Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2009, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2009, Side 12
Sala á neftóbaki hefur aukist um ríf- lega 50 prósent og sala á munntóbaki hefur aukist um ríflega 30 prósent frá efnahagshruninu síðasta haust. Þetta kemur fram í sölutölum N1, sem Hermann Guðmundsson forstjóri kynnti á fundi Ímark á dögunum. Þar kynntu, auk Hermanns, Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðar- innar, og Einar Einarsson, hjá Capa- cent, tölur sem sýna breytt neyslu- mynstur Íslendinga í kreppunni. Taka meira í nefið Eins og áður sagði hefur sala á nef- tóbaki og munntóbaki aukist veru- lega frá því í október í fyrra. Það má því segja að Íslendingar taki kreppuna í nefið. Sala á píputóbaki hefur einnig aukist, um heil 20 pró- sent. Hermann segir í samtali við DV að ástæður þessa megi ef til vill rekja til þess að ódýrara sé að svala tóbaks- fíkn með nef-, munn- og píputóbaki en með sígarettum. Þá hafi færri ut- anlandsferðir ef til vill leitt til þess að færri komi með snúss og annað tób- ak til landsins sem bannað er að selja hér. Samhliða þessu hefur sala á sígar- ettum á borð við Winston, Salem í mjúkum og L&M dregist saman um 25 til 40 prósent. Langlokurnar víkja Áhrif kreppunnar á neysluvenjur Ís- lendinga birtast meðal annars í því að nú kaupir fólk frekar samlokur en langlokur. Samkvæmt sölutöl- um N1 hefur sala á langlokum með rækjum minnkað um ellefu prósent frá október í fyrra, sala á langlokum með roast beef hefur minnkað um átta prósent auk þess sem sex pró- sent minna selst af langlokum með grænmeti. Á hinn bóginn hefur sala á sam- lokum aukist. Tíu prósentum fleiri kaupa samloku með grænmeti, átta prósent fleiri en áður kaupa samlok- ur með rækjum og sala á samlokum með roast beef er nú sex prósentum meiri en hún var fyrir hrunið. Her- mann segir ástæðu þessa þá að um hundrað krónum muni alla jafna á verði á langlokum og samlokum. Samlokan sé heldur ódýrari og því seljist hún nú betur. Eldsneytissala á minni stöðvum varpar einnig ljósi á áhrif kreppunnar. Þar jókst salan gríðarlega í sumar, rétt eins og sala á matvöru. Hermann seg- ir að ástæður þessa megi rekja til þess að 24 þúsund fleiri Íslendingar hafi ferðast innanlands í sumar en fyrri sumur. Mun færri ferðist til útlanda auk þess sem ferðamannastraumur til Íslands hafi aukist nokkuð. Íslenskur bjór og meiri djús Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, sýndi á fundi Ímark fram á að hrunið hefði leitt til mestu neyslubreytinga í manna minnum. Gagnvart Ölgerðinni birtist það til dæmis þannig að hlutdeild ódýrari bjórtegunda hefur í sölutölum aukist úr um tólf prósentum í átján prósent. Íslenskir bjórframleiðendur hafa bætt við sig 6 prósentum af bjórsölu ÁTVR en það jafngildir tæplega millj- ón lítrum af bjór á ári. Á meðal annarra niðurstaðna má nefna að fólk kaupir mun meira af óblönduðum djús en áður, innflutt kaffi víkur fyrir innlendri framleiðslu og sala á svokölluðu víngosi hefur dregist verulega saman. Loks skera síðustu áramót sig verulega frá ára- mótunum þar á undan þegar kem- ur að sölu á kampavíni. Salan dróst saman um 70 prósent. Vilja léttvínið í kassa Capacent hefur spurt Íslendinga hvort neyslumynstur þeirra hafi breyst í kjölfar kreppunnar. Fram kemur að meira en þrír fjórðu hlutar Íslendinga hafa breytt kauphegðun sinni í kreppunni. Þetta gildir um alla launahópa ef frá eru taldir þeir sem hafa á bilinu 800 til 999 þúsund krón- ur í mánaðarlaun. Tveir þriðju hlutar þeirra hafa breytt sinni hegðun. Kannanir Capacent leiða í ljós að tveir þriðju hlutar Íslendinga segj- ast nú frekar gera innkaup þar sem verðið er lágt og um 63 prósent segj- ast velja ódýrari vörumerki en áður. Capacent hefur einnig fylgst með neyslu á ýmsum neysluvörum. Á meðal athygliverðustu niðurstaðna má nefna að frá hruninu hefur mark- aðshlutdeild Euroshopper, á markaði orkudrykkja, aukist úr 20 í meira en 40 prósent. Sú breyting hefur einnig orðið á léttvínskaupum fólks að fleiri kaupa nú léttvín í boxi/kassa en í flöskum. Fyrir hrun höfðu flöskurnar vinninginn; 63 prósent á móti 37. Þúsundir hafna greiðslujöfn- un Fyrir helgina höfðu um fimm þúsund manns afþakkað greiðslujöfnunarúrræði ríkis- stjórnarinnar hjá Íbúðalána- sjóði. Í úrræðunum felst lækkun á greiðslubyrði vegna húsnæðis- og bílalána. Fyrir vikið greiðir fólk líklega lengur af lánum sínum og þannig hærri heildarupphæð. Þeir sem hyggjast ekki nýta sér úrræðið hafa frest til 20. nóvem- ber, eða í hálfa aðra viku í viðbót. Ríflega þúsund manns til viðbót- ar höfðu afþakkað greiðslujöfn- unarúrræðið hjá ríkisbönkunum þremur. hvers vegna Íslandsbanki? „Neytendasamtökin undrast að vinnubrögð bankanna skuli ekki vera samræmd. Ekki er hægt að tala um samkeppni á þessum markaði með ríkið sem eiganda stærstu bankanna og auk þess færa viðskiptavinir sig ekki svo létt á milli banka með lánin sín,“ segir á heimasíðu Neytendasam- takanna. Samtökin spyrja hvers vegna Íslandsbanki hafi einn fjár- málastofnana boðið viðskipta- vinum sínum lækkun höfuðstóls lána vegna bankahrunsins og hvort Íslandsbanki sé betur til þess búinn að bjóða höfuðstóls- lækkun en aðrir bankar. „Getur verið að hann meti það svo að betra sé að gefa eftir af lánunum strax til að forðast útgjöld og töp síðar?“ spyrja samtökin. n Lastið fær Þjóðleik- húsið fyrir háa verðlagningu. Leikhúsgestur sá leikverkið Frieda og skemmti sér þokkalega. Í hléi keypti hann hins vegar tvær litlar flöskur af appelsíni í gleri. Fyrir það þurfti að leggja út 600 krónur. Honum blöskraði álagn- ingin. n Lofið fær Græni risinn í Ögurhvarfi í Kópavogi. Staðurinn er afar snyrtilegur og maturinn bæði heilsusamlegur og góður. Þrír viðskiptavinir pöntuðu ljúffengan rétt dagsins með súpu á 1.400 krónur. Einn þeirra þurfti þó bíða eftir matnum þar til hinir voru nánast búnir með sinn. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Dísilolía algengt verð verð á lítra 189,2 kr. verð á lítra 186,4 kr. skeifunni verð á lítra 187,7 kr. verð á lítra 184,9 kr. algengt verð verð á lítra 190,9 kr. verð á lítra 186,9 kr. bensín dalvegi verð á lítra 187,6 kr. verð á lítra 184,8 kr. fjarðarkaupum verð á lítra 187,7 kr. verð á lítra 184,9 kr. algengt verð verð á lítra 189,2 kr. verð á lítra 186,4 kr. UmSjóN: BALDUR GUÐmUNDSSON, baldur@dv.is / neytendur@dv.is el d sn ey t i Flugfélög fá harða útreið hjá umboðsmanni neytenda í Noregi: villa um fyrir neytendum Rannsóknir vinnuhóps, undir forystu umboðsmanns neytenda í Noregi, sýnir að meira en helmingur þeirra gjalda sem flugfélög kalla „skatta og aðrar greiðslur“ er í raun rekstrar- kostnaður. Einnig kom í ljós að mis- munandi nöfn og hugtök sem notuð eru til að lýsa sköttunum og öðrum greiðslum gera neytendum erfitt fyr- ir þegar kemur að verðsamanburði. „Hugtakið „skattar og aðrar greiðsl- ur“ virðist gefa í skyn að um opin- ber gjöld sé að ræða, svo sem gjöld sem verður ávallt að greiða. Þegar meira en helmingur af því sem flug- félögin kalla skatta og aðrar greiðslur er í raun kostnaður sem ætti að vera innifalinn í fargjaldinu, þá er verið að villa um fyrir neytendum,“ seg- ir Bjorn Erik Thon, umboðsmaður neytenda í Noregi, en Neytendasam- tökin íslensku greina frá þessu. Tilgangur verkefnisins var að komast að því hvað flugfélögin fela á bak við skatta og aðrar greiðslur. Niðurstöðurnar byggja á upplýsing- um um 281 flug hjá 24 flugfélögum á 34 stórum flugvöllum víðs vegar í Evrópu. Könnunin náði meðal ann- ars til Icelandair og Iceland Express auk þess sem upplýsinga var aflað frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar. „Fáein flugfélög bjóða lág verð við upphaf bókunarferlisins, en enda með heildarverð sem er nokkur hundruð prósentum hærra eftir að sköttum og öðrum greiðslum hefur verið bætt við. Eins og skýrslan sýn- ir er rekstrarkostnaður oft innifalinn í sköttum og öðrum greiðslum og sú framsetning á fargjöldum er misvís- andi,“ segir Bjorn Erik. baldur@dv.is BALDUR GUÐMUNDSSON blaðamaður skrifar baldur@dv.is 12 mánudagur 9. nóvember 2009 neytendur Íslensku flugfélögin með Flugstöð Leifs Eiríkssonar var á meðal þeirra flugstöðva sem athugaðar voru. Íslendingar kaupa helmingi meira af neftóbaki og þriðjungi meira af munntóbaki nú en fyrir efnahagshrunið, samkvæmt sölutölum N1. Þeir kaupa samlokur frekar en langlokur og kaupa léttvínið frekar í kössum en flöskum. Fleiri kaupa íslenskan bjór og óblandaður djús rennur nú niður kverkar landsmanna sem aldrei fyrr. Íslendingar taka kreppuna Í nefið Tekið í nefið Íslendingar taka kreppuna í nefið, sala á neftóbaki hefur aukist um helming hjá N1. mynd Kristinn Helmingi meira neftóbak mun meira er nú keypt af nef- og munn- tóbaki en fyrir hrun. Rauðvín í kassa meira er nú selt af rauðvíni í kassa en flösku eftir að kreppan skall á. Píputóbak vinsælla Dregið hefur úr sölu sígaretta eftir kreppu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.