Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Qupperneq 6
6 MIÐVIKUDAGUR 6. janúar 2010 FRÉTTIR
Eignarhaldsfélag í eigu Elínar Jóns-
dóttur, nýráðins forstjóra Banka-
sýslu ríkisins, og eiginmanns henn-
ar, Magnúsar Gottfreðssonar læknis,
skuldaði tæpar 120 milljónir króna í
árslok 2008.
Ástæðan var sú að félagið, sem
heitir Baðmur, hafði tekið lán upp á
54 milljónir króna til að kaupa 10 pró-
senta hlut í eignarhaldsfélaginu JST
Holding ehf. 6 milljónir af kaupverði
hlutabréfanna voru greiddar með eig-
infjárframlagi. Lánið hafði hins veg-
ar hækkað um meira en 60 milljónir
króna vegna gengismunar sem var til-
kominn út af hruni íslensku krónunn-
ar. Þetta kemur fram í ársreikningi
Baðms fyrir árið 2008.
JST Holding er í eigu Baðms og
Jóns Scheving Thorsteinsson, sem á
90 prósent í því, en félagið á dóttur-
félag sem aftur á verðbréfafyrirtæk-
ið Arev. Elín var framkvæmdastjóri
Arev verðbréfa frá 2005 til 2009. Því
má segja að Baðmur hafi í reynd ver-
ið að fjárfesta í Arev með kaupunum á
hlutnum í JST Holding.
Stórtækt í smásölu
Arev hefur fjárfest í ýmsum verkefn-
um hér á landi og erlendis á liðnum
árum, aðallega á sviði smásölu og
verið nokkuð stórtækt. Arev átti með-
al annars í Sævari Karli, Emmessís og
Yggdrasil og hluti í breska fjárfestinga-
sjóðnum KCAJ, sem meðal annars
fjárfesti í verslunum eins og Cruise,
Duchamp og leðurfyrirtækinu Aspin-
al of London og útivistarversluninni
Mountain Warehouse. Fjárfestinga-
sjóðurinn átti að verða einhvers konar
míní-útgáfa af Baugi en Jón Scheving
starfaði hjá Baugi á árum áður.
Líkt og DV greindi frá í síðasta
mánuði keypti dótturfélag eignar-
haldsfélagsins Milestone KCAJ hins
vegar af Arev.
Jón keypti Baðm
Í ársreikningi Baðms kemur fram að
Jón Scheving hafi keypt allt hlutafé í
félaginu af þeim Elínu og Magnúsi í
mars árið 2009. Hlutafé félagsins er
500 þúsund krónur og keypti Jón fé-
lagið fyrir þá upphæð.
Kaup Jóns á Baðmi tengjast starfs-
lokum Elínar hjá Arev og samdi hún
um kaup- og sölurétt í verðbréfafyrir-
tækinu þegar hún tók við stöðu fram-
kvæmdastjóra þess.
Í ársreikningnum kemur fram að
tap Baðms á árinu 2008 hafi numið
rúmum 63 milljónum króna og má
rekja það til gengismunar á skulda-
bréfaláni félagsins við gamla Glitni
sem stendur í rúmlega 117 millj-
ónum króna samkvæmt ársreikn-
ingnum. Heildarskuldir félagsins
nema tæpum 125 milljónum króna
samkvæmt ársreikningnum og eiga
rúmar 117 milljónir af þeim að
greiðast á næsta ári, 2011.
Samkvæmt ársreikningnum bíð-
ur það því væntanlega nýs eiganda
Baðms að greiða skuldina sem
fyrri eigendur félagsins stofnuðu
til vegna fjárfestinga sinna í Arev.
Ef Jón greiðir ekki þessar skuldir
Baðms þarf skilanefnd Glitnis hins
vegar væntanlega að afskrifa kröf-
una að einhverju leyti. Endurheimt-
ur Glitnis ráðast þó væntanlega af
stöðu Arev þegar kemur að skulda-
dögum.
Elín opnar sig
DV leitaði eftir svörum hjá Elínu
Jónsdóttur um eðli viðskipta Baðms.
Í svari hennar kemur fram að henni
hafi verið boðið að kaupa hlutabréf
í eignarhaldsfélagi Jóns Scheving
haustið 2007. Hún segist hafa feng-
ið til þess um 54 milljóna króna lán
í erlendri mynt hjá Glitni banka og
hafa sjálf lagt fram sex milljónir
til kaupanna. Samtals greiddi hún
því 60 milljónir króna fyrir bréf-
in. „Bankinn tók veð í hlutabréfum
sem keypt voru. Lánið var til þriggja
ára, með árlega vaxtagjalddaga og
uppgreiðslu að þremur árum liðn-
um,“ segir Elín um lánið frá Glitni
en hún segist hafa tapað eiginfjár-
framlaginu sem hún lagði til hluta-
bréfakaupanna. Skuldin við bank-
ann hækkaði hins vegar gríðarlega
vegna gengismunar, líkt og áður
segir.
Þegar Elín lét af störfum hjá Arev
í mars 2009 segist hún hafa selt
Baðm til Jóns Scheving fyrir 500
þúsund. „Þegar ég hætti störfum
fyrir Arev var um miðjan marsmán-
uð 2009 samið um sölu á félaginu og
þar með eignarhlutnum aftur til eig-
andans og er félagið mér því óvið-
komandi frá þeim tíma,“ segir hún.
Þrátt fyrir þetta verður ekki litið
fram hjá því að Elín tók lán til hluta-
bréfakaupa og hefur skuldin vegna
þessa láns hækkað gríðarlega
vegna hruns íslensku krónunnar.
Viðskiptin sem Elín lýsir eru
sambærileg við fleiri frásagnir
stjórnenda íslenskra fjármála- og
verðbréfafyrirtækja á liðnum árum.
Þessi viðskipti gengu út á það að
stjórnendurnir fengu fyrirgreiðslu
frá fyrirtækinu sjálfu eða öðru sem
gerði þeim kleift að kaupa hluta-
bréf í þeim. Í flestum tilfellum voru
stjórnendurnir með hlutabréfin og
lánin inni í eignarhaldsfélögum.
Í starfssamningum stjórnend-
anna var yfirleitt kveðið á um að
þeir myndu selja hlutabréfin í fyr-
irtækjunum ef þeir létu af störf-
um. Stjórnendurnir gátu því aðeins
grætt á viðskiptunum með hluta-
bréfin, tapið átti hins vegar aldrei
að falla á þá persónulega. Þetta
var raunin með lánið til Baðms en
óvíst er hvað verður um skuldir fé-
lagsins. Þó er víst að Elín mun ekki
þurfa að standa skil á skuldinni.
Elín segir þó að henni þyki ólík-
legt, miðað við eignastöðu Arev, að
gamli Glitnir muni þurfa að afskrifa
skuldina.
Elín Jónsdóttir, nýráðinn forstjóri banka-
sýslu ríkisins, seldi í fyrra eignarhalds-
félag sem skuldar 125 milljónir króna.
Stofnað hafði verið til skuldarinnar
vegna kaupa á hlutabréfum í verð-
bréfafyrirtækinu Arev sem hún
stýrði. Aðaleigandi Arev keypti félag-
ið af Elínu og er skuldin á gjalddaga
á næsta ári. Elín segir að henni hafi
verið boðið að kaupa bréfin þegar hún
varð framkvæmdastjóri Arev 2007.
FÉKK MILLJÓNIR Í
KÚLULÁN HJÁ GLITNI
Samkvæmt ársreikn-
ingnum bíður það því
væntanlega nýs eig-
anda Baðms að greiða
skuldina sem fyrri eig-
endur félagsins stofn-
uðu til vegna fjárfest-
inga sinna í Arev.
„Haustið 2005 hóf ég störf sem framkvæmdastjóri Arev hf. sem síðar varð Arev
verðbréfafyrirtæki hf. Meirihlutaeigandi félagsins [Jón Scheving Thorsteinsson,
innsk. blaðamanns] átti einnig Arev Ltd í Bretlandi. Starfsmenn þess félags voru
meðeigendur í Arev félögunum. Í samræmi við þetta var mér sem framkvæmda-
stjóra íslenska félagsins boðið haustið 2007 að kaupa 10% hlut í eignarhaldsfélagi
meirihlutaeigandans sem hélt utan um hluti hans í bæði íslenska og breska
félaginu. Verðmat var framkvæmt og samið um kaupverð. Félag í minni eigu fékk
um 54 milljóna króna lán til kaupanna í erlendri mynt hjá Glitni banka og sjálf
greiddi ég 6 milljónir króna. Bankinn tók veð í hlutabréfum sem keypt voru. Lánið
var til þriggja ára, með árlega vaxtagjalddaga og uppgreiðslu að þremur árum
liðnum. Markaðsvextir sem samið var um voru 2,65% á LIBOR.
Í samningi mínum um kaupin á hlutum af eiganda félagsins sem ég vann fyrir var
kveðið á um gagnkvæman kaup- og sölurétt á hlutunum í félaginu ef ég hætti
störfum. Þegar ég hætti störfum fyrir Arev var um miðjan marsmánuð 2009 samið
um sölu á félaginu og þar með eignarhlutnum aftur til eigandans og er félagið
mér því óviðkomandi frá þeim tíma. Vegna óvissu um verðmat á eignum félagsins
á þeim tíma var kaupverðið ákveðið kr. 500.000. Þess ber að lokum að geta að
Arev félögin eru í einkaeigu og hafa aldrei verið almenningshlutafélög.“
Yfirlýsing Elínar Jónsdóttur:
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
125 milljóna skuld í félaginu
Félag í eigu Elínar Jónsdóttur,
nýráðins forstjóra Bankasýslu
ríkisins, og eiginmanns hennar
skuldaði tæpar 125 milljónir
króna í árslok 2008. Í mars á
síðasta ári var félagið selt en
félagið á að greiða 117 milljónir
til lánardrottna á næsta ári.
Nauðgunarkæra
til saksóknara
Rannsóknardeild lögreglunnar
hefur lokið rannsókn á meintri
nauðgun íþróttamanns gegn
ungri stúlku. Málið hefur verið
sent til saksóknara sem í kjöl-
farið tekur afstöðu til þess hvort
ákæra verði gefin út.
Meint nauðgun á að hafa átt
sér stað eftir karlakvöld íslensks
íþróttafélags fyrir tveimur
mánuðum en stúlkan tilkynnti
atburðinn til lögreglu snemma
laugardagsmorguns. Henni var í
kjölfarið fylgt á Neyðarmóttöku
Landspítalans vegna nauðgun-
ar þar sem hún hlaut aðhlynn-
ingu og áverkavottorð. Stúlkan
hefur fengið skipaðan réttar-
gæslumann frá móttökunni.
Á erfitt
uppdráttar
Lögreglunni barst formleg
kæra nokkrum vikum eftir
hinn meinta atburð en hinn
kærði hefur leikið fyrir Íslands
hönd í íþrótt sinni en hið
meinta fórnarlamb er á átjánda
aldursári. Stúlkan hefur átt erf-
itt uppdráttar og sótti lítið sem
ekkert skóla síðustu vikur ann-
arinnar sem leið. Atvikið á að
hafa átt sér stað í heimahúsi að
loknu karlakvöldi íþróttafélags-
ins sem hinn kærði leikur fyrir.
Lögregla hefur nú lokið
rannsókn málsins og fram-
haldið þá á herðum saksókn-
ara sem ákveður hvort ákæra
verði gefin út eða ekki.
Kristniboðar
safna frímerkjum
Samband íslenskra kristni-
boðsfélaga og Pósturinn eru
farin að safna notuðum frí-
merkjum og skora á fyrir-
tæki og einstaklinga að safna
heilum, notuðum frímerkj-
um og koma þeim í safnkassa
á pósthúsum eða skrifstofu
sambandsins.
Söfnunin er hluti af fjár-
öflum Sambands íslenskra
kristniboðsfélaga og er ætl-
unin að nota allan ágóða í
þróunarstarf á sviði mennt-
unar barna, unglinga og full-
orðinna í Eþíópíu og Keníu. Á
síðasta ári safnaði samband-
ið tveimur milljónum króna
með frímerkjasöfnun.
Braut gegn
ungum stúlkum
24 ára karlmaður er í gæsluvarð-
haldi eftir að hafa átt í „vafasöm-
um“ samskiptum við þrjár ung-
ar stúlkur á samskiptasíðunni
Face book. Að því er kemur fram í
Fréttablaðinu í gær eru stúlkurnar
sem um ræðir þrettán og fjórtán
ára gamlar. Í fréttum Ríkisútvarps-
ins sagði svo að maðurinn hefði
haft samræði við allar stúlkurnar.
Fréttablaðið hefur upplýsingar
um það að maðurinn hafi stundað
þessa iðju sína um hríð en í byrj-
un desember hafi lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu borist kæra
frá foreldrum vegna samskipta
mannsins við dóttur þeirra. Mað-
urinn var úrskurðaður í gæslu-
varðhald milli jóla og nýárs.