Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Qupperneq 2
Erfiðlega gengur að koma vínekru Milestone í
Makedóníu í verð. Milestone ætlaði að framleiða milljón lítra
árlega á ekrunni. Vínframleiðslan var liður í útrás Milestone til
Makedóníu þar sem félagið keypti meðal annars dvergbanka.
HITT MÁLIÐ
ÞETTA HELST
- ÞESSAR FRÉTTIR BAR HÆST Í VIKUNNI
ÓVÆNTI HÁI REIKNINGURINN
Breska lögmannsstofan Mishcon
de Reya hefur sent Alþingi og
fjárlaganefnd 25 milljóna króna
reikning fyrir ráðgjöf og önnur
störf sín vegna Icesave-málsins.
Athygli vekur að Gunnlaugi Er-
lendssyni lögfræðingi, sem áður starfaði
fyrir Björgólf Thor Björgólfsson, er ætlað
að fá 10 milljónir króna af þeirri upphæð.
Þá vekur einnig athygli í stjórnkerfinu að
Jón Daníelsson hagfræðingur tók að sér
um daginn að hafa samband við þingið
og ýta á eftir greiðslu fyrir bresku lög-
mannsstofuna. Forsætisnefnd Alþingis
hafði upphaflega gengist inn á að greiða
allt að 1,5 milljónir króna fyrir þjónustu bresku lögmannsstofunnar.
Ljóst varð í árslok að sá kostnaður gæti orðið allt að 10 milljónir króna
og þar með meiri en svo að fjárhagur Alþingis leyfði. Því var fjármála-
ráðuneytinu gert viðvart um aukinn kostnað og látið gott heita að
því er heimildir DV herma. Nú hefur Alþingi borist nærri 25 milljóna
króna reikningur frá Mishcon de Reya sem enn liggur ógreiddur.
TRYGGVI VILDI NÝJA STÖÐU
Tryggvi Þór Herbertsson, núver-
andi þingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, vildi árið 2006 láta Háskóla
Íslands búa til prófessorsstöðu við
skólann sem bæri nafn Björgólfs
Guðmundssonar og auðmaðurinn myndi
kosta. Hugmynd Tryggva, sem er hagfræð-
ingur að mennt, var sú að hann myndi
svo sækja um stöðuna. Staðan átti að vera
einhvers konar sérstök rannsóknarstaða í
hagfræði við skólann, samkvæmt heimild-
um DV, og laun þess sem gegndi stöðunni
mun hærri en laun annarra prófessora. Í Bandaríkjunum er nokkuð
algengt að auðmenn kosti slíkar stöður við háskóla og að stöðurnar
beri síðan nöfn þeirra. Þetta hefur hins vegar ekki tíðkast hér á landi í
gegnum tíðina. Ef staðan hefði verið búin til, og Tryggvi hefði fengið
hana, hefði Tryggvi getað orðið upp á ensku: „Björgólfur Guðmunds-
son Professor of Economics at the University of Iceland“.
HERA TIL NOREGS
Hera Björk Þórhallsdóttir keppir
fyrir Íslands hönd í Eurovision.
Söngur á hug hennar allan og
hefur hún nú þegar átt farsæl-
an söngferil. Hún kvíðir ekkert
því risavaxna verkefni að keppa í Eurov-
ision og ætlar að sigra í keppninni. „Ég
segi allt dásamlegt. Síðan ég var sex ára,
syngjandi í hárburstann uppi í sófa, hef
ég stefnt að því að vinna þessa keppni
þannig að tilfinningin núna er dásam-
leg,“ sagði Hera, söngkona og sigurvegari
í Söngvakeppni Sjónvarpsins, í viðtali við
DV á mánudag. Hera Björk verður full-
trúi Íslands í Eurovision-keppninni sem
fram fer í Noregi í vor eftir að hafa sigrað
með laginu Je ne sais quoi. Með sigrinum er langþráður draumur að
rætast og ætlar hún sér ekkert annað en sigur í lokakeppninni. Þrátt
fyrir deilur við aðra lagahöfunda undankeppninnar, meðal annars við
Bubba Morthens, segist hún vera með flott sigurlag í höndunum.
2
3
1
FRÉTTIR
8. febrúar 2010 MÁNUDAGUR 3
Alþingi situr uppi með nærri 25
milljóna króna reikning frá bresku
lögmannsstofnunni Mishcon de
Reya eftir að Alþingi samþykkti að
beiðni stjórnarandstöðunnar að
leitað yrði aftur til lögmnannsstof-
unnar fyrir jól. Forsætisnefnd Al-
þingis hafði upphaflega gengist inn
á að greiða allt að 1,5 milljónir fyrir
þjónustu bresku lögmannstofunn-
ar. Ljóst varð í árslok að sá kostnaður
gæti orðið allt að 10 milljónir króna
og þar með meiri en svo að fjárhag-
ur Alþingis leyfði. Því var fjármála-
ráðuneytinu gert viðvart um aukinn
kostnað og látið gott heita að því er
heimildir DV herma.
Nú hefur Alþingi borist nærri 25
milljóna króna reikningur frá Mish-
con de Reya sem enn liggur ógreidd-
ur.
Athygli vekur að í sundurlið-
un reikningsins er gert ráð fyrir að
10 milljónir króna renni til Gunn-
laugs Erlendssonar lögfræðings sem
búsettur er Bretlandi. Samkvæmt
heimildum DV er sú þóknun fyrir
milligöngu Gunnlaugs og sérfræði-
lega aðstoð. Enginn, sem DV hefur
haft samband við innan þingsins,
kannast hins vegar við að hafa beð-
ið um þjónustu Gunnlaugs fyrir 10
milljónir króna.
Þá vakti athygli að Jón Daní-
elsson, hagfræðingur hjá Lond-
on School of Economics í London,
hafði samband fyrir skemmstu við
Alþingi og spurðist fyrir um greiðslu
á reikningi Mischon de Reya.
Jón kannaðist við að hafa haft
samband við Alþingi vegna um-
rædds reiknings þegar DV hafði
samband við hann. „Ég hitti einn
eigenda hjá Mischon, sem hafði
verið nemandi í LSE, á styrktarsam-
komu. Hann nefndi að þeir hefðu
ekki fengið greitt, og ég bauðst til að
hringja í Alþingi til að spyrjast fyrir
um þetta því mér fannst að Ísland
hefði nógu slæmt orð á sér fyrir að
greiða ekki reikninga.“
Vann áður hjá Novator
Forystumenn stjórnarandstöðunn-
ar lögðu ríka áherslu á það síðla árs
í fyrra að leitað yrði til Mishcon de
Reya, sem áður hafði komið að Ic-
esave-málinu. Rekja má ákveðin
tengsl þeirra við bresku lögmanns-
stofuna. Áðurnefndur Gunnlaugur
Erlendsson var á sínum tíma virk-
ur félagi í Heimdalli meðal ungra
sjálfstæðismanna. Hann er jafn-
framt sagður vinur Sigurðar Kára
Kristjánssonar, fyrrverandi alþing-
ismanns Sjálfstæðisflokksins og
núverandi aðstoðarmanns Bjarna
Benediktssonar, formanns Sjálf-
stæðisflokksins.
Gunnlaugur starfaði til ársins
2007 fyrir Björgólf Thor Björgólfs-
son, meðal annars í höfðuðstöðv-
um Novators í London.
Jón Daníelsson hagfræðingur
stóð nærri Sigmundi Davíð Gunn-
laugssyni, formanni Framsóknar-
flokksins. Báðir hafa þeir komið við
sögu InDefence hópsins sem skor-
aði á forseta Íslands að senda lög-
in um Icesave-skuldbindingarnar í
þjóðaratkvæðagreiðslu og safnaði
undirskriftum í þeim tilgangi.
Umdeildar niðurstöður
Mishcon de Reya sendi Alþingi og
fjárlaganefnd álitsgerð sína um Ic-
esave nokkrum dögum fyrir jól og
fór í fyrstu fram á að álit hennar yrði
ekki gert opinbert. Sumt þar væri
trúnaðarmál sem Hollendingar og
Bretar gætu nýtt sé gegn Íslending-
um í hugsanlegum málaferlum. Á
þetta benti lögmannsstofan írekað,
meðal annars í tölvupóstum til Al-
þingis, fyrir jól. Fjárlaganefnd ákvað
hins vegar að kröfu stjórnarandstöð-
unnar að birta gögnin þremur dög-
um fyrir jól. Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra taldi margvíslega
ágalla á álitinu og gaf opinberlega
lítið fyrir það.
Bresku lögmennirnir svöruðu
gagrýni Steingríms á Þorláksmessu
í bréfi til fjárlaganefndar. Stjórnar-
andstæðingar, þeirra á meðal Kristj-
án Þór Júlíusson, fulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins í fjárlaganefnd, krafðist
gagna um samskipti stjórnvalda við
Mishcon de Reya.
Deilur við stjórnvöld
Mishcon de Reya hvatti íslensk
stjórnvöld til að höfða má gegn
breska fjármálaeftirlitinu (FSA)
vegna falls Kaupþings. Lögmanns-
stofnan liti svo á að slík málssókn
yrði viðkvæm fyrir bresk stjórnvöld
enda hefðu breskir dómstólar oft
dæmt breska ríkinu í óhag. Þetta
myndi án efa styrkja samningsstöðu
Íslands. Þessi skoðun lögfræðistof-
unnar var kynnt bæði samninga-
nefnd Íslands sem og fulltrúum fjár-
málaráðuneytisins.
Mike Stubbs, einn af eigendum
Mishcon de Reya, ritað fjárlaga-
nefnd einnig bréf um málið milli jóla
og nýárs sem olli talsverðum titr-
ingi og uppnámi. Fram kom í máli
Stubbs að Svavar Gestsson, formað-
ur Icesave-samninganefndarinnar
hefði tekið út álit lögmannstofunn-
ar í kynningu á málinu fyrir Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra
31. mars á síðasta ári. Lögmanns-
stofan viðurkenndi að það væri þó
í valdi samninganefndar Svavars að
ákvarða um slíka hluti.
Mismunandi skoðanir hafa kom-
ið fram á vinnu Mishcon de Reya
fyrir þingið og telja einkum stjórn-
arliðar að útleggingar stofunnar, til
dæmis um vexti og aðra hagsmuni
í Icesave-málinu séu ekki pening-
anna virði.
Eins og áður segir hefur nú
Mishc on de Reya sent Alþingi reikn-
ing fyrir vinnu sína og Gunnlaugs Er-
lendssonar, samtals nærri 25 millj-
ónir króna. Eftir því sem DV kemst
næst er líklegt að Alþingi og stjórn-
völd krefji Mischon de Reya skýr-
inga og frekari sundurliðunar áður
en reikningurinn verður greiddur að
hluta eða að fullu.
SENDI ALÞINGI 25
MILLJÓNA REIKNING
Breska lögmannsstofnan Mishcon de Reya hefur sent Alþingi og fjárlaganefnd 25 milljóna króna reikning fyrir ráðgjöf og önnur störf sína vegna Icesave-máls-ins. Athygli vekur að Gunnlaugi Erlendssyni lögfræðingi, sem áður starfaði fyrir Björgólf Thor Björgólfsson, er ætlað að fá 10 milljónir króna af þeirri upphæð.
InDefence Mikið áróðursstríð
gaus upp í kringum skýrslu
Mishcon de Reya í lok ársins og
skorað var á forsetann að synja
lögum um Icesave staðfestingar.
Gagnrýndi Mishcon de Reya
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráð-
herra fann skýrslu lögmannsstofunnar eitt og annað til foráttu. Hún svaraði
fyrir sig.
Flokksstengslin Vinur Sigurðar
Kára Kristjánssonar og flokksbróðir,
Gunnlaugur Erlendsson, á að fá 10
milljónir króna fyrir störf sem enginn bað hann að vinna.
Tengsl við lögmannsstofuna
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, tengist InDefence og lagði ásamt fleiri forystu-
mönnum stjórnarandstæðinga áherslu á að fá Mishcon de Reya til verka.
Enginn, sem DV hefur haft
samband við innan
þingsins, kannast hins
vegar við að hafa beð-
ið um þjónustu Gunn-
laugs fyrir 10 milljónir
króna.
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
SAMSTAÐA FLOKKANNA
ER ÞVINGUÐ LAUSN
Það er að sínu leyti algerlega
háð því að stjórnmála-
flokkarninr nái sam-
stöðu og gangi í sæmi-
legum takti til að ljúka
málinu.
Icesave-skuldanna fyrir árslok 2008. Indriði H. Þorláksson sagði meðal annars við fjölmiðla að í raun hefðu Icesave-lánin verið tekin í október það ár. „Sú túlkun er svo algerlega einstæð að ég hef hvergi fundið hana rökstudda í gögnum málsins. Í henni felst bæði ótrúlegt afsal réttarstöðu og sjálfsákvörðunarréttar Íslands og illbærileg viðurkenning á réttmæti kúgunaraðferða Breta og Hollend-
inga,“ skrifar Kristrún.
Þetta stenst varla því 11. október 2008 gáfu stjórnvöld út fréttatilkynn-
ingu um að búið væri að semja um Icesave við Hollendinga um lausn eigenda innstæðna á Icesave-reikn-
ingunum. Að samkomulaginu komu Árni Mathiesen, þáverandi fjármála-
ráðherra, og Wouter J. Bos, fjármála-
ráðherra Hollands. „Ráðherrarnir fagna því að lausn hafi fundist á mál-
inu,“ segir í tilkynningunni. Jafnframt segir þar að samkomulagið kveði á um að íslenska ríkið muni bæta hverjum og einum hollenskum inn-
stæðueiganda innstæður að hámarki 20.887 evrur. „Hollenska ríkisstjórn-
in mun veita Íslandi lán til að standa undir þessum greiðslum og hollenski seðlabankinn mun annast afgreiðslu krafna innstæðueigendanna,“ segir í tilkynningunni.
Lagði allt undir Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, formaður
Framsóknarflokksins, lagði allt
undir í Icesave-deilunni og
studdi InDefence. Kemur hann
standandi niður?
MÁNUDAGUR OG ÞRIÐJUDAGUR 8. – 9. febrúar 2010 DAGBLAÐIÐ VÍSIR 16. TBL.100. ÁRG. – VERÐ KR. 395
n BAÐST FYRIRGEFNINGAR Á EINELTI
n VAR UNG Í UPPREISN Í BREIÐHOLTINU
n SKILDI Í GÓÐU EFTIR TÍU ÁRA HJÓNABAND
n ÆTLAR AÐ LEGGJA ÓSLÓ AÐ FÓTUM SÉR
n BUBBI: „FRUMLEGASTA LAGIÐ VANN“
HERA BJÖRK Í EUROVISION:
ÁKVAÐ SEX
ÁRA AÐ
SIGRA
ÞRIGGJA BARNA FAÐIR KEYPTI BÍL:
„EINS OG Í
FANGELSI“
n BORGAR 9 MILLJÓNIR FYRIR 3 MILLJÓNA BÍL
FRÉTTIR
RÁÐ VIÐ
OFFITU
BARNA
HAMINGJU
MATUR
ÓSÁTTUR
VIÐ ÓLAF
RAGNAR
n LEIGUBÍLSTJÓRI FÉKK
EKKI STARF
FRÉTTIR
NEYTENDUR
ICESAVE-
RÁÐGJÖF
FYRIR TUGI
MILLJÓNA
n FYRRVERANDI STARFSMAÐUR
BJÖRGÓLFS THORS VILL 10 MILLJÓNIR
„ÞETTA ER
ALGJÖRT
KJAFTÆÐI“
FRÉTTIR
FRÉTTIR
n FYRIRSÆTAN OG EIÐUR NEITA FRÉTTUM
Tryggvi Þór Herbertsson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins, vildi að Björgólfur Guð-
mundsson myndi kosta prófessorsstöðu
við Háskóla Íslands árið 2006. Prófessorinn
átti að vera með hærri laun en aðrir kenn-
arar. Staðan var ekki búin til á endanum og
Tryggvi réð sig til Askar Capital.
FRÉTTIR4 MIÐVIKUDAGUR 10. febrúar 2010
Árið 2006 vildi Tryggvi Þór Herberts-
son, núverandi þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins, láta Háskóla Íslands búa
til prófessorsstöðu við skólann sem
átti að fá nafn Björgólfs Guðmunds-
sonar og auðmaðurinn myndi kosta.
Hugmynd Tryggva, sem er hagfræð-
ingur að mennt, var sú að hann myndi
svo sækja um stöðuna.
Staðan átti að vera einhvers kon-
ar sérstök rannsóknarstaða í hagfræði
við skólann, samkvæmt heimildum
DV.
Tryggvi Þór staðfestir aðspurður
að hugmyndin hafi verið rædd. Hann
segir að hugmyndin hafi verið að búa
til stöðu fyrir rannsóknir á fjármála-
stöðugleika.
Fór til Askar
Staðan átti að vera við viðskipta- og
hagfræðideildina en Tryggvi var á
þessum tíma forstöðumaður Hag-
fræðistofnunar Háskóla Íslands.
Tryggvi var búinn að vera í þeirri
stöðu um nokkurra ára skeið og mun
hafa viljað breyta til. „Hann var orð-
inn þreyttur; honum fannst sem hann
væri alltaf að gera sama hlutinn,“ segir
heimildarmaður DV.
Staðan var þó aldrei búin til þar
sem Tryggvi réð sig frá háskólanum og
í forstjórastöðu hjá fjárfestingabank-
annum Askar Capital. „Þetta var bara
á hugmyndastigi og svo fór ég að vinna
hjá Askar,“ segir Tryggvi.
Ef staðan hefði verið búin til,
og Tryggvi hefði fengið hana, hefði
Tryggvi getað orðið upp á ensku:
„Björgólfur Guðmundsson Professor
of Economics at the University of Ice-
land“.
Í Bandaríkjunum er nokkuð al-
gengt að auðmenn kosti slíkar stöður
við háskóla og að stöðurnar beri síðan
nöfn þeirra. Þetta hefur hins vegar ekki
tíðkast hér á landi í gegnum tíðina.
Tryggvi átti hugmyndina
Samkvæmt heimildum DV kom
Tryggvi að máli við Björgólf Guð-
mundsson og bar hugmyndina upp
við hann. Þeir hittust einu sinni vegn
a málsins samkvæmt heimildum DV.
„Þetta var eitt af því sem var rætt þeg-
ar verið var að gera þessa sóknaráætl-
un fyrir háskólann,“ segir Tryggvi.
Hugmyndin að stöðunni var því
komin frá Tryggva sem gekk á eft-
ir málinu í herbúðum Björgólfs og
teiknaði upp þennan möguleika.
„Honum fannst hann sífellt vera í
endurteknum hagsmunarannsókn-
um. Hann vildi komast á eitthvert
annað stig og það var þess vegna sem
hann lagði þetta til,“ segir heimildar-
maður blaðsins sem þekkir til máls-
ins. Staðan átti að vera einhvers konar
sérstök rannsóknarstaða við skólann,
samkvæmt heimildum DV.
Engin tengsl voru á milli Tryggva
Þórs og Björgólfs á þessum tíma, svo
vitað sé, en sá síðarnefndi var á þess-
um formaður háskólasjóðs Eimskipa.
Þessi frásögn af Tryggva er ein-
ungis ein af mörgum frá árunum fyr-
ir hrun þar sem fræði- og listamenn
komu að máli við Björgólf og báðu
hann um að fjármagna ákveðin verk-
efni eða hugmyndir enda var hann
frægur fyrir gjafmildi sína. Sumar-
ið 2007 styrkti fjárfestingafélag hans
og Björgólfs Thors, sonar hans, til að
mynda rússneskunám við Háskóla Ís-
lands.
Hugmynd Tryggva var því einung-
is ein af mörgum sem menn gaukuðu
að Björgólfi á þessum árum.
Ekki borið upp formlega
Tryggvi Þór mun þó ekki hafa borið
hugmyndina upp formlega á fund-
um í viðskipta- og hagfræðideild
háskólans. Samkennarar hans
munu þó hafa vitað um hug-
myndina vegna þess að Tryggvi
nefndi hana við þá. Samkvæmt
heimildum DV hlaut hug-
myndin frekar dræmar und-
irtektir hjá öðrum kennur-
um við deildina.
Samkvæmt heimildum
DV var það hluti af hug-
myndunum, eins og þær
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
TRYGGVI ÞÓR VILDI
HEITA BJÖRGÓLFUR
Hann vildi kom-ast á eitthvert
annað stig og það var
þess vegna sem hann
lagði þetta til.
Í Bandaríkjunum hefur það tíðkast í langan tíma að
auðmenn og fyrirtæki veiti háskólum peningastyrki
eða kosti prófessorsstöður í þeim og að stöðurnar beri
þá nöfn þeirra. Sem þekkt dæmi má nefna: Rocke feller
Professor of ... hitt eða þetta, í umræðu um háskólamál
í Bandaríkjunum.
Á Íslandi hefur ekki verið hefð fyrir þessu fyrirkomu-
lagi. Þó má segja að þetta hafi breyst í góðærinu sem
ríkti á Íslandi fram til haustins 2008.
Þekktasta dæmið er líklega Friðrik Már Baldursson
sem gegndi prófessorsstöðu við hagfræðideild Háskóla
Íslands sem kostuð var af Kaupþingi. Fékk deildin 10
milljónir króna á ári frá Kaupþingi fyrir að nefna stöð-
una eftir bankanum. Friðrik Már sætti töluverðri gagn-
rýni fyrir að hafa gegnt þessari stöðu. Réttlætti hann
stöðuna þannig að þegar hann tók hana að sér hefði
hann verið forseti viðskipta- og hagfræðideildar Há-
skóla Íslands og deildin hefði glímt við fjárskort. Rekstr-
arhalli 2006 stefndi í 20 milljónir króna og horfur voru
á að hallinn 2007 yrði tvöfalt meiri yrði ekkert að gert.
Bakkavör styrkti sömuleiðis stöðu prófessors í ný-
sköpunar- og frumkvöðlafræðum. Seðlabanki Íslands
greiddi líka fyrir stöðu lektors í peningahagfræði við
hagfræðideild Háskóla Íslands.
Helgi Áss Grétarsson hefur síðustu árin gegnt stöðu
sérfræðings í rannsóknum í auðlindarétti við lagadeild
Háskóla Íslands í boði Landssambands íslenskra út-
vegsmanna, LÍÚ. Greiðir LÍÚ 7,5
milljónir króna á ári fyrir stöðu
Helga Áss. Hefur rausnarlegt
framlag LÍÚ sætt töluverðri gagn-
rýni frá andstæðingum kvótakerf-
isins.
Endurskoðendafyrirtæk-
ið KPMG styrkir rannsóknar- og
kennslustöðu á sviði reikings-
halds- og endurskoðunar við Há-
skólann í Reykjavík.
Landsbankinn styrkti 35 af-
burðanemendur við Háskól-
ann í Reykjavík árlega með
því að borga skólagjöld
og veita hverjum þeirra
150 þúsund króna fram-
færslustyrk. Einnig varð
frægt þegar auðmað-
urinn Róbert Wess-
mann tilkynnti um
1.000 milljóna
króna framlag
í Þróunarsjóð
Háskólans í
Reykjavík árið
2007. as@dv.is
Háir styrkir í góðærinu
Björgólfur Thor Björgólfsson
Landsbankinn styrkti 35 afburða-
nemendur í HR ár hvert.
n Eftir að Tryggvi hætti í Háskóla Íslands og
fór til Askar Capital árið 2006 beið hans betri
tíð með blóm í haga. Tryggvi hafði hugsað
sér til hreyfings og leitaði meðal annars til
Björgólfs Guðmundssonar, líkt og greint er
frá hér. Hjá Askar var Tryggvi með umtalsvert
betri laun en í háskólanum en reikna má með
að hluti ástæðunnar fyrir því að hann leitaði
til Björgólfs hafi verið sú að hann vildi hækka
laun sín.
Þegar Tryggvi hætti hjá Askar til að gerast
efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar sumarið
2008 gerði hann samning við Askar um sex
mánaða leyfi frá störfum sem meðal annars fól
í sér bónusgreiðslur upp á rúmar 16 milljónir
króna. Fréttamiðillinn Pressan greindi fyrstur miðla frá bónusgreiðslunum á
mánudaginn. Tryggvi fékk því bónusgreiðslur frá Askar meðan hann vann fyrir
ríkisstjórnina.
Karl Wernersson, stjórnarformaður Milestone, skrifaði undir samninginn fyrir
hönd Askar, líkt og kemur fram hér á síðunni. Samingurinn var undirritaður þan
n
18. júlí 2008. Í honum kemur fram að Askar átti að greiða samtals 16,25 milljóni
r
til Tryggva á sex mánuðum, eða um 2,7 milljónir króna á mánuði. Fyrsta greiðsl
an
var 1. september 2008. Greiðslurnar eru kallaðar „launatengd gjöld í bónus fyrir
fyrri helming ársins 2008“ í samningnum. Einnig er kveðið á um það í samningn
-
um að Tryggi njóti allra hlunninda á því tímabili sem hann átti að vera í leyfi frá
störfum hjá Askar, meðal annars afnot af bíl og rekstrarkostnaði honum tengdu
m.
Um var að ræða öll þau hlunnindi sem rætt var í ráðningarsamningi Tryggva
frá því í október 2006. Nokkru áður hafði hann viljað fá stöðu sem Björgólfi
Guðmundssyni var boðið að kosta.
Tryggvi fékk 2,7 milljónir á mánuði
Prófessor Björgólfs Tryggvi Þór leitaði
eftir því við Björgólf Guðmundsson árið 2006
að hann myndi kosta prófessorsstöðu við
viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands.
Staðan var þó aldrei búin til og réð Tryggvi sig
til Askar Capital haustið 2006.
FRÉTTIR 10. febrúar 2010 MIÐVIKU
DAGUR 5
I I I
I
„Því miður hvíla margar fjárfestingar
skuldsettra útgerðarfyrirtækja í gjald-
þrotakistu frjálshyggjunnar,“ sagði
Sverrir Mar Albertsson, framkvæmda-
stjóri AFLs í ræðu sinni á fjölmennum
fundi á Eskifirði á mánudaginn. Fund-
urinn bar yfirskriftina „Sjávarútvegur í
óvissu“. Á fundinum voru afleiðingar
fyrningarleiðar í sjávarútvegi til um-
ræðu.
„Græðgin náði yfirhöndinni, skyn-
semin vék – menn græddu á dag-
inn, grilluðu á kvöldin og töpuðu öllu
haustið 2008. En skuldirnar sitja marg-
ar eftir á ofurveðsettum kvóta og skip-
um – aðrar lenda á skattborgurum því
engar eignir finnast í fánýtum eign-
arhaldsfélögum,“ sagði Sverrir Mar á
fundinum.
Sverrir gagnrýndi skuldsetningu
útgerðarfyrirtækja harðlega og rakti
til núverandi kvótakerfis. „Útgerðin er
svo skuldsett og það mest við erlenda
banka að bara vaxtagreiðslur útgerð-
arinnar eru sagðar nema milljörðum
króna mánaðarlega,“ sagði Sverrir.
Óljós framtíð
Þá sagði Smári Geirsson, bæjarfull-
trúi í Fjarðabyggð að engin leið væri að
gera áætlanir innan sjávarútvegsgeir-
ans eða horfa til framtíðarinnar á með-
an óvissa um fyrningarleiðina vofði
yfir. „Fyrningarleiðin virðist ómótuð
og þegar krafist er nánari upplýsinga
um framkvæmd hennar og útfærslu er
fátt um svör eða þá að svör ráðamanna
eru óljós og alls ekki samhljóða.“
Fundurinn fór fram í félagsheim-
ilinu Valhöll og sóttu hann m 140
manns.
Ekki slátra öllum fyrir suma
Gunnþór Ingason, formaður Útvegs-
mannafélags Austfjarða. sagði að eig-
endur þeirra fyrirtækja sem hefðu
farið offari í fjárfestingum þyrftu að
axla ábyrgð á því og að ekki mætti
saka öll útvegsfyrirtæki um slíkt. „Það
má ekki setja þetta yfir á heildina og
slátra henni í heilu lagi,“ sagði Gunn-
þór og beindi spjótum sínum næst
að ríkisstjórninni. „Það er dapurt til
þess að vita að stærsta ógnin sem að
okkur steðjar skuli vera heimatilbúin.
Óhugsuð áform stjórnvalda um fyrir-
hugaða fyrningu aflaheimilda er það
sem er með atvinnugreinina í algjörri
gíslingu í dag.“ Eggert B. Guðmunds-
son, forstjóri HB-Granda, tók í sama
streng og sagði að fyrningarleiðin tæki
ekki á skuldum sjávarútvegsfyrirtækj-
anna.
Áhersla á sátt
Alþingismennirnir Björn Valur Gísla-
son og Kristján Þór Júlíusson tóku
einnig til máls. Björn Valur, varafor-
maður sáttanefndar um sjávarútvegs-
mál, kvaðst bjartsýnn á að samkomu-
lag næðist um flest öll mál, en erfiðast
væri að finna lausn á leigu, sölu og
veðsetningu veiðiheimilda. Kristján
lagði áherslu á að sátt yrði að takast
um fiskveiðistjórnunarkerfið.
Húsfyllir var á fundi um sjávarútvegsmál á Eskifirði á mánudaginn. Har
t var tekist á
um fyrningarleiðina, framtíð sjávarútvegsins og skuldsetningu greinarin
nar. Áhyggj-
ur eru af stöðu sjávarútvegs, bæði vegna offjárfestinga og óvissu um fram
tíðina.
„Í GJALDÞROTAKISTU
FRJÁLSHYGGJUNNAR“
HELGI HRAFN GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
Húsfyllir á Eskifirði Til máls
tóku á fundinum fulltrúar sveit-
arfélaga, útgerðarfyrirtækja og
stéttarfélaga auk alþingismanna.
Deila nemenda og skólastjórnenda
í Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
hélt áfram á þriðjudag. Þá var hald-
inn opinn málfundur um hvort halda
ætti árshátíð á Selfossi eða ekki. Þar
mættust Morfís-lið skólans og Guð-
rún Hrefna Guðmundsdóttir skóla-
meistari og Stefán Benediktsson
aðstoðarskólameistari. Formað-
ur Nemendafélags FB, Erla María
J. Tölgyes, segir í samtali við DV að
enn gæti mikils pirrings meðal nem-
enda vegna málsins en þriðjudagur-
inn hafi verið mun rólegri af þeirra
hálfu en mánudagurinn þegar þeir
skrópuðu í tíma og mótmæltu banni
skólastjórnenda við að halda árshá-
tíð skólans á Hótel Selfossi.
Erla María sagðist ekki eiga von
á því að skólastjórnendur bökkuðu
með þessa ákvörðun. „Við erum að
vinna í því að finna einhverja lausn
og klára málið,“ segir Erla María. Hún
segir það sem eigi að koma í staðinn
fyrir hefðbundna árshátíð skólans
verða að vega vel upp á móti þeirri
sem var fyrirhuguð. Hún segir enn
ekki útséð með hvort nemendur taki
vel í þá tillögu skólastjórnenda að
halda árshátíð í Reykjavík.
Erla sagði það jafnvel koma til
greina að ekkert yrði af árshátíð í höf-
uðborginni því mikinn tíma tæki að
skipuleggja slíka árshátíð og ekki víst
að það næðist. „Ég vona að þetta fari
allt saman vel.“
Ekki náðist í Guðrúnu Hrefnu
skólameistara vegna málsins en í
bréfi sem hún sendi til nemenda seg-
ir að skólayfirvöld geti ekki ábyrgst
skemmtanahald fjarri heimahögum
þar sem foreldrar geti ekki sinnt eft-
irlitsskyldu. Stór hluti nemendanna
sé undir 18 ára aldri. Þá segir skóla-
meistari að þar sem ferðin sé kostn-
aðarsöm sé hugsanlega verið að ýta
undir mismunun nemenda með til-
liti til fjárhagsstöðu. Einnig sé það að
keyra yfir Hellisheiði að næturlagi á
miðjum vetri með stóran nemenda-
hóp ákveðin hætta.
birgir@dv.is
Nemendur í hart Nemendur við
Fjölbrautaskólann í Breiðholti mót-
mæltu harðlega á mánudag ákvörðun
skólameistara um að banna árshátíð
skólans á Hótel Selfossi. MYND RAKEL ÓSK
Nemendur og skólastjórnendur FB ræddu árshátíðarmálið á málfundi:
Ekki orðið við kröfum nemenda
voru viðraðar, að sá sem fengi stöð-
una myndi fá umtalsvert hærri laun
en aðrir kennarar deildarinnar.
Lendingin var þó sú að þrátt fyr-
ir að Tryggvi hefði sóst eftir því við
Björgólf að staðan yrði búin til kom
aldrei til þess að að lengra væri far-
ið með málið. Tryggvi Þór réð sig til
Askar Capital á haustmánuðum 2006
og var þar fram á sumarið 2008 þeg-
ar hann hætti til að verða efnahags-
ráðgjafi ríkisstjórnarinnar. Frá árinu
2006 og fram á fyrstu mánuði ársins
2009 naut hann þeirra starfskjara sem
hann samdi um við Askar þegar hann
tók við forstjórastarfinu í bankanum.
Viðskipta-og hagfræðideild skól-
ans náði reyndar samningum við
Kaupþing nokkrum mánuðum eft-
ir þetta en samkvæmt þeim kostaði
bankinn prófessorsstöðu
við skólann. Þetta var
í ársbyrjun 2007 og
settist Friðrik Már
Baldursson í Kaup-
þingsstöðuna eins
og einhverjir muna
örugglega.
Björgólfur Guðmundsson
Tryggvi Þór vildi nefna stöðu
sína eftir Björgólfi.
2 FÖSTUDAGUR 12. febrúar 2010 FRÉTTIR
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Sliskjur
og rampar
fyrir hjólastóla
Aðgengi fyrir alla
Ein af kyndugri afleiðingum íslenska
efnahagshrunsins er sú að umsjón-
armenn eigna ýmissa fyrirtækja sem
farin eru á hausinn standa frammi
fyrir því að þurfa að elta eignir fé-
laganna út um allar trissur. Íslensku
útrásarmennirnir voru oft á tíð-
um stórtækir og leituðu til fjarlægra
landa eftir fjárfestingarmöguleikum.
Eitt slíkt dæmi er Popova Kula-
vínekran í Makedóníu sem eignar-
haldsfélagið Milestone fjárfesti í árið
2006. Félagið varð gjaldþrota í fyrra.
Skiptastjóri þrotabúsins, Grímur
Sigurðsson, reynir nú að selja vín-
ekruna auk makedónska dvergbank-
ans Stater.
Ætluðu að framleiða
milljón lítra
Þrátt fyrir gjaldþrot Milestone í fyrra
er enn þá starfsemi á Popova Kula-
vínekrunni sem staðsett er í suður-
hluta Makedóníu. Um 10 starfsmenn
vinna við vínframleiðsluna auk þess
sem einhverjir starfsmenn vinna
við vínberjatínsluna á ökrunum um-
hverfis vínverksmiðjuna.
Árið 2005 voru framleiddir um
190 þúsund lítrar af víni í verksmiðj-
unni úr um 300 tonnum af vínberj-
um. Þá var vínekran metin á um 1,2
milljónir evra.
Hugmynd Milestone þegar fé-
lagið fjárfesti í vínekrunni árið 2006
var að reyna að auka framleiðsluna
um allt að 1 milljón lítra. Ætlunin
var að framleiða margar víntegundir
sem áttu að vera mjög góð miðað við
önnur makedónsk vín á sama tíma
og verðinu væri haldið frekar lágu,
um þremur evrum á flöskuna. Selja
átti hluta af framleiðslunni úr landi,
til Serbíu, Króatíu og Rússlands
meðal annars.
Kaupverð Milestone miðaðist við
það að leggja þyrfti töluverða fjár-
muni í vínframleiðsluna og var því
ekki mjög hátt á sínum tíma. En ætl-
unin var alltaf að veita fjármunum
inn í reksturinn og stækka hann til
muna: Þannig hefði verðmæti vín-
ekrunnar aukist. Gert var ráð fyrir því
að eftir framleiðsluaukninguna væri
verðmæti vínekrunnar komið upp í
um 10 milljónir evra.
Erfið staða
Vegna gjaldþrots Milestone voru
fjármunirnir sem félagið ætlaði að
leggja í rekstur vínekrunnar ekki
lagðir fram. Stærð vínekrunnar og
framleiðslugeta er því sú sama og
þegar Milestone keypti hana og má
búast við að verðið sem fæst fyrir
hana verði svipað.
Samkvæmt heimildum blaðsins
gengur erfiðlega að selja vínekruna
enda bíða menn ekki í röðum eftir
því að setja peninga í slíkar fjárfest-
ingar eins og ástandið er á fjármála-
mörkuðum í dag. Þó má búast við að
þrotabú Milestone selji eignina fyrr
en síðar enda er verið að reyna að ná
eins miklu og hægt er upp í kröfur á
hendur félaginu en talið er að lán-
ardrottnar Milestone fái einungis 5
prósent upp í kröfur sínar.
Vildu vera eins og Íslendingar
Kaupin á vínekrunni voru liður í út-
rás Milestone til Makedóníu. Auk
vínekrunnar keypti félagið fyrr-
nefndan banka auk þess sem félag-
ið íhugaði að bora eftir steinefnum
til lyfjaframleiðslu í landinu – Mile-
stone lét til sín taka í lyfjageiranum
og átti meðal annars Lyf og heilsu.
Í viðtali við DV árið 2007 tjáði
Lacar Kotevski, bæjarstjóri í Novaci í
Makedóníu, sig um áhuga Milestone
á fjárfestingum í landinu við blaða-
mann DV, Sigtrygg Ara Jóhannsson,
sem var þá á ferðalagi í landinu. „Hér
hafa þegar verið Íslendingar á ferð
sem vilja bora eftir steinefnum til
lyfjaframleiðslu. Það var fólk frá fyr-
irtækinu Milestone sem kom hingað
í félagi við hérlent fyrirtæki sem heit-
ir Segin,“ sagði hann en viðtalið var
tekið á hátindi íslensku útrásarinnar
þegar trúin á íslensku efnahagsvél-
ina var í hámarki.
Þetta viðhorf kom líka fram í máli
Kotevskis sem sagði nauðsynlegt að
hlúa að tækifærum eins og því sem
Milestone setti fram. „Við höfum
oft litið til Íslands sem fyrirmyndar.
Það er land sem á örskömmum tíma
þróaðist frá því að vera óþekkt smá-
ríki yfir í að vera gildandi land með
sterkan efnahag og öflug fyrirtæki.
Þeir þingmenn sem ég hef rætt við
hér í Makedóníu eru allir á einu máli
um að Ísland sé skólabókardæmi um
land sem eigi að vera fyrirmynd okk-
ar,“ sagði Kotevski.
Kotevski lét þessi ummæli falla
fyrir nærri þremur árum, þegar Mile-
stone og önnur íslensk eignarhalds-
félög ætluðu sér að sigra heiminn.
Milestone hafði það enn á teikni-
borðinu að breyta víninu frá Popova
Kula-vínekrunni í gull fyrir Ísland og
meira að segja útlendingar héldu að
Íslendingar væru fyrirmyndarþjóð á
sviði fjárfestinga.
Í dag er öldin hins vegar önn-
ur, líkt og staðan á vínekru Mile-
stone í Makedóníu ber með sér, og
er ekki fjarri lagi að berin á vínekr-
unni hafi súrnað nokkuð á liðnum
árum.
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
Það var fólk frá fyrirtæk-
inu Mile stone sem
kom hingað í félagi við
hérlent fyrirtæki sem
heitir Segin.
BERIN Á VÍNEKRU
MILESTONE SÚRNA
Framleiddi 190 þúsund lítra
Popova Kula-vínekran í Makedóníu
gaf af sér allt að 190 þúsund lítra af
víni á ári. 10 starfsmenn vinna við
vínframleiðsluna auk starfsmanna
á vínviðarökrunum.