Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Blaðsíða 29
Guðmundur vinnur í Landsbank-
anum, og vann þar einnig fyrir
hrun. „Ég á vini og kunningja sem
vinna í öðrum bönkum en þetta er
ekki byggt á mér. Maður sankaði að
sér punktum og bjó til persónu.“
Styrkur í því sem ósagt er
Í Bankster er lýst af mikilli næmni
þeim tómleika sem grípur Mark-
ús, ungan bankastarfsmann, þegar
hann og sambýliskona hans miss-
ir vinnuna og öll undirstaða lífs
hans og framtíðar verður að engu á
haustmánuðum ársins 2008.
Vinur Markúsar stingur upp á
því að hann hefji dagbókarskrif til
að halda utan um lífið sem fylgir
atvinnumissi. Þaðan fær frásögn-
in form sitt en henni fleytir fram í
stuttum dagbókarfærslum sögu-
manns.
Styrkur fyrri verka Guðmundar
lá að miklu leyti í því sem látið var
ósagt, samanber órætt umhverfi og
aðstæður sögumannsins í Holu í
lífi fyrrverandi golfara og óyrtu ytra
samhengi smásagnanna í Vaxandi
nánd. Í Bankster er sviðsmyndin
aftur á móti kyrfilega tengd íslensk-
um veruleika og forsaga þeirra at-
burða sem verkið er sprottið upp
úr augljós. Bókin er raunsönn lýs-
ing á tilvistarkrísu ungs manns,
sem hafði séð framtíð sína baðaða
í ljóma, og máttvana viðbrögðum
hans við stórfelldu áfalli. Efnahag-
urinn hrundi á ógnvænlega stutt-
um tíma, en fall Markúsar er hægt
og öruggt. Í sögunni liggur beisk
lýsing á því andvaraleysi sem ein-
kenndi útrásarsamfélagið, afleið-
ingum óhóflegrar bjartsýni og mót-
stöðuleysis þar sem gert var ráð
fyrir óstöðvandi framrás árangurs
og velgengni.
Setur símann á silent
Guðmundur hefur unnið í Lands-
bankanum samhliða ritstörfum
undanfarin ár og segir að sér hafi
verið tekið afar vel í vinnunni þeg-
ar hann mætti þangað aftur. „Þetta
er búinn að vera óvenjulegur dagur,
þannig séð. Það er gott á milli starfs-
fólks hérna í Landsbankanum,“ segir
Guðmundur en hann segir að vinnu-
mórallinn sé og hafi alltaf verið góð-
ur. „Það hefur alltaf verið góður mór-
all en núna finnst mér hann vera
orðinn ekta góður, ef maður má segja
það. Hann er eins og hann á að vera.
Raunverulegur og það er þessi um-
hyggja sem mér finnst svo góð. Það
er kannski eitthvað sem spratt upp úr
látunum.“
Guðmundur segir að það sé gott
að vinna í banka og sem rithöfundur.
„Skrifstofustarfið er í föstum skorð-
um, ég er búinn hér um fimm. Þá er
maður með kvöldin og helgarnar og
þá er hægt að skrifa. Maður passar
sig að vera ekki með sjónvarp, þá er
maður með fínan frið heima. Svo set-
ur maður bara símann á silent og þá
er maður bara nánast kominn upp í
sveit.“
Vonandi byr í seglin
Verðlaunin skipta miklu fyrir Guð-
mund sem segir að hann geti tek-
ið sér nokkurra mánaða launalaust
leyfi til að einbeita sér að skrifunum.
„Ég er samt enn að glíma við þessa
spurningu: Hvað þýðir þetta fyrir
mig? Ég held að hún muni svara sér
sjálf en samt á einu og hálfu ári. Ég er
með smá væntingar fyrir framtíðina
og þetta er vonandi byr í seglin. Mað-
ur veit samt ekki alveg hvað gerist. En
þetta er jákvætt, það veit ég.
Nú er að taka út spennufallið og
svo fer maður að þreifa á hugmynd-
um. Meðan maður sinnir einni hug-
mynd fæðast tuttugu í viðbót. Svo er
bara að velja það sem maður hefur
trú á.
Ég er með eina hugmynd sem ég
hef mikinn áhuga á núna. Hún er
óljós og ég er ekki alveg kominn með
hana á hreint.
Það er peningur þarna og mað-
ur getur þá tekið sér tveggja, þriggja
mánaða leyfi til að skrifa. Svo sótti
ég um ritlaun - bara til að vera með í
pottinum en þetta ætti að hjálpa. Þá
tekur maður sér kannski lengra leyfi
til að skrifa.“
Datt í desember
Guðmundur segir að hann hafi verið
stressaður þegar hann gekk þessi fáu
skref til að taka á móti verðlaununum
úr höndum forseta Íslands. „Þetta
kom mér svolítið á óvart. Þessir höf-
undar sem þarna voru tilnefndir eru
höfundar sem ég hef verið að lesa
lengi. Alveg frá unglingsaldri og eru
jafnvel mínar fyrirmyndir. Ég pass-
aði mig og reyndi að vera með með-
vitund og ekki stressaður. Það gekk
ekki fullkomlega upp - þetta er dálítið
í glefsum í minningunni þó að ég geti
rifjað þetta upp.
Ég datt illa í desember, rann með
hendur í vösum þegar það kom fyrsti
hálkudagurinn, alveg eins og bjáni.
Þannig að ég var búinn að taka það
út, var bara spakur á Bessastöðum
og ekkert smeykur að detta eða neitt
þannig.“
Fyrir utan að skrifa verðlauna-
bækur og vinna í Landsbankanum
segir Guðmundur að hann reyni að
rækta tengslin við sitt fólk. „Áhuga-
málin hafa eiginlega legið í dvala
undanfarin ár. Maður reynir bara að
umgangast fólkið sitt, maður má ekki
klikka á því.“ benni@dv.is
M
Æ
LI
R
M
EÐ
...
... BRÁÐUM HATA ÉG ÞIG
Leikrit útskriftar-
hóps Nemenda-
leikhúss LHÍ
Þetta er býsna
góður hópur og ættu flestir að
eiga möguleika eftir útskrift.
... FAUST
Leikur
Vesturports-
manna og
Leikfélags
Reykjavíkur
er vel
... MAYBE I SHOULD HAVE
Setur flókna
hluti í einfald-
ara samhengi.
EDGE OF DARKNESS
Flott endur-
koma hjá
Mel Gibson.
... TILBRIGÐI VIÐ STEF
Ágætis
verk í
Iðnó.
... IT´S COMPLICATED
Ótrúlega illa
heppnuð
þrátt fyrir gott
úrval leikara.
FÓKUS 12. febrúar 2010 FÖSTUDAGUR 29
Birni Thoroddsen boðið að spila á afmælishátíð stórgítarleikarans Kazumi Watanabe:
„Þetta er gífurlegur heiður“
FÖSTUDAGUR
n Bermuda á Spot
Bermuda með hina stórglæsilegu
Írisi Hólm í framlínunni spilar á Spot
í Kópavogi
á föstudag.
Bermuda kann
næstum öll lög í
heimi og slengir
iðulega fram
nýjustu danssmellunum. með Eurov-
ision-stjörnuna við hljóðnemann má
treysta á gæðin. Miðasala hefst kl. 23
og kostar 1500 krónur inn.
n Sódóma
Gleðisveitin Beneath mun halda út-
gáfutónleika föstudaginn 12. febrúar
á Sódómu. Með þeim verða Forgarður
helvítis, Carpe Noctem og Infected.
Hljómsveitin ætlar að fá sem flesta í
lið með sér og mun vera með merktan
varning til sölu. Það kostar 500 krónur
á tónleikana sem byrja klukkan 22.
n Kynþokki á Barböru
Næsta föstudagskvöld verður
kynþokkinn allsráðandi á Barböru.
Barnastjörnur og ellismellir fá að hvíla
sig og heit tónlist fær að hljóma. Það
verður mögnuð spenna í loftinu og
um kvöldið verða valin ungfrú og
herra sexý. Skemmtun sem enginn
athyglissjúkur má láta fram hjá sér
fara.
n Prikpartí
Það er alltaf fjör á prikinu um helgar
og þessi helgi er ekki undanskilin.
Franz og Jenni verða með grunge
tribute og svo tekur Addi Intro við og
klárar kvöldið eins og honum einum
er lagið. Frá 21 til 00 kostar flaska og
bland 7.500. Fyrir þá hörðu.
LAUGARDAGUR
n Skíðadjamm á Akureyri
Útvarpsstöðin FM 957 ætlar með
skemmtanaglaða Reykvíkinga í
höfuðstað Norðurlands og beint á
Kaffi Akureyri þar sem Finlandia-partí
verður haldið þeim til heiðurs á laug-
ardagskvöldinu. Að sjálfsögðu verður
andað að sér fersku lofti og kíkt upp í
Hliðarfjall. Skráning er hjá hópadeild
Flugfélags Íslands og kostar ferðin
16.500 krónur með öllu.
n Von og Bjöggi Halldórs á Spot
Það verður norðlensk stemning á
SPOT í kvöld en hljómsveitin Von frá
Sauðárkróki mun halda uppi stuðinu
með ofurbarkann Ellert Jóhannsson
og stórsöngvarann Björgvin Halldórs-
son við hljóðnemann. Fjörið hefst
klukkan 22 og kostar 1.800 krónur inn.
n DJ M.DEE á Hverfisbarnum
Einn helsti plötusnúður Frakka, DJ
M.DEE, verður á Hverfisbarnum á
laugardagskvöld. Helstu áherslur hans
eru á Hip hop, R&B og House-tónlist
og hefur hann unnið með Snoop
Dogg, Beyoncé, Akon og Ghostface
Killah svo dæmi séu tekin. Danni
DeLuxx ætlar að hita upp og byrjar
hann klukkan 22.
n Páll Óskar á Selfossi
Páll Óskar mætir í Hvítahúsið á
Selfossi á laug-
ardagskvöldið
í fyrsta sinn á
þessu herrans
ári og ætlar gera
það sem hann
gerir best, halda
uppi geðveiku
stuði. Húsið
verður opnað kl. 23 og það er 18 ára
aldurstakmark inn á staðinn.
n Dansveisla á Jacobsen
Superman.is, í samstarfi við Jacobsen
og Bacardi Razz, ætla að bjóða til
dansveislu fyrir lengra komna laug-
ardagskvöldið 13. febrúar. Dubstep.is
verður á efri hæðinni og ZurgBassi á
neðri hæðinni. Það verður ókeypin inn
til klukkan 12 en kostar 500 krónur
eftir það.
Hvað er að
GERAST?
„Ég á að vera með fyrsta atriðið á
þessari hátíð sem hann er að halda
í tilefni af fjörtíu ára starfsafmæli
sínu,“ segir Björn Thoroddsen gít-
arleikari en hann fékk á dögunum
boðskort um að spila á afmælishátíð
sem japanski stórgítarleikarinn Kaz-
umi Watanabe heldur upp á í Tókýó í
tilefni af fjörtíu ára starfsafmæli sínu.
Björn var að undirbúa Japansför þar
sem hann ætlaði að spila á nokkr-
um stöðum þegar boðið barst. „Kaz-
umi er einn þekktasti djasstónlistar-
maðurinn í Japan. Ég hef spilað með
honum áður svo ég kannast aðeins
við hann,“ segir Björn sem finnst frá-
bært að hafa fengið þetta tækifæri.
„Ég átti alls ekki von á þessu,“ segir
Björn.
Björn mun spila oftar en einu
sinni á afmælishátíðinni en Kaz-
umi hyggst halda hana allt árið með
mörgum þekktum tónlistarmönn-
um. Fyrst mun hann spila á opnun-
arhátíðinni og verður, eins og áður
hefur komið fram, sá fyrsti til að
koma þar fram. hann mun svo aftur
spila í apríl og þá með örðum tón-
listarmönnum. Þar á meðal þekkt-
um nöfnum frá Bandaríkjunum.
Það er því ekki amalegt fyrir Björn að
vera settur í flokk með þeim og má
vel búast við fjölmiðlafári í kringum
hátíðina úti í Japan. „Þetta er gífur-
legur heiður,“ segir hann.
Svo heppilega vill til að sonur
Björns býr og stundar nám í Tókýó
svo hann er glaður að fá tækifæri til
að heimsækja son sinn í leiðinni.
asdisbjorg@dv.is
n Fræðibækur og bækur
almenns efnis
Á mannamáli. Ofbeldi á Íslandi - Þórdís
Elva Þorvaldsdóttir. JPV útgáfa.
Jón Leifs - Líf í tónum. Árni Heimir
Ingólfsson. Mál og menning.
Jöklar á Íslandi. Helgi Björnsson. Opna.
Mynd af Ragnari í Smára. Jón Karl
Helgason. Bjartur.
Svavar Guðnason. Kristín G. Guðna-
dóttir. Bjartur.
n Fagurbókmenntir
Auður. Vilborg Davíðsdóttir. Mál og
menning.
Bankster. Guðmundur Óskarsson.
Ormstunga.
Enn er morgunn. Böðvar Guðmunds-
son. Uppheimar.
Góði elskhuginn. Steinunn Sigurðar-
dóttir. Bjartur.
Milli trjánna. Gyrðir Elíasson. Upp-
heimar.
Eftirfarandi 10 bækur voru tilnefndar til verðlaunanna:
Úr bókadómi DV:
Bankster er haganlega saman sett
skáldsaga um það hvernig tilveran
liðast smátt og smátt í sundur hjá
bankastarfsmanni sem vissi ekki
betur, frekar en pöpullinn, en að
lífið fram undan liti bara dável út.
Það sem helst má setja út á sögu
Guðmundar fyrir mína parta er að
faðir Markúsar kemur svo gott sem
ekkert meira við sögu eftir að hafa
átt áhugaverð samtöl við son sinn
á fyrstu síðum bókarinnar í þann
mund sem fjármálakerfið er að
hrynja. Samtölin eru athyglisverð því
þar ræða saman innanbúðarmaður
í kerfinu og maður sem stendur
algjörlega utan við það, það er faðir
Markúsar sem er um leið fulltrúi allra
þeirra lesenda sem horfðu utan frá á
pappírsborg bankakerfisins fjúka út í
buskann nánast á einni nóttu. Líklegt
má telja að mörg svona samtöl
hafi átt sér stað hér á landi þessa
örlagaríku daga haustið 2008.
Kristján Hrafn Guðmundsson
Starfar sjálfur í banka Guðmundur
vinnur í Landsbankanum og vann þar
einnig þegar bankinn hrundi. Hann
segir bókina þó ekki byggða sínu lífi.
M
Æ
LI
R
EK
KI
M
EÐ
...