Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Síða 13
að framkvæmt sé nokkuð, er stofnar
heill ríkisins í fyrirsjáanlega hættu,
þótt ekki sé framkvæmd þessi sér-
staklega bönnuð í lögum, svo og
ef hann lætur farast fyrir að fram-
kvæma nokkuð það, er afstýrt gat
slíkri hættu, eða veldur því, að slík
framkvæmd ferst fyrir“.
Fyrir liggur að frá því síðla árs
2007 en einkum snemma árs 2008
hafi lausafjárstaða íslensku bank-
anna verið orðin ískyggileg vegna
þrenginga á alþjóðlegum fjármála-
mörkuðum en einnig vegna sérstakr-
ar athygli sem beindist að vaxandi
fjármálalegum óstöðugleika innan-
lands.
FRÉTTIR 12. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR 13
RANNSÓKNARNEFNDIN
HEFUR TÓLF GRUNAÐA
Nefndin tekur við niðurstöðum rannsóknarnefndar og flytur málið áfram.
Hún verður raunverulega í hlutverki saksóknara.
n Eygló Harðardóttir Framsóknarflokki
n Sigurður Ingi Jóhannsson Framsóknarflokki
n Birgitta Jónsdóttir Hreyfingunni
n Magnús Orri Schram Samfylkingunni
n Oddný G. Harðardóttir Samfylkingunni
n Ragnheiður Ríkharðsdóttir Sjálfstæðisflokki
n Unnur Brá Konráðsdóttir Sjálfstæðisflokki
n Atli Gíslason VG
n Lilja Rafney Magnúsdóttir VG
n Úr lögum um ráðherraábyrgð frá árinu 1963:
10. gr. Loks verður ráðherra sekur eftir lögum þessum:
a. ef hann misbeitir stórlega valdi sínu, enda þótt hann hafi ekki beinlínis farið
út fyrir embættistakmörk sín;
b. ef hann framkvæmir nokkuð eða veldur því, að framkvæmt sé nokkuð, er
stofnar heill ríkisins í fyrirsjáanlega hættu, þótt ekki sé framkvæmd þess sérstak-
lega bönnuð í lögum, svo og ef hann lætur farast fyrir að framkvæma nokkuð
það, er afstýrt gat slíkri hættu, eða veldur því, að slík framkvæmd ferst fyrir.
n 11. gr. Brot gegn lögum þessum varða, eftir málavöxtum, embættismissi,
sektum eða fangelsi allt að 2 árum.
Þingmannanefndin
n Nafn: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
fyrrverandi utanríkisráðherra.
n Ferill: Fyrrverandi borgarstjóri
og formaður Samfylkingarinnar og
alþingismaður. Ingibjörg er sagnfræð-
ingur að mennt.
n Grunað brot: Mistök eða vanræksla í
skilningi laga um ráðherraábyrgð.
n Núverandi starf: Óþekkt en sótti
nýverið um starf mansalsfulltrúa hjá
ÖSE í Vínarborg. Glímdi við veikindi um
og eftir bankahrun.
n Viðbrögð: Tjáir sig ekki um
rannsóknar nefndina eða sendingar frá
henni.
n Nafn: Geir H. Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra.
n Ferill. Fyrrverandi utanríksiráðherra
og fjármálaráðherra og formaður
Sjáflstæðisflokksins og fleira.
n Grunað brot: Æðsta ákvörðunarvald
í bankahruninu, hugsanleg mistök
eða vanræksla í skilningi laga um
ráðherraábyrgð og jafnvel fleiri laga.
n Núverandi starf: Óþekkt. Glímdi við
veikindi um og eftir bankahrun.
n Viðbrögð. Ekki náðist til Geirs.
n Nafn: Árni M. Mathiesen, fyrrverandi
fjármálaráðherra.
n Ferill: Áður sjávarútvegsráðherra og
þingmaður.
n Grunað brot: Mistök eða vanræksla
í skilningi laga um ráðherraábyrgð og
fleira.
n Núverandi starf: Dýralæknir á
Suðurlandi.
n Viðbrögð: Tjáir sig ekki um
rannsóknarnefndina og sendingar frá
henni.
n Nafn: Björgvin G. Sigurðsson,
fyrrverandi viðskiptaráðherra.
n Ferill: Þingmaður Samfylkingarinnar
í Suðurkjördæmi o.fl.
n Grunað brot: Mistök eða vanræksla
í skilningi laga um ráðherraábyrgð og
fleira.
n Núverandi starf. Þingmaður og
þingflokksformaður.
n Viðbrögð: Ekki náðist til Björgvins.
n Nafn: Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi
forstjóri Fjármálaeftirlitsins.
n Ferill: Lögfræðingur.
n Grunað brot: Mistök eða vanræksla í
starfi í skilning laga, m.a. um fjármála-
fyrirtæki, verðbréfaviðskipti o.fl.
n Núverandi starf: Óþekkt.
n Viðbrögð: Ekkert samband hefur
verið haft við Jónas.
n Nafn: Jónína S. Lárusdóttir, ráðu-
neytisstjóri í efnahags- og viðskipta-
ráðuneyti.
n Ferill: Lögfræðingur og áður
skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu.
n Grunað brot: Hugsanleg mistök eða
embættisglöp í skilningi laga.
n Núverandi starf: Ráðuneytisstjóri.
n Viðbrögð: Ekki náðist í Jónínu.
n Nafn: Davíð Oddsson, fyrrverandi
seðlabankastjóri.
n Ferill: Lögfræðingur, borgarstjóri,
forsætisráðherra, utanríkisráðherra, og
formaður Sjálfstæðisflokksins.
n Grunað brot: Hugsanleg vanræksla
eða mistök í starfi í skilningi laga, m.a.
laga um Seðlabanka Íslands, stjórn-
sýslulög o.fl.
n Núverandi starf: Ritstjóri Morgun-
blaðsins.
n Viðbrögð: Ekki náðist í Davíð.
n Nafn: Ingimundur Friðriksson,
fyrrverandi seðlabankastjóri.
n Ferill: Hagfræðingur og yfirmaður
í Seðlabanka Íslands, m.a. aðstoðar-
seðlabankastjóri.
n Grunað brot: Hugsanleg vanræksla
í skilningi laga, m.a. gegn lögum um
Seðlabanka Íslands.
n Núverandi starf: Ráðgjafastarf í
Noregi.
n Viðbrögð: Ekki náðist í Ingimund.
n Nafn: Eiríkur Guðnason, fyrrverandi
seðlabankastjóri.
n Ferill: Hagfræðngur og einn af
stjórnendum Seðlabankans um langt
skeið.
n Grunað brot: Hugsanleg vanræksla
í skilningi laga, m.a. gegn lögum um
Seðlabanka Íslands.
n Núverandi starf: Óþekkt.
n Viðbrögð: Ætlar ekki að tjá sig.
n Nafn: Baldur Guðlaugsson.
fyrrverandi ráðuneytisstjóri fjármála-
ráðuneytisins.
n Ferill: Lögfræðingur, sjálfstætt
starfandi, ráðuneytisstjóri frá árinu
2000.
n Grunað brot: Mistök og vanræksla
í skilningi laga. Einnig grunaður um
innherjasvik og stendur í málaferlum.
n Núverandi starf: Óþekkt.
n Viðbrögð: Svarar engu um
rannsóknarnefndina eða sendingar frá
henni.
n Nafn: Bolli Þór Bollason, fyrrverandi
ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneytinu.
n Ferill: Hagfræðingur, ráðuneytis-
stjóri og skrifstofustjóri.
n Grunað brot: Mistök, vanræksla eða
embættisglöp í skilningi laga.
n Núverandi starf: Óþekkt.
n Viðbrögð: Ekki náðist í Bolla.
HIN GRUNUÐU