Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2010, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2010, Qupperneq 17
Síðasti meðlimur forns ættbálks sem búið hefur á Andaman-eyjum í um 65.000 ár er látinn, að sögn samtaka sem barist hafa fyrir vernd frum- byggja eyjanna. Í tilkynningu frá samtökunum Survival International lést Boa, sem var hálfníræð, í síðustu viku á Anda- man-eyjum en hún var síðasti eftir- lifandi Bo-ættbálksins, eins af tíu að- skildum ættbálkum sem byggt hafa eyjarnar. „Talið er að Bo-ættbálkurinn hafi lifað á Andaman-eyjum í allt að 65.000 ár sem gerir hann að afkom- endum eins elsta menningarsamfé- lags jarðar,“ sagði í tilkynningunni frá Survival International. Endalok fornrar tungu Tungumálasérfræðingar segja að með fráfalli Boa hafi Indland aukin- heldur glatað því tungumáli sem var í mestri hættu. Tungumálið heitir Bo og Boa var sú síðasta sem tjáði sig á því, en undir það síðasta hafði hún engan til að tala við á því tungumáli þar sem eiginmaður hennar og börn voru þegar látin. Anvita Abbi, prófessor og verk- efnastjóri við Jawaharlal Nehru-há- skólann í Nýju Delí, hitti Boa á síð- asta ári og sagði að hún hefði verið eina manneskjan sem mundi gömlu söngva ættbálksins. Abbi sagði einn- ig að Boa hafi auk Bo-tungumálsins kunnað aðrar Andaman-mállýskur. Fimmtíu og tveir eftir Talið er að Boa hafi verið elsti með- limur Andaman-ættbálkanna tíu og að mati Survival International eru nú einungis fimmtíu og tveir meðlimir enn á lífi. Talið er að frumbyggjar eyj- anna hafi verið um 5.000 þegar Bret- ar gerðu eyjaklasann að nýlendu árið 1858. Flest frumbyggjasamfélög eyjanna urðu sjúkdómum að bráð eða með- limir þeirra drepnir samkvæmt upp- lýsingum frá Survival International. Samkvæmt samtökunum héldu Bretar frumbyggjunum í prísund sem kölluð var Andaman-heim- ili, en ekkert þeirra 150 barna sem fæddust þar náði tveggja ára aldri. Fleiri ættbálkar í hættu Forstjóri Survival International, Stephen Corry, sagði að fráfall Boa sorglega áminningu um að forðast beri að aðrir ættbálkar Andaman- eyja bíði sömu örlög, en yfirvöld á Andaman- og Nicobar-eyjum hafa skráð að minnsta kosti fimm ætt- bálka á lista yfir ættbálka í hættu. Aðrir Andaman-ættbálkar reiða sig að mestu leyti á ríkisstjórn Ind- lands með tilliti til afkomu og hús- næðis en áfengisneysla ku vera mik- il á meðal frumbyggjanna. Sentinelesar eru einn af um- ræddum ættbálkum og heldur til á sextíu ferkílómetra stórri eyju. Sentinelesar hafa ekkert samneyti við umheiminn utan eyjunnar, yf- irgefa aldrei eyjuna og eru sagðir fjandsamlegir, en lítið er annars um þá vitað. FRÉTTIR 8. febrúar 2010 MÁNUDAGUR 17 Helen Zille, leiðtogi Lýðræðisbanda- lagsins, Democratic Alliance, Zuma um að grafa undan baráttu stjórn- valda gegn fjöllyndi í kynlífsmálum. „Suður-Afríka hefur nú forseta sem bæði með orðum og aðgerðum veldur svipuðum skaða í þeirri bar- áttu [gegn HIV/eyðni],“ sagði He- len Zille. Hún sagði að baráttan fyr- ir öruggu kynlífi, notkun smokka og breyttum viðhorfum til fjöllyndis í kynlífsmálum væri í „hrópandi mót- sögn“ við hegðun forsetans og jafn- vel viðhorfum hans. Fjölkvæni er leyfilegt í Suður-Afr- íku og er þáttur í menningu Zúlú- ættbálksins, en hefur verið gagnrýnt af baráttusamtökum gegn HIV og eyðni. Tæplega sex milljónir Suður- afríkumanna eru HIV-sýktir og talið að um 1.000 látist vegna sjúkdóms- ins daglega. ÚTDAUÐUR ÆTTBÁLKUR KOLBEINN ÞORSTEINSSON blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Síðasti meðlimur Bo-ættbálksins Fráfall Boa markar endalok Bo-ættbálksins. MYND AFP FJÖLLYNDUR FORSETI Kvenna- og ástamál Jacobs Zuma, forseta Suður-Afríku, eru orðin vandræðaleg fyrir Afríska þjóðarráðið, ríkj- andi stjórnarflokk landsins. Zuma kvæntist í fimmta sinn í síðasta mánuði og nýlega var upplýst að hann hefði eignast barn utan hjónabands. Boa, síðasti meðlimur Bo-ættbálksins á Andaman-eyjum, lést í síðustu viku og með fráfalli hennar líður einnig undir lok Bo- tungumálið. Óttast er að annarra ættbálka eyjanna bíði svipuð örlög og eru að minnsta kosti fimm þeirra á válista yfirvalda. Allt bendir til þess að saksóknarar í Los Angeles leggi í dag fram kærur á hendur Conrad Murray, einkalækni poppstjörnunnar sálugu Michaels Jackson. Sennilega mun ákæra um manndráp af gáleysi verða á meðal ákæruatriðanna. Conrad Murray hefur sætt rann- sókn vegna dauða Jacksons í marga mánuði og á fréttavef Reuters er haft eftir ónafngreindum heimild- armönnum að Murray verði ákærð- ur fyrir manndráp af gáleysi, en ef hann verður sakfelldur fyrir þær sak- ir á hann yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsisvist. Upphaflega var gert ráð fyrir að ákæran á hendur Murray yrði lögð fram í síðustu viku en málið dróst á langinn vegna þrætu á milli lögreglu og saksóknara um hvernig ætti að standa að handtöku Murrays, segir á vef Reuters. Sandi Gibbons, tals- maður saksóknaraembættisins í Los Angeles, vísaði til föðurhúsanna sögusögnum um deilur á milli lög- reglunnar og saksóknaraembætt- isins og deilum um hvernig standa ætti að handtöku Conrads Murray. Að hennar sögn dróst málið á lang- inn eingöngu vegna þess að það þurfti að ljúka pappírsvinnu vegna þess. Samkvæmt öðrum fregnum brást Ed Chernoff, lögfræðingur Murr- ays, ókvæða við þegar saksóknari fór fram á að Murray yrði handjárnað- ur og leiddur inn í dómsalinn fyrir framan sjónvarpstökuvélar. Réttarmeinafræðingur Los Ang- eles úrskurðaði að um manndráp hefði verið að ræða þegar Michael Jackson skildi við og að dauða hans mætti einkum og sér í lagi rekja til Propofol-gjafar. Conrad Murray hefur ítrekað full- yrt að hann hafi ekki gert neitt rangt og sagði rannsóknarlögreglunni að hann væri fráleitt fyrsti læknirinn sem gaf Michael Jackson Propofol. Conrad Murray var hjá Michael Jack- son þegar hann lést. Læknir Michaels Jackson sennilega ákærður í dag: Manndráp af gáleysi Læknir Michaels Jackson Á yfir höfði sér fjögurra ára fangelsi ef hann verður sakfelldur. MYND AFP Lést eftir knattspyrnuleik Þrítugur stuðningsmaður knatt- spyrnuliðs Blackburn Rovers lést á spítala vegna áverka sem hann hlaut á leik knattspyrnuliðanna Stoke City og Blackburn Rovers í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Talið er að hann hafi verið laminn í höfuðið með ruslastampi, en hann var með- vitundarlaus þegar hann fannst. Tuttugu og fimm ára karlmaður er í haldi lögreglunnar vegna máls- ins og er að „aðstoða lögregluna við rannsóknina“ eins og lögreglan orðar það. Að sögn lögreglunnar áttu að- dáendur Stoke-liðsins enga aðild að líkamsárásinni sem átti sér stað á svæði aðdáenda Blackburn Rovers. Sex naut á einu síðdegi Sextán ára nautabani, Jairo Miguel Sanchez Alonso, afrekaði að drepa sex naut á á laugardaginn, en það hefur ekki verið talið á færi nema allra reyndustu nautabana. Sigur- launin voru afskorin eyru dýranna sem hann drap. Jairo Miguel Sanchez Alonso er enginn nýgræðingur þrátt fyrir ung- an aldur því hann gerðist atvinnu- maður í nautaati þegar hann var tólf ára. Hann komst í hann krappan árið 2007 þegar hann var við dauð- ans dyr eftir að hafa verið stunginn á hol af nauti. 55 milljónir smokka Starfsmenn heilbrigðisyfirvalda í Brasilíu hafa ýtt úr vör herferð til áminningar um AIDS og munu dreifa fimmtíu og fimm milljónum smokka á árlegri kjötkveðjuhátíð sem hefst í vikunni. Í sjónvarpsaug- lýsingu er ungt fólk minnt á að hafa smokkinn með í för ef fara á í partí. Slagorð herferðarinnar er „Smokk- urinn. Fyrir ást, ástríður eða bara kynlíf. Notið hann alltaf“. Á síðasta ári dreifðu brasilísk yf- irvöld hátt í 500 milljónum smokka ókeypis um allt land, sem samsvara 2,6 smokkum á hvern borgara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.