Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Síða 12
„Við tilgreinum þau atriði þar sem við
teljum að þeim hafi orðið á mistök
eða gerst sek um vanrækslu í störf-
um sínum. Það eru aðeins einstakl-
ingar sem svona háttar um sem fá að
njóta andmælaréttar. Það fær eng-
inn niðurstöður skýrslunnar í hend-
ur fyrr en skýrslan kemur út,“ sagði
Páll Hreinsson, formaður rannsókn-
arnefndar Alþingis, í samtali við DV í
lok desember, þegar upphaflega stóð
til að senda út greinargerðir til þeirra
sem kunna að bera ábyrgð á banka-
hruninu. Páll tók jafnframt fram að
greinargerðir væru sendar þeim sem
njóta eiga andmælaréttar og að um
væri að ræða menn í opinberum
störfum.
Með orðum Páls er vísað til þess
að bankamenn eða aðrir, sem grun-
aðir eru um brot á lögum í tengls-
um við bankahrunið, sæti rannsókn
af hálfu sérstaks saksóknara og verði
dregnir fyrir dóm.
Andmæli gefa til
kynna alvöru máls
Eftir því sem næst verður komist eru
það einmitt 12 embættismenn og
stjórnmálamenn í opinberum störf-
um sem fengu greinargerðir sendar
fyrir fáeinum dögum. Andmælarétt-
inn hafa tólfmenningarnir í 10 daga,
en eftir frestun birtingar í tvígang
er ætlunin er að birta niðurstöður
rannsóknarskýrslunnar um næstu
mánaðamót.
Í þeim 12 manna hópi sem heim-
ildir eru um að fái með ofangreind-
um hætti að njóta andmælaréttar eru
Geir H. Haarde fyrrverandi forsætis-
ráðherra, Árni M. Mathiesen fyrrver-
andi fjármálaráðherra, Björgvin G.
Sigurðsson fyrrverandi viðskiptaráð-
herra og Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir fyrrverandi utanríkisráðherra. Öll
voru þau ráðherrar í ríkisstjórninni
þegar bankahrunið varð í byrjun okt-
óber 2008.
Stjórarnir í FME og Seðlabanka
Miklar líkur voru ætíð á því að
æðstráðendur bæði Fjármálaeftirlits-
ins og Seðlabankans lægju undir grun
um vanrækslu í störfum í skilningi
laga eða að þeir hefðu gert alvarleg
mistök í starfi.
í hópi þeirra sem fengu umslag
fyrir skemmstu frá rannsóknarnefnd
Alþingis eru því einnig Jónas Fr. Jóns-
son fyrrverandi forstjóri Fjármálaeft-
irlitsins, Davíð Oddsson fyrrverandi
formaður bankastjórnar Seðlabank-
ans auk Eiríks Guðnasonar og Ingi-
mundar Friðrikssonar sem báðir voru
seðlabankastjórar og æðstráðendur
í bankanum með Davíð um og fyrir
bankahrun.
Í hópi háttsettra embættismanna
virðast einnig bera mikla ábyrgð þau
Baldur Guðlaugsson fyrrverandi
ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneyt-
inu, Bolli Þór Bollason, fyrrverandi
ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu
og Jónína S. Lárusdóttir, þáverandi
ráðuneytisstjóri í efnahags- og við-
skiptaráðuneytinu. Eftir því sem DV
kemst næst hafa framangreindir emb-
ættismenn fengið bréf frá rannsóknar-
nefndinni.
Björgvin G. Sigurðsson skipaði
Jónínu ráðuneytisstjóra sumarið 2007,
rúmu ári fyrir bankahrun. Fram hef-
ur komið, meðal annars á eyjan.is að
eiginmaður hennar hafi þá verið við-
skiptastjóri Landsbankans í London.
Stofnuðu þeir ríkinu í hættu?
Þegar niðurstöður rannsóknar-
nefndarinnar hafa verið birtar um
eða eftir næstu mánaðamót ákvarð-
ar sérstök þingmannanefnd hvað
gert verður með niðurstöðurn-
ar. Við blasir að til álita getur kom-
ið að rannsaka mál ráðherranna og
embættis mannanna frekar og kveða
upp úr um ábyrgð þeirra fyrir dóm-
stólum.
Augljóslega getur rannsóknar-
nefndin, þau Páll Hreinsson, Tryggvi
Gunnarsson og Sigríður Benedikts-
dóttir, ekki horft fram hjá stjórnar-
skrá eða lögum um ráðherraábyrgð
þótt þeim hafi aldrei verið beitt frá
árinu 1963 þegar þau voru lögfest.
Í fjórtándu grein stjórnarskrár-
innar segir að ráðherrar beri ábyrgð
á stjórnarframkvæmdum öllum.
„Ráðherraábyrgð er ákveðin með
lögum. Alþingi getur kært ráðherra
fyrir embættisrekstur þeirra. Lands-
dómur dæmir þau mál“.
Lög um landsdóm eru einnig frá
árinu 1963 og hefur ekki verið kallað-
ur saman. Það breytir engu um það
að rannsóknarnefndin hefur litið til
þessara úrræða svo sem lög gera ráð
fyrir.
Ráðherraábyrgð sú sem getið er
um í stjórnarskránni er svo áréttuð í
lögum um ráðherraábyrgð frá 1963.
Í fyrstu grein þeirra laga segir að
ráðherra megi krefja ábyrgðar hafi
hann „annaðhvort af ásetningi eða
stórkostlegu hirðuleysi farið í bága
við stjórnarskrá lýðveldisins, önnur
landslög eða að öðru leyti stofnað
hagsmunum ríkisins í fyrirsjáanlega
hættu“.
Ráðherra telst sekur samkvæmt
b-lið 10. greinar sömu laga „ef hann
framkvæmir nokkuð eða veldur því
12 FÖSTUDAGUR 12. febrúar 2010 FRÉTTIR
RANNSÓKNARNEFNDIN
HEFUR TÓLF GRUNAÐA
Ráðherra (... ) telst sekur ef
hann lætur farast fyrir
að framkvæma nokkuð
það, er afstýrt gat slíkri
hættu, eða veldur því,
að slík framkvæmd ferst
fyrir.
Tólf ráðherrar og embættismenn, sem grunaðir eru um vanrækslu, yfirsjónir eða mis-
tök í starfi í aðdraganda bankahrunsins fengu greinargerðir sendar heim til sín frá
rannsóknarnefnd Alþingis. Þeir hafa tíu daga til að andmæla. Ellefu þessara nafna eru
þegar kunn. Þingmannanefnd mun taka ákvarðanir um örlög þessara einstaklinga.
JÓHANN HAUKSSON
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Rannsóknarnefnd Alþingis Nefndin
hefur sent bréf til tólf manns sem hún
hefur grunaða.