Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Blaðsíða 46
VERSTU KAUP Í HEIMI? Alveg sama hversu samrýmd þið eruð og alveg sama hversu ánægð- ur þú ert með hvað þú ert afslappaður í kringum elskuna þína skaltu aldrei kaupa þetta klósett handa ykkur. Líklega versta Valentínusargjöf í heimi! „Ég er mjög rómantísk og veit fátt betra en kertaljós, rauðvín og nota- legheit,“ segir Ragnheiður Guð- finna Guðnadóttir fegurðardrottn- ing sem þó verður án kærastans á Valentínusardaginn. „Maðurinn minn verður að vinna þannig að ég verð ein heima með strákunum mínum. Ætli við þrjú gerum ekki bara eitthvað rómantískt saman, poppum og horfum á góða teikni- mynd,“ segir Ragnheiður en bætir við að hún og kærastinn muni bæta sér upp að hafa misst af deginum. „Þótt við tökum Valentínusar- daginn ekkert brjálæðislega alvar- lega hef ég gaman af þessu og kaupi gjarnan eina rauða rós og elda góð- an mat. Annars er ég svo heppin að bóndinn er rosalega duglegur að elda og sér oftast um þetta. Ég þarf ekki einu sinni að versla í matinn,“ segir Ragnheiður Guðfinna sem stendur fyrir konukvöldi á Óliver á laugardagskvöldið þar sem Helga Braga, Auðunn Blöndal, Egill Gillz- enegger, Heiðar snyrtir og tónlist- armaðurinn Ingó munu fræða og skemmta fram á rauðanótt. „Húsið verður opnað klukkan 20 en dagskráin byrjar hálf níu svo vinkonur gætu hæglega farið út að borða á undan og gert þetta að sínu kvöldi. Ég mæli með að sem flest- ir karlar verði góðir við sínar konur um helgina og sendi þær á konu- kvöld og ég lofa að þeir verða allir heppnir snemma að morgni Val- entínusardagsins í staðinn.“ indiana@dv.is Ragnheiður Guðfinna segist afar rómantísk en hún skipuleggur konukvöld á Óliver: ÁN KÆRASTANS Á VALENTÍNUSARDAGINN UMSJÓN: INDÍANA ÁSA HREINSDÓTTIR, indiana@dv.is „Ég fann ekki nógu stór undirföt svo að ég keypti sælgæti handa þér.“ „Ég pantaði borð fyrir okkur á KFC.“ „Við verðum að tala saman.“ „Ég bauð mömmu með okkur út að borða.“ „Það ert ekki þú, það er ég.“ „Ég valdi þennan veitingastað því hann er mitt uppáhald.“ „Þetta eru sykurlaus súkkulaðihjörtu.“ „Mig dreymdi að þú værir mamma mín.“ „Ég held að þetta sé ekki smitandi.“ „Ég fór hingað með fyrrverandi í fyrra.“ „Verum bara vinir.“ „Viltu sjá nýja sjóaratattúið mitt?“ „Hvað gerðirðu við hárið á þér!“ „Ertu viss um að við eigum afmæli í dag?“ Í nýrri rannsókn, sem gerð var í Teesside-háskólanum á Eng- landi, kom í ljós að konur myndu ekki treysta mökum sínum til að taka inn getnaðarvarnarpillu en ný pilla, ætluð karlmönnum, er í þróun. Í rannsókninni kom í ljós að báðum kynjum líst vel á getnaðarvarnarpillu fyrir karl- menn en konurnar vildu þróa hugmyndina enn lengra. Flest- ar konur, af þeim 240 sem tóku þátt, töldu að eiginmenn þeirra myndu ekki muna eftir að taka pilluna daglega og því væri betra ef þeir gætu fengið skammtinn eftir öðrum leiðum, til dæmis í sprautuformi og þá fyrir lengra tímabil í einu. 46 FÖSTUDAGUR 12. febrúar 2010 LÍFSSTÍLL sem konur vilja ekki heyra á Valen- tínusardaginn 14 ATRIÐI ER KARLMÖNNUM TREYSTANDI FYRIR PILLUNNI? Rómantísk Ragnheiður Guðfinna ætlar að eiga rómantískan dag með sonum sínum, með poppkorn og teiknimyndir að vopni. „Það er bæði mikil spenna og stress í gangi, enda margt sem verður að klárast á stuttum tíma,“ segir Bryndís Þorsteinsdóttir en hún ásamt danskri vinkonu sinni, Rosu Winther Deni- son, verður með tískusýningu á laugar- daginn á Copenhagen Fashion Week. Þær stöllur, sem hanna undir merkinu ROSA BRYNDIS, fengu tvær vikur til að undirbúa sig fyrir sýninguna og hafa komið upp 40 hluta sumarlínu. „Okkar konsept er fjölnota hönn- un sem kemur til móts við þarfir nú- tímakonunnar. Við viljum gera hönn- un sem vekur forvitni og fær þig til að vilja kynnast henni betur, komast í snertingu við hana og nota hana,“ segir Bryndís sem er með BA-gráðu frá Kon- unglega arkitektaskólanum í Kaup- mannahöfn en tók sér pásu frá frekara námi til að snúa sér að fatahönnun- inni. Fullkomið par Aðspurð segir Bryndís lítinn mun á íslenskri og danskri tísku. „Danir eru samt frakkari að prófa nýja hluti og móta sinn eigin stíl. Þeir eru góðir í að blanda saman hátískufatnaði við ódýrari notaðan fatnað á meðan Ís- lendingar fara meira eftir straumnum,“ segir Bryndís en þær Rosa kynntust í fatahönnunarnámi í lýðháskóla. „Við Bryndís vinnum mjög vel saman og erum eiginlega hið fullkomna lið. Það sem ég kann ekki getur hún og svo öf- ugt svo við erum góðar saman.“ Dreymdi um lögfræði Bryndís og Rosa hafa alltaf haft áhuga á tísku og fatahönnun. Bryndís segist nota arkitektanámið mikið í hönnun sinni en Rosa stefndi líka á háskóla- nám. „Ég ætlaði aldrei að verða fata- hönnuður og draumurinn var alltaf að verða lögfræðingur,“ segir hún en þver- tekur fyrir að fatahönnun sé auðveldari leið en lögfræðin. „Hlutirnir þróuðust í þessa átt og ég legg alveg jafnmikla vinnu í hönnunina og ég hefði lagt í lögfræðina,“ segir hún. Langar að opna eigin verslun Tískuvikan í Kaupmannahöfn er hald- in tvisvar á ári og er stærsti tískuvið- burðurinn í Norður-Evrópu. Hana sækja yfir 50 þúsund gestir, fjölmiðla- fólk, hönnuðir og verslunarfólk svo að það að taka þátt gæti opnað dyr að frekari möguleikum. Aðspurðar hvaða vonir þær bindi við sýninguna segjast þær vona að sem flestir mæti og líki við hugmynd þeirra og vöru. „Og vilji hafa hana í skápnum sínum,“ segir Rosa og Bryndís tekur undir og segir sýninguna geta skapað frekari tækifæri. „Við vonumst til að með þessu komum við okkur á framfæri. Þarna mun pressan mæta og annað mik- ilvægt fólk í þessum geira svo þetta skiptir allt sköpum. Við erum ekki mik- ið að spá í framtíðina en draumurinn væri að opna okkar eigin verslun. Það væri frábært að geta lifað á fatahönn- un.“ Hægt er að skoða fleiri myndir á rosabryndis.com. indiana@dv.is Fatahönnuðurinn og arkitektinn Bryn dís Þorsteinsdóttir, sem hannar föt undir merkinu ROSA BRYNDIS ásamt Rosu Winther Denison, mun taka þátt í Copen- hagen Fashion Week um helgina. DRAUMUR AÐ OPNA EIGIN VERSLUN Vinna vel saman Bryndís og Rosa kynntust í fatahönnunarnámi í lýðháskóla. Áhrif frá arkitektúr Bryndís hefur lokið BA-námi frá Konunglega arkitektaskólanum í Kaupmannahöfn og segist nota ýmislegt í fatahönnunina sem hún lærði í náminu. MYNDIR ROSA BRYNDIS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.