Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2010, Page 24
24 MÁNUDAGUR 8. febrúar 2010
DROGBA SKAUT CHELSEA Á TOPPINN Chelsea er komið aftur á topp
ensku úrvalsdeildarinnar eftir sigur á Arsenal, 2-0, í stórleik helgarinnar á sunnudagskvöld-
ið. Didier Drogba skoraði bæði mörk leiksins, á 8. og 23. mínútu. Það fyrra lagði fyrirliðinn
umdeildi, John Terry, upp með skalla og skoraði Drogba það af metra færi. Seinna markið var
einstaklega laglegt en þá fór Drogba afar illa með vörn Arsenal og skoraði glæsilegt mark.
Fyrir seinna mark Chelsea hafði Arsenal sótt stíft að marki Chelsea og það gerði liðið einnig
í seinni hálfleik. Ekki náði liðið þó að skora og hljóta Arsenal-menn því að vera enn svekktari
yfir því að Arsene Wenger, stjóri liðsins, hafi ekki keypt framherja í janúarglugganum. Með
tapinu er Arsenal komið sjö stigum frá öðru sætinu og möguleiki úr leik í titilbaráttunni.
UMSJÓN: TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON, tomas@dv.is
ENSKA ÚRVALSDEILDIN
LIVERPOOL - EVERTON 1-0
1-0 Dirk Kuyt (55.).
n Sotirios Kyrgiakos, Liverpool (35.)
n Steven Pienaar, Everton (90.).
MAN. UNITED - PORTSMOUTH 5-0
1-0 Wayne Rooney (40.), 2-0 Anthony Vanden Borre (45.sm), 3-0
Richard Hughes (59. sm), 4-0 Dimitar Berbatov (62.), 5-0 Mark
Wilson (69. sm).
HULL - MAN. CITY 2-1
1-0 Jozy Altidore (31.), 2-0 George Boateng (54.), 2-1 Emmanuel
Adebayor (59.).
BURNLEY - WEST HAM 2-1
1-0 David Nugent (14.), 2-0 Daniel Fox (55.), 2-1 Araujo Ilan (81.).
BOLTON - FULHAM 0-0
STOKE CITY - BLACKBURN 3-0
1-0 Danny Higginbottam (8.), 2-0 Mamady Sidibe (45.), 3-0
Matthew Etherington (67.).
n Christopher Samba, Blackburn (53.)
SUNDERLAND - WIGAN 1-1
0-1 Mohamed Diame (20.), 1-1 Kenwyne Jones (64.).
ASTON VILLA - TOTTENHAM 0-0
BIRMINGHAM - ÚLFARNIR 1-2
0-1 Kevin Doyle (42.), 1-1 Kevin Phillips (80.), 2-1 Kevin Phillips
(85.)
CHELSEA - ARSENAL 2-0
1-0 Didier Drogba (8.), 2-0 Didier Drogba (23.)
STAÐAN
Lið L U J T M Stig
1. Chelsea 25 18 4 3 60:20 61
2. Man. Utd 25 18 2 5 61:21 56
3. Arsenal 25 15 4 6 60:30 49
4. Liverpool 25 13 5 7 43:26 44
5. Tottenham 25 12 7 6 45:25 43
6. Man. City 23 11 8 4 45:32 41
7. Aston Villa 24 11 8 5 31:18 41
8. Birmingham 24 10 7 7 24:24 37
9. Everton 24 8 8 8 33:35 32
10. Fulham 25 8 7 10 27:28 31
11. Stoke City 23 7 8 8 22:26 29
12. Blackburn 25 7 7 11 25:43 28
13. Sunderland 24 6 7 11 31:41 25
14. Hull 25 5 9 11 25:50 24
15. Burnley 24 6 5 13 25:47 23
16. Wigan 23 6 5 12 25:48 23
17. Bolton 23 5 7 11 29:44 22
18. West Ham 24 4 9 11 30:40 21
19. Wolves 24 5 6 13 21:42 21
20. Portsmouth 24 4 3 17 19:41 15
CHAMPIONSHIP
BRISTOL - SHEFF. UNITED 2-3
C. PALACE - WATFORD 3-0
BARNSLEY - WATFORD 1-0
Emil Hallfreðsson lék allan leikinn fyrir Barnsley og skoraði
sigurmarkið. Heiðar Helguson lék allan leikinn fyrir Watford.
BLACKPOOL - LEICESTER 1-2
BRISTOL - COVENTRY 1-1
Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn fyrir Coventry.
IPSWICH - MIDDLESBROUGH 1-1
NOTT. FOREST - SHEFF. WED. 2-1
PETERBOROUGH - QPR 1-0
PLYMOUTH - WBA 0-1
Kári Árnason lék allan leikinn fyrir Plymouth.
SCUNTHORPE - C. PALACE 1-2
SHEFF. UTD - DERBY 1-1
SWANSEA - PRESTON 2-0
DONCASTER - READING 1-2
Ívar Ingimarsson og Bynjar Björn Gunnarsson léku allan leikinn
fyrir Reading og Gunnar Heiðar Þorvaldsson kom inn á á 90.
mínútu. Gylfi Sigurðsson var ekki í leikmannahópi Reading.
STAÐAN
Lið L U J T M St
1. Newcastle 28 17 8 3 48:17 59
2. WBA 29 16 8 5 59:31 56
3. Nott. Forest 29 15 10 4 46:22 55
4. Cardiff 28 13 6 9 53:35 45
5. Swansea 28 11 12 5 25:20 45
6. Leicester 27 11 9 7 31:28 42
7. Sheff. Utd 29 11 9 9 41:40 42
8. Blackpool 29 10 10 9 46:38 40
9. Barnsley 28 11 6 11 37:41 39
10. Middlesbro 29 10 8 11 40:33 38
11. Bristol City 28 8 13 7 34:38 37
12. Watford 28 9 8 11 39:43 35
13. Preston 28 9 8 11 32:39 35
14. QPR 28 8 10 10 40:45 34
15. Coventry 29 8 10 11 33:41 34
16. C. Palace 28 11 10 7 33:30 33
17. Doncaster 27 8 9 10 34:36 33
18. Derby 29 9 6 14 30:41 33
19. Scunthorpe 28 9 6 13 34:48 33
20. Sheff. Wed. 29 8 7 14 34:47 31
21. Ipswich 28 5 15 8 32:40 30
22. Reading 28 7 8 13 30:45 29
23. Plymouth 27 7 3 17 23:38 24
24. Peterborough 29 4 9 16 33:51 21
LEIKMAÐURINN
ENSKI BOLTINN
Helgin var svo sannarlega góð fyr-
ir Liverpool í baráttunni um Meist-
aradeildarsæti. Tottenham og
Aston Villa skildu jöfn á meðan
Manchester City tapaði. Og Liver-
pool sá um sig, hafði sigur á Evert-
on í 213. slagnum um Bítlaborgina,
1-0. Því er Liverpool komið í fjórða
sætið, það síðasta sem gefur sæti í
Meistaradeildinni, og hefur eins
stigs forystu á Tottenham.
Liverpool þurfti heldur betur að
hafa fyrir sigrinum þar sem það lék
manni færra í 55 mínútur eða allt
frá því Grikkjanum, Sotiros Kyrgia-
kos, var vikið af velli. Hinn grjóth-
arði og óþreytandi Dirk Kuyt var
hetja Liverpool en hann skoraði
eina mark leiksins af miklu harð-
fylgi með skalla í seinni hálfleik.
Kuyt gekk af velli eins og sönn hetja,
með mark á bakinu og blóð í and-
litinu. Það síðara var eftir fast spark
Belgans Marouane Fellaini beint í
andlitið á Kuyt sem honum var ekki
refsað fyrir.
TRAUSTUR SEM KLETTUR
Það verður seint sagt að Dirk Kuyt
sé sá fallegasti á velli en hann er svo
sannarlega áreiðanlegur. Á með-
an stjörnurnar, Gerrard og Tor-
res, spila nánast annan hvern leik
vegna meiðsla er Kuyt alltaf klár.
Kuyt ásamt markverðinum Pepe
Reina er eini leikmaðurinn sem
hefur byrjað inn á í hverjum einasta
leik í deildinni fyrir Liverpool. Mark
hans gegn Everton var hans fimm-
tugasta fyrir félagið og hans níunda
á tímabilinu í úrvalsdeildinni.
Kuyt er maðurinn sem leggur
sig alltaf fram og hann þurfti svo
sannarlega að hafa fyrir markinu.
Steven Gerrard átti þá spyrnu inn á
teiginn og var Kuyt í mikilli baráttu
við markvörð Everton, Tim How-
ard, og Phil Neville, fyrirliða gest-
anna, en með mikilli hörku náði
hann að losa sig frá öllum og skalla
knöttinn í netið. Kuyt hefur verið
lengi að koma sér inn í hjörtu Liver-
pool-stuðningsmanna en þeir sem
voru ekki enn búnir að taka hann í
sátt voru farnir að tilbiðja Hollend-
inginn á laugardaginn enda hann
líklega aldrei skorað mikilvægara
mark fyrir Liverpool.
LOFAÐUR Í HÁSTERT
Rafael Benitez, knattspyrnustjóri
Liverpool, var hæstánægður með
framlag Hollendingsins eftir leik-
inn. „Kuyt er alveg frábær leik-
maður,“ sagði hann í viðtali við Sky
Sports. „Hann er leikmaður sem
leggur sig fram í hverjum einasta
leik og leggur mikið á sig heilt yfir
gegnum alla leiktíðina. Hann getur
líka skorað mörk og þá virðist hann
vera sérfræðingur í að skora gegn
Everton,“ sagði Benitez kíminn en
Kuyt skoraði einnig í fyrri leik lið-
anna sem Liverpool vann, 2-0.
Fyrirliði Liverpool, Steven
Gerrard, var einnig ánægður með
hetjuna. „Við vissum alltaf að leik-
urinn yrði erfiður og hann varð
ekkert auðveldari þegar við vorum
orðnir einum færri. Það var samt
alltaf möguleiki á að skora úr föst-
um leikatriðum og í þeim erum við
alltaf hættulegir þegar leikmaður
eins og Dirk Kuyt er inni á vellin-
um,“ sagði fyrirliðinn, Steven Gerr-
ard.
RAUÐIR HALDA TAKINU
Með sigrinum á erkifjendunum
heldur Liverpool takinu á bláu ná-
grönnum sínum. Liverpool hefur
nú unnið tvo síðustu leiki og sam-
tals fimm af síðustu sjö en Everton
hefur aðeins náð tveimur jafntefl-
um á þeim tíma. Síðasti sigur Ev-
erton kom á heimavelli í september
2006 þegar bláliðarnir í Bítlaborg-
inni unnu Liverpool, 3-0.
Tapið kom líka á vondum tíma
fyrir Everton sem hefur verið að
klifra upp töfluna jafnt og þétt.
Everton hafði ekki tapað leik í
deildinni síðan það tapaði gegn
Liverpool í september en þetta
tap gerir Evrópuvonir þeirra bláu
minni.
GRJÓTHARÐURog gulls ígildiFimmtugasta mark
Hollendingsins Dirk
Kuyt tryggði Liverpool sigur, 1-0, í 213.
nágrannaslag Liverpool og Everton.
Liverpool-menn léku einum færri í 55
mínútur en höfðu samt mikilvægan
sigur. Kuyt fékk spark í andlitið í
leiknum en lét það ekki aftra sér.
TÓMAS ÞÓR ÞÓRÐARSON
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
SIGURMARKIÐ Kuyt skoraði eina markið í nágrannaslagnum. MYND AFP
50 MARKA MAÐUR Dirk Kuyt er
gulls ígildi hjá Liverpool á þessari
leiktíð. MYND AFP
2009-10
n Liverpool 1 - 0 Everton
n Everton 0 - 2 Liverpool
2008-09
n Liverpool 1 - 1 Everton
n Everton 0 - 2 Liverpool
2007-08
n Liverpool 1 - 0 Everton
n Everton 1 - 2 Liverpool
2006-07
n Liverpool 0 - 0 Everton
n Everton 3 - 0 Liverpool
2005-06
n Liverpool 3 - 1 Everton
n Everton 1 - 3 Liverpool
Baráttan um
Bítlaborgina
SPORT