Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Blaðsíða 31
HELGARBLAÐ 12. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR 31 irleitt einhverjum. Þjóðin er að gera sér grein fyrir hvað góð blaðamennska skiptir miklu máli og sú uppgötvun er eitt af því fáa jákvæða við þetta hrun. Landsmenn spyrja ekki lengur af hverju við séum að fjalla um eitthvað heldur frekar af hverju við séum ekki að fjalla um eitt- hvað. Það er engin illgirni fólgin í því að benda á það sem er að í samfélaginu. Nema síður sé. Ég held að það ætti hreinlega að auka kennslu í mannréttindum, lýðræði og þar með þætti fjölmiðla í samfélaginu í grunnskólum en sleppa stærðfræðinni og helgislepjusögunni í staðinn. Mér finnst viðhorfið gagnvart fjölmiðlum þó hafa breyst, frá því sem var þegar margir litu á þá sem afþreyingu og að þeir ættu ekki að rugga bátnum um of. Það þótti skamm- arlegt fyrir nokkrum árum, enda mátti ekki kveikja ljósin í partíinu í góðærinu. Það mega menn muna þegar þeir tala um hversu hand- ónýtir fjölmiðlar voru fyrir hrun. Auðvitað var fullt af gagnslausum blaðamönnum sem fannst skemmtilegra að vera með Jón Ásgeir og Bjarna Ármannsson á „speed dial“ í síman- um sínum en að segja fréttir af þessum gaur- um. Sem betur fer fóru þessir blaðamenn að lokum flestir bara að vinna beint fyrir þessa menn, þannig að menn þurftu þá ekkert að velta því lengur fyrir sér. Og sem betur fer hef ég voðalega lítið haft af þessum útrásarvíking- um að segja því enginn þeirra leitaði í minn félagsskap,“ segir Helgi og bætir við að skýrsla rannsóknarnefndarinnar verði að hreinsa loftið gagnvart fjölmiðlum líka. „Ekki síður en gagnvart bönkum og pólitíkinni. Þeir fjöl- miðlar og fjölmiðlamenn sem voru ekki rót- spilltir verða að fá sitt heilbrigðisvottorð, rétt eins og þeir stjórnmála- og viðskiptamenn sem voru ekki með allt niður um sig.“ Kallaður fífl og bjáni Helgi segir að reiðin í höfuðborginni sé gríð- arleg vegna bankahrunsins og mun meiri en úti á landi. Í dag sé þó annar hópur reiður en í búsáhaldabyltingunni. „Ekki af því að skipt hefur verið um ríkisstjórn heldur vegna þess að það fólk sem var ekki í vandræðum síðast er nú búið að missa húsin sín. Það er tvennt í stöðunni. Annaðhvort kemur þessi rannsóknarskýrsla út og það verður gerð bylting út frá efni hennar eða þá að það verður gerð bylting út af því sem ekki kem- ur þar fram. Ég er ekkert endilega að tala um blóðuga byltingu og mannfall, ég vona að þessari reiði verði beint í aðrar og jákvæðari áttir en þær að grípa til of- beldis. Það var engum til sóma hvernig kom- ið var fram við lögregluna undir lok mót- mælanna fyrir ári. Ég var sjálfur vitni að því. Lögreglan hafði auðvitað gert mistök og þar innan um, eins og í hinum hópnum, voru menn sem ekki höndluðu valdið og kylfurnar. En það er hins vegar nauðsynlegt að menn beini reiðinni í að byggja hér upp út frá öðrum forsendum eftir útkomu skýrslunn- ar. Menn skyldu hins vegar búa sig undir það að réttlætið og niðurstöður dómstóla fari ekki endilega saman. Þá reynir á skynsemi okkar. Það þarf engan Pál Hreinsson til að segja okk- ur í grófum dráttum hvað hér gerðist. Við eigum flest að hafa skynsemi til að vita að hér varð kerfishrun af mannavöldum, græðgi og óhóf varð okkur að falli vegna þess að við lokuðum augunum fyrir því sem var að gerast. Þeir sem við treystum til að halda utan um batteríið klúðruðu því en rifu svo bara kjaft. Ég var kallaður fífl fyrir að spyrja Björgvin G. Sigurðsson hvort Fjármálaeftir- litið hefði ekki átt að stoppa innsöfnun á Ice- save-reikningana. Hann vildi ekki svara svo ég spurði aftur og Geir H. Haarde líka. Fyrir það var ég kallaður fífl og dóni. Í dag vita allir að Fjármálaeftirlitið átti samkvæmt þeim kröfum sem gerðar voru til eftirlitsins að stöðva Ice- save og ef þeir gátu það ekki var auðvitað eitt- hvað að lögunum og þá var það stjórnmála- mannanna að laga það, flóknara er þetta ekki. Við ætlumst til þess að þetta virki og það gerði það ekki. Það sem blasir líka við þessari þjóð er að horfast í augu við sjálfa sig, þegar þessu uppgjöri sleppir. Við þurfum að gangast við ábyrgðinni af meðvirkninni sem hér réð ríkjum; því að hafa kosið yfir okk- ur stjórnmálamenn trekk í trekk sem brugðust þeirri einföldu skyldu sinni að láta ekki allt hrynja hérna. Því að hafa setið hjá þegar dæmdum fjárglæfra mönnum voru seldir bankar, svo ég tali nú ekki um þá staðreynd að Halldór Ásgríms- son seldi félagi fjölskyldu sinn- ar hinn bankann. Það þótti hreint og beint óviðeigandi að benda á það. Við skulum ekki gleyma því að valdið hér eins og annars staðar á uppruna sinn hjá fólkinu sjálfu, það- Það er fyndið að sjá Audda detta í drullu- poll í Argentínu en það hefði líka verið ágætt ef stjórnendur Stövðar 2 hefðu notað Wipe- out-peningana í að láta Jóa og Kristin í Kompás grafa í drullu- pollinum hérna heima. Fjölmiðlamaðurinn Helgi Seljan var nýbúinn að rífa fjölskylduna upp með rótum og flytja norður á Akureyri til að starfa hjá Svæðisútvarpi Norður- lands þegar uppsagnir skóku RÚV. Í kjölfarið var starfið fyrir norðan ekki lengur í boði þannig að í dag býr Helgi einn í herbergi fyrir sunnan svo að hann geti unnið í Kastljósi á meðan kona hans og dóttir búa á Akureyri. Helgi segist hafa verið erfiður unglingur sem hafi verið rekinn oftar en einu sinni úr skóla. Hér ræðir hann um reiðina, óregluna, föð- urhlutverkið sem hann óttaðist, RÚV, kreppuna og starf sitt sem fjöl- miðlamaður í hringiðu Icesave-umræðu. Flutti norður en flýgur suður Helgi var búinn að eyða miklum tíma í að tala kærustuna inn á að flytja með sér til Akureyrar. Nokkrum dögum eftir að þau fluttu kom í ljós að hann yrði að vinna fyrir sunnan ef hann vildi halda starfinu. MYND: SIGTRYGGUR ARI VAR REIÐUR og sjálfum sér verstur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.