Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Page 29
Á MIÐVIKUDEGI
HVAÐ HEITIR LAGIÐ?
„Ég fékk mér blund þar sem
ræturnar flækjast, kreisti
rotna ferskju í lófa mínum
og dreymdi um þig, kona.“
RAGNHEIÐUR
GRÖNDAL Í
FRÍKIRKJUNNI
Miðasala er hafin á útgáfutónleika
söngkonunnar Ragnheiðar Grön-
dal í Fríkirkjunni í Reykjavík 21.
janúar næstkomandi. Tónleikarnir
eru haldnir í tilefni útgáfu plötunn-
ar Tregagás. Efnisskrá tónleikanna
samanstendur af íslenskum þjóð-
lögum af tveimur plötum Ragnheið-
ar, Tregagás og Þjóðlög sem kom
út 2006 og hlaut frábærar viðtök-
ur. Með Ragnheiði leika þeir Guð-
mundur Pétursson á gítar, Haukur
Gröndal á klarínett og Matthías M.D.
Hemstock og Birgir Baldursson á
slagverk. Miðasala á midi.is, miða-
verð 2.500 krónur.
GRASRÓTAR-
TÓNLEIKAR Á
SÓDÓMU
Alefli, Green Lights og Ingv-
ar spila á tónleikum á Sódómu
Reykjavík í kvöld, miðvikudag.
Ekkert aldurstakmark er á tón-
leikana og því engar vínveiting-
ar til sölu á staðnum. Þetta er því
tilvalið tækifæri fyrir alla til að
kynna sér hvað reykvíska grasrót-
in hefur upp á að bjóða en allir
tónlistarmennirnir eru mjög ung-
ir að árum. Tónleikarnir hefjast
klukkan 19.30, aðgangseyrir 500
krónur.
ÞRETTÁNDAHÁTÍÐ-
IR VÍÐA
Þrettándahátíðir verða haldnar víða
um land í kvöld, miðvikudag. Ein
verður til dæmis haldin í Vesturbæ
Reykjavíkur með miklum myndar-
brag. Hátíðin hefst á KR-vellinum og
lýkur með hátíðarflugeldasýningu á
Ægisíðu. Barnakór Neskirkju syng-
ur og hið margrómaða Melaband
leikur af fingrum fram í skrúðgöngu.
Auk þeirra munu hinir landskunnu
Gunni og Felix sjá um að skemmta
viðstöddum. Hátíðin hefst klukkan
17.15.
Í Hafnarfirði fer fram þrettánda-
hátíð að Ásvöllum. Álfar, púkar og
jólasveinar verða á svæðinu og taka
þátt í söng og gleði. Dagskráin hefst
klukkan 18.30 og lýkur með flugelda-
sýningu klukkustund síðar.
Þá má nefna þrettándagleði Þórs
á Akureyri sem hefst klukkan 19.00
við Réttarhvamm.
Nýtt ár byrjar með sannkölluðum
hátíðarbrag á Vínartónleikum Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands sem hefj-
ast í dag og standa fram á laugar-
dag. „Allt er gert til þess að gera
þessa árvissu áramótatónleika sem
glæsilegasta og í ár koma tveir af
okkar bestu einsöngvurum fram
með hjómsveitinni, þau Þóra Ein-
arsdóttir og Finnur Bjarnason,“
segir Margrét Ragnarsdóttir, mark-
aðs- og kynningarstjóri Sinfóníu-
hljómsveitarinnar.
Hljómsveitin hélt fyrstu Vín-
artónleika sína í maí 1972 og hef-
ur nær árlega frá árinu 1981 haldið
slíka tónleika fljótlega upp úr ára-
mótum. Þeir hafa um árabil slegið
öllum öðrum tónleikum sveitarinn-
ar við í vinsældum. Í ár verða haldn-
ir fernir Vínartónleikar í Háskóla-
bíói. Efnisskráin er ólík á hverju ári
en uppbyggingin er ávallt sú sama. Í
þetta sinn er þar að finna fjölmarga
gullmola, meðal annars Dónárvals-
inn sem flestir þekkja.
Breski hljómsveitarstjórinn
Christopher Warren-Green held-
ur um sprotann en hann stjórn-
aði einnig Vínartónleikunum 2007.
Hann var um árabil konsertmeist-
ari hljómsveitarinnar Fílharmóníu í
Lundúnum og hefur stjórnað fjölda
tónlistarviðburða á vegum bresku
konungsfjölskyldunnar.
Finnur Bjarnason hefur lengi
verið meðal okkar fremstu tenór-
söngvara og hefur meðal ann-
ars verið fastráðinn við Komische
Oper í Berlín, sungið á Glynde-
bourne-hátíðinni í Englandi og
hlaut mikið lof fyrir söng sinn í
Brottnáminu úr kvennabúrinu í Ís-
lensku óperunni.
Þóra Einarsdóttir stundaði
söngnám við Söngskólann í Reykja-
vík hjá Ólöfu Kolbrúnu Harðar-
dóttur og við Guildhall School of
Music and Drama. Hún söng hlut-
verk Önnu Frank í óperunni Dag-
bók Önnu Frank eftir Grigori Frid
í Íslensku óperunni á Listahátíð
2008 og í óperu Sunleif Rasmus-
sen Í óðsmannsgarði á Listahátíð í
fyrra. Fram undan eru meðal ann-
ars gestasamningar við óperuhús í
Genf, London og í Austurríki.
Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands standa frá 6. til 9. janúar:
Vínartónleikar hefjast
Sumar bækur eru einfaldlega betri
en aðrar. Það á fyllilega við um metn-
aðarfulla bók breska sagnfræðings-
ins Simon Sebag Montefiores um
Stalín unga þar sem hann dregur upp
mynd af piltinum og unga mannin-
um sem síðar varð að einræðisherr-
anum sem bar ábyrgð á dauða og
misþyrmingum fleira fólks en flestir
aðrir í mannkynssögunni.
Stalín ungi er hreint mögnuð bók,
ein af þeim sem lesandinn dregst
inn í og losnar ekki þaðan svo auð-
veldlega. Sebag Montefiore tekst
frábærlega upp við að lýsa Stalín,
næma skáldinu og miskunnarlausa
uppreisnarmanninum, stjórnmála-
manninum og bankaræningjanum,
kvennabósanum og barnaníðingn-
um. Við fyllumst bæði óhugnaði og
andúð á Stalín og eins finnum við til
með honum á köflum, skynjum hann
ef til vill sem örlítið meiri manneskju
en við höfum áður gert.
Hérna fáum við að lesa um upp-
eldi Stalíns, samskiptin við drykk-
felldan föðurinn og sterka en sér-
kennilega móðurina, við kynnumst
glæpamannsferli hans í þágu bylt-
ingarinnar og miskunnarleysi hans
og ofsóknarbrjálæði mannsins sem
er eftirsóttur af leynilögreglu keis-
araveldisins. Sögurnar af útlegðum
hans og flótta eru fróðlegar aflestr-
ar og ekki síst eru samskipti bylting-
armanna, tortryggni þeirra og vin-
skapur, áhugaverð. Við skiljum líka
kannski aðeins betur hvernig þessi
maður komst til valda og hvers vegna
hann starfaði með svo viðurstyggi-
legum og miskunnarlausum hætti.
Þá er ekki undan því komist að velta
fyrir sér ástarsambandi hans við
þrettán ára stúlku sem hann barnaði
tvisvar í síðustu útlegðinni og væri
óneitanlega skilgreint sem barnaníð
í dag.
Höfundurinn
hefur líka gert vel í
því að bregða ljósi á
bæði lífið í Georgíu
á átakaárunum upp
úr 1900 og eins hin-
ar miklu deilur sem
ríktu alla tíð milli
mensévika og bol-
sévika þó þeir væru
í sama flokki. Þá eru
ekki síður áhugaverð-
ar og oft kostuleg-
ar lýsingarnar á því
hvernig leyniþjón-
usta stjórnvalda kom
sendimönnum sínum inn í forystu-
sveit uppreisnarmanna og keypti
ýmsa aðra til fylgis við sig. Þetta var
nokkuð sem tryggði þeim að ein-
hverju leyti upplýsingar um það
sem var að gerast en hafði sennilega
meiri og langvinnari áhrif í þá veru
að tortryggnu uppreisnarmennirnir
urðu margir hverjir með tímanum að
ofsóknarbrjáluðum valdamönnum
sem skirrðust ekki við að brugga hver
öðrum launráð.
Elín Guðmunds-
dóttir þýddi bókina og
gerir það með ágæt-
um þó að ég hefði vilj-
að að hún breytti míl-
um í kílómetra. Það er
athyglisvert að fylgjast
með verkefnum Elínar
að undanförnu því auk
Stalíns unga komu út
á síðasta ári bækurn-
ar „Rússland Pútíns“
eftir rússnesku blaða-
konuna Önnu Polit-
kovskaju og „Orrustan
um Spán“ eftir Anthony Beevor sem
báðar voru gefnar út í þýðingu Elínar.
Allt áhugaverðar bækur.
Sebag Montefiore hefur unnið
til ýmissa verðlauna fyrir bók sína
og verður ekki annað séð en að það
sé fyllilega verðskuldað. Nú er bara
vonandi að Skrudda taki sig til og
gefi út fyrri bók höfundar, um Stalín
á valdaárum hans, Stalín: Hirð rauða
keisarans. Brynjólfur Þór Guðmundsson
UPPREISN-
ARMAÐUR
OG BARNA-
NÍÐINGUR
FÓKUS 6. janúar 2010 MIÐVIKUDAGUR 31
Svar: Peaches með The Presidents of the United States of America.
Þóra Einarsdóttir Syngur á Vínartón-
leikum Sinfóníunnar í ár.
STALÍN UNGI
Höfundur: Simon Sebag-Montefiore
Þýðandi: Elín Guðmundsdóttir
Útgefandi: Skrudda
BÆKUR
Sebag Montefiore hefur
unnið til ýmissa verðlauna
fyrir bók sína og verður
ekki annað séð en að það
sé fyllilega verðskuldað.