Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Side 12
12 miðvikudagur 18. nóvember 2009 fréttir
Hönnuðurnir Frederic Tabary og
Yann Falquerho reka fyrirtæki í
Frakklandi og sérhæfa sig í að leigja
út óvenjulega staði til fólks í ævin-
týraleit. Að mati sumra þar í landi
hafa þeir gjörsamlega toppað sjálfa
sig með nýjasta framtakinu. Þeir hafa
hannað svítu á frönsku hóteli í bæn-
um Nantes sem heitir Hamstravillan.
Svítan ber nafn með rentu því fyrir
99 evrur á nóttu, tæpar tuttugu þús-
und krónur, geta gestir lifað eins og
hamstrar.
Líkamsrækt í hamstrahjóli
Við komu á hótelið borga gestir fyrir
hamstrabúning svo þeir geti kynnst
lífi hamstursins betur. Eins og venju-
legu hamstrabúri sæmir er svítan
ekki stór, aðeins átján fermetrar, en
í henni er samt sem áður stofa, bað-
herbergi, eldhús og svefnherbergi.
Í stofunni er tveggja metra hátt
hamstrahjól þar sem gestir geta
stundað líkamsrækt. Einnig er hægt
að nota það sem borð eða sæti.
Svefnherbergið er fyrir ofan baðher-
bergið og þarf að fara um brattan
stiga sem minnir helst á göng til að
komast upp í herbergið. Þegar upp er
komið er gott útsýni yfir svítuna sem
er mjög óvenjuleg í laginu og mynda
veggir hennar þríhyrning.
Í svítunni eru einnig fóður- og
vatnsskammtarar þar sem gestir geta
gætt sér á hamstrafóðri og rennt því
niður með bergvatni – líkt og hamstr-
ar gera.
Engin takmörk
„Hugmyndin er að kynna hið dag-
lega líf nagdýrs fyrir fólki. Það eru
engin takmörk á hjólinu og þú get-
ur borðað eins mikið af fóðri og þú
vilt,“ segir Tabary. Falquerho seg-
ir að hamstur hafi orðið fyrir valinu
því þeim kumpánum líki mun betur
við hamstra en önnur húsdýr eins og
ketti og hunda.
„Í heimi barna er hamsturinn lít-
ið dýr sem hægt er að kúra með og
klappa. Fullorðna fólkið sem gistir
hér vildi eiga eða átti hamstur þegar
það var lítið.“
Verðið hækkar
Maud og Sebastian eru fyrstu gestirn-
ir sem prófa að lifa eins og hamstrar.
Þau eru alls ekki hrædd við tilhugs-
unina um að sofa í heyi eða borða
hamstrafóður. Þau segjast gera hvað
sem er til að breyta til.
„Við vildum komast út úr okk-
ar daglegu rútínu. Verða hamstur,
éta fræ og breyta lífsstíl okkar,“ segja
skötuhjúin við Reuters-fréttastofuna.
Þau greiddu tæpar hundrað evrur
hvort með glöðu geði og ekki seinna
vænna því verð á svítunni mun
hækka von bráðar þar sem komið
verður fyrir stórum flatskjá og þráð-
lausu interneti til að mæta óskum
gestanna.
Hrifinn af hömstrum Frederic Tabary stillir sér upp í hamstrabúningi á hjólinu. Hann og hönnunarfélagi hans vilja kynna fólki líf
hamstranna því þeim líkar betur við þá en hunda og ketti. Mynd: AFP
Fyrir tæplega tuttugu þúsund krónur á nóttu geta gestir hótels í franska bænum
Nantes lifa�� eins �g hamstrar�� �ar fá þeir tækifæri til a�� b�r��a hamstrafó��ur�� stunda
líkamsrækt í risastóru hamstrahjóli �g s�fa í heysátu��
BORGA FYRIR HAMSTRALÍF
LiLjA KAtrín GunnArsdóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
stórslösuð Fjölmörg bein í líkama
stúlkunnar og allar tennur brotnuðu við
fallið 19. nóvember. Hún grét hástöfum í
réttarsalnum í fyrradag er hún bar vitni.
Myndin er uppstillt. Mynd: PHotos.coM
Fertugur, franskur matreiðslumað-
ur er ákærður fyrir að slá fyrrver-
andi kærustu sína, sem er dönsk,
með járnröri og kasta henni og sjálf-
um sér út um glugga á fjórðu hæð í
fjölbýlishúsi í Frederiksberg í Kaup-
mannahöfn 19. nóvember í fyrra.
Aðalmeðferð í málinu fer fram þessa
dagana í dómstólnum í Lyngby. Í
gær fékk maðurinn tækifæri til að tjá
málstað sinn áður en dómur fellur.
Í réttarsalnum sat fyrrverandi kær-
asta hans sem er 27 ára. Hún lifði af
ellefu metra fallið af fjórðu hæð en
slasaðist alvarlega.
„Mér þykir leitt að hafa sært
svona margar manneskjur í kring-
um mig,“ sagði maðurinn. Því næst
sneri hann sér við, horfði á foreldra
fórnarlambsins og sagði:
„Fyrirgefið mér, mér þykir þetta
mjög leitt.“
Þegar kokkurinn talaði um hvað
atvikið hefur kostað hann átti hann
í erfiðleikum með halda aftur af tár-
unum.
„Ég er búinn að missa allt. Kær-
ustuna mína, soninn minn, vin-
ina mína, draumahúsið og vinnuna
mína. Lífi mínu lauk 19. nóvember
í fyrra.“
Maðurinn réðst á fyrrverandi
kærustu sína í íbúð hennar eftir að
hún hafði fundið sér nýjan kærasta.
Í gær sagði hann að hann hafi ver-
ið stressaður vegna vinnunnar og
slæms sambands við son sinn.
„Þetta var dimmasta tímabilið í
lífi mínu.“
Maðurinn segist ekki muna eft-
ir atvikinu og segist því saklaus af
tilraun til manndráps. Verjandi
mannsins segir hann ekki hafa ætl-
að að myrða fyrrverandi kærustu
sína né hafi hann slegið hana með
járnröri. Vinkona fórnarlambsins
hefur lýst því þegar hún sá manninn
slá hana með járnröri er hún lá sam-
anhnipruð á gólfinu.
Fórnarlambið bar vitni í fyrradag
þar sem það sagðist muna eftir að
hanga með höfuðið og efri hluta lík-
amans út um gluggann á meðan það
reyndi að róa manninn niður.
Dómur í málinu verður kveðinn
upp á föstudag.
liljakatrin@dv.is
Fertugur k�kkur kasta��i fyrrverandi kærustu sinni út um glugga:
„Mér þykir þetta mjög leitt“
Látinn í
baðkarinu
Tólf ára gamall drengur lést fyrir
skömmu af völdum svínaflensu
í Noregi. Hann fannst látinn í
baðkarinu á heimili sínu í Sarps-
borg. Krufning sýndi að dreng-
urinn drukknaði ekki heldur var
það svínaflensan sem dró hann
til dauða. Drengurinn hafði
hins vegar ekki verið greindur
með svínaflensu fyrir andlát-
ið. Mögulegt er að drengurinn
hafi verið með undirliggjandi
sjúkdóma en það er ekki ljóst að
svo stöddu. Alls hefur 21 látist
af völdum svínaflensu í Noregi
til þessa.
Mads sendiherra
Evrópska kvikmyndaakademí-
an hefur gert danska leikarann
Mads Mikkelsen að sendiherra
fyrir akademínuna. Í starfi hans
felst að taka þátt í auglýsingum
fyrir evrópskar kvikmyndir og
kynna evrópsku kvikmyndaverð-
launin við ýmis tilefni. Mads
nýtur mikilla vinsælda í Evrópu
og var meðal annars tilnefnd-
ur til evrópsku kvikmyndaverð-
launanna árið 2006 fyrir frammi-
stöðu sína í Efter brylluppet og í
fyrra fyrir Flammen og Citronen.
Þá hefur hann unnið til fjölda
verðlauna á hinum ýmsu verð-
launahátíðum.
Prince verður
hvítur
LaToya Jackson, systir popp-
kóngsins Michaels Jackson,
hefur upplýst heimsbyggðina
um að sonur Michaels, Prince
Michael, sé haldinn sama húð-
sjúkdómi og faðir hans, vitiligo,
sem gerir það að verkum að
húð hans verður hvít. Að sögn
LaToyu er húð Prince orðin hvít
á hlið líkamans og á brjóstkass-
anum. Hún segir sjúkdóminn
ganga í erfðir í föðurættinni.
Þessar upplýsingar gætu blás-
ið á kjaftasögur þess efnis að
Michael sé ekki faðir Prince.
Laus úr haldi
sjóræningja
Sómalskir sjóræningjar hafa
sleppt áhöfn spænska tún-
fiskveiðibátsins Alakrana úr
haldi en sjóræningjarnir héldu
áhöfninni fanginni í bátnum.
Forsætisráðherra Spánar, Jose
Luis Rodriguez Zapatero, sagði
sjóræningjana hafa yfirgefið
bátinn og að allir þrjátíu og sex
áhafnarmeðlimir bátsins væru
ómeiddir. Sjóræningjarnir höfðu
krafist lausnarfjár fyrir áhöfn-
ina en spænsk yfirvöld hafa ekki
staðfest hvort kröfum sjóræn-
ingjanna hafi verið mætt.