Dagblaðið Vísir - DV - 12.02.2010, Page 50
50 FÖSTUDAGUR 12. febrúar 2010
Nýlega var haldin kosning um kynþokkafyllsta fótboltamanninn. David Beckham er aðeins í tíunda
sæti og er því orðinn aftarlega á merinni. Rúmlega 80 þúsund konur greiddu atkvæði.
DAVID
BECKHAM
n Kóngurinn er fallinn af stallinum
sem fallegasti knattspyrnumaðurinn.
Er dottinn niður í tíunda sæti. Tískug-
úrú og trendsetter með magavöðva
sem flestir öfunda hann af. Svo á hann
hrikalega mikið af peningum sem
skemmir nákvæmlega ekki neitt.
GERARD
PIQUE
n Spænskt augnakonfekt sem er með
barnahár í framan. Kannski er það
einmitt það sem gerir hann svona
flottan.
CESC
FABREGAS
n Nafnið eitt og sér kemur honum á
þennan lista. Elskar kleinuhringi og
Disney-myndir sem gerir hann að
mesta uppáhaldstengdasyni í heimi.
KENWYNE
JONES
n Hár, dökkur og myndarlegur með
bros sem bræðir hvaða hjarta sem er.
Hatar ekki að vippa sér úr Sunder-
land-búningnum eftir leiki og flexa
vöðvana - og þar er af nægu að taka.
YOANN
GOURCUFF
n Tískugúrú sem á frátekinn stað á
tískuvikunni í Mílanó og París. Samt
vita allir að hann ætti að vera að
sýna fötin en ekki bara horfa á þau.
Svo talar hann fjögur tungumál.
Veraldarvanur Frakki, hvað vill maður
meira?
FABIO
CANNAVARO
n Ítalskur foli sem heitir Fabio.
Drekkur rauðvín og elskar góða osta.
Kósí kall með flottan líkama.
TIM CAHILL
n Alvörukarlmaður, harður af sér en
samt svo mjúkur. Nánast með átta
magavöðva og hatar ekki að sýna þá
eftir leiki. Húðflúrin skemma heldur
ekki neitt.
MARCO
BORRIELLO
n Hann á snekkju - þarf að segja
meira?
ROQUE
SANTA CRUZ
n Partípinni frá Paragvæ. Sykursætur
og stæltur mömmustrákur sem spilar
með Manchester City.
CRISTIANO
RONALDO
n Kóngurinn í dag - bæði innan vallar
og utan. Elskar að versla, hatar ekki að
skemmta sér og er með líkama sem
gerir hvern karlmann öfundsjúkan.
Pottþétt leikfang.
10. 9. 8. 7. 6.
5. 4. 3. 2. 1.