Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2009, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.2009, Blaðsíða 19
Hver er maðurinn? „Ragna Ingólfsdóttir badmintonfrú.“ Hvað drífur þig áfram? Lífið er svo skemmtilegt - það er það sem drífur mig áfram.“ Hvar ertu uppalin? „Í Laugardaln- um.“ Hver eru þín helstu áhugamál? „Það eru badminton og golf og að skemmta mér með vinum og vandamönnum.“ Uppáhaldsmatur? „Sushi og ind- verskur matur eru í miklu uppáhaldi.“ Hvaða bók er á náttborðinu? „Ég er með eina þar. Skyndibitar fyrir sálina - finndu mátt þinn og megin. Afar áhugaverð og skemmtileg bók.“ Hvernig er að vera kominn á völlinn? „Það er mjög góð tilfinning. Skemmtilegt að geta toppað akkúrat á réttum tíma. Ég var búin að stefna mjög lengi að því að ná þessu móti. Ég er búin að vera frá í ár og búin að keppa á þremur mótum og ég ætlaði mér að toppa á þessu móti og það tókst.“ Er hnéð orðið gott? „Nei, ég er að fara í speglun. Ég er búin að vera að drepast í hnénu frá því ég fór í aðgerðina. Þar verður tekið bein sem hefur vaxið og er að erta einhverja sin.“ Verðurðu þá lengi frá? „Ég verð í endurhæfingu til áramóta og stefni að því að verða orðin góð í janúar.“ Var erfitt að vera frá í heilt ár? Ég var alveg fegin fyrst að fá frí því ég var búin að æfa og keppa svo mikið. En svo er þetta rosalega langur tími - heilt ár er mjög langur tími. Þetta var pínu erfiður tími og það var erfitt að vera bara í ræktinni - ekki á vellinum.“ Hvað er næst á dagskrá? „Speglun og hvíld. Eyða næstu vikum í World Class í endurhæfingu.“ Ertu byrjuð/aður að kaupa jólagjafir? „Ég ætla að kaupa nokkrar gjafir handa vinkonum mínum í desember.“ Lára Katrín ragnarsdóttir 13 áRA NEmI „Ég er ekki byrjaður. Ég býst við að konan fari að byrja.“ HaLLUr Viggóson 49 áRA fRAmkvæmdAStjóRI „Nei, ég er ekki byrjuð en mamma er byrjuð. Ég stefni á að kaupa nokkrar handa vinkonum mínum í desember.“ Hanna ragnarsdóttir 15 áRA NEmI „Nei, ég er ekki byrjaður. konan sér um þetta.“ ragnar JóHannsson 55 áRA fRAmkvæmdAStjóRI Dómstóll götunnar ragna ingóLfsdóttir vann tvöfaldan sigur á Alþjóðabadminton- mótinu. Bæði í einliðaleik og tvíliðaleik. Ragna var frá í heilt ár vegna krossbandaslita. Engu að síður er hnéð enn að angra hana og þarf hún að fara í speglun og verður frá til áramóta. Ragna elskar sushi og indverskan mat og er með eina bók á náttborðinu. Speglun eftir Sigur „Ég er ekki byrjuð en það fer að líða að því.“ Linda sigUrðardóttir 45 áRA StARfAR Í gEStAmóttöku maður Dagsins Viðsnúningur þjóðfélagsins hefur flett ofan af ýmsu og það sem áður þótti fráleitt blasir nú við landslýð sem óræk sannindi. Gamli veru- leikinn sýnir loksins sitt rétta and- lit og margir klóra sér í hausnum, undrandi yfir að í slíkum óskapn- aði hafi menn ekki bara dafnað heldur líka fundið upphefð. Við- mið góðærisins eru nú einungis notuð sem réttlæting þeirra sem fóru yfir strikið, í þann fúla pytt sækja menn afsakanir gjarða sinna og misyndis. Hugmyndafræði stjórnmála- flokka, mannval og vörumerki er eitt af því sem vert er að skoða áður en haldið er lengra. Hvað er ónýtt, hvað reyndist rangt, hvað sagði fólk, hvar þagði fólk, hverju var logið og hverjir höfðu lög að mæla? Bankaleynd, viðskiptaleynd, leynd um fjármál flokkanna, öllu þessu var mjög fram haldið og sagt í þágu almannahagsmuna. Persónuvernd og viðskiptahagsmunir voru lyk- ilorð þessa málflutnings. Nú vita hins vegar allir hvaða hagsmuni var verið að verja. Sterk öfl mæltu mjög með virkj- un svokallaðs dauðs fjármagns. Lög um kvótaframsal mörkuðu upphaf þessa. Sú hryllingsópera skartar enn mesta óskapnaði ís- lensks samfélags og þó virtustu hagfræðingar heims bendi á ótelj- andi tónskratta heykjast hérlendir ráðamenn enn á náðarhögginu. Af fimm þingsitjandi stjórnmálaflokk- um hampa að minnsta kosti tveir enn þessu úr sér gengna fiskveiði- stjórnunarkerfi og vilja það áfram. Úr gini þessa skrímslis spratt hið dauða fjármagn, uppvakningur- inn, sem nú aftur er genginn til hvílu eftir að hafa heimsótt hvert einasta heimili á Íslandi og valdið þar usla og eyðileggingu. Á Íslandi eru hreinsunareldar skammt á veg komnir. Við sjáum það í úreltum viðhorfum og sjálf- hverfu sem enn tröllríða æðstu stöðum. Við sjáum það á mann- vali stjórnkerfisins, sömu andlit- in, sömu hagsmunatengslin, sami hugsunarhátturinn og fyrir hrun. Við sjáum það þó best í skoð- anakönnunum. Þær gefa innsýn inn í okkar eigin hugarheim. Þar fá óverðskuldaðan hljómgrunn sömu öfl og héldu vitleysunni fram og hrundu þjóðinni fram af bjargi. Fólk sem dásamaði útrás- ina og blekkti almenning vísvit- andi um lengri eða skemmri tíma. Miðað við frammistöðu ætti hlut- verki þessara vörumerkja í íslenzk- um stjórnmálum að vera lokið. En, nei, þau dafna sem fyrr, sömu ill- gresisgræðlingarnir sem bíða þess eins að geta blómstrað á ný, ekki fyrir íslenzka þjóð, heldur sig og sína. Hreinsunareldar skammt á veg komnir kjallari mynDin 1 skemmtilegustu og leiðinleg- ustu rithöfundarnir dv fékk vel mannaða dómnefnd til að velja þá núlifandi íslensku rithöfunda sem henni fannst hvað skemmtilegast að lesa eftir og að sama skapi þá leiðinlegustu. 2 Haye sigraði rússann Bretinn david Haye vann heimsmeistara- titilinn í hnefaleikum í þungavigtarflokki. 3 fimm létu lífið er brú hrundi ókláruð brú hrundi í Andorra um hádegisbilið á laugardag en að minnsta kosti fimm létu lífið og sex aðrir særðust. 4 tveir handteknir vegna fíkniefnasmygls Lögreglan á Akureyri handtók stúlku á tvítugsaldri þegar hún reyndi að kasta pakka inn í fangelsisgarðinn á Akureyri. 5 stormur í aðsigi á suðvestur- landi veðurstofan varaði við stormi á vestanverðu landinu á sunnudagskvöld. 6 staðnir að ólöglegum veiðum innan þjóðgarðs Lögreglan á Selfossi lagði hald á átta rjúpur sem rjúpnaveiðimenn höfðu veitt ólöglega innan þjóðgarðsins á Þingvöllum. 7 rosie o´donnell segir opruh Winfrey samkynhneigða Bandaríski þáttastjórnandinn Oprah Winfrey er alls ekki sátt við kynsystur sína Rosie O´donnell. mest lesið á dv.is LÝðUr árnason heilbrigðisstarfsmaður skrifar „Persónuvernd og viðskiptahagsmunir voru lykilorð þessa málflutnings. Nú vita hins vegar allir hvaða hagsmuni var verið að verja.“ umræða 9. nóvember 2009 mánudagur 19 Burt með herinn! fólk á öllum aldri kom saman í japönsku borginni ginowan í gær til að mótmæla bandarískri herstöð á svæðinu. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, er væntanlegur í opinbera heimsókn til japans á næstu dögum og búast yfirvöld við frekari mótmælum þá. Mynd afP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.