Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 12. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR 27 AFTURBATA STJÓRNMÁLAMENN ekki möguleika á endurkjöri árið 1996. Árið 1997 stofnaði Aristide nýjan stjórnmálaflokk, Fanmi Lavalas, sem stundum er kallaður Lavalas fjölskyld- an, og var endurkjörinn sem forseti árið 2000. Í skugga ásakana um kosn- ingasvindl var hann settur í embætti í febrúar 2001. En mótmæli gegn ríkisstjórn landsins undu upp á sig og urðu að allsherjar uppreisn árið 2004 og Jean- Bertrand Aristide þurfti að flýja land. Marion Barry var í tvígang kjörinn í embætti borgarstjóra Washing- ton D.C. og þjónaði í tíu ár áður en hann var gripinn glóðvolgur í leynilegri aðgerð alríkislögregl- unnar FBI þar sem hann reykti krakk í félagsskap fyrrverandi kærustu, sem vel að merkja var þá á mála hjá FBI. Upptaka af handtöku Barrys og alræmd ummæli hans – „Tíkin sveik mig“ – vöktu mikla athygli hjá fjölmiðlum og slíkt hið sama mátti segja um réttarhöldin sem fylgdu í kjölfarið. Eftir að hafa afplánað sex mán- aða dóm skellti Barry sér aftur í stjórnmálin og bauð sig fram til sætis í borgarráði undir slagorð- inu „Hann er kannski ekki full- kominn, en hann er fullkominn fyrir D.C.“, og hann vann. En hann lét ekki þar við sitja því árið 1994 var hann kjörinn í fjórða skipti í embætti borgar- stjóra. Hann ákvað að reyna ekki við fimmta kjörtímabilið en var endurkjörinn í borgarráðið árið 2004, og hefur setið þar síðan þrátt fyrir að hafa játað sig sekan um smávægileg skattalagabrot árið 2005, og að hafa verið handtekinn í júlí 2009 eftir að hafa áreitt fyrr- verandi starfsmann sinn. Fangelsisvist, skattalagabrot og handtaka George Wallace (25. ágúst 1919 – 13. september 1998), ríkisstjóri Ala- bama, naut mikilla vinsælda á með- al íhaldsamra hvítra borgara fylkisins vegna mikillar andstöðu hans gegn afnámi aðskilnaðarstefnunnar, en bann við setu á ríkisstjórastóli komu í veg fyrir að hann gæti setið í því embætti í tvö samfelld kjörtímabil. Wallace greip á það ráð að tefla fram eiginkonu sinni, Lurlee, og fór hún með sigur af hólmi í ríkisstjóra- kjöri árið 1966. En Lurlee fékk ban- vænt krabbamein og sat því aðeins tvö ár í embætti ríkisstjóra. George Wallace var hins vegar endurkjörinn árið 1970 en morðtil- ræði gegn honum árið 1972 þegar hann sóttist eftir tilnefningu til for- setaembættisins olli því að hann lamaðist frá mitti og niður og fór hann í kjölfarið í stutt veikindaleyfi. Wallace hlaut ekki tilnefningu sem forsetaefni en sóttist eftir endur- kjöri sem ríkisstjóri árið 1974 og vann kosningaslaginn næsta auðveldlega. Þegar þar var komið sögu var búið að fella úr gildi lög sem komu í veg fyrir að hægt væri sækjast eftir endurkjöri að loknu kjörtímabili. Eftir að hafa verið fjarri ríkisstjórn- arstólnum í fjögur ár, frá 1979 til 1983, afneitaði Wallace eigin ummælum: „Aðskilnaður nú, aðskilnaður á morg- un, aðskilnaður að eilífu!“ og leitaði sátta við leiðtoga baráttumanna fyrir borgaralegum réttindum. Hann var enn og aftur kjörinn ríkisstjóri árið 1982 og naut þá töluverðs fylgis þel- dökkra kjósenda. Féll frá eigin sannfæringu Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er best þekkt- ur fyrir samband sitt við lærling í Hvíta húsinu. En árið 1978 naut Bill Clinton frægðar sem yngsti ríkisstjóri landsins eftir að hafa verið kjörinn ríkisstjóri Arkansas. En Adam var ekki lengi í Paradís og á meðal þess sem varð Clinton fjötur um fót þegar hann reyndi að ná endurkjöri var óvinsæll skatt- ur sem lagður var á vélknúin far- artæki. En það kom fleira til því sú skoðun að Clinton léti eigin póli- tískan metnað ganga fyrir vel- ferð ríkisins skaut sterkum rótum á meðal almennings. Bill Clinton náði fyrir vikið ekki endurkjöri sem ríkisstjóri Arkansas, en varð, eins og hann grínaðist á stundum sjálfur með, yngsti fyrrverandi rík- isstjóri í sögu landsins. Í ríkisstjórnarkosningunum tveimur árum síðar bað Bill Clin- ton kjósendur afsökunar á „mis- tökum ungs manns“ sem hefði tek- ið sér í fang meira en hann réð við. Bill Clinton hafði erindi sem erfiði, náði kjöri og notaði næsta áratug til að fínpússa orðspor sitt sem „ríkis- stjóra menntunar“ sem tekist hefði að betrumbæta almenningsskóla Arkansas – sem síðar vó þungt á metunum þegar hann sóttist eftir forsetaembættinu. Fyrirgefning bar árangur Litríkur fyrrverandi borgarstjóri Marion Barry braut af sér og sneri aftur. Umdeildur en vinsæll Wallace (3. f.v.) var fylgjandi aðskilnaðarstefnunni. Tímamót Var bæði yngsti, og yngsti fyrrverandi ríkisstjóri í sögu Bandaríkjanna. Hans tími kom Viktor Janúkóvits fór með sigur af hólmi eftir sex ár. MYND AFP Winston Churchill árið 1900 Þrátt fyrir sigur í síðari heimsstyrjöldinni var hann settur tímabundið út í kuldann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.