Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Síða 18
Miðvikudagur 18. nóvember 200918 suðurland
Jón Kr. Arnarson er ekki gítarsmið-
ur heldur garðyrkjufræðingur sem
kennir við Landbúnaðarháskólann
í Hveragerði. Aðaltómstundagam-
anið tók hann þó með sér í búgarða-
byggðina sunnan Selfoss þegar hann
flutti þangað. Þegar blaðamann bar
að garði var Jonni að vinna við að
smíða gítara númer sjö og átta, en
þeim hafði hann lofað skyldmenn-
um.
„Það liggur feiknaleg vinna hjá
mér í einum gítar,“ segir Jonni. „Hluti
af ástæðunni er auðvitað að ég hef
aldrei komið mér upp vinnuað-
stöðu, heldur hef ég verið að þessu
við eldhúsborðið.“
Hann segir áhugann hafa vaknað
þegar hann rambaði inn á heima-
síðu hjá gítarsmið í Bandaríkjunum.
„Mig vantaði eina stilliskrúfu sem
ég ætlaði að kaupa hjá Magga Eiríks
í Rín. Það var einhver bið á því að
fá þessa skrúfu að utan og ég fór að
leita sjálfur á netinu. Þegar ég ramb-
aði inn á þessa síðu var ekki aftur
snúið.“
Þarf næmni fyrir tónlist
Fyrsti gítarinn sem Jonni smíð-
aði var að nokkru leyti forunninn.
„Þetta var svona „kit“ þannig að
megnið af vinnunni lá í samsetn-
ingunni. Næsta gítar smíðaði ég svo
frá grunni.“ Heima hjá sér er Jonni
með fjögur hljóðfæri hangandi á
veggjum. „Þetta er hefðbundinn
stálstrengja kassagítar, mandólín,
svokallaður arktop gítar og svo Les
Paul-útgáfa af rafmagnsgítar.“
Hann segir að auðvitað þurfi
maður að hafa áhuga og næmni
fyrir tónlist til þess að geta stundað
áhugamál eins og þetta. „Ég hef nú
líka alltaf spilað aðeins, bæði á gítar
og mandólín. Á meðan maður smíð-
ar þarf líka að fylgjast með tóninum í
viðnum. Þá þarf maður stundum að
slípa dálítið til og frá, taka úr viðnum
og hlusta til. Viðurinn þarf að geta
endurómað þokkalega. Þessu þarf
að fylgjast með á öllum stigum.“
Bara áhugamál
„Ég hef aldrei gert mér vonir um að
gera gítarsmíði að aðalstarfi, enda er
þetta iðngrein sem þarf að læra sér-
staklega. Það er ekki einu sinni víst
að hér sé markaður fyrir nokkuð líkt
þessu.
Þetta eru gítarar númer sjö og átta
sem ég er að smíða núna. Þarf mað-
ur að vera hagleiksmaður? Aðallega
þarf maður að vera þolinmóður. Ég
hef nú verið í svolítilli pásu í þessu
en er að fara aftur af stað af því að ég
var búinn að lofa því að smíða þessa
tvo sem ég er byrjaður á.
Það eru ennþá nokkuð margar
gerðir af gítörum sem mig langar að
smíða og eiga þannig að það er lík-
legt að ég muni smíða nokkra til við-
bótar. Það endist mér einhver ár til
viðbótar held ég.“
Í BúgarðaByggðinni
Jonni hefur komið sér fyrir í hinni
svokölluðu búgarðabyggð, nokkr-
um kílómetrum sunnan Selfoss. „Ég
er hér með rúman hektara þannig
að það er ekki útilokað að ég geti
komið mér upp litlu verkstæði þeg-
ar fram líða stundir. En það verð-
ur sennilega aldrei réttlætanlegt að
gera þetta að atvinnu. Þá þyrfti ég
að ná að framleiða á slíkum hraða
og magni að það myndi aldrei henta
mér. Sennilega spara ég mér ekki
einu sinni peninga á því að smíða
hljóðfærin sjálfur. Efniskostnaður-
inn er mikill, einkum þegar maður
kaupir viðinn í smáskömmtum.“
Jón Kr. Arnarson garðyrkjufræðingur smíðar gítara og mandólín í frístundum sínum í búgarðabyggðinni
sunnan við Selfoss.
Hófst með einni stilliskrúfu
„Þarf maður að
vera hagleiksmaður?
Aðallega þarf maður
að vera þolinmóður.“
Í stofunni Jonni með einn af smíðisgripum sínum. Djásnin Jonni kveðst eiga eftir að smíða þónokkra gítara til viðbótar.
Í eldhúsinu Við smíðar í eldhúsinu.
Búgarðabyggðin Í
búgarðabyggðinni í Árborg
hefur hvert heimili hektara
lands hið minnsta.
10%
afsl. af öllum
vörum
fim
m
tudaginn 19. nóv. í Snúðum
&
Snæ
ldum
Selfossi og A
kureyri
Hlustaðu á okkur á netinu: www.963.is
Sendu okkur línu á 963@963.is eða í síma 4 800 963
Ný vetrardagskrá
á Suðurland FM 96,3
Kvöldsigling - öll þriðjudagskvöld
frá kl. 21 - 23
með Kjartani Björns.
Líð er ljúft - öll föstudagskvöld
frá kl. 21 - 01
með Valda Braga.
Á hvað hlustar þú...