Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2010, Side 14
FÖT Í KÍLÓAVÍS
„Búðin er troðfull af fötum og
allt á markaðnum selt á kíló-
verði,“ segir Krista Hall, starfs-
maður Spútnik á Laugavegi, en
í vikunni hófst hinn eftirsótti
kílómarkaður verslunarinnar.
„Þú bara velur það sem þér lýst
vel á og svo er það bara vigtað,“
heldur Krista áfram en kíló-
verðið á fötum á markaðnum
er 4.900 krónur en eitt kíló af
fötum getur verið ansi mikið.
Það eru þó nokkrar flíkur ef vel
er valið en Spútnik hefur verið
leiðandi í sölu á notuðum föt-
um um árabil. Krista segir að
ásóknin sé mikil á markaðinn
en bætir við að daglega sé fyllt á
búðina með fötum.
n Lastið að þessu sinni
fær Saffran. Þrátt fyrir
góðan mat var
viðskiptavinur ekki
ánægður með
verðlagningu á
ferskum chilli-pipar.
„Ferskur chilli kostar 350 krónur
ef þú vilt bæta honum við
matinn. Það er bara rugl,“ sagði
hann ósáttur.
n Viðskiptavinur Vegamóta hafði
samband við DV og vildi sérstaklega
lofa lax sem er á matseðlinum.
Hann sagði afgreiðsluna fljóta
og að máltíðin væri bæði létt og
bragðgóð. „Engin rjómasósa,
bara ferskleiki,“ sagði hann
hæstánægður.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
DÍSILOLÍA
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 196,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 194,9 kr.
Skeifunni VERÐ Á LÍTRA 197,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 195,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 199,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 196,9 kr.
BENSÍN
Dalvegi VERÐ Á LÍTRA 193,1 kr. VERÐ Á LÍTRA 191,8 kr.
Fjarðarkaupum VERÐ Á LÍTRA 194,6 kr. VERÐ Á LÍTRA 193,3 kr.
Algengt verð VERÐ Á LÍTRA 199,2 kr. VERÐ Á LÍTRA 197,9 kr.
UMSJÓN: BALDUR GUÐMUNDSSON, baldur@dv.is / ney tendur@dv.is
el
d
sn
ey
ti
14 MÁNUDAGUR 8. febrúar 2010 NEYTENDUR
LEIGAN HEFUR
LÆKKAÐ
Húsaleiga hefur lækkað talsvert
frá vordögum 2008, eða um allt
að 32 prósent, að því er könnun
Neytendasamtakanna leiðir í
ljós. Þó kemur fram að leiga á
stúdíóíbúðum og fjögurra her-
bergja íbúðum hefur hækkað
nokkuð. „Aðrar tegundir íbúða
hafa lækkað í verði en þá ber
einnig að hafa hliðsjón af því að
íbúðirnar sem voru kannaðar
nú eru að jafnaði nokkuð minni
en þær sem komu til skoðunar
í síðustu könnun,“ en samtökin
könnuðu leiguverð á svipuðum
tíma í fyrra.
Einungis var kannað verð
á leiguíbúðum á höfuðborgar-
svæðinu en gera má ráð fyrir
að leiguíbúðir annars staðar séu
heldur ódýrari.
BORÐIÐ YKKUR
HAMINGJUSÖM
Súkkulagði, pipar, lýsi, mjólk og baunir eru á meðal þeirra matvæla sem rannsóknir
benda til að geti létt lundina eða jafnvel komið í veg fyrir þunglyndi. DV tók saman
yfirlit yfir á annan tug matvæla sem innihalda næringarefni sem talin eru geta bætt
andlega líðan. Þeir sem finna fyrir þunglyndi eru þó hvattir til að leita læknis eða
annarra sérfræðinga til að fá bót meina sinna.
Baunir
Baunir eru stútfullar af
trefjum, fólínsýru og
ómega-3 fitusýrum en
þessi efni geta haft jákvæð
áhrif á skapið. Baunir eru
líka ríkar af járni og kalki sem
getur meðal annars aukið
framleiðslu rauðra blóðkorna.
Brokkólí
Spínat, rétt eins og brokkólí er
sneisa- fullt af B-vítamínum sem
geta unnið á stressi.
Rannsóknir benda til
að fólínsýra í brokkólí
geti haft jákvæð áhrif á
skapið. Fyrir utan það getur
brokkólí haft hamlandi áhrif á vöxt
krabbameinsfruma.
Mjólk
Mjólk er dæmi um matvæli
sem eru rík af D-vítamínum og
B12-vítamíni. Þau vítamín eru
talin getað unnið gegn stressi
og seinkað öldrun. Mjólk er líka
rík af aminósýrunni trýpophan
sem heilinn þarf til að framleiða
serótónín. Svo er kalkið gott
fyrir beinin.
Lýsi
Fjölmargar rannsóknir benda til þess að lýsi, sem
er ríkt af ómega-3 og ómega-6 fitusýrum geti haft
mikil áhrif á tíðni þunglyndis. Joseph Hibbeln
starfar við NIH, National Institute of Health í
Bandaríkjunum. Hann bendir á að á Nýja-Sjálandi
neyti fólk að jafnaði um 18 kílóa af fiski á ári en í
Japan sé neyslan 64 kíló á mann á ári. Þunglyndi
á Nýja-Sjálandi mælist um 6 prósent en aðeins
1 prósent í Japan. Þetta eigi við um fleiri lönd.
Neysla á ómega-3 fitusýrum er talin hafa áhrif þar
á enda hefur verið sýnt fram á að fitusýrurnar hafi
mjög jákvæð áhrif á andlega heilsu.
Súkkulaði
Margir eru sérstaklega veikir fyrir súkkulaði, sérstak-
lega þegar þeir eru stressaðir eða ef þeim leiðist.
Fenýletýlamín er efni í súkkulaði sem getur örvað
gleðistöðvar í heilanum og aukið tilfinningar á borð
við aðlöðun og kynferðislega spennu. Það ber þó
að hafa í huga að mörg önnur matvæli innihalda
þessi efni og þau eru aðeins í litlu magni í súkkulaði.
Meðal annarra athyglisverðra efna í súkkulaði,
samkvæmt Vísindavefnum, er anandamíð, en það er
taugaboðefni sem hefur áhrif á sömu heilastöðvar
og virka efnið í kannabisplöntunni.
Þetta efni er einnig í litlum
styrk í súkkulaði og neysla
þess þyrfti að vera nokkur
kílógrömm á dag til að
hafa áhrif á eðlilegan styrk
anandamíðs í heila.
Hrísgrjón og pasta
Kolvetnaríkur matur á borð við pasta hjálpar okkur
andlega. Kolvetnasnauðir megrunarkúrar eru taldir
geta stuðlað að leiða og depurð. Neysla kolvetna
eykur framleiðslu serótóníns, sem hefur róandi áhrif
og skapar vellíðan. Gættu þess þó að borða ekki of
mikið í einu; það getur hækkað blóðsykurinn hratt.
Heilsusamlegri kolvetni eins og fást úr brúnum
hrísgrjónum, heilhveitibrauði og grænmeti meltast
hægar og þér finnst þú verða saddur lengur.
Kalkúnn
Kalkúnakjöt er góð uppspretta próteina og með
lágt fituinnihald. Kjötið er ríkt af týrósín amínó-
sýru sem eykur styrk dópamíns og noradrenalíns.
Það eru hormón sem auka virkni heilans; bæta
viðbragð og skerpa einbeitingu. Þau geta
einnig aukið viðnám gegn streitu. Túnfiskur og
kjúklingur geta gert sama gagn.
Rautt kjöt
Litlir skammtar af rauðu kjöti geta verið góð
uppspretta orku. Áttatíu og fimm grömm á dag
er nóg til að auka upptöku járns í blóðinu. Algjör
skortur á rauðu kjöti getur verið skaðlegur. Fólk
sem sneiðir alveg hjá rauðu kjöti til að halda aftur
af kólesteróli í blóðinu er líklegt til að upplifa
járnskort. Járn er næringarefni sem hjálpar til við
að binda súrefni í vöðvum líkamans og þar með
gefa honum orku. Skortur á járni getur leitt til
þreytu og þar með depurðar.
Kaffi
Einn bolli af kaffi er fyrir mögum ómissandi byrjun
á vinnudeginum. Koffín í tveimur bollum af kaffi
kemur sér vel til að hreinsa hugann og örvar líkam-
ann í tvær eða þrjár stundir eftir drykkju. Ekki skal
þó drekka meira en tvo eða þrjá bolla á dag þar sem
sumar rannsóknir hafa bent til þess að koffín auki
blóðþrýsting lítillega og dragi úr virkni hormóna
sem vinna gegn skapstyggð og taugaveiklun.
Pipar
Sterkur matur er ekki bara góður á bragðið. Capsaicin,
sem er það efni sem gefur rauða piparnum styrkleikann
og hitann, leysir úr læðingi endorfín; annað af tveimur
vellíðunarhormónum líkamans.