Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Page 9
„Ég veit það ekki. Þetta er mjög snúið, ég var í
rauninni ekki hlynntur því að hann myndi gera
þetta, en svo er ágætt að þetta sé bara í höndum
okkar, þá endum við á því að gera þetta og ekki
verður hægt að benda á aðra.“
GUNNAR PÉTUR HAUKSSON, 24 ára
„Ég er alveg undrandi. Hann taldi að hann væri að
sameina þjóðina, en ég myndi halda að hann væri
að sundra henni. Ég hef ekki sett mig mikið inn í
þessi mál, en ég hef það á tilfinningunni.“
MARGRÉT GÍSLADÓTTIR, 74 ára.
„Ég er ekki ánægð með það. Ég held að hann setji
allt í uppnám með þessu. Ég held að það sé
vafasamt að setja þetta í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ríkisstjórnin hlýtur að vera í hættu.“
HREFNA BJARNADÓTTIR, 71 árs.
„Ég er ekki ánægður með þessa ákvörðun. Ég hefði
viljað að hann skrifaði undir. Ég hélt að hann
myndi skrifa undir. Það er ekki gott að þetta fari í
þjóðaratkvæðagreiðslu.“
VIGFÚS INGIMUNDARSON, 81 árs.
HVAÐ FINNST ÞÉR UM ÞÁ ÁKVÖRÐUN FORSETANS AÐ SYNJA ICESAVE-LÖGUNUM?
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
6. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 9
ákvörðun forseta Íslands um Ice-
asve-lögin frá 30. desember síðast-
liðnum.
Sé miðað við túlkun manna á
stjórnarskránni gæti þessi atkvæða-
greiðsla orðið seint í febrúar. Á þeim
tíma verða liðnar fáeinar vikur frá
birtingu niðurstöðu rannsóknar-
nefndar Alþingis um aðdraganda
og orsakir bankahrunsins. Nær ör-
uggt má telja að umræða um niður-
stöður skýrslunnar geta haft áhrif á
þjóðaratkvæðagreiðsluna sjálfa.
Hugsanlegt er að þing verði kall-
að saman fyrr en ætlað var vegna
ástandsins.
Þingrof og kosningar
Í öðru lagi getur ríkisstjórnin sagt af
sér. Þá yrði að leita að nýjum meiri-
hluta á þingi, setja saman þjóðstjórn
eða aðra starfhæfa stjórn. Jafnvel er
mögulegt að forseti Íslands taki ekki
lausnarbeiðni gilda og óski eftir
að stjórnin sitji fram yfir þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Framsóknarflokkurinn hefur lýst
áhuga á stjórnaraðild en Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur ekki sýnt því sér-
stakan áhuga á næstunni. – Ekki
þykir líklegt að þessi leið verði farin.
Í þriðja lagi gæti Jóhanna Sig-
urðardóttir forsætisráðherra geng-
ið á fund forseta Íslands og lagt
fram beiðni um þingrof. Þingrofs-
valdið flyst þá í hendur forseta Ís-
lands.
Í 24. grein stjórnarskrárinnar er
þingrofsvald forseta ótvírætt: „For-
seti lýðveldisins getur rofið Alþingi,
og skal þá stofnað til nýrra kosn-
inga, áður en 45 dagar eru liðnir frá
því er gert var kunnugt um þingrof-
ið, enda komi Alþingi saman eigi
síðar en tíu vikum eftir, að það var
rofið. Alþingismenn skulu halda
umboði sínu til kjördags.“
Leggi Jóhanna fram beiðni um
þingrof fljótlega yrðu þingkosning-
ar að líkindum haldnar um mán-
aðamót febrúar og mars. Þess má
geta að engin fordæmi eru um að
þingrofsbeiðni hafi verið synjað
í sögu lýðveldisins. Ljóst þykir að
Sjálfstæðisflokknum yrði sérstak-
lega erfitt að ganga til kosninga-
baráttu svo skömmu eftir að niður-
stöður rannsóknarnefndar Alþingis
á bankahruninu verða birtar, enda
ábyrgð flokksins á bankahruninu
talin meiri en annarra stjórnmála-
flokka.
Steingrímur móður
Að sama skapi gætu kosningar á
þessum tímapunkti verið fýsilegar
fyrir VG, sem litla sem enga ábyrgð
bar á bankahruninu. Heimildir DV
eru fyrir því að Steingrími J. Sigfús-
syni, formanni VG, þyki súrt í broti
að þurfa að leggja í þriðja leiðang-
urinn með Icesave-málið eftir það
sem á undan er gengið. Hann glím-
ir auk þess við að slökkva elda í eig-
in flokki. Vandi Samfylkingarinnar
er hins vegar áþreifanlegri varð-
andi þingkosningar svo skömmu
eftir birtingu skýrslunnar.
Innan stjórnarflokkanna hafa
þessir kostir ekki verið rædd-
ir að neinu marki ennþá enda
eiga stjórnvöld fullt í fangi með að
bregðast við ágjöf vegna ákvörðun-
ar Ólafs Ragnars Grímssonar for-
seta um að vísa Icesave-lögunum
í þjóðaratkvæðagreiðslu. Lánshæf-
ismat íslenska ríkisins hefur þegar
verið lækkað og hugsanlegt er að
endurskoðun áætlunar stjórnvalda
og AGS geti verið í uppnámi sem
og lánafyrirgreiðsla sjóðsins og ná-
grannaríkja. Þá hefur ríkisstjórn-
in einnig bent á hættuna samfara
endurfjármögnun sveitarfélaga,
ríkissjóðs og orkufyrirtækja á næst-
unni í þessu sambandi. Þá er engan
veginn ljóst ennþá hver afdrif Ice-
save-málsins verða.
Ljóst er að stjórnvöld standa
í ströngu næstu daga og vikur og
þykir mörgum stjórnarliðum lítt
fýsilegt að ganga til kosninga við
þessar aðstæður. Verði sú raunin
engu að síður má búast við að þær
verði eftir sex til átta vikur.
Þungbúnir oddvitar „Ófyrirsjáan-
legar, víðtækar og skaðlegar afleið-
ingar fyrir íslenskt samfélag,“ sögðu
Jóhanna Sigurðardóttir og Steingrímur
J. Sigfússon um ákvörðun forsetans.
MYND SIGTRYGGUR ARI
„Helgreipar vinaþjóða“ Ögmundur Jónasson, VG, kippir sér ekki upp við það
þótt Hollendingar og Bretar andmæli.