Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Page 34
Miðvikudagur 18. nóvember 200934 suðurland
„Þetta byrjaði allt þegar okkur bauðst
samstarf við Listaháskólann í verk-
efninu „Stefnumót bænda og hönn-
uða“ í hitteðfyrra. Þá fór þróunarferli
og heilmikil hugmyndasmíði í gang
með aðkomu bæði kennara og nem-
enda við Listaháskólann. Það endaði
þannig að þau komu með frumhug-
mynd að karamellu sem síðan var þró-
uð alla leið á framleiðslustig og hefur
aldeilis slegið í gegn,“ segir Dorothee
Lubecki. Hún, ásamt manni sínum,
Kjartani Ágústssyni, stundar búskap
á Löngumýri á Skeiðum auk þess að
framleiða rabarbarakaramellur og
-sultur undir vörumerkinu Rabarbía.
SmellpaSSaði
Þegar hjónunum bauðst samstarf
við Listaháskólann höfðu þau lengi
gengið með það í maganum að fara
út í einhvers konar vöruframleiðslu
þar sem nóg var til af rabarbaran-
um.
„Það er búin að vera rabarbara-
ræktun á Löngumýri eins lengi og
maðurinn minn, sem er ættað-
ur þaðan, man. Hann ólst upp við
þessa rabarbararækt og nú er upp-
skeran hjá okkur um átta til tíu tonn
á ári. Við vorum búin að koma okk-
ur upp aðstöðu til að hreinsa rabar-
barann og skera hann í búta sem
er einsdæmi á Íslandi eftir því sem
ég best veit. Við höfðum selt hann
skorinn í sultuframleiðslu í mörg
ár þannig að grunnurinn var fyrir
hendi og okkur langaði alltaf að fara
út í frekari vöruþróun. Fyrir nokkr-
um árum tókum við ákvörðun að
gera þetta almennilega og byggð-
um framleiðsluhús fyrir rabarbara-
vinnsluna. Þá var umgjörðin fyrir
hendi og þegar Listaháskólinn bauð
okkur samstarf vorum við akkúrat
tilbúin. Þetta bara smellpassaði.“
einS lífrænt og hægt er
Þegar hugmyndin að karamellunni
var þróuð ákváðu hjónin ásamt
Listaháskólanum að kýla á sultu-
framleiðslu í leiðinni. Nemendurnir
þróuðu límmiða á sultukrukkurnar
sem er í stíl við umbúðirnar á kara-
mellunum og þá var fædd lítil fram-
leiðslulína.
Sulturnar eru algjörlega laus-
ar við aukaefni og eru annars veg-
ar með jarðarberjum frá Flúðum og
engifer og hins vegar handtíndum,
vestfirskum aðalbláberjum. Sult-
urnar eru eins lífrænar og hægt er og
búnar til úr hrásykri, sítrónusaft og
sítrónusýru. Karamellurnar eru hins
vegar framleiddar úr hvítum sykri,
sýrópi og rjóma. Auk þess framleiða
Kjartan og Dorothee fíflasýróp úr
hrásykri og án aukaefna.
ekkert útilokað
Dorothee útilokar ekki að fleiri rab-
arbaravörur líti dagsins ljós á næstu
misserum.
„Það er ýmislegt í pípunum en
ekkert sem er tímabært að ræða.
Þegar maður byrjar í þessu get-
ur maður ekki hætt. Við erum líka
búin að koma okkur upp fullgildu
eldhúsi, samþykktri framleiðsluað-
stöðu og erum með lífræna vottun á
rabarbarann. Þetta lofar allt saman
góðu,“ segir Dorothee.
Dorothee er frá Þýskalandi og
kom fyrst til Íslands árið 1982 sem
skiptinemi. Hún flutti til Íslands um
miðjan tíunda áratuginn og segist
ekki vera á leiðinni aftur til Þýska-
lands. Hún hefur kannað hvort
markaður sé fyrir rabarbaravörurn-
ar þar í landi en segir aðstæður ekk-
ert sérstaklega góðar.
„Maður þyrfti stóran markað svo
það borgaði sig. Flutningskostnaður
er hár og varan þung og frekar við-
kvæm þannig að við þyrftum að ná
góðri lendingu til að hafa eitthvað
upp úr þessu. En það er ekkert úti-
lokað.“
Skemmtileg jólagjöf
Rabarbaravörurnar eru seldar á um
fjörutíu stöðum víðs vegar um land-
ið, til dæmis í Melabúðinni, Nor-
ræna húsinu, Þjóðminjasafninu,
Gamla bakaríinu á Ísafirði, á Sauð-
fjársetrinu og Galdrasýningunni á
Hólmavík, á Patreksfirði, Akureyri
og Landnámssetrinu í Borgarnesi.
Dorothee segir vörurnar tilvaldar
gjafir og seldist gífurlega mikið af
þeim fyrir síðustu jól.
„Þetta hefur aldeilis náð flugi.
Við vonum bara að við fáum eins
góðar móttökur og fyrir jólin í fyrra.
Þetta virðist vera mjög skemmtileg
jólagjöf.“
liljakatrin@dv.is
Hjónin Dorothee Lubecki og Kjartan Ágústsson á Löngumýri
á Skeiðum framleiða gómsætar rabarbarakaramellur og -sultur.
Vörurnar hafa slegið í gegn og eru nú seldar á um fjörutíu stöðum
víðs vegar um landið. Dorothee útilokar ekki frekari framleiðslu á
hinum ýmsu rabarbaravörum í framtíðinni.
„Þetta virðist vera mjög
skemmtileg jólagjöf.“
raBarBara-
karamellan
Sem nÁði flUgi
Geta ekki hætt Dorothee
og Kjartan voru staðráðin
í að fara út í vöruþróun og
tóku tækfærinu til að vinna
með Listaháskólanum
fegins hendi.
Góðar móttökur Að sögn Dorothee
var sala á vörunum geysilega mikil
fyrir síðustu jól og vonast hjónin eftir
jafngóðum móttökum nú í ár.
Jólablað DV
Stórglæsilegt og veglegt
sérblað um jólin fylgir DV
föstudaginn 27. nóvember.
Auglýsendur!
Pantið fyrir klukkan 16:00,
mánudaginn 23. nóvember
í síma 512 7050 eða í gegnum tölvupóst
á auglysingar@dv.is
Jólaskreytingar
Jólaförðun
Jólaspil
Jólaglögg
Kreppukransar
Jólauppskriftir
Jólaherbergi barnanna
Jólaföt
Jólagjöfin hennar
Jólagjöfin hans
:::
:::
:::
:::
:::
:::
:::
:::
:::
:::
Meðal efnis er:
Ásamt öllu hinu
sem fylgir jólahátíðinni.