Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Side 46
Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi er einn glæsi-legasti fulltrúi sinnar kyn-slóðar á stjórnmálasviðinu. Hann er að mati Svarthöfða flestra vinur. Þessi góði drengur er lífsreynd- ur mjög. Fram kom í einlægu viðtali við hann að þegar hann var hátt á þrítugsaldri lenti hann í þeirri raun að foreldrar hans skildu. Þar með varð hann elsta skilnaðarbarn á Íslandi. Þetta hefur eflaust mótað hann og eflt til þeirra átaka sem hann stóð í innan borgarstjórnarmeirihlutans sem Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson stýrði sem oddviti og borgarstjóri. Reykvískir sjálfstæðismenn höfðu ekki þann pólitíska þroska til að bera að velja Gísla Martein til að leiða lista sinn. Þess í stað var Vilhjálmur val- inn. Gísli hafði allt til að bera sem nauðsynlegt er að leiðtogi hafi. Hans pólitíska brjóstamólk kem- ur frá Hannesi Hólm- steini Gissurar- syni, einum af virtari fræðimönnum Íslands, og sér- legum pennavini fjölskyldu Nóbel- skáldsins, Halldórs Kiljans Laxness. Og Gísli hafði heillað landsmenn með ungæði og visku í starfi sínu sem sjón- varpsmaður. Þegar hann bauð borgar- búum krafta sína hafði hann aflað sér gríðarlegrar reynslu með viðtölum við fjölda manns. Gísli er allra manna vinur en þó sérstaklega þeirra sem njóta vinsælda hverju sinni. Þannig var vinahópur hans á meðal útrásarvíkinga stór. Og hann fór með þeim til Rússlands að veiða birni. Hann flaug í þyrlu á veiðilend- urnar sem sérlegur gestur útrásar- innar. En auðvitað var hann ekki boðsgestur. Hann var sem starfsmað- ur veiðimanna og sá um að skemmta þeim á kvöldin með sinni óborgan- legu rödd sem er einskonar sportút- gáfa af rámum bassa Björns Bjarna- sonar eftirlaunaþega. Einn af vin-um Gísla var Hannes Smárason at- hafnamaður. Hann- es hélt stór- veislu á Nord- ica til heið- urs borg- ar- stjóra- efninu þáverandi. Stór hluti Sjálfstæðis- flokksins mætti til að njóta veitinga og hylla framtíðarleiðtoga sinn. Auð- vitað vissi Gísli ekki af velgjörðamanni sínum. Hann þiggur í myrkri til þess að verða ekki skuldbundinn. Og Gísli Marteinn hefur verið einkar réttsýnn í gagnrýni sinni á allt Baugshyskið. Yfirlýsingar um einokun á fjölmiðlamarkaði og í matvöru- verslunun hafa streymt fram. Öllum má vera það ljóst að það er kostnað- arsamt að vera í framboði. Og það kostar peninga að laða fram eftir- spurn. Gísli Marteinn leitaði, eins og fjölmargir aðrir, eftir fjárstuðningi þar sem peninga var að finna. Það var ekki aðeins Hannes Smárason heldur einnig Jón Ásgeir Jóhannesson sem lagði Gísla lið. Baugur reyndist vera aflögufær með milljón krónur handa gagnrýnanda sínum. Sjálfur segist Gísli ekki hafa haft um það hugmynd hverjir styrktu hann. Ekki vissi hann hver borgaði veisluna á Nordica. Hann vissi bara að það var fjölmenn veisla og í gestahópnum leyndist ein- hver sem á endanum borgaði allan brúsann. Og að sjálfsögðu hvarflaði aldrei að honum að Baugur hefði rétt honum milljón. Hann vissi bara að það komu peningar og mikið af þeim inn á heftið. Reykvíkingar verða að taka sér tak í komandi prófkjöri. Nú verður ungi maðurinn með geislabauginn, eða ættum við að segja gíslabauginn, að fá þau áhrif sem honum ber í samræmi við gjörvileika. Kjósendur verða að flykkj- ast í kjörklefana og tryggja að reynslu- mikill, réttsýnn og gáfaður einstakl- ingur komist að stjórn borgarinnar. Það er nú eða aldrei. GíslabauGur Spurningin „Já. Það er kominn tími til að einhver taki hrekkja- lóminn og láti hann finna fyrir því.“ Líkamsræktarfrömuður- inn Egill Einarsson, betur þekktur sem Störe, var illilega hrekktur af sjónvarpsmann- inum Auðuni Blöndal á Facebook á laugardaginn en Auddi er annálaður hrekkjalómur. Egill vinnur nú í því að komast að aðgangsorði Auðuns svo hann geti leikið sama leik. ætlarðu að hefna þín? „Þeir eru búnir að tapa, því miður, þeim eignarhlut sem þeir áttu í þessu fyrirtæki.“ Kári Stefánsson, forstjóri deCODE sem sótti um greiðslustöðvun í Bandaríkjunum. - Rás 2 „Auðunn Blöndal er rasshaus.“ Facebook-skilaboð Egils „Þykka“ Einarssonar um félaga sinn Auðun Blöndal sem gerði honum óleik á sömu síðu. - DV „Þetta kemur okkur verulega á óvart. Við teljum að í þessu felist ekki brot á höfundarrétti.“ Margrét Stefánsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, segir nýja auglýsingu fyrirtækisins ekki brot á höfundarrétti Ávaxtakörfu Kristlaugar M. Sigurjónsdóttur. - Fréttablaðið „Það kemur ekki annað til greina en að spila á EM.“ Logi Geirsson hefur verið mikið meiddur á árinu en er óðum að jafna sig og ætlar með strákunum okkar til Austurríkis í janúar. - Fréttablaðið „Þetta er svo mikið tjón og ekki síður ómetanlegt persónulegt tjón því þeir hafa persónu- legt gildi.“ Fyrirsætan og athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir var rænd á leið til Íslands en hún er á Klakanum í nokkra daga í tengslum við auglýsingagerð. - pressan.is Bankamenn, borgið til baka Leiðari Stjórnendur gamla Landsbankans hafa sannfært sjálfa sig um að þeir eigi skilið að fá hundruð milljóna króna fyrir vel unnin störf í þágu bankans, sem varð gjaldþrota fyrir ári. Nú flykkjast framkvæmdastjórar og forstöðu- menn bankans að fjárvana hræinu til að reyna að sjúga það sem hægt er út úr því. Yngvi Örn Kristinsson, forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans, var með yfir fimm milljónir króna í laun á mánuði með- an hann tók þátt í að stýra bankanum í þrot. Yngvi var nýlega fenginn af ríkisstjórninni til að móta sanngjarnar aðgerðir til að gera heimilunum kleift að borga af lánum, sem hækkuðu vegna vanhæfni ofurlaunamanna í bönkunum. Lausn hans var að lengja í lánum almennings. Á sama tíma vill hann 230 milljónir aukalega fyrir störf sín í þágu Landsbankans. Steinþór Gunnarsson, framkvæmdastjóri verðbréfasviðs, telur sig eiga heimtingu á 490 milljónum króna. Væntanlega lítur hann svo á að hann eigi það skilið, þótt verðbréfasvið- inu hafi ekki gengið sem skyldi. Líklega var það ekki honum að kenna að Lehman-bræð- ur fóru á hausinn. Laun framkvæmdastjóra bankanna voru hvorki í samræmi við framlag þeirra til verð- mætasköpunar né getu þeirra. Efnahags- hrunið er til vitnis um getu þeirra, þannig að ekki hefur hún blásið upp launin. Og verð- mætasköpunin reyndist vera engin, heldur fólst snilldin bankanna í að taka lán, veðsetja allt sem hreyfðist og blása upp eigin hluta- bréf. Launin voru ranglát, enda voru þau byggð á skaðlegum störfum. Þau voru í bein- um tengslum við þann skaða sem banka- mennirnir ollu almennum borgurum. Nú standa þeir frammi fyrir skömm sinni í öllu sínu veldi og heimta meira. Kröfur stjórnenda bankanna krefjast sið- leysis á háu stigi. Þær eru um margt stað- festing á þeim fréttum sem borist hafa af siðlausum athöfnum bankamanna í aðdrag- anda hrunsins. Hvort sem litið er á fjárhags- lega niðurstöðu starfa þeirra eða siðferðisleg áhrif þeirra er augljóst að þeir mega ekki fá meira borgað. En þeir hanga á formsatrið- inu; samningum sem þeir gerðu við helsjúk- an banka sem veðsetti þjóðina og rústaði fjárhag almennings. Niðurstaða þeirra er að þeir eigi að fá meira. Úrskurður annarra hlýtur að vera að þeir séu siðferðislega gjaldþrota. Það væri eðlilegra að rukka stjórnendur bankanna um þau ofurlaun sem þeir ranglega fengu, heldur en að borga þeim meira. Jón trausti reynisson ritstJóri skrifar. Nú standa þeir frammi fyrir skömm sinni í öllu sínu veldi og heimta meira. bókStafLega 46 miðvikudagur 18. nóvember 2009 umræða Sandkorn n Í dag verður ákveðið hvenær prófkjör Samfylkingar verður haldið. Enginn sækir að Degi B. Eggertssyni í fyrsta sætið en margir vilja annað sæti list- ans. Hermt er að þar muni mikill kvenna- blómi berj- ast með kjafti og klóm. Borg- arfulltrú- arnir Björk Vilhelmsdóttir, Oddný Sturlu- dóttir og Sigrún Elsa Smára- dóttir sækja á þessi sömu mið. Stuðningsmenn Oddnýjar telja hana eiga mesta möguleika og eru bjartsýnir. n Hjá Sjálfstæðisflokknum stendur baráttan líka um annað sætið en Hanna Birna Kristjáns- dóttir borgarstjóri er óumdeild. Reiknað er með fleiri en einu stjörnuhrapi þegar kemur að úr- slitum. Staða Gísla Mart- eins Bald- urssonar er snúin og ekki ólíklegt að stuðnings- menn Vil- hjálms Þ. Vil- hjálmssonar geri upp við Gísla hans þátt í falli Vilhjálms á sínum tíma. Þá er bara spurn- ingin hvort Júlíus Vífill Ingvars- son eða Kjartan Magnússon nái silfursætinu. n Einn helsti samkvæmisleikur þjóðarinnar er að velta fyrir sér örlögum Moggans sem glímir við gríðarlegan rekstrarvanda sem hefur snaraukist eftir ráðningu Davíðs Oddssonar sem ritstjóra. Davíð hefur reynt að klóra í bakkann með aðgerðum á borð við þá að ráða Sverri Stormsker sem pistlahöfund. Uppsagnir vildarvina Moggans halda áfram. Sigurður Grétar Guðmunds- son vatnsvirkjameistari sá um „lagnafréttir” í Fasteignablaði Morgunblaðsins í 16 ár. Hann sagði upp áskrift að blaðinu um helgina og lýsti blaðinu sem „sorppolli“ í Moggabloggi sínu. n Kári Stefánsson, forstjóri Ís- lenskrar erfðagreiningar, hefur þurft að axla þá þungu byrði sem hlýst af því að fyrirtæki hans er komið í þrot. Þúsundir Íslend- inga hafa tapað stórfé á kaupum á hlutabréfum í deCODE. Nokkr- ir hafa tapað aleigunni. Margir muna að þegar fyrirtækið var kynnt í fyrstu kom Davíð Odds- son, þáverandi forsætisráðherra, fram með Kára og mærði ósköp- in. Davíð beit líka í fyrsta McDonalds- hamborgar- ann. Það var líklega ekki sniðugt að fá Dabba til að opna ef marka má örlög þessara tveggja fyrirtækja að ógleymdum Seðlabankanum og íslenska þjóðarbúinu. LyngháLS 5, 110 REykjAvík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: Sverrir Arngrímsson ritStjórar: jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: Elísabet Austmann, elisabet@birtingur.is dv á netinu: dv.iS aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050. SmáauglýSingar: 515 5550. umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.