Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Síða 19
FRÉTTIR 12. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR 19
TÓK UPP HANSKANN
FYRIR ICESAVE
bankanum. „Innstæður eru ör-
uggar, aðallega í Landsbankanum.
Landsbankinn var stofnaður fyrir
120 árum. Hann er virtur og geng-
ur vel hér á landi og annars staðar.
Ég myndi ekki segja annað en að
það væri góð ákvörðun að nýta sér
þá möguleika að leggja sparifé sitt
inn í Landsbankann,“ sagði Davíð í
febrúar 2008.
Í viðtalinu sagði Davíð enn
fremur að fjáröflun hjá venjuleg-
um innistæðueigendum væri far-
sæl leið fyrir bankana. „Ég held að
íslenski bankar hafi áttað sig á því
fyrir tveimur árum að þeir ættu að
fara þá leið frekar en að endurfjár-
magna sig á markaði. Það var eðli-
legra að gera slíkt með innlánum
og það hefur gengið vel. Ég held að
við ættum að hrósa þeim fyrir það
en ekki refsa þeim,“ sagði Davíð.
Skýrsla SÍ um stöðugleika
Í skýrslu Seðlabankans frá því í
maí 2008 um fjármálastöðugleika
í íslenska bankakerfinu segir: „Á
heildina litið er niðurstaða Seðla-
bankans enn sú að fjármálakerfið
sé í meginatriðum traust. Íslenska
bankakerfið uppfyllir kröfur sem
gerðar eru til þess og stenst álags-
próf sem Fjármálaeftirlitið og
Seðlabankinn hafa gert.“
Í sömu skýrslu segir enn frem-
ur um eiginfjárstöðu, arðsemi og
lausafjárstöðu bankanna: „Árs-
reikningar íslenskra fjármálafyr-
irtækja fyrir árið 2007, sérstaklega
þriggja stærstu bankanna, sýna
enn sem fyrr að þeir eru þrótt-
miklir. Eiginfjárstaða, arðsemi og
lausafjárstaða þeirra er viðun-
andi. Álagspróf Fjármálaeftirlitsins
(FME) og Seðlabankans staðfesta
þetta. Rekstraruppgjör bankanna
fyrir fyrsta fjórðung þessa árs er
í samræmi við það mat,“ segir í
skýrslunni sem Davíð bar ábyrgð á
sem seðlabankastjóri.
Góð lausafjársstaða
Í umræddri skýrslu Seðlabankans
er einnig fjallað á jákvæðan hátt
um lausafjárstöðu bankanna, en
þýðingarmikið er fyrir þá að hafa
góða lausafjárstöðu þegar sneiðist
um lánsfé á mörkuðum fyrir bank-
ana. Samanlögð lausafjárstaða
bankanna var á vormánuðum
talin vel varin fyrir breytingum á
gengi krónunnar samkvæmt regl-
um Seðlabankans. Lausafjáreign
bankanna var á þessum tíma nær
eingöngu í erlendum gjaldmiðlum
segir í skýrslu Seðlabankans.
„Auk þess að hlíta reglum
Seðlabanka Íslands um laust fé
marka bankarnir sér innri regl-
ur um laust fé. Innri reglur bank-
anna eru að jafnaði þrengri en
reglur Seðlabankans. Í flestum til-
vikum miðast lágmark innri reglna
við að nægt laust fé sé til staðar til
að mæta skuldbindingum næstu
12 mánuði án aðgengis að mörk-
uðum. Jafnframt er frádrag eigna
í sumum tilfellum meira en regl-
ur Seðlabankans segja til um. Um
áramót áttu allir bankarnir laust
fé til að mæta skuldbindingum
án markaðsaðgengis til næstu 12
mánaða,“ sagði í skýrslunni sem
gaf bönkunum heilbrigðisvottorð
í maí árið 2008, fáum mánuðum
fyrir hrun.
Ég myndi ekki segja annað en að
það væri góð ákvörðun
að nýta sér þá möguleika
að leggja sparifé sitt inn í
Landsbankann.
Hæstiréttur þyngdi á fimmtudag dóm
yfir manni á fertugsaldri sem beitti
þrjú börn sín hrottalegu ofbeldi.
Hæstiréttur þyngdi dóm héraðs-
dóms úr 18 mánaða fangelsi í tveggja
ára fangelsi. Auk tveggja ára fangels-
isdóms var maðurinn dæmdur til
að greiða börnunum sínum þremur
samanlagt 2,4 milljónir króna fyrir
það ofbeldi sem hann beitti þau.
Brotin voru framin frá sumri 2005
til upphafs árs 2008. Maðurinn var
meðal annars dæmdur fyrir að kasta
hnífi að syni sínum og handjárna
dóttur sína við ofn. Í eitt skipti drap
maðurinn heimilisköttinn í viðurvist
sonar síns og dóttur. Sonurinn var
síðan látinn henda kettinum í rusla-
tunnu fyrir utan heimilið þar sem
yngri dóttirin fann köttinn.
Syninum gengur
vel í menntaskóla
Sonurinn sem er fæddur árið 1993
greindi frá því fyrir dómi að faðir
hans hefði stillt honum upp við vegg
með fætur sundurglennta og útréttar
hendur og síðan kastað hnífi að hon-
um. Hnífurinn sem maðurinn kast-
aði að syni sínum lenti í læri piltsins
sem ber ör eftir þetta. Auk þessa ógn-
aði hann honum með hnífi og í annað
skipti með eftirlíkingu af skammbyssu
sem hann hélt að væri raunveruleg
byssa og hótaði honum lífláti. Einnig
neyddi maðurinn son sinn til að stela
fyrir sig vínflösku úr nálægu tjaldi í
útilegu og hótaði syninum lífláti ef
hann hlýddi ekki. Syninum, sem nú
er í menntaskóla, hefur samkvæmt
heimildum DV gengið vel að fóta sig í
skólanum eftir að hann komst í umsjá
fósturforeldra.
Illa farin andlega
Börnin þrjú hafa dvalið hjá fóstur-
foreldrum sínum, sem eru föður-
afi þeirra og eiginkona hans, eftir að
þau voru tekin frá föður sínum. Sam-
kvæmt heimildum DV hefur börn-
unum gengið vel að fóta sig eftir að
þau komust í umsjá fósturforeldr-
anna. Þau hafi hreinlega blómstrað.
Þegar þau komu þangað voru þau
mjög illa farin andlega. Í Hæstarétti
var lagt fram bréf frá verkefnastjóra
fjölskyldunefndar Barnaverndar sem
sagði að dvölin hjá manninum, áður
en til vistunar á fósturheimili hefði
komið, hefði haft alvarlegar afleiðing-
ar fyrir andlega líðan þeirra. Þau hafa
notið aðstoðar sérfræðinga Barna- og
unglingageðdeildar Landspítalans og
Barnahúss.
Sagðist saklaus
„Sálarlífið er komið í rúst. Ég er tek-
inn af lífi án dóms og laga. Þetta hefur
tekið svo á mig að það hálfa væri nóg,“
sagði maðurinn í viðtali við DV í sept-
ember 2008, stuttu eftir að lögreglu-
rannsókn hófst vegna ásakana um
að hann hefði beitt börn sín ofbeldi.
Sagðist hann sár yfir þeirri umfjöllun
sem málið hefði fengið, sérstaklega í
ljósi þess að enginn dómur hefði fallið
í málinu og á þeim tíma höfðu engar
ákærur verið gefnar út.
Í viðtalinu í september 2008 sagð-
ist maðurinn fullviss um að ásakan-
ir á hendur honum um ofbeldi gegn
börnunum ættu rætur sínar að rekja
til ættar barnsmóður hans. „Ég er bú-
inn að vera í sex ára stríði við barns-
móður mína. Hún er í fíkniefnum og
innbrotum inn á mitt heimili,“ sagði
maðurinn. Hann sakaði hana einn-
ig um að hafa reynt að brjótast inn til
hans og barnanna í því skyni að hafa
af þeim verðmætar eigur til að fjár-
magna fíkniefnaneyslu sína.
Trúir á geimverur
Viðmælandi sem DV ræddi við sagði
að maðurinn væri enn mjög andlega
veikur. Erfitt væri að segja til um hvort
dómur Hæstaréttar væri of mildur.
Maðurinn hefði líklega verið of veik-
ur andlega til að átta sig á alvarleika
brotanna. „Hann er mjög sjúkur. Þeg-
ar maður er veikur þarf maður að vilja
láta hjálpa sér. Hann vill það ekki,“
segir viðmælandinn sem ekki vildi
koma fram undir nafni. Maðurinn
bjó einn með börnum sínum þremur.
Maðurinn hefur haldið úti bloggsíðu
þar sem hann hefur lýst samskiptum
sínum við barnsmóðurina. Í samtali
við DV árið 2008 sagðist hann oft hafa
reynt að fá nálgunarbann á hana.
Maðurinn er mjög trúaður og vís-
ar gjarnan í Biblíuna. Hefur hann lent
í vandræðum vegna trúarskoðana
sinna og ítrekað verið bannaður á ís-
lenskum spjallvef, meðal annars fyr-
ir að halda því á lofti að guð líti sam-
kynhneigða sömu augum og þá sem
leggjast með dýrum. Hann túlkar ritn-
ingarstaði þannig að samtíðarmenn
Jesú hafi séð geimskip og trúir hann á
tilvist geimvera.
Vill ekki hjálp Viðmælandi
sem DV ræddi við sagði að mað-
urinn væri mjög andlega veikur
en vildi ekki láta hjálpa sér.
ANNAS SIGMUNDSSON
blaðamaður skrifar: as@dv.is
„HANN
ER MJÖG
SJÚKUR“
Maður sem beitti þrjú börn sín hrottalegu ofbeldi var í Hæstarétti dæmdur í tveggja
ára fangelsi. Hann var meðal annars dæmdur fyrir að kasta hnífi að syni sínum og
handjárna dóttur sína við ofn. Samkvæmt heimildum DV hefur börnunum gengið vel
að fóta sig eftir að þau komust í umsjá fósturforeldra.
Hann er mjög sjúkur. Þegar
maður er veikur þarf
maður að vilja láta hjálpa
sér. Hann vill það ekki.