Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Page 14
Miðvikudagur 18. nóvember 200914 suðurland
Það var smár hópur en þéttur sem
kom saman og reisti Landsvirkjun
níðstöng uppi á hóli við ármót Þver-
ár og Þjórsár síðastliðið laugardags-
kvöld. Níðstöngin er reist vegna
áforma Landsvirkjunar um virkjan-
ir í neðri hluta Þjórsár. Til þess þarf
að gera uppistöðulón á svæðinu,
lón sem þegar hefur fengið nafnið
Hagalón. Það var Egill Egilsson, eðl-
isfræðingur og sumarbústaðaeig-
andi á svæðinu, sem bar hitann og
þungann af athöfninni á laugardag.
„Þetta er upprunaleg aðferð Eg-
ils Skallagrímssonar. Níðinu er í
raun ekki beint gegn Landsbvirkj-
un en landvættir eru ákallaðar okk-
ur til hjálpar. Með þessu erum við
að höfða til gamals menningararfs
Íslendinga og þjóðtrúar,“ segir Egill.
„Þessi gildi eru líka í andstöðu við
græðgi hinnar svokölluðu útrásar.“
Það var mál manna á staðnum
að sennilega þyrðu ekki allir að
vera viðstaddir sem þó vildu verja
landið.
Byggð undir lón
Virkjunaráformin eru óbreytt og
tilbúin og segir Egill að einhverjir
hnökrar séu nú á málinu í umhverf-
isráðuneytinu. Landsvirkjun sé
hins vegar tilbúin að hefjast handa.
„Kjarni málsins er sá að í fyrsta
skipti á að sökkva landsvæðum í
byggð, 27 ferkílómetrum alls, und-
ir jökullón. Þetta er á svæði sem ég
hef kallað hið fegursta á gjörvöllu
Suðurlandi. Þarna fáum við kyrrt
og dautt jökullón í stað lifandi ár-
innar.,“ segir Egill.
Áhyggjur hans beinast jafnframt
að öryggi framkvæmdarinnar sjáfr-
ar. „Þegar skilyrðin eru rétt getur
ísmyndun á allri Þjórsá verið allt
að fjögur tonn á sekúndu. Þessi ís
kemur til með að safnast saman í
lóninu þegar upp er staðið. Ég hef
ekki séð útreikninga sem benda til
þess að þetta sé gæfulegt.“
HrossHaus með
ljós í glyrnum
Egill og nokkrir bændur úr grennd-
inni og aðrir velunnarar málstað-
arins tóku að safnast saman við
ármótin rétt fyrir klukkan fimm
á laugardagseftirmiðdag. Vindur
var napur úr norðvestri og síðustu
ljósgeislar sólar hurfu hratt. Brúnn
haus af meri lá á jörðinni og blóð
draup úr hnakkanum. Díóðuljós-
um hafði verið komið fyrir í augn-
tóftum og kjafti. Rafmagnið kom
úr batteríum. Sjálf merin lá þegar
í saltpækli.
Klukkan sló fimm. „Það er rétt
að byrja,“ sagði Egill og nokkrir
nærstaddir reistu stöngina með
hausnum sem nú gnæfði yfir
mannskapinn. „Í sveitarstjórn
Skeiða- og Gnúpverjahrepps hafa
þeir Gunnar Marteinsson odd-
viti og Sigurður sveitarstjóri til
skamms tíma unnið að því sem
einn maður að koma fram virkj-
anaáætlunum sem sökkva eiga 27
ferkílómetrum af fegursta landi
Árness- og Rangárvallasýslu.
Meðal annars sendu þeir okk-
ur sem kvarta undan skipulagi
mannvirkjanna huggunarríkt bréf
um að við ættum að gleðjast yfir
öllu því mikla sem stæði upp úr
Hagalóninu við Hvammsvirkjun.
Meðal annars stæði allur Þjórsár-
dalur upp úr og Háifoss líka. Við
gleðjumst yfir öllu sem stendur
upp úr og fólkinu sem kemst af en
drukknar ekki,“ hóf hann mál sitt.
Svo kom drápan.
„ekkert Heimilt utan
Hel“
„Sökkvist hraunbrún og hraukur.
Hraksmán af því fær Gaukur. Allt
fer í veður og vind þó, ef verslum
við Rio Tinto,“ hófst drápan. „Hér
set ég upp níðstöng. Sný ég níðinu
á hönd Landsvirkjunar, eins og
hún hefur hegðað sér undir stjórn
Friðriks Sophussonar. Sný eg þessu
níði á landvættir þær er þetta land
byggja, að þær fari villur vegar og
engin hendi eða hitti fyrir sitt inni,
fyrr en þær reka Landsvirkjun úr
löndum allt frá Gaukshöfða til ósa
Þjórsár,“ hélt Egill áfram.
„Aðför skal illum er að fer.
En óhægur dúr á dimmri nóttu.
Óalandi um láð. Óferjandi vötn.
Óhýsandi og ekkert heimilt utan
Hel. Yrjum og kyrjum ómæli. Ills
refjar. Slaks slyðrur. Hraks hreðj-
ar. Þrekkur þjós. Hanga skal, hraks
um gálga.“
Nú var dimmt og vasaljós þurfti
til að lesa drápuna. „Víki varmenni,
vættum illum skal níð. Komi árs
tíð. Komi árs tíð.“
sigtryggur@dv.is
„Sný eg þessu níði á
landvættir þær er þetta
land byggja, að þær fari
villur vegar og engin
hendi eða hitti fyrir sitt
inni, fyrr en þær reka
Landsvirkjun úr lönd-
um allt frá Gaukshöfða
til ósa Þjórsár.“
reistu landsvirkjun
níðstöng
Hópur fólks kom saman við lón-
stæði Hagalóns í Þjórsárdal á laug-
ardagskvöld og reisti Landsvirkj-
un níðstöng. Egill Egilsson fór
með drápu. Hann segir níðstöng-
inni ekki beint gegn Landsvirkjun,
heldur séu vættir ákallaðar í þeirri
von að ekkert verði úr virkjunar-
áformum á staðnum.
Víki varmenni Egill fór svo með alllanga drápu þar sem landvættir voru ákallaðar í
þeirri von að Landsvirkjun hverfi úr löndum frá Gaukshöfða til Þjórsárósa.
Gert klárt Merarhaus var reistur á stöng, með díóðuljósum í augntóftum og kjafti.
Safnast saman Það var tek-
ið að rökkva þegar hópurinn
safnaðist saman á hólnum.
Það sem upp úr stendur „Við
gleðjumst yfir því sem stendur
upp úr lóninu og fólkinu sem
ekki drukknar,“ sagði Egill þegar
stöngin var reist.
Myndir SiGTryGGUr