viðar Torfason, f.
5.4. 1952, sjómaður á Ísafirði.
Foreldrar Reynis voru Þorsteinn
Torfi Bjarnason, f. á Ísafirði 2.8. 1916,
d. 16.2. 1986, sjómaður og verka-
maður á Ísafirði, og Ingibjörg Hjálm-
arsdóttir, f. í Bolungarvík 6.12. 1919,
d. 3.6. 1999, húsmóðir og verkakona.
Ætt
Torfi var bróðir Jónu, móður Bjarna
Líndal Gestssonar, fyrrv. formanns
Sjómannafélgas Ísfirðinga. Torfi var
sonur Bjarna Einars, járnsmiðs og
landpósts á Skálmarnesmúla Krist-
jánssonar, járnsmiðs í Búðardal og
í Geiradal og á Kambi í Reykhóla-
sveit Erlendssonar. Móðir Bjarna
Einars var Sólveig Einarsdóttir. Móð-
ir Torfa var Ólína Salome ljósmóð-
ir, dóttir Guðmundar, b. á Krossi á
Barðaströnd og á Illugastöðum Ara-
sonar, b. í Skálmarnesmúla Jóns-
sonar. Móðir Ólínu Salome var Ingi-
björg Jóhannesdóttir, b. á Kirkjubóli
í Gufunessveit Bæringssonar. Ingi-
björg var dóttir Hjálmars, sjómanns
í Skálavík og síðan í Bolungarvik Þor-
steinssonar. Móðir Ingibjargar var
Guðbjörg Rannveig Sigurðardóttir, b.
á Meiribakka í Skálavík Péturssonar,
og Friðrikku Elíasdóttur.
Reynir nýtur dagsins með fjöl-
skyldu og vinum.
Arnar Þór Stefánsson, sem hefur
verið lögmaður hjá LEX sl. fimm
ár, verður þrítugur á morgun.
Hann er staðráðinn í að halda all-
stóra veislu með því helsta tilheyr-
andi og var reyndar fyrir löngu bú-
inn að ákveða það.
„Ég get nú ekki sagt að ég sé
mikill afmælismaður, né yfirhöf-
uð mikið fyrir að halda veislur. Ég
held að ég hafi ekki haldið upp á
afmælið mitt frá því ég var strák-
polli á Húsavík. Ég gerði ekkert
úr fimmtán ára afmælinu né tví-
tugsafmælinu og enn síður þegar
ég varð tuttugu og fimm ára. Ég
var heldur ekki með útskriftarboð
þegar ég lauk lögfræðinni. Mér
fannst því kominn tími til núna að
slá þessu öllu saman og hóa sam-
an fólki í tilefni þrítugsafmælis-
ins.
Ég var reyndar búinn að ákveða
að halda upp á þetta afmæli fyrir
býsna löngu.“
Og ertu búinn að gera ráðstaf-
anir?
„Já, já. Ég búinn að leigja sal-
arkynni og hef verið að bjóða
fólki. Það er að vísu ekki gert
með skrautrituðum boðskortum
heldur tölvupósti og símtölum
en ég geri ráð fyrir u.þ.b. áttatíu
til hundrað manns. Ég býst fast-
lega við því að ég sé að gleyma
að bjóða einhverjum og ef það er
þannig biðst ég innilega forláts á
því. Ég verð með léttmeti, léttvín
og lageröl í veislunni. Þetta er allt
að detta í hús.“
En verða engin skemmtiatriði?
,,Ja, það er nú eitt og annað í bí-
gerð og skoðun í þeim efnum, en
ekkert sem gefið er upp fyrir fram.
Það verður bara að koma í ljós“ -
segir LEX-lögmaðurinn sem er al-
veg að verða þrítugur.
Kjartan Gunnar Kjartansson rekur
ættir þjóðþekktra Íslendinga sem hafa verið í
fréttum í vikunni, rifjar upp fréttnæma
viðburði liðinna ára og minnist horfinna
merkra Íslendinga. Lesendur geta sent inn
tilkynningar um stórafmæli á netfangið
kgk@dv.is
Lögmaður hjá LEX
Blæs til veislu
Hákon Ingi Sveinbjörnsson
húsasmiður Í reykjavÍk
Hákon fæddist á Akranesi en ólst upp
á Sauðárkróki. Hann var í Grunn-
skóla Sauðárkróks, stundaði nám við
Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki og
lauk þaðan prófum í húsasmíði.
Hákon hefur unnið við húsasmíð-
ar frá 1998, lengst af hjá Trésmiðjunni
Borg, en nú hjá BJ Uppsetningum.
Hákon er áhugamaður um mót-
orsport og hefur keppt í greininni
nokkrum sinnum.
Fjölskylda
Kona Hákons er Lilja Margrét Olsen.
Sonur Hákonar og Lilju Margrétar
er Kári Hákonarson, f. 7.8. 2008.
Systkini Há-
konar eru Íris Ösp
Sveinbjörnsdótt-
ir, f. 29.6. 1981,
verslunarmaður
og nemi í Reykja-
vík; Davíð Hann-
es Sveinbjörnsson, f. 28.3. 1990, nemi;
Sveinbjörn Lucas Sveinbjörnsson, f.
23.4. 2008.
Foreldrar Hákonar eru Sveinbjörn
Ólafur Ragnarsson, f. 15.10. 1958, lög-
reglumaður í Reykjavík, og María Lóa
Friðjónsdóttir, f. 21.6. 1960, nemi og
skrifstofumaður í Mosfellsbæ.
30 ára á föstudag
Guðmundur Höskuldsson
fjármálastjóri Í reykjavÍk
Guðmundur
fæddist í Reykja-
vík og ólst þar upp.
Hann var í Selja-
skóla, Iðnskól-
anum í Reykja-
vík, lauk prófum í
bifreiðasmíði við
Borgarholtsskóla
1999 og meistaranámi frá Meistara-
skólanum 2002.
Guðmundurhefur starfað hjá
Hagverki frá 1998.
Guðmundur er mikill áhuga-
maður um rallíakstur, hefur keppt
frá 1999 og var Íslandsmeistari í
rallí 2006. Þá hefur hann tekið þátt í
skipulagningu fjölda rallíkeppna og
-móta og sinnt trúnaðarstörfum fyr-
ir Bifreiðaíþróttaklúbb Reykjavíkur
og LÍA.
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Þuríð-
ur Svava Guðmundsdóttir, f. 15.12.
1979, nemi við Menntavísindasvið
HÍ.
Dóttir Guðmundar og Þuríðar
Svövu er Emma Kristín Guðmunds-
dóttir, f. 6.9. 2007.
Systur Guðmundar eru Jóhanna
Höskuldsdóttir, f. 12.1. 1968, kennari
í Reykjavík; Guðný María Höskulds-
dóttir, f. 19.4. 1970, kennari í Reykja-
vík.
Foreldrar Guðmundar eru Hös-
kuldur Guðmundsson, f. 27.11. 1944,
bifreiðasmiður og framkvæmdastjóri
í Reykjavík, og Margrét Jóhannsdótt-
ir, f. 10.11. 1947, húsmóðir.
30 ára á Laugardag
Fanney G. M. Sigurþórsdóttir
sölufulltrúi Í reykjanesbæ
Fanney fæddist í Vestmannaeyjum
og ólst þar upp til níu ára aldurs en
síðan í Reykjavík. Hún var í Hamars-
skóla og Hólabrekkuskóla.
Fanney vann hjá Sveini bakara á
námsárunum, var búsett á Ísafirði
og vann í Blómabúð Ísafjarðar og
við Fiskmarkað Flateyrar, var búsett
í Kanada í tvö ár en hefur starfað hjá
DHL frá 2002.
Fjölskylda
Unnusti Fanneyjar er Haraldur Ó.
Haraldsson, f. 8.6. 1978, sjómaður.
Synir Fanneyjar eru Aron Við-
ar Atlason, f. 20.7. 2000; Adolf Þór
Haraldsson, f. 3.12. 2007; Alexand-
er Óskar Haralds-
son, f. 3.12. 2007.
Bræður Fan-
neyjar eru Ólafur
Sigurþórsson, f.
7.5. 1968, sjúkra-
flutningamaður;
Óskar Birgir Sigur-
þórsson, f. 17.11.
1969, sjómaður; Sigurþór Skúli Sig-
urþórsson, f. 31.5. 1978, vöruflutn-
ingabílstjóri.
Foreldrar Fanneyjar eru Sigur-
þór Mortensen Óskarsson, f. 3.9.
1948, vöruflutningabílstjóri, og Ás-
dís Helga Ólafsdóttir, f. 25.11. 1951,
húsmóðir.
30 ára á Laugardag
38 föstudagur 30. október 2009 ættfræði