Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Blaðsíða 4
SANDKORN n Hafi einhver haldið að Borg- arahreyfingin væri dáin drottni sínum eftir að þingmennirnir sögðu skilið við hana, skjátlast þeim hinum sama. Stjórn félags- ins hefur fundað reglulega að undanförnu þótt það hafi kannski ekki farið hátt. Á síðasta fundi gerðust hins vegar nokk- ur tíðindi. Þá tilkynnti Valgeir Skag- fjörð að hann ætlaði sér að hætta sem formaður en sitja áfram sem óbreyttur stjórnarmaður. Því er kominn nýr formaður í flokkinn, það er Heiða B. Heiðars sem áður var varaformaður samtakanna. Varaformaður verður nú Sigurð- ur Hr. Sigurðsson. n Þórður Snær Júlíusson, blaða- maður á Viðskiptablaðinu, fer mikinn í pistli í síðasta tölublaði þess. Þar ræðir hann ábyrgð endurskoðenda og lögfræðinga í hruninu, hvernig þeir tóku þátt í alls konar gjörningum fyrir hrun gegn greiðslu og gera slíkt hið sama eftir hrun. „Nú hafa þessar stéttir raðað sér alls staðar þar sem er peningalykt. Lögfræðing- ar og endurskoðendur raða sér í störf fyrir skilanefndir, slita- stjórnir og þrotabú. Þeir hjálpa innlendum bönkum að kreista hverja krónu sem þeir geta út úr íslenskum almenningi. Þeir hjálpa erlendum bönkum að lögsækja íslenska ríkið í leit að skaðabótum vegna neyðarlaga. Ef þau fá borgað nógu mikið þá eru partíljónin tilbúin í þrifin. Og það virðist ríkur vilji til að rétta þeim kústinn.“ n Hún er athyglisverð fyrir margra hluta sakir uppljóstrun Sólons Sigurðssonar, fyrrverandi bankastjóra Búnaðarbankans, um að hann hafi veitt Björgólfi Guðmundssyni og Björgólfi Thor Björgólfssyni lán fyrir hluta af kaupvirði Landsbank- ans fyrir orð Halldórs J. Kristjánsson- ar, þáverandi bankastjóra Landsbank- ans. Annars vegar vekur athygli að bankastjóri banka sem var verið að einkavæða skyldi ganga svona langt í að þjóna hagsmun- um stærsta hluthafans í banka sínum. Svo er ekki síður athygl- isvert að Sólon virðist því sem næst hafa lagt sig undir boðvald bankastjóra í öðrum banka. n Fíkniefnaleitin í Tækniskólan- um á fimmtudag vakti athygli. Þá var skólanum lokað og hópur lögreglumanna leitaði að fíkni- efnum í skólanum með hjálp fíkniefnahunda. Haft var eftir samskiptastjóra skólans á Vísi að engin fíkniefni hefðu fundist og að átakið hefði heppnast vel. Víst er að einhverjir setja spurningar- merki við leit sem þessa þar sem grunur um mögulegt ólöglegt athæfi einhverra er notaður sem grunnur að leit í heilu skólun- um. Egill Helgason er einn þeirra sem velta þessu fyrir sér. Hann spyr á bloggsíðu sinni hvar fíknó beri niður næst, hvort það verði í háskólanum og hvort það verði þá líka leitað á kennurunum. Og hann spyr hvort leitað verði á öðrum fjölmennum vinnustöð- um. „Til dæmis Alþingi?“ 4 FÖSTUDAGUR 12. febrúar 2010 FRÉTTIR Fyrirtaka í máli ríkislögreglustjóra gegn Hauki Þór Haraldssyni fyrrver- andi famkvæmdastjóra rekstrarsviðs Landsbanka Íslands, fór fram í Hér- aðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag. Haukur, sem ákærður er fyrir stór- felldan fjárdrátt, var ekki viðstadd- ur fyrirtökuna. Aðalmeðferð í mál- inu fer fram í lok mars, en verði hann fundinn sekur getur hann átt von á fangelsisvist. Málið er fyrsta efnahagsbrotamál- ið sem kom upp eftir bankahrun- ið haustið 2008. Haukur er ákærður fyrir fjárdrátt með því að hafa þann 8. október 2008, tveimur dögum eft- ir fall Landsbankans, dregið sér rúm- ar 118 milljónir króna sem hann lét millifæra af innlendum gjaldeyris- reikningi í eigu NBI Holding, félags á vegum bankans sem hann var stjórn- armaður og prókúruhafi í, og yfir á eigin bankareikning. Daginn eftir lét Haukur millifæra sömu fjárhæð yfir á annan bankareikning í sinni eigu. Fjárdrátturinn varðar allt að sex ára fangelsi. Haukur lýsti gjörningum sínum sem klaufalegum í samtali við Morg- unblaðið fyrir jól, þar sem hann sagðist hafa verið að bjarga innlán- um erlendra aðila. Hann hefði reynt að bjarga innlánum í eigu fleiri en eins félags. „Þetta var eitt af félögun- um sem reynt var að bjarga og það var gert á þennan klaufalega hátt.“ valgeir@dv.is Fyrirtaka í fjárdráttarmáli gegn Hauki Þór Haraldssyni í héraðsdómi: Flutti 118 milljónir á eigin reikning Millifærði eftir hrun Landsbanka Haukur Þór Haraldsson millifærði 118 milljónir króna á eigin reikning skömmu eftir hrun Landsbankans. Hann gæti átt yfir höfði sér 6 ára fangelsi. MÆTA Á UPPBOÐ TIL AÐ VALDA USLA „Þó svo að uppboðin séu háalvar- leg erum við dálítið að gera grín að þessum fulltrúum innheimtunnar. Við viljum standa með þeim sem eru að missa heimili sín og það má sjá að innheimtumönnunum er ekki skemmt yfir mótmælunum,“ segir Þorvaldur Óttar Guðlaugs- son, baráttumaður og mótmæl- andi, sem undanfarið hefur mætt á uppboð sýslumanna á húsnæði og mótmælt. Þorvaldur Óttar er ekki sá eini sem mótmælt hefur á uppboð- um undanfarið því nærri tut- tugu manna hópur hefur verið að myndast síðustu vikur og hefur hópurinn mætt á uppboðin. Mót- mælin hafa farið friðsamlega fram og er tilgangurinn sá að sýna full- trúum innheimtunnar, bæði sýslu- manns og fjármálafyrirtækja, fram á óréttlæti innheimtunnar gagn- vart heimilum í neyð. Fauk í fulltrúann Í vikunni mætti hópurinn á upp- boð í Hafnarfirði þar sem húsráð- endur eru fluttir af landi brott og búa nú í Noregi. Fyrir vikið hafði fulltrúi sýslumanns ekki lykla að húsnæðinu og ætlaði þess í stað, samkvæmt frásögn mótmælenda, að halda uppboðið á útidyratröpp- unum. Því var harðlega mótmælt. „Eftir að við mótmæltum því við fulltrúa sýslumanns að uppboð- ið færi fram á tröppunum fauk í viðkomandi þannig að hann rauk í burtu. Klukkutíma síðar mætti hann með lásasmið til að brjótast inn í íbúðina. Með fulltrúanum mætti lögreglan á svæðið,“ segir Þorvaldur. Aðspurður segir Þorvaldur eng- in formleg samtök hafa verið stofn- uð en hann útilokar ekki að svo verði. Hann ætlar sjálfur að halda áfram að mæta á uppboð og hvet- ur aðra mótmælendur til að gera slíkt hið sama. „Fram til þessa hef- ur þetta ekki verið neinn skipu- lagður hópur heldur einstaklingar úr grasrót mótmælenda. Við mæt- um þarna til að fylgjast með lög- fræðingunum í uppboðunum. Við höfum hreinlega áhyggjur af því að verið sé að vinna óheiðarlega með heimili landsmanna.“ Ekki láta kúga ykkur „Ég ætla að halda áfram að mæta á þessi uppboð og ég vona að það geri hinir líka. Við viljum sýna eig- endum íbúðanna að það er hægt að mótmæla, við viljum blása þeim kjark í brjóst svo að þeir geti stað- ið á rétti sínum og láti ekki kúga sig. Við verðum að horfast í augu við þessa fulltrúa lánastofnana og það er ljóst að þeim hefur ekki ver- ið skemmt við þessi mótmæli okk- ar á uppboðunum,“ bætir Þorvald- ur við. Þorvaldur tók virkan þátt í búsáhaldabyltingunni og von- aðist til að hún myndi skila frek- ari breytingum á þjóðfélaginu. Hann hefur undanfarið tek- ið þátt í svokölluðum flautu- mótmælum fyrir utan bankana. „Eflaust gætu orðið samtök úr þessu því við erum hópur sem vill verja eigur almennings. Fyrst og fremst viljum við sýna íbúð- areigendum í neyð virðingu. Ég er bara bálreiður yfir því hvernig hlutirnir eru hér á landi og von- aði að þeir myndu breytast með kosningum.“ TRAUSTI HAFSTEINSSON blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Eftir að við mót-mæltum því við fulltrúa sýslumanns að uppboðið færi fram á tröppunum fauk í viðkomandi þannig að hann rauk í burtu. Hópur um það bil tuttugu einstaklinga er farinn að mæta á uppboð víða um höf- uðborgarsvæðið til að mótmæla aðgerðum og horfast í augu við lögmenn og inn- heimtumenn. Markmiðið er að sýna fram á ósanngirni gagnvart fólki í nauðum og valda usla á uppboðum. Mótmæla óréttlæti Hópur mótmælenda vill verja rétt húsnæðiseig- enda með því að mæta fulltrúum innheimtunnar á uppboðum. LEIÐRÉTTING Í spurningu dagsins í DV á mið- vikudag var ranglega haft eftir Bjarka Gunnlaugssyni að hann vildi kalla spilavíti spilahöfn. Blaðamanni misheyrðist, hið rétta er að Bjarki nefndi spilahöll.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.