Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2009, Page 54
Fáar konur vekja jafnmikla at-
hygli hér á landi og ofurfyrirsæt-
an og athafnakonan Ásdís Rán,
en fréttir af henni og um hana
vekja jafnan mikið umtal. Blogg-
heimar hafa oft logað vegna
hennar og veraldarvefs-skrifarar
kvartað fyrir hönd hennar um
að nú sé nóg komið, hún verði
einhvern tíma að verða látin í
friði. Í Íslandi í dag á mánudags-
kvöldið opinberaði þó Ásdís að
sannleikurinn væri þveröfug-
ur. Hún sagðist fagna öllum
fréttum af sér og hún sjálf gerði
í því að halda sér í fréttunum.
Hún vill sem mest umtal um sig
því á meðan hún er í fréttunum
hækkað frægðarsól hennar og
um leið getur hún rukkað meira
fyrir þau verkefni sem hún tekur
að sér. Bæði fyrirsætu- og sjón-
varpsstörf.
Söngdívan Leoncie hefur ekki set-
ið auðum höndum að undanförnu.
Ný plata er á leiðinni frá Leoncie og
hún slær hvergi slöku við í nafngift-
um frekar en venjulega. Nýjan plat-
an heitir Wild American Sheriff.
„Það er búið að vera allt vitlaust
að gera hjá mér undanfarið. Það er
svo sannarlega aldrei dauf stund
í mínu lífi á nokkru sviði,“ segir
Leoncie kampakát og viðurkennir
að hún sé farin að hlakka til jólanna.
Hún vonar að allir eigi þau gleðileg.
Mikið hefur verið rætt og rit-
að um Leoncie á veraldarvefn-
um og flúði hún Sandgerði vegna
aðdróttana heimamanna í henn-
ar garð. Svo ill var Leoncie að hún
flúði land og býr nú í Bretlandi. Þar
tók hún einnig þátt í X-Factor eins
og frægt er en komst ekki áfram.
Henni er þó alveg sama um hvað
er skrifað og skrafað um hana. „Ég
er bara að hugsa um mig þessa dag-
ana. Ég lít ekki á þetta rusl sem sagt
er um mig á netinu. Það er stundum
eins og fólk hafi ekkert betra að gera
en tala illa um mig. Eins og það sé
einfaldlega ekkert að gerast í þeirra
lífi,“ segir Leoncie. Plötuna segir
hún handan við hornið en ekki fylg-
ir sögunni hvort diskurinn verður til
sölu hér heima.
tomas@dv.is
ný plata á leiðinni
ásdís vill
umtalið
Aldrei dAuf stund í lífi söngkonunnAr leoncie:
bubbi morthens:
Skemmtitímaritið Séð og Heyrt
lætur sig varða málefni líðandi
stundar. Það er tímarit fólks-
ins í landinu og máttur þess er
mikill. Tímaritið er að sjálf-
sögðu á Facebook þar sem það
er með puttann á púlsinum.
Það er meðlimur í hinum ýmsu
hópum, styður til dæmis að Páll
Óskar fari á Bessastaði 2012 og
vill ekki borga Icesave. Tímarit-
ið styður einnig mótmælin við
lokun Kópaskersskóla ásamt 500
öðrum, meðal annars Sigmundi
Erni Rúnarssyni alþingismanni.
Séð og Heyrt skorar einnig á
dómsmálaráðherra, Rögnu
Árnadóttur, að skera fyrst niður
hjá þjóðkirkjunni áður en ríkið
sker niður hjá lögreglunni.
54 miðvikudagur 18. nóvember 2009 fólkið
leoncie
Gefur út nýja
plötu.
„Þetta er í tilefni útkomu bókarinnar
minnar, Árinnar. Mér fannst við hæfi
að bjóða fólki í Aðaldal og nærsveitum
til að koma í alvöru sveitakaffi,“ segir
Bubbi Morthens, tónlistarkóngur og
veiðimaður af guðs náð.
Bubbi er að gefa út bókina Ána
þar sem hann fjallar um hið víðfræga
Nesjasvæði í Laxá í Aðaldal. Þar mun
hann rekja veiðisögur allt frá því fyrstu
menn hófu að henda stöng með bandi
út í þessa gjöfulu á. Bubbi gerði einn-
ig magnaða mynd um upplifun sína
norðan heiða og sló sú mynd í gegn,
ekki bara hjá veiðimönn-
um heldur einnig hjá hin-
um almenna borgara.
„Ég gerði heimildar-
mynd sem var sýnd á RÚV í
vor sem fékk rosalega góða
dóma. Hún var ekki hefð-
bundin – þarna var mikið af
gömlu efni,“ segir Bubbi en
hann komst svo sannarlega
í feitt þegar myndbrot með
tónlistargoðsögninni Bing
Crosby kom í leitirnar. Þar
sést Crosby semja lag um
Laxá í Aðaldal og fara á kost-
um. Einnig voru í myndinni myndir af
Lee Wulff við veiði en sá er mikils met-
inn meðal fluguveiðimanna og reyndi
alltaf að ná í stærri fisk á minni stöng.
„Þarna er ég að segja sögur Nesja-
svæðisins, allt frá því að Bretarnir
komu 1877 og fram á daginn í dag,“
segir Bubbi og stoltið leynir sér ekki í
rödd kóngsins. Bubbi fékk veiðimann-
inn Einar Fal til að taka ljósmyndirn-
ar í bókina enda vanur
maður þar á ferð. „Hann
á allar myndirnar fyrir
utan þær gömlu sem við
höfum grafið upp,“ seg-
ir Bubbi tilbúinn með
bókina og kaffisamsætið
norðan heiða.
benni@dv.is
„Þarna er ég að segja
sögur Nesjasvæðisins.“
kóngurinn
býður í kaffi
Bubbi Morthens ætlar að bjóða Aðaldæl-
ingum og nærsveitungum í alvöru sveita-
kaffi í félagsheimilinu Ýdölum um helgina
í tilefni af því að bókin hans Áin er að koma
út. Bókin er ómissandi inn á hvert veiði-
heimili en Bubbi fer um víðan völl í miðri
drottningu laxveiðimanna, laxá í Aðaldal,
þar sem hann dvaldist sumarlangt.
Gamla bókin Bubbi
hefur áður gefið út stór-
skemmtilega veiðibók og
lofar að Áin sé ekki síðri.
Bók, mynd og
kaffi Bubbi dvaldi
sumarlangt í Aðaldal
og fór aldrei í Baðlónið
í Mývatnssveit. Auk
bókarinnar gerði hann
sjónvarpsmynd sem
sló í gegn.
Veiðimaður Bubbi
í vöðlum með fisk.
Hann er mikill
veiðimaður.
séð og heyrt
skorar á rögnu