Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2010, Qupperneq 30
Ragnhildur Steinunn átti
skemmtilegt innskot í Kastljósi á
mánudag þar sem hún heim-
sótti þúsundþjalasmið nokkurn í
Vesturbænum í Reykjavík. Mann
sem hafði breytt lítilli 55 fermetra
íbúð sinni í eins konar ævintýra-
hús með leynihillum og -hólfum
úti um allt. Eins og glöggir áhorf-
endur tóku eftir þegar komið var
upp á háaloft var fegurðardrottn-
ingin fyrrverandi og dagskrár-
gerðarkonan með gat á öðrum
sokknum. Það er spurning hvort
kreppan hafi þessi áhrif á sokka-
mál Ragnhildar eða hvort hún
hafi rekið tána í nagla í húsi þús-
undþjalasmiðsins skömmu áður.
Hvað sem veldur hefði Ragnhild-
ur kannski átt að fá töframann-
inn til þess að nota saumavélina
í veggnum til þess að stoppa í
sokkinn.
VONT EN
ÞAÐ VENST
„Maðurinn minn fékk vinnu sem flugum-
ferðarstjóri og fer út í mars til að öðlast
réttindin og svo flytjum við, ég og börn-
in, í haust,“ segir förðunarfræðingurinn
Elín Reynisdóttir sem ætlar að flytja með
fjölskyldu sína til Abu Dhabi í Sameinuðu
arabísku furstadæmunum. Elínu líst vel á
flutningana og segir Abu Dhabi hina nýju
Dubai. „Þessi borg hefur allt, Formúluna,
Miss World-keppendur koma þangað og
einnig margar skærustu stjörnurnar,“ seg-
ir hún og bætir við að kreppan hafi ekki
enn stungið sér niður í Abu Dhabi, líkt og
í Dubai. „Mér finnst þetta ofsalega óraun-
verulegt, enda langt í að við flytjum en
það verður gott að yfirgefa allt kreppu-
talið hérna,“ segir hún en Elín ætlar að
reyna finna sér góða vinnu í nýja heima-
landinu. „Börnin fara í góðan einkaskóla
en skólarnir þarna eru víst fyrsta flokks.
Ef ég finn mér ekki vinnu þá eyði ég bara
dögunum í stóru mollunum og fer jafnvel
á skíði í stærstu innanhússskíðabrekku í
heimi eða hangi bara á sundlaugarbakk-
anum og nýt lífsins,“ segir hún hlæjandi.
Elín hefur áður búið í útlöndum og er
spennt að upplifa ný ævintýri. „Við eigum
eftir að koma reglulega heim, bæði á jól-
unum og yfir sumartímann, því það er víst
ólíft þarna sökum hita yfir sumarið. Þetta
verður bara spennandi og um að gera að
prófa eitthvað nýtt. Maðurinn minn er
ekkert að verða yngri svo ef hann gerir
þetta ekki núna gerir hann þetta aldrei og
þetta er bara ævintýri fyrir alla fjölskyld-
una.“ indiana@dv.is
KREPPA Í
KASTLJÓSINU
HEIÐA BJÖRK HEIÐARSDÓTTIR:
Söng- og leikkonan Ólöf Jara
Skag fjörð er mikið efni, eins
og hún hefur sýnt og sannað í
Verzló söngleikjum síðustu ár og
gerði það svo endanlega lýðum
ljóst í söngleiknum Grease sem
var settur upp í Loftkastal anum
síðastliðið sumar. Ólöf Jara lék
þar Sandy með miklum bravúr.
Orðið á götunni segir að hún hafi
nú fundið sinn „Danny“ í einka-
lífinu og ku hann afar efnilegur
tónlistarmaður. Pilturinn heitir
Þórður Gunnar Þorvaldsson og
hefur meðal annars á ferilskránni
tónlistarstjórn í söngleikjum sem
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
hefur sett upp síðustu misseri
auk þess sem hann stýrði upptök-
um á nýjustu plötu Agent Fresco.
BÚIN AÐ
FINNA SINN
„DANNY“
30 MIÐVIKUDAGUR 6. janúar 2010 FÓLKIÐ
STJÖRNUFÖRÐUNARFRÆÐINGURINN ELÍN REYNISDÓTTIR HRÆÐIST EKKI NÝJA HLUTI:
FLYTUR TIL ABU DHABI
Elín Reynis Elín á eflaust eftir að ná langt sem förðunarfræð-
ingur í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, enda vön að
farða þá frægu og ríku. MYND/NÍNA BJÖRK
„Mér fannst þetta ekki fyndið fyrst,“
segir Heiða Björk Heiðarsdóttir,
einn af mótmælendum Íslands, en
hún vinnur á skrifstofu við hliðina á
Bjarna Ármannssyni, fjárfesti og fyrr-
verandi bankastjóra Glitnis.
Heiða Björk Heiðarsdóttir var í
framvarðasveit búsáhaldabyltingar-
innar. Hún missti vinnu sína og hef-
ur síðan verið vakin og sofin í því að
leggja sitt af mörkum við að bæta
ástandið í þjóðfélaginu. Þegar bús-
áhaldabyltingin svokallaða byrjaði
20. janúar var Heiða í fremstu víg-
línu. Þann dag kom Alþingi saman
að nýju eftir jólafrí og var stór hóp-
ur fólks kominn niður á Austurvöll til
að láta óánægju sína með stjórnvöld
í ljós. Heiða mætti þangað um eitt-
leytið um daginn og fór heim upp úr
klukkan tvö um nóttina, eða rúmum
þrettán klukkustundum síðar.
„Við erum náttúrlega frekar ólík,
við Bjarni. Þetta var frekar óþægilegt
og fór í taugarnar á mér – svona til að
byrja með. En svo venst þetta eins og
hvert annað hundsbit.“
Heiða segist hafa hreinsað and-
rúmsloftið á milli þeirra Bjarna með
hressilegum samræðum. „Ég ræddi
við hann og hreinsaði svolítið and-
rúmsloftið með því. Hann vissi samt
ekkert hver ég var en hann veit það
núna.“
Heiða kemur að myndinni Maybe
I should have sem frumsýnd verð-
ur í Háskólabíói 20. janúar. Mynd-
in er heimildarmynd um hrunið í
leikstjórn Gunnars Sigurðssonar.
„Ég kynntist þessu fólki, Gunna leik-
stjóra, Lilju Skaptadóttur og Herberti
Sveinbjörns, í gegnum öll þau ósköp
sem dunið hafa á okkur. Myndin
er alveg að verða klár en það verð-
ur bara takmarkaður sætafjöldi
20. janúar. Myndin fer í almenna
sýningu 12.
febrúar. Ef
fólk vill kom-
ast á frum-
sýninguna
er hægt
að nálgast
miða á síð-
unni okkar
argoutfilm.-
com.
benni@dv.is
Heiða Björk Heiðarsdóttir, einn af mótmælendum Íslands,
vinnur á skrifstofu við hliðina á Bjarna Ármannssyni, fjár-
festi og fyrrverandi bankastjóra Glitnis. Hún segir sam-
búðina hafa verið erfiða til að byrja með en venjast vel.
Flottur fjárfestir Bjarni
Ármannsson er ekki efstur á
óskalistanum hjá Heiðu. En
sambúð þeirra venst vel.
„Þetta var frekar
óþægilegt og þetta fór
í taugarnar á mér.“
Magnaður mótmælandi Heiða vakti athygli í bús-
áhaldabyltingunni. Kynntist þar leikstjóranum Gunnari
Sigurðssyni og kemur að myndinni Maybe I should have.
Hópurinn er kominn með vefsíðu, argoutfilm.com.