Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Síða 33
suðurland Miðvikudagur 18. nóvember 2009 33
„Okkar styrkur liggur í fjölbreyttri
og góðri tónlist. Síðan tökum við
púlsinn á byggðarlögunum hér í
kring. Við erum víða með fréttaritara
þannig að fólk getur fylgst með hvað
er að gerast í heimabyggð,“ segir Ein-
ar Björnsson, útvarpsstjóri Suður-
lands FM.
Útsendingar stöðvarinnar nást
á Suðurlandi, frá Hellisheiði í vestri
til Skóga í austri og frá Vestmanna-
eyjum í suðri til Flúða í norðri. Hún
hefur verið rekin í núverandi mynd í
hálft annað ár.
Sunnlendingar eru hins veg-
ar ekki einir um að hlusta á stöðina
því margir kynnast henni þegar þeir
dvelja í sumarbústaðabyggðinni í ná-
grenni Selfoss og halda síðan áfram
að hlusta á hana þegar heim er kom-
ið í gegnum netið. Hægt er að hlusta
á beina útsendingu á vef stöðvarinn-
ar, 963.is. Einar segist einnig þekkja
dæmi þess að brottfluttir Sunnlend-
ingar sem búa erlendis hafi nýtt sér
netið til að fylgjast með því hvað er
að gerast á Suðurlandinu.
Engin formleg mæling hefur enn
verið gerð á hlustuninni en Einar seg-
ir fólk um allt Suðurland hafa komið
að tali við sig og lofað það framtak
að reka „local“ útvarpsstöð í lands-
hlutanum. Hann vitnar í starfsmenn
Frumherja máli sínu til staðfestingar,
en þeir sjá um að skoða bíla á Suður-
landi, og segja að ríflega helmingur
þeirra bíla sem koma til skoðunar sé
með stillt á Suðurland FM.
Einar bendir einnig á að velflest-
ir almenningsstaðir og verslanir séu
með stillt á stöðina daginn um kring.
Þótt stór hluti dagskrárinnar sé
fjölbreytileg tónlist fá viðtalsþætt-
ir og fréttatengt efni sitt pláss. „Fólk
vill hafa „local“ útvarp. Það er ekkert
síður hringt í okkur frá Þorlákshöfn,
Eyrarbakka, Stokkseyri en uppsveit-
um Árnes- og Rangárvallasýslu,“ seg-
ir Einar sem er afar ánægður með
þær viðtökur sem stöðin hefur fengið
og vonast til að leiðin liggi áfram upp
á við. Um þessar mundir standa yfir
miklar breytingar á dagskrá stöðvar-
innar og eru viðtals- og spjallþættir
á hverju kvöldi. Í dag breytist stöðin
síðan í hálfgert jólaútvarp.
Hér á árum áður var rekin sérstök
útvarpsstöð á Suðurlandi en hún
lagðist af fyrir nokkru. Skömmu fyr-
ir jólin 2007 var síðan ákveðið að fara
af stað með jólaútvarp í landshlutan-
um sem síðan vatt upp á sig og er nú
orðið að útvarpsstöð sem heldur úti
útsendingum allan sólarhringinn.
Einar tók við rekstrinum sumarið
2008. Útvarpsstöðin heyrir undir fyr-
irtækið Léttur ehf. sem einnig rekur
skemmtistaðinn Hvíta húsið og EB-
kerfi ehf., hljóðkerfa- og ljósaleigu.
Um tíu manns starfa hjá stöðinni,
flestir í hlutastörfum eða sem verk-
takar.
erla@dv.is
Ríflega helmingur þeirra bíla sem komið er með til skoðunar hjá Frumherja á Suðurlandi er með stillt á útvarps-
stöðina Suðurland FM. Brottfluttir Sunnlendingar hvar sem er í heiminum geta hlustað á stöðina í gegnum
netið en íbúar á Suðurlandi heyra ómþýða tónlistina í velflestum verslunum og opinberum byggingum.
Útvarpsstöð
í heimabyggð
Áva
llt ferskir
Selfossi
Í beinni Gulli G. í beinni útsendingu
hjá Suðurlandi FM. Auk fjölbreyti-
legrar tónlistar fá viðtalsþættir og
fréttatengt efni sitt rými á stöðinni.